Morgunblaðið - 06.01.1960, Page 11
Miðvikudagur 6. jan. 1960
MORCVTSBLAÐIÐ
11
Guðmundur Jónsson, skólastjóri Hvanneyri
Landbúnað urinn 1959
SAMKVÆMT beiðni Morgun-
blaðsins mun ég nú, líkt og sl.
ár, gera tilraun til að tína saman
nokkur atriði varðandi landbún-
aðarmál árið 1959. Samfelld rit-
smíð getur þetta þó ekki orðið,
enda er margt, sem enn liggur
óljóst fyrir um árið, sem leið.
Sumar af eftirfarandi upplýsing-
um eru frá árinu 1958.
Veðrið
Segja má, að veðurfar hafi yfir
leitt verið hagstætt árið 1959, að
því undanskildu, að óþurrkar
voru miklir síðari hluta sumars
um Suðurland. Hey urðu því
hrakin á þeim slóðum og víða
minni en í meðallagi.
Bústærð
Hér verða sýnd nokkur dæmi
um heyskap og búfénað á nokkr-
um stórum bújörðum hér á landi.
Til samanburðar eru tölur frá
1958:
Bessastaðir: Taða 2400 hestb.
(2400), nautgripir 60 (60), sauð-
fé 60 (60), hænsni 900 (900), drátt
arvélar 3 (3), kartöflur 40 tn.,
rófur 200 tn.
Vífilsstaðir: Taða 2500 hestb.
(2500), nautgripir 86 (86), hross
2 (2), hænsni 250 (250), kartöflur
80 (80), dráttarvélar 3 (3).
Blikastaðir: Taða 2300 hestb.
(2600), nautgripir 78 (80), hross
6 (6), sauðfé 25 (15), hænsni 300
(200), kartöfiur 15 tn. (40), korn
náðist ekki inn vegna óþurrka,
nýrækt 1% ha. dráttarvélar 4
(4). —
Sámstaðir: Taða 1100 hestb.
(1100), nautgripir 19 (23), hross
3 (7), sauðfé 80 (90), kartöflur
130 tn. (190), korn 110 tn., hey-
mjöl 13% tonn, frærækt í 5 ha
landi, tilraunir gerðar á 6—700
tilraunareitum, dráttarvélar 2
(2). —
Gunnarsholt: Taða 7000 hestb.
(7000), nautgripir 200 (200),
hross 4 (5), sauðfé 500 (450),
dráttarvélar 4 (4). Flugvél dreifði
tilbúnum áburði á 4—500 ha.
svæði og reyndist dreifingin jöfn.
Vélin dreifði á 5 m breitt belti
hverju sinn og dreifimagnið svar-
aði til um 4 tonn af áburði á
klst.
Holt í Stokkseyrarhreppi: Taða
2500 hestb. (3000), nautgripir 65
(65), hross 12(10), sauðfé 200
(180), hænsni 20 (30), kartöflur
50 tn. (50), rófur 50 tn. (50), ný-
rækt 4 ha. (2), dráttarvélar 3 (3).
Laugardælir: Taða 6000 hestb.
(6000), nautgripir 150 (149),
hross 25 (40), hænsni 450 (450),
svín 50 (50), kartöflur 40 tn. (40),
nýrækt 4 ha. (5), dráttarvélar 3
(3), korn í 1 ha, en var ekki
þreskt. Á sæðingarstöðinni í
Laugardælum eru 16 kynbóta-
naut.
Hvanneyri: Taða og hey af
flæðiengjum 5000 hestb. (5000),
nautgripir 114 (118), hross 12
(19), sauðfé 340 (325), hænsni 65
(75), garðávextir 45 tn. (40), ný-
rækt 8 ha. dráttarvélar 9 (11),
þar af 1 jarðýta. Tilraunir eru
gerðar á um 900 tilraunareitum.
Hólar í Hjaltadal: Taða 4900
hestb. (5500), nautgripir 53 (60),
hross 70 (72), sauðfé 610 (570),
hænsni 30 (50), kartöflur 100 tn.
(100), rófur 100, korn þroskaðist
ekki, en var í 1 ha., dráttarvélar
6 (6), þar af 1 jarðýta, nýrækt
8 ha.
Egilsstaðir á Völlum: Taða 3500
hestb. (3500), nautgripir 62 (62),
hross 5 (5), sauðfé 400 (350), 5
gyltur, korn 200 tn. (60), hænsni
50 (50), dráttarvélar 3 (3).
Skriðuklaustur: Taða 2000 hest-
b. (1400), nautgripir 6 (7), hross
7 (6), sauðfé 720 (700), hænsni
25 (25), kartöflur 30 tn. (50),
dráttarvélar 3 (2).
Þetta yfirlit sýnir, að heyskap-
ur og búfé er mjög likt og árið
1958.
Fólksf jöldi í sveitum
Hagskýrslur herma, að mann-
fjölgun hér á landi sé meiri en
í flestum löndum öðrum, þ. e. um
og yfir 2% á ári. Þetta kemur
þó sveitum landsins ekki til góða,
því að árlega eru miklir mann-
flutningar úr sveit í kaupstaði og
kauptún. Þetta alkunna fyrir-
brigði vil ég skýra með örfáum
tölum.
íbúar í sveitum landsins hafa
verið sem hér segir:
1901 um 61 þús.
1910 — 55 —
1920 — 52 —
1930 — 47 —
1940 — 42 —
1950 — 36 —
1960 — 32 — (?)
Síðasta talan er að sjálfsögðu
áætluð. Frá aldamótum og fram
til 1960 má því ætla að fólki í
sveitum landsins fækki um ná-
lega 30 þús. manns eða tæplega
500 á ári. Þegar svo þar við bæt-
ist eðlileg mannfjölgun, þ. e.
barnsfæðingar umfram dauðsföll,
þá er augljóst, að mannflutning-
ar úr sveit þetta tímabil verða,
að ég ætla, um 1000 manns á ári.
Það skal þó tekið fram, að í
sumum tilfellum er hér ekki um
mannflutninga að ræða, heldur
þéttist byggðin, og sums staðar
eru nú talin kauptún, þar sem
áður var sveit. Hitt er að vísu
líka til, en miklu sjaldgæfara, að
kauptún verði að sveit, vegna
þess að fólkinu fækkar (Borð-
eyri, Haganesvík o. fl.).
Tilfærsla fólksins á sér að sjálf
sögðu einnig stað milli kauptúna
eða kaupstaða. Þannig hefur fólki
stórlega fækkað á Stokkseyri,
Eyrarbakka, Flatey á Breiðafirði,
Seyðisfirði og nokkrum fleiri
stöðum miðað við síðustu alda-
mót.
Garðrækt
Hagskýrslur sýna, að árið 1958
var uppskera kartaflna framtal-
in 71 þús. tunnur eða 5 þús. tunn-
um minni en 1957. Talið er, að
nokkuð af framleiðslunni komi
ekki til framtals, einkum það,
sem notað er heima. Mætti giska
á, að þetta næmi um 20 þús. tunn
um. Uppskera af kartöflum mun
hafa orðið talsvert minni 1959
en 1958, ef til vill nálægt 10 þús.
tunnum.
Á árinu voru fluttar inn kart-
öflur 25,6 þús. tunnur (26,6). Auk
þess flutti Grænmetisverzlunin
inn hvítkál og rauðkál 183,1 tonn
(226), gulrætur 138,2 tonn (25),
rauðrófur 76 tonn (32) o. fl. teg.
grænmetis.
Stofnræktun kartaflna fer fram
á vegum Grænmetisverzlunar
ríkisins. Er hún fólgin í því, að
samið er við einstaka bændur að
taka slíka ræktun að sér. Eftir-
lit er haft með görðunum yfir
sumarið og uppskeran athuguð
vandlega. Á því að vera trygging
fyrir því, að útsæðið sé hrein.
ósýkt og að öllu leyti góð vara.
Hins vegar er verð á slíkum út-
sæðiskartöflum ekki greitt niður
og því mun hærra en á matar-
kartöflum.
Verðmismunurinn virðist or-
saka, að kartöfluframleiðendur
sniðganga um of stofnræktaða út
sæðið, en kaupa í þess stað óvald-
ar kartöflur til útsæðis. Virðist
því stofnræktunin ekki ætla að
fá þá þýðingu, sem til var ællazt
í fyrstu. Sala útsæðis frá Græn-
metisverzluninni var sem hér
segir:
1958 1959
tunnur tunnur
Stofnræktað úts. 824 708
Erlent útsæði 450 500
Þetta er aðeins örlítill hluti af
því útsæðismagni, sem árlega er
notað í landinu, en það má áætla
samtals nálægt 15 þús. tunnum.
Grænmetisverzlunin hefur með
höndum tilraunir og athuganir
með bragðgæði og geymsluþol
kartaflna. Hafa þær rannsóknir
staðið yfir í 3 ár. Virðast þær
benda til þess, að mjög mikill
köfnunarefnisskammtur hafi
slæm áhrif á bragð og geymslu
kartaflanna.
Sölufélag garðyrkjumanna hef-
ur með höndum sölu á innlendu
grænmeti og eggjúm. Umsetning
þess á árinu hefur verið:
Gróðurhús munu í lok ársins
1959 ná yfir um 9,0 ha lands. Má
ætla, að um % hlutar þeirra séu
notaðir til ræktunar grænmetis,
en % til blómaræktunar.
1 Garðyrkjuskóla ríkisins i
Ilveragerði eru í vetur 15 nemend
ur. Þar eru um 7000 ferm. undir
gleri. Tilraunir eru gei'ðar þar
með áburðarþörf jarðvegs í gróð-
urhúsum og með afbrigði af ýms-
um tegundum garðjurta. Meðal
annars voru í sumar ræktaðar
sykurrófur í gróðurhúsi með góð-
um árangri.
Garðyrkjuskólinn býr við frem
ur þröngan húsakost, þegar gróð-
urhúsin eru fráskilin. Væri hin
mesta þörf á því, að þar yrði
son, hafa vonir til þess, að úr
rætist, áður en langur tími líður.
Jarðabætur
Ennþá er ekki farið að vinna úr
jarðabótaskýrslum fyrir árið
1959, en 1957 og 1958 var gert af
styrkhæfum jarða- og húsabótum
sem hér segir:
byggt að nýju hið fyrsta. Mun
skólastjórinn, Unnsteinn Ólafs-
Nýrækt, ha.....................
Túnasléttur, ha...........•....
Matjurtagarðar, ha.............
Grjótnám, m3...................
Handgrafnir skurðir, m3 .......
Vélgrafnir skurðir, m3 ........
Lokræsi, m.....................
Girðingar, m ..................
Þvaggryfjur, alsteyptar, m3 ....
Áburðarhús, m3.................
Haugstæði, m2 .................
Þurrheyshlöður, m3.............
Súgþurrkunarkerfi, m2 ..........
Votheyshlöður, m3 .............
Matjurtageymslur, m3...........
Jarðabótamenn, tala............
Framlag ríkissjóðs, kr.........
Þar af á vélgrafna skurði kr. .
Framræsla. Á árinu 1958 voru
að verki 50 skurðgröfur, sem
grófu alls rúml. 4 millj. rúm-
metra. Á árinu 1959 voru starf-
ræktar 46 skurðgröfur. Árið 1958
kostaði gröfturinn rétt um 4 kr.
á rúmmetra, en 1959 er áætlað,
að hann hækki um nálega 20
aura. Tvær gröfur hjá Vélasjóði
grófu um 190 þús. m3 hvor og
mun það vera met í afköstum.
Gröfturinn svarar til þess, að
árlega séu fullþurrkaðir 4—5
þús. ha. eða nokkru meira en
nýræktinni nemur, enda eru ýms
ir bændur farnir að þurrka lönd
sín til beitar.
Fyrstu skurðgröfumar af þeirri
gerð, sem nú eru notaðar, tóku
til starfa árið 1942. Til ársloka
1959 eru þær búnar að afkasta
30—31 millj. rúmmetra. Má ætla,
að þessar framkvæmdir hafi kost
að alls um 96 millj. króna. Lengd
skurðanna nemur nálægt 8.000
km.
Skurðgröfurnar eiga bráðum
20 ára afmæli hér á landi. Verður
þess væntanlega minnzt á verð-
ugan hátt með því að gefa út
ýtarlega skýrslu um afköst
þeirra. Þáttur þeirra í ræktunar-
málum okkar er óumdeilanlegur.
Eftirspurn eftir vinnu þeirra er
ennþá mikil.
Ofangreindar tölur um jarða-
bætur gefa tilefni til ýmissa at-
hugana. Þær sýna t.d., að bændur
stækka tún sín árlega um nálega
% úr ha. að meðaltali. Ætti sú
1959
9,0 millj.
10,0 millj. (um 300tonn)
220 tonn
26 þús. kassar
51 tonn
18 tonn
44 tonn
aukning að gefa af sér tæpt kýr-
fóður. Þetta er mjög athyglisvert,
einkum þegar borið er saman við
önnur lönd. Þar er sums staðar
tekið meira land frá bændum í
byggingalóðir, vegi, flugvelli o.
fl. en ræktað er að nýju. í Dan-
mörku er t.d. talið, að frá 1938
hafi það land, sem notað er fyrir
framleiðslu landbúnaðarafurða,
minnkað um 6600 ha á ári.
Túnasléttur eru að mestu horfn
ar úr sögunni. Sama er að segja
um handgrafna skurði og lokræsi.
Handgröfnu skurðirnir svara til
þess, að hver bóndi hefði grafið
2,5 rúmmetra árið 1958 og i lok-
ræsum er tilsvarandi tala rúml.
2 m.
Áburðargeymslurnar svara til
þess, að byggt hafi verið fyrir
1958
Sala grænmetis, kr....... 8,5 millj.
Sala eggja, kr...........
Sala af tómötum ......... 273 tonn
Gúrkur.................... 27 þús. kassar
Gulrætur.................55,5 tonn
Blómkál................... 36 tonn
Hvítkál................... 73 tonn
Guðmundur Jónsson
1957
3511
139
23
40036
15.845
3.857.311
13.365
593.005
2.440
21.881
400
152.733
20.784
12.786
1.405
3.985
22.490.311,00
1958
3855
129
17
34547
8.43«
4.092.703
11.201
601.342
2.550
19.859
628
158.570
20.660
15.403
1.588
3.954
23.967.449,00
10.569.133,00
ársmykjuna úr rúml. 2000 naut-
gripum og heygeymslur voru
gerðar yfir um 300 þús. hestb.
heys eða að meðaltali um 50 hest-
burði á býli.
Súgþurrkunarkerfi eru árlega
gerð um 20 þús. fermetra. Ætla
mætti, að það svaraði tii hlöðu-
rúms um 100.000 rúmmetra og
svarar til rúmlega þeirrar töðu-
aukningar, sem nýræktin á að
gefa árlega. Þetta er seinagangur
um of. Súgþurrkun má telja ein-
hverja þá allra nytsömustu fram-
kvæmd, sem bóndi getur gert á
jörð sinni. Má víða sjá það í ó-
þurrkum, að þeir bændur skera
sig úr um heyhirðingu, er hafa
súgþurrkun. Og alltaf er hún
gagnleg, jafnvel þótt þurrkar
séu sæmilegir eða góðir.
Ýmsar vélsmiðjur hér á landl
framleiða ágæta blásara fyrir
súgþurrkun og verkfæraráðunaut
ur Búnaðarfélags íslands leið-
beinir bændum um gerð kerfanna
og lætur þeim í té teikningar
yfir þau. Nýlega er farið að veita
styrk út á súgþurrkunarkerfi.
Tilbúinn áburður
f fáum löndum hefur notkun
tilbúins áburðar vaxið svo mjög
sem hér á landi. Samanburður
við önnur lönd fæst þó ekki rétt-
ur á þann hátt að miða notkun
áburðarins við stærð hins rækt-
aða lands. Hér á landi er.nýrækt
í stærri mælikvarða en víðast
annars staðar. Margir bændur
nota verulegan hlut af búfjár-
áburðinum í nýrækt, en bera til-
búinn ábúfð á tún.
Hér á eftir verða sýndar töl-
ur um notkun tilbúins áburðar,
samkvæmt upplýsingum frá Á-
burðarsölu ríkisins, miðað vi3
hrein næringarefni:
Köfnunarefni (N2) 7600 t. (7061)
Forsfórsýra (P2O5) 3950 t. (3716)
Kalí (K2O; > 2270 t. (2182)
Tölurnar í sviga sýna notkun-
ina árið 1958. Notkun áburðar
hefur því aukizt um 5—10%, mið
að við 1958.
Allur fosfór- og kalíáburður-
inn er fluttur inn, en áburðar-
verksmiðjan í Gufunesi lét í té
um % hluta af köfnunarefnisá-
burðinum, eða um 5000 tonn Na,
þ. e. um 15000 tonn af Kjarna.
Áburðarverksmiðjan er í fram-
leiðslu sinni mjög háð framleiðslu
raforku, sem ekki hefur verið
nægilega mikil hin síðustu ár.
Miðað við full afköst getur verk-
smiðjan framleitt um 24.000 tonn
Framhaid á bls. 12.