Morgunblaðið - 06.01.1960, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 06.01.1960, Qupperneq 3
Miðvilíudagur 6. Jan. 1960 ntonnrnvnr 4fíiÐ 3 Var það kaf- bátur? Bráðabirgðaviðgerðinni á hollenzka veðurathugun- arskipinu Cumulus mun ljúka í dag. Hafa járniðn- aðarmenn frá Hamri verið við lagfæringu. Þeir höfðu rétt úr dældinni miklu á kinnung skipsins með því að setja á hana þrjá 65 lesta tjakka, en síðan voru böndin, sem kubbuðust í sundur við höggið, styrkt og soðið í rifuna, sem kom á skipið. Aðalloftskeytamaðurinn A skipinu, Kayser að nafni, sem verið hefur í 10 ár samfleytt á þessu skipi, sagði að sér hefði komið til hugar kafbátur, þeg- ar höggið kom á skipið. — Rússneskur kafbátur er hugs- anlegt, víst er það, að höggið var þannig að það var ekkerí smávegis rekald sem skipið lenti á. Veðrið var slæmt, en við höfum nú oft fengið verra veður en þennan umrædda dag. Ég fékk eldskírnina, þeg- ar á fyrsta úthaldinu. Þá vor- um við á veðurathugunar- svæði 300 sjóm. út af Portú- galsströndum. Ég hefði aldrei trúað því, hé'lt Kayser áfram. ef ég hefði ekki séð það sjálf- ur, að þegar skipið var niðri í öldudalnum, var hæðin upp á næsta öldutopp yfir 20 metrari Hér um borð í skipinu er i STAKSTEINAB Þetta er Aard Visser, skipstjóri á Cumulus, um borð í skipi sínu. 20 metra háar öldur jafnan töluvert að starfa dags- daglega. Veðurfæðingar og loftskeytamenn ganga vaktir, því aldrei má hlé verða á reglu legum athugunum og útser.d- ingum á veðurlýsingum á at- hugunarsvæðinu og í háloft- unum fyrir ofan okkur. Við sendum loftbelgi upp, stund- um aðeins í :iokkur íúsur.d 1 Ioftskeytasal veðurathugunarskipsins. Þelr'standa við neyðarsendir skipsins, F. Keyser, yfirioft- skeytamaður, í hvítu peysunni, og yfirsigllngafræðingurinn Zuurmond. Málmþreytu vart í stéli Caravelle SAS hefur nú fengið liðlega sex mánaða reynslu af fyrstu Cara- velle-þotunum. í þessu sambandi hefur félagið upplýst, að málm- þreyta hafi gert vart við sig á stéli þotanna, margsinnis hafi verið skipt um stél á öllum þot- unum ,en ekki hafi enn tekizt að finna ráð gegn þessu. Ekkert slys hefur þó hlotizt af þessum sökum sem kunnugt er, enda kom gallinn á daginn í tæka tíð. Hávaðinn frá hreyflunum veld ur málmþreytunni. Caravelle er tveggja hreyfla og þeim er kom- ið fyrir á búknum aftanverðum, rétt framan við stélið. Ekki er talið, að hægt verði að draga svo mjög úr hávaða hreyflanna að þannig verði komið í veg fyrir málmþreytuna. Sérfræðingar SAS og frönsku verksmiðjanna sem framleiða Caravelle, hug- leiða nú hvernig stélið verði end- urbætt svo að málmþreytan verði úr sögunni. Annars lætur SAS mjög vei af Caravelle og telur þotuna mun hagkvæmari í rekstri en t.d. DC- 7C, eða sem svarar 20% miðað við fullhlaðnar vélar. í sumar hafði SAS fjórar Cara velle þotur í förum, en síðar bættust tvær í hópinn. Sex fyrstu mánuðina fluttu þær 70 þús. far- þega, en í vor mun félagið verða búið að fá 12 Caravelle af 17, sem það hefur pantað. feta hæð, en á hverjum dtgi sendum við upp í 22 km hæð stóra loftbelgi sem senda okk- ur upplýsingar um veðrið : háloftunum, um sjálfvirk senditæki. Við höfum líka san band við flugvélar komi þær inn á veðurathugunarsvæðiö og sendum við þeim ýmsai upplýsingar varðandi veður- far, staðsetningar og fleira, er að gagni má koma. Við send um líka til landsstöðvanna, t.d. hingað til Reykjavíkur. Hér eru margir bráðflinkir lof- skeytamenn, þú getur sagt þeim það. Hér um borð gengur líftð eðlilega eftir mjög ákveðnum reglum. Það er skapgerðar- atriði að vera skipsmaður á veðurathugunarskipi, er verð- ur að vera í hafi úti hvernig sem viðrar allt upp í 38 daga, — þ. e. a. s. frá því að farið er úr höfn unz komið er til baka, stundum í hörðum veðrum, eins og t. d. á Alfa svæðinu. Brezka veðurathugunarskipið, sem leysti okkur af um daginn hreppti svo mikið fárviðri þa: að stormurinn sleit og eyði lagði öll loftnet skipsins, svo þeir hafa orðið að notast við neyðarsendinn. Þeir hafa aíit til alls til þess að lagfæra skemmdirnar, um leið og veðr inu slotar. Hér um borð fá yfirmenn daglegan skammt af sterku á- fengi, en undirmenn fá hinu ágæta hollenzka bjór að vild. Við getum keypt sjeneverbrús ann á 33 ísl krónur, — þegar við erum komnir út fyrir 3 mílurnar. Það er lítið verð, þegar við það er miðað, að fyrir nokkrum kvöldum borg- aði ég 54 krónur fyrir visky- sjúss á Hótel Borg, sagði Kayser og hló. Hagnýting ja *ðhita á Reykjanesskaga Tveir af þingmönnum hina nýja Reykjaneskjördæmis, þeir Matthías Á. Mathiesen og AlfreS Gíslason ,lögðu fram á Alþingi i haust tillögu til þingsályktunar þess efnis, að ríkissjórnin skuli láta fram fara ítarlega rannsókn á jarðhitasvæðunum á Reykja- nesskaga, m. a. með það fyrir aug um, að orkulindirnar verði hag- nýttar til hitaveitu fyrir nær- liggjandi byggðarlög. í þingsályktunartillögunni er einnig lagt til, að Alþingi skori á ríkisstjórnina, að hún hlutist til um, að Hafnarfjarðarbær verði hið bráðasta veitt afnot af hinum stóra jarðbor, sem stór- kostlegt hagræði hefur verið að við jarðboranir hér í Reykjavík, síðan hann kom til landsins. Hér er áreiðanlega um mikið hagsmunamál að ræða, ekki að- eins fyrir Hafnfirðinga, heldur fyrir íbúa Reykjanesskagans al- mennt. Hinn mikli jarðhiti á þessu svæði er ennþá lítt hag- nýttur, en allt bendir til þess, að hann megi nota til margra hluta og nytsamlegra í þessum lands- hluta eins og öðrum, þar sem jarðhiti er fyrir hendi. Ástæðulaus mannalæti Siglfirðingur, blað Sjálfstæðis- manna á Siglufirði, ræðir fyrir skömmu í forystugrein sinni, gortskrif Framsóknarmanna um að flokkur þeirra hafi eflzt stór- lega í síðustu Alþingiskosning- um. Siglfirðingur kemst m.a. að orði um þetta á þessa leið: „Ef þessi mannalæti eru borin saman við þá staðreynd ,að Framsóknarflokkurinn tapaði fylgi milli vor og haustkosning- anna í öllum kjördæmum lands- ins nema Reykjaneskjördæmi, má öllum ljóst vera, að blaðið Einherji gengur enn á svig við hið sanna og rétta. Framsóknarflokkurinn tapaði 528 atkvæðum í Norðausturlands kjördæmi, 115 atkvæðum hér í Norðvesturlandskjördæmi, 190 at kvæðum á Austurlandi, 150 at- kvæðum á Vestfjörðum, 138 at- kvæðum á Suðurlandi, milli 3— 400 í Reykjavík og tæplega 50 atkvæðum í Vesturlandskjör- dæmi. Þannig „efldist" Framsóknar- flokkurinn í haustkosningunum og á nú 17 þingmenn af 60 (og þó fæst atkvæði að meðaltali að baki hvers þingmanns) en hafði fyrir 19 af 52“. Allt í himnalagi! Sjávarútvegsmálaráðherra kommúnista í vinstri stjórninni hefur nú verið fengið það hlut- verk að halda því fram í Þjóð- viljanum að allt sé í himnalagi í islenzkum efnahagsmálum og engar ráðstafanir þurfi að gera til viðreisnar. Allt tal um nauð- syn nýrra ráðstafana í efnahags- málunum sé þess vegna „árásir" vondra manna á „alþýðuna". Þetta er kjarni þess boðskapar, sem Lúðvík Jósefsson flutti í Þjóðviljanum um áramótin. En ef ekkert þarf að gera nú, og allt má við óbreytt standa frá því sem var, þegar vinstri stjórn- in hrökklaðist frá völdum 4. des- ember 1958, hvernig stóð þá á því, að þessi merka stjórn sagði af sér? Hvað var hún að flýja? Var henni virkilega engin vandi á höndum? Hversvegna fór hún þá? Væri ekki reynandi fyrir Lúðvik Jósefsson að svara þeirri spurningi’

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.