Morgunblaðið - 06.01.1960, Page 19
19
Miðvikudagur 6. Jan. 1960
MORGVWBLAÐ1Ð
— Utan úr heimi
Framh. af bls. 10
♦ Bing svitnar á einninu
Bing forstjóri bölvaði dálítið,
en lét það annars gott heita —
og hringdi til Karls Liebl. En —
hann sagðist vera hás og gaeti því
ekki sungið, a.m.k. ekki allt hlut
verkið. Bing svitnaði á enninu —
og sagði aftur ljótt, sem þó er
ekki hans vandi. Svo greip hann
síðasta hálmstráið, Albert Da
Costa — en hann var ekki sér-
lega bjartsýnn, því að söngvar-
inn hafði verið veikur um skeið.
Da Costa virtist hins vegar hinn
brattasti og sagðist búast við að
geta tekið við hlutverkinu ■—
mundi hringja aftur, þegar hann
hefði prófað röddina hjá þjálf-
ara sínum. Brúnin lyftist á for-
stjórnanum, og hann beið
óþreyjufullur eftir að heyra aft-
ur frá söngvaranum. — Og kl. 4
um daginn hringdi Da Costa,
hafði verið hjá kennara sínum —
og gengið illa. Hann kvaðst ekki
treysta sér til að syngja hið erf-
iðá hlutverk Tristans svo illa
fyrirkallaður sem hann væri. —
Og nú féll Bing forstjóra allur
ketill í eld. Hann settist niður
með þreytu í hverri taug og
horði fram á eyðilagt kvöld í
Metropolitan — og allan áheyr-
endaskarann, sem nú yrði fyrir
sárum vonbrigðum.
♦ Óvenjuleg sýning
En skyndilega skaut hugmynd
upp í þreyttum heila forstjórans:
— Enginn hinna þriggja söngv-
ara hafði verið alvarlega veikur.
Það hafði reyndar aldrei gerzt í
sögu óperunnar, að þrír menn
kæmu fram í sama hlutverki í
einni sýningu, en stundum kem-
ur fyrir að tveir skipta með sér
hlutverki — og hvað var þá
verra, að þeir væru þrír? —
Rundolf Bing spartt á fætur og
hafði á ný samband við alla
„Tristanana“ sína, skýrði þeim
frá hugmynd sinni og fékk þá til
að gangast inn á að syngja sinn
þáttinn hver.
Og sýningin hófst á tilsettum
tíma. — Rudolf Bing gekk fram
fyrir tjaldið og ávarpaði áheyr-
endur: — Herrar mínir og frúr,
sagði hann, — ungfrú Nilsson er
ekkert að vanbúnaði, hún er í
sínu bezta „formi“ eins og áður
— en við erum ekki eins heppnir
með „Tristánana“. okkar. Þeir
eru lausir, allir þrír! — Síðan
sagði hann áheyrendum fyrr-
greinda sögu í stuttu máli — og
ræðu hans var tekið með léttum
hlátri og lófataki. Kvöldinu var
borgið — og óperugestir
skemmtu sér prýðilega á þessari
óvenjulegu sýningu, hefðu ekki
fyrir nokkurn mun viljað missa
af henni. Þessi tilbreyting vakti
einnig mikla kátínu að tjaldbaki,
eins og nærri má geta. Ýmsir
voru reyndar dálítið taugaóstyrk
ir, en allt gekk slysalaust.
★
Þess má loks geta, að New
York-búar mega eiga von á að
heyra og-sjá hina nýju óperu-
gyðju sína, Birgit Nilsson, í fleiri
hlutverkum áður en langt líður,
þ.á.m. Fidelo og Hollendingnum
fljúgandi.
Franco —
Framh. af bls. 2.
járnbrautalest við Fornells, ógn-
aði lestarstjóranum með byssu og
skipaði honum að aka viðstöðu-
laust til Barcelona. Þegar lest-
in varð að stanza í San Celoni,
vegna þess að önnur lest var þar
fyrir, hljóp Sabater út á götuna,
en þar voru þá lögreglumenn fyr
ir. Hann reyndi að komast inn í
næsta hús, en var umsvifalaust
skotinn til bana.
Járnbrautarslys á Italiu
75 manns fórust
— 124 slösuðust
Milanó, 5. jan. (Reuter).
JÁRNBRAUTARLEST, sem var
að flytja um 500 verkamenn frá
Sondrio í ölpunum til Milanó í
dag, fór út af sporinu í allkrappri
beygju, valt niður háan bakka
og rakst af afli miklu á verk-
smiðjuhús. Einn vagninn tókst á
loft og lenti á þaki verksmiðjunn
r
Uthlutuii fatnaðar
til fátæhra
ÚTHLUTAÐ verður notuðum
fatnaði til þess að sauma upp úr,
á fimmtudag og föstudag 7. og 8.
þessa mánaðar, að Túngötu 2,
milli kl. 2—6.
Mæðrastyrksnefnd,
Vetrarhjálpin.
ar. Dimm þoka var á, er slysið
varð. 15 fórust í þessu járnbraut-
arslysi, sem er eitt hið mesta,
sem orðið hefir á Ítalíu á seinni
árum. — Alls særðust 124 í
slysinu, og voru 76 þeirra fluttir
í sjúkrahús, margir mjög mikið
slasaðir.
Eins og fyrr segir, fór lestin
út af sporinu á beygju, rétt áður
en farið skyldi yfir bráðabirgða-
brú við Monza, skammt fyrir ut-
an Milanó. í þessari beygju og á
brúninni gilti hámarkshraði —
6 mílur á klst. Orsök slyssins
er helzt talin sú, að ökumaður-
inn hafði ekið hraðar en löglegt
var — a.m.k. sýndi sjálfritandi
mælir í stjórnklefanum, að lest-
in hefði farið með 55 mílna hraða
um það leyti, sem slysið varð. —
Ökumaðurinn var meðal þeirra,
er fórust.
Jólatrésskemmtun
Glímufélagsins Ármanns verður haldin í Sjálfstæð-
ishúsinu, fimmtudaginn 7. jan. kl. 3,45 s.d.
Skemmtiatriði — Margir jólasveinar — Kvikmyndir o. fl.
Aðgöngumiðar eru seldir í skrifstofu félagsins,
íþróttahúsinu. — Sími 1-33-56 frá kl. 5—7 daglega.
Ennfremur í Sportvöruverzluninni Hellas og Bóka-
búðum Lárusar Blöndals.
Glímufélagið Ármann.
I) n g I i n g a
vantar til blaðburða
í eftirtalin hverfi:
Seltjarnarnes, vestari hluta
Nesveg og Granaskjól
Sörlaskjól,
Háteigsveg
Barðavogur — má senda
tnðtmblaMto
Sími 22480.
Hjartanlega þakka ég ættingjum og viinum sem minnt-
ust mín á sjötugsafmæli mínu 21. des. með heimsóknum,
gjöfum og skeytum.
Guð blessi ykkur öll.
Oktavía S. Jóhannesdóttir.
Jarðarför konunnar minnar,
LOVÍSU SIGURRÓSAR EINARSDÓTTUR
Bjarnarstíg 11,
fer fram frá Fossvogskirkju kl. 1,30, fimmtudaginn 7.
janúar.
Gústaf Guðjónsson og börn
Þökkum hjartanlega auðsýnda samúð og vináttu við
andlát og jarðarför móður okkar
ÞÓRUNNAR BJÖRNSDÓTTUR
frá Seli.
Börn hennar.
Eiginmaður minn
GlSLI GOTTSKÁLKSSON
kennari og verkstjóri
frá Sólheimagerði Skagafirði,
andaðist í Landsspítalanum 4. þessa mánaðar. Jarðar-
för ákveðin síðar.
Fyrir mína hönd og barnanna.
Lína Jóhannsdóttir.
Bróðir okkar
VALDEMAR SIGURÐSSON
lézt 4. þ.m. í Bæjarsjúkrahúsinu.
Fyrir hönd okkar systkinanna.
Guðrún Sigurðardóttir, Flókagötu 10.
Móðir okkar
ÓLÖF BJÖRNSDÓTTIR
lézt að morgni 5. janúar.
Sigríður Axelsdóttir,
Soffía Axelsdóttir, Ketill Axelsson.
Móðir okkar
MARTA MARGRÉT JÓNSDÓTTIR
andaðist á Landakotsspítala 4. janúar 1960.
Anna Arnadóttir,
Þorgerður Arnadóttir, Helgi Árnason. .
Jarðarför
SIGURÐAR BJARNASONAR
frá Hraunási
fer fram frá Stóraáskirkju fimmtudaginn 7. janúar kL
2 eftir hádegi.
Vandamenn
Faðir minn
BENEDIKT K. BENÓNÍSSON
Grundarstíg 11,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni fimmtudaginn
7. janúar kl. 14. Blóm vinsamlegast afþökkuð. Þeim sem
vildu minnast hins látna er bent á Blindrafélagið
Grundarstíg 11. Athöfninni verður útvarpað.
Helga Benediktsdóttir.
Föðursystir mín
DAGBJÖRT JÓNASDÓTTIR
verður jarðsungin frá Þjóðkirkjunni Hafnarfirði föstu-
daginn 8. jan. kl. 2 e.h.
Emilía Jónasdóttir.
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hluttekn-
ingu við andlát og jarðarför eiginmanns míns
JÓNS RÖGNVALDSSONAR
Skrúð Reykholtsdal.
Sérstaklega þakka ég nágrönnum mínum og öðrum,
sem veittu mér mikla aðstoð.
Guð blessi ykkur öll.
Fyrir mína hönd og barna okkar.
Anna Sigfúsdóttir.
Hjartans þakklæti tii allra er auðsýndu samúð og
vináttu við andlát og jarðarför systur minnar
SIGURBJARGAR GUÐMUNDSDÓTTUR
Einnig vil ég þakka þeim mörgu vinum hennar, er auð-
sýndu hlýju og vináttu í hennar garð á liðnum árum.
Fyrir mína hönd og annarra vandamanna.
Jónína Guðmundsdóttir.
Mínar inniiegustu þakkir vil ég flytja öllum þeim,
sem auðsýndu mér samúð við andlát og jarðarför eigin-
manns míns
SIGURJÓNS KRISTINSSONAR
Þakka ég börnum og tengdasonum mikla aðstoð og
hjálp. Skipstjóra og skipshöfn allri á B.v. Kaldbak
fyrir hinn fagra minningarskjöld. Sérstaklega þakka ég
Útgerðarfélagi Akureyrar fyrir þann mikla heiður, er
þeir sýndu hinum látna með því að kosta útför hans að
öllu leyti.
Guð blessi ykkur öll.
Margrét R. Þorsteinsdóttir.