Morgunblaðið - 06.01.1960, Qupperneq 2
MORCVNBLAÐ1Ð
2
Yfirvöldin i Vestur-Berlín snúast
hart gegn ný-nazistum
Einn dœmdur,
17 bíða dóms
BONN, London og V-Berlín,
J/. jan. — (Reuter-NTB) —
EKKERT lát er á hatursher-
ferðinni gegn Gyðingum, og
enn breiðist hún út. Hafa bor-
izt fregnir um Gyðingaandróð
ur frá Bretlandi, Ástralíu,
Belgíu, Frakklandi, Finn-
landi, Grikklandi, Svíþjóð og
Ítalíu, auk Vestur-Þýzka-
lands. —
★
Yfirvöldin í Vestur-Berlín
brugðu við skjótt, fangelsuðu
einn ný-nazista, en handtóku 17
aðra. Handtökurnar fóru fram
eftir að lögregla gerði húsrann-
sóknir á heimilum ný-nazista og í
höfðustöðvum félags þeirra, þar
sem fundust m. a. nazista-bún-
ingar, rýtingar frá Hitlersæsku-
félagsskapnum, áróðursræður á
segulböndum, auk þess mikið af
árásarbæklingum og prentvél.
★
★ Ungt fólk
Þeir 17, sem handteknir voru,
eru flestir á aldrinum 19—26 ára,
og allir tóku þeir þátt í fundi sl.
laugardag, þar sem sungnir voru
nazistasöngvar. Til að stuðla að
útrýmingu nazistahreyfingarinn.
ar í Vestur-Berlín, hefur borgar-
stjórnin farið þess á leit við Vest
urveldin, að þau heimili vestur-
þýzkum dómstóli að banna hreyf
inguna í Berlín, en Vesturveldin
hafa neitunarrétt í slíkum mál-
um. Er ætlunin að banna félagið
„Þjóðernis-æska Þýzkalands“ og
„Þjóðernisfélag stúdenta“. Þá
voru á fundi, þar sem 200 blaða-
menn voru samankomnir, gefin
upp nöfn, heimilisföng og vinnu-
staðir allra þeirra 17, er hand-
teknir voru.
★
★ Fyrsti dómurinn
Rolf Wollny, sem handtekinn
var í Vestur-Berlín fyrir að mála
óhróðursorð og hakakross á hús-
veggi, var dæmdur til 10 mánaða
fangelsisvistar fyrir „móðgun“
og er þegar tekinn að afplána
dóm sinn. Þá var honum gert að
greiða allan málskostnað og auk
þess auglýsingarkostnað, en sam
tökum Gyðinga í V.-Berlín, var
heimilað að birta dómsniðurstöð-
urnar í auglýsingu. Wollny
kvaðst hafa verið drukkinn og
sjá eftir gjörðum sínum. — Er
þetta fyrsti dómurinn, sem upp
er kveðinn í slíku máli, eftir að
hatursherferðin gegn Gyðing-
um hófst um jólin.
★
★r Adenauer lýsir viðbjóði
Adenauer kanzlari lýsti í dag
viðbjóði sínum á árásunum á
Gyðinga í Vestur-Þýzkalandi. Til
kynnti hann framkvæmdastjóra
aðalstjórnar Gyðingasamtaka
Þýzkalands, dr Hendrik Van
Dam, að allt yrði gert til að
finna hina seku og draga þá fyr-
ir dóm. Hafði kanzlarinn tilkynnt
Van Dam þetta, er Van Dam
færði honum afmæliskveðjur frá
Gyðingasamtökum Þýzkalands,
en Adenauer varð 84 ára í dag.
Formanni Kölnardeildar þýzka
Ríkisflokksins var sleppt úr haidi
á þriðjudagskvöld. Hann var
handtekinn um jólin eftir að haka
krossar höfðu verið málaðir á
samkomustað Gyðinga þar í borg
og á minnisvarða, er reistur hafði
verið til minningar um fórnardýr
nazismans. Vakti þetta talsverða
gremju, en yfirvöldin skýrðu frá
því að honum hefði aðeins verið
sleppt til bráðabirgða, þar sem
ekki hafði reynzt unnt að sanna
á hann sökina.
Víða í Bretlandi hafa verið xnál
aðir hakakrossar og óhróður um
Gyðinga á húsveggi í mörgum
borgum, m. a. í Axminster, þar
sem auk hakakrossa var skrifað:
„Gröfum Gyðingana", „Heil Hitl-
er“ og „Styðjíð brezku nazista-
hreyfinguna".
★ Einn handtekinn á ftalía
Á ftalíu bar einnig mikið á
Gyðingaárásum, og áleit lögregl-
an í Róm sennilegt að þar ætti
hlut að máli æskulýðsfélagsskap-
ur ný-fasista. Þar hafði einn átján
ára stúdent verið handtekinn er
hanh var að mála hakakrossa á
búðarglugga. Þá höfðu einnig
nokkrir verið teknir til yfir-
heyrslu. f Tórínó hafði meðal
annars verið málað hakakross-
merki á minnisvarða er reistur
var til minningar um ítalska
frelsisvini úr síðustu heimsstyrj-
öld. En á torgi því, er minnis-
varðinn stendur á, voru lík MUsso
linis og annarra fazistaforsprakka
hengd upp í lok styrjaldarinnar.
ir Alþjófflegt samsæri
Dómsmálaráðherra ísraels, Pin
has Rosen, sagði í þinginu í dag
að verið gæti að alþjóðlegt sam-
særi stæði á bak við árásimar
Hann kvaðst ekki hafa neina
sönnun fyrir að svo væri, en eng-
in önnur skýring væri á sam-
ræmi árásanna í hinum ýmsu
löndum. Þá benti hann á að þýzka
væri víðast notuð. Hann kvað ár-
ásirnar ekki túlka skoðanir ríkis-
stjórna viðkomandi landa, né
vilja íbúa þeirra.
IV^aður ársins
1959
ÞANNIG Ieit kápusíffa bandar-
íska vikublaffsins Time út hinn
4. janúar (1. hefti 1960) — og
munu menn þar kenna mynd
Eisenhowers forseta. — Time
hefir þann sið aff velja mann
ársins“ um hver áramót og
birta í fyrsta hefti, sem út
kemur á nýbyrjuffu ári. Maff-
ársins er sem sagt Eis-
enhower, aff dómi Time. —
Árið 1958 hlaut de Gaulle
Frakklandsforseti þennan titil, I
1957 var þaff Krjúsjeff, for
sætisráffherra Sovétríkjanna. '
í tilefni af valinu nú segir
Time, aff þegar Eisenhower
hafi lokiff ferff sinni í desem
ber sl. hafi hann tvímælalaust
veriff bezt þekkti og vinsælasti
borgari heimsins. — Time
getur ýmissa annarra valda-
manna, sem mikið hafa komið
viff sögu á sl. ári, og segir m. a.
aff Harold Mcmillan, forsætis-
ráffherra Bretlands, hafi veriff
keppinautur Eisenhowers um
titilinn „maður ársins“.
I Z' NA /5 hnúiar | SV 50 hnútar ¥: Snjókoma f 06 i X7 Skúrir í£ Þrumur w.s, KutíaskU Zs' Hitaski! H' Hd L * Laiqi
-sen —— —3 —T
Hlýja loftið náði til Islands
HÆÐ suðaustur af írlandi. Sú
hæð þokast norðaustur á bóg-
inn, var yfir írlandi kl. 20 í
gærkvöldi. Lægðin við Suður-
Grænland fer norður og
grynnist. Á hitaskilunum, sem
eru yfir Atlantshafinu, var að
myndast smálægð í gærkvöldi
rétt sunnan við það, sem sést
á kortinu.
Hlýjast á kortinu er 12 stiga
hiti í Frakklandi og kaldast í
Goose Bay, 24 stiga frost.
Geta má þess að hlýja loftið
yfir austanverðu Atlantshafi,
náði í gærkvöldi allt norður
yfir ísland og var kl. 20 7
stiga hiti í Vestmannaeyjum.
Þá var orðið frostlaust um
allt land.
Veðurútlit kl. 22 í gær-
kvöldi: Yfir Suður-Grænlandi
er lægð sem grynnist en hæð
yfir Bretlandseyjum. Smálægð
um 1200 km suðvestur í hafi á
hreyfingu norðaustur. Suð-
vesturland og SV-mið: All-
hvas eða hvass sunnan, rign-
ing eða þokusúld. Faxaflói til
Vestfjarða, Faxaflóamið til
Vestfjarðamiða, sunnan og
suðvestan stinningskaldi, skúr
ir. Norðurland til Austfjarða,
Norðurlandsmið til Austfjarða
miða: Sunnan og suðvestan
kaldi, þíðviðri, úrkomulítið.
Suðausturland og suðaustur-
mið: Allhvass sunnan og suð-
vestan, rigning.
Miðvikudagur 6. Jan. 1960
„Síðasti fjand-
maður Francos"
skotinn
til bana
GERONA, Spáni, 5. jan. Reuter:
Hinn frægi skæruliffaforingi og
stjórnleysingi, Francisco Sabater
sem yfirvöldin á Spáni hafa
reynt aff ná á sitt vald í 14 ár, var
skotinn til bana á götu í smábæn-
um San Celoni, skammt frá
Barcelona, í dag. — í gær hafffi
hann særzt í átökum viff ríkis-
lögregluna, en komst undan.
Sabater, sem var 47 ára gam-
all, var hinn síðasti þeirra skæru
liðaforingja, sem héldu áfram
baráttu gegn Franco og stjórn
hans eftir að borgarastyrjöldinni
lauk 1939, en hann barðist með
lýðveldissinnum í styrjöldinni —
og stjórnleysingi var hann í skoð-
unum frá því að hann var 16 ára
gamall. Hefir hann stundum ver-
ið nefndum „síðasti“ fjandmað-
ur Francos.
Eins og fyrr segir, var Sabater
særður í vopnaviðskiptum við
lögregluna í gær. Það gerðist á
búgarði í Banolas, um það bil 17
km héðan. Fjórir félagar hans
biðu bana í bardaganum og einn
lögreglumaður. Annar lögreglu-
maður særðist alvarlega, og
Sabater sjálfur hlaut nokkurn á-
verka, en komst undan á flótta.
Honum tókst að komast upp i
Framh. á bls. 19.
Lausn verður að fást í Genf
— segir Lysö, fiskimálaráðherra
Noregs i blaðaviðtali
RÉTT fyrir áramótin átti norska
blaðið Lofotposten viðtal við
Nils Lysö, fiskimálaráðherra
Noregs. — Blaðamaðurinn spurði
m.a. um álit ráðherrans varðandi
12 mílna fiskveiðilandhelgi við
Noreg. — Lysö svaraði:
— Það er þá fyrst þar um að
segja, að það hefir gert þetta
vandamál erfiðara viðfangs, að
fiskimenn sjálfir eru klofnir í
afstöðu sinni til þess. Þeir, sem
veiðar stunda á úthafinu, vilja
halda núgildandi fiskveiðitak-
mörkum, en aðrir fiskimenn
Sæmd
Fálkaorðunni
Á NÝJÁRSDAG sæmdi forseti
íslands að tillögu orðunefndar
þessa menn heiðursmerkjum hinn
ar íslenzku fálkaorðu:
Guðjón Guðmundsson, bónda
og hreppstjóra, Eyri, Ingólfsfirði,
fyrir félagsmálastörf og búskap.
Ekkjufrú Hjaltalínu Guðjónz-
dóttur, Núpi, Dýrafirði, riddara-
kross, fyrir kennslu- og garð-
yrkjustörf.
Jón Magnússon, fréttastjóra,
ríkisútvarpsins, riddarakross,
fyrir embættisstörf og störf að
upplýsingamálum.
Jón Gauta Pétursson, bónda og
oddvita, Gautlöndum, Mývatns-
sveit, riddarakross fyrir félags-
málastörf og búskap.
Kristján L. Gestsson, verzlunar
stjóra, Reykjavík, riddarakross,
fyrir störf í þágu íþróttamála.
Kristján Kristjánsson, borgar-
fógeta, Reykjavík, riddarakross
fyrir embættisstörf.
Kristján Jóhann Kristjánsson,
forstjóra, Reykjavík, fyrrv. for-
mann Félags islenzkra iðnrek-
enda, riddarakross, fyrir störf í
þágu íslenzks iðnreksturs.
Þorstein Jónsson, kaupfélags-
stjóra, Reyðarfirði, riddarakross,
■ fyrir fálagsmálastörf.
krefjast víkkunar þeirra. — Að
sjálfsögðu get ég skilið áhyggjur
úthafsfiskimanna í sambandi við
þetta mál, en útvíkkun takmark
Afar góðar fisk-
sölur erlendis
í GÆR seldi togarinn Geir í
Grimsby 2303 kitt (146 lestir fyr-
ir £ 11.540. Þá seldi Egill Skalla-
grímsson í Hull 1843 kitt (117
lestir) fyrir £11.367. Togskipið
Margrét frá Siglufirði seldi í gær
í Cuxhaven 104 lestir af síld fyrir
DM 76.679. Allar eru þessar söi-
ur mjög góðar, og sala Egils ein-
hver bezta sala íslenzks togara.
Landhelgin —
Framh. af bls. 1.
f fréttinni segir, aff þaff sé
útbreidd skoffun hjá opinber-
um aðilum í Washington og
Ottawa, að almenningsálitiff
heiminum sé íslands megin k
þessu máli — og aff Macmill-
an, forsætisráðherra Bret-
lands, sé tekinn aff gera sér
ljóst, aff hinar óvægilegu aff-
gerffir brezka flotans viff ís-
land, séu ekki til þess fallnar
aff afla Bretum álits og vin-
sælda meffal hinna ungu þjóða
heims.
— ★ —
Þá segir, að góðar heimildir
hermi, að Bandaríkjamenn muni
leggja til, að þeir og Kanada
leggi fram eftirfarandi tillögur
í málinu:
1) Almenn takmörkun veiða.
2) Lenging friðunartímabils.
3) Takmörkun á stærð skipa
og veiðarfæra.
4) Netamöskvinn verði stækk-
aður.
5) Veiðar verði minnkaðar
smám saman ár frá ári á
hinum umdeildu strand-
svæðum.
anna getur orðið tímabær eigi
að síður, hvaða afstöðu, sem Nor-
egur tekur á sjóréttarráðstefn-
unni í Genf. — Það er t.d. hugs-
anlegt, að Kanada aðhyllist út-
víkkun, og verðum við þá aff
reikna með, að fleiri þjóðir, þar
á meðal Norðmenn, komi í kjöl-
farið.
Hvaff sem öffru líffur verffum
viff aff ganga aff því meff hcilum
hug aff reyna aff finna lausn á
þessu vandamáli á Genfarfund-
inum. Ef enginn árangur næst á
ráðstefnunni, getur þaff haft svo
vífftæk, óheillavænleg áhrif á al-
þjófflegt samstarf, aff viff renn-
um tæpast grun í það nú.
flndstæðingni
íslendingn lætnr
nf stnrfi
FISHING NEWS segir frá því, aff
R. G. R. Wall hafi látið af starfi
sem fikimálatjóri Bretlands. Mun
hann þó starfa nokkuð áfram I
þeirri deild fiskimálaráðuneytis-
ins brezka sem fer með alþjóða-
samskipti varðandi fiskveiðar og
alþjóðaverzlun með fiskafurðir.
Mr. Wall kom mjög við sögu á
Genfar-ráðstefnunni síðustu um
réttarreglur á hafinu og mun
hann stjóma öllum aðgerðum
Breta á næstu Genfarráðstefnu
um landhelgismálin í marz-apríl
nk., enda hefur hann skipulagt
aðgerðirnar fram að þessu.
Mr. Wall hefur starfað mjög
lengi að fiskimálum í Bretlandi
m. a. verið starfandi við land-
búnaðar- og fiskimálaráðuneytið
brezka síðan 1933.
Við embætti hans sem fiski-
I málastjóra tekur Basil Engholm.