Morgunblaðið - 06.01.1960, Side 20

Morgunblaðið - 06.01.1960, Side 20
V EÐRIÐ Sjá veðurkort á bls. 2. DtjjuuMa 3. tbl. — Miðvikudagur 6. janúar 1960 Landbúnaðurinn '59 Sjá bls. 11. Tveir slösudust er Dalarútan valt Slysið varð á ísuðum vegi i Hafnarskógi LAUST fyrir hádegi í gær rann Dalarútan út af veginum við Hafnarskóg uppi í Borgarfirði og fór á hliðina. í bílnum voru 16 farþegar. Slösuðust tveir farþeg- ar nokkuð og tveir aðrir minna. D—100, sem er 26 manna Ford- bifreið var á leið vestur í Dali, en hvasst var og vegurinn flug- háll. Er bifreiðin kom á móts við Grjóteyri, rann hún á hálkunni. Þar er malarkambur og nokkuð hátt niður og fór bíllinn út af og hvolfdi. Hringt var til Akraness og kom ejúkrabifreið þaðan. Voru tveir farþegar fluttir á sjúkrahúsið á Akranesi. Kristín Guðmundsdótt ir, forstöðukona Húsmæðraskól- ans á Staðarfelli í Dölum, brák- aðist á baki og lá í sjúkrahúsinu í gærkvöldi og unglingspiltur, Jón Helgason, reyndist vera við- beinsbrotinn. Hinir farþegarnir voru fluttir niður í Borgarnes. Leituðu tveir farþeganna til læknis, kona sem hafði snúizt á fæti og önnur, sem var eitthvað meidd á handlegg. Gista þeir farþegar sem vilja á hótelinu í Borgarnesi í nótt og jafna sig. En á morgun er gert ráð fyrir að bíll verði sendur til að flytja þá áfram. Yfirbygging bifreiðarinnar mun vera mikið skemmd. Kl. 1,30 í gær fór trukkur frá Þ.Þ.Þ. á Akranesi inn í Hafnar- skóg, rétti bifreiðina við og dró hana inn að Brekku. Reykvikingar drukku 360 þús. flöskur af Coca Cola um jólin MARGIR munu hafa rekið upp stór augu, er við birtum tölurn- ar yfir það magn, sem seldist af áfengi fyrir jólin og fyrir ára- mótin. En menn hafa ekki ein- göngu svalað þorsta sínum í dýr- um vínum yfir hátíðina. í jóla- ösinni hafa t.d. verið drukknar um 360 þús. flöskur af Coca-cola eða 5—6 flöskur á hvert manns- barn í Reykjavík, og fengu menn þó ekki nægju sína, því verk- smiðjan hafði hvergi nærri við að framleiða. Þessi mikla eftirspum byrjaði viku af desember. Og þó fram- leiðslan sé 60 flöskur á mínútu eða 3600 á klst. og stundum hafi verið unnið til miðnættis fyrir jólin, hafðist ekki undan og á Þorláksmessu var ekki ein flaska til. Hafði þó verið tekin upp skömmtun í. verzlanirnar. Stanz- aði ekki síminn í verksmiðjunni og hringdu kaupmenn og báðu um meira strax daginn eftir að afgreitt var til þeirra. Eftir jólin var aftur hafizt handa, og hafðist ekki undan eft- irspurninni fram á gamlársdag. Nú hefur verksmiðjan gert hlé á störfum, til að ditta að vélun- um, enda hvergi nærri hægt að anna eftirspurninni meðan jóla- trésskemmtanir barna standa yf- ir. Búið var áður að taka frá nokkurt magn til notkunar á barnaskemmtununum, fyrir þá sem voru búnir að panta fyrir- fram. Sjómaður slasast í FYRRINÓTT kom þýzki togar- inn Franz Schau til Neskaupstað- ar með slasaðan mann. Var það ungur maður, sem hafði verið að eiga við neyðarflugeld, er hann sprakk í hendi hans. — Tættist höndin í sundur og varð að taka hana af um úlnlið í sjúkrahúsinu í þænum. Brennuvargur að Laugavegi 1 í GÆRDAG skýrði Magnús Eggertsson, varðstjóri hjá rannsóknarlögreglunni, blað- inu frá því, að öll verksum- merki í bakhúsinu að Lauga- vegi 1, þar sem eldur kom upp á gamlárskvöld, bendi til Kindur hengdu sig í fisknetjum SL. laugardag var lögreglan kvödd upp að Árbæ, en þar höfðu krndur festst í fisk- netjiam. Kom í ljós að tvær kindurnar höfðu hengt sig í netjunum og sú þriðja sat þar föst, aðfram komin. Á Ártúnshöfða eru fisk- trönur, þar sem net hengu til þerris. Höfðu kindurnar, sem eru eign Braga bónda í Ár- túnum, flækzt í þeim með fyrrtöldum afleiðingum. — Lögreglan gerði eigandanum aðvart og gekk frá hræun- Garðax Loftson Garðar Loftsson er fæddur 23. september 1920, að Böggvistöðum í Svarfaðardal í Eyjafirði. Garðar er að mestu leyti sjálí- menntaður í málaralistinni. Har.n hefur stundað ýmiss störf til lands og sjávar en vinnur nú hja Kaupfélagi Eyfirðinga á Akur- eyri. Garðar hefur haldið nokkrar sjálfstæðar sýningar á Akureyri við góða aðsókn, á árunum 1950 til 1955 og einnig tekið þátt í Eamsýningum frístundamálara. Myndir eftir hann hafa selst bæði til Norðurlanda og Amer- íku. Myndir eftir hann hafa selzí nú í glugga Morgunblaðsins eru flestar nýjar, málaðar í olíu og með vatnslitum og eru þær allar til sölu hjá afgreiðsiu blaðsins. Nýtt flugfélag til að annast Grænlands- flug? KAUPMANNAHÖFN, 5. janúar. (Einkaskeyti til Mbl.): — Blaðið Berlingske Tidende segir frá því, að sérfræðinganefnd eigi að rann saka þarfir Grænlands ,að því er flugsamgöngur varðar. Það fari siðan eftir niðurstöðum þeirrar rannsóknar, hvort stofnað verði sérstakt, grænlenzkt flugfélag, sem væntanlega yrði þá nátengt SAS. Þá segir, að frestað hafi verið um óákveðinn tíma tilraunum þeim, sem áætlað var að gera með innanlandsflug í Grænlandi með eins hreyfils vélum af gerð- inni DeHavilland Otter. Hafa heilbrigðisyfirvöldin lagt bann við, að flugvélar lendi á fjórum vötnum, við Egedesminde,’ Hol- steinsborg, Godthab og Juliane- hab, en drykkjarvatn er tekið úr stöðuvötnum þessum. Þarna áttu „tilraunaflugvélarnar-* að lenda. þess að innbrot hafi verið framið í húsið og kveikt í þvi — á þrem stöðum. Það er ýmislegt, sem styður þetta. Þegar að var komið í skrif- stofu bókbandsins, sem er í litlu herbergi, höfðu allar skúffur í því verið teknar úr borðinu og hvolft úr þeim á gólfið. Borðið er óskemmt, en ein skúffan hef- ur orðið fyrir lítils háttar bruna- skemmdum. Þetta sýnir, að úti- lokað er að skúffan hafi verið i borðinu. Þá hafa athuganir leitt í ljós, að gerð hefur verið tilraun til þess að' sprengja upp hurð. Hafa innbrotsmenn eða maður notað til þess verkfæri, sem voru í bókbandssalnum. Hurð og staf- ur bera þessa menjar. Hurðar- húnninn hefur verið snúinn af læstri forstofuhurð bókbandsins. Sennilegt er að þjófurinn haíi komizt inn í húsið með því að brjóta upp lélega hurð að kjall- aranum. Úr honum er opin V;3 upp í vinnusal bókbandsii,.. Eldur hefur komið upp á þrem stöðum: á gólfinu framan við skrifstofuherbergið, við lúguna úr kjallaranum, en aðalbálið hef- ur verið í vestanverðum bók- bandssalnum, þar sem eldur hef- ur verið borinn að ýmiss konar efni til bókagerðar og hefur þar orðið mikill eldur. Þá sagði Magnús Eggertsson, að eldurinn hafi komizt upp í vinnu- sal prentmyndagerðarinnar, að logað hafi upp með niðurfalls- röri og eldurinn bersýnilega leynzt við rörið, unz hann gaus upp aftur. Rannsóknarlögreglan vill ein- dregið skora á þá, er kynnu að hafa orðið varir við mannaferðir við Laugaveg 1 á gamlárskvöld, t. d. í portinu framan við húsið, að gera sér viðvart. Þessi mynd var tekin nm borð í veðurathugunarskip- inu Cumukus í gær. Maður- inn ,sem er frá Vésmiðjunni Hamri, er að sjóða til bráða- birgða í rifuna á kinnungi skipsins, styrkja bönd og fleira. Sjá grein á bls. 3. Brenndist n sjóðnndi knffi UM kl. 22 sl. mánudagskvöld var Jón Þórðarson, 59 ára, starfsmað ur í eldhúsi flugvallarhótelsins á Keflavikurflugvelli, að bera sjóð heitt kaffi í 15 lítra potti og ætl- aði að hella því á kaffikönnu, sem er í veitingasalnum. Efri brún kaffikönnunnar er i tveggja metra hæð frá gólfi. Steig Jón því öðrum fæti upp á kassa, en hinum fætinum í hillu, sem er undir afgreiðsluborðinu, til þess að ná að hella á kaffikönn- una. Fótur Jóns, sem var í hiUunni skrikaði til, og við það missti hann sjóðandi kaffið úr poLUnum og helltist það yfir fót hans, með þeim afleiðingum að hann brenndist allmikið. Jón kvartaði þó ekki, heldur fór niður í fatageymslu og klæddi sig úr blautum fötum sínum. Við það flettist skinn af fætinum á nokkuð stóru svæði. Benito Ari- etta, yfirmaður veitingasölunn- ar, hafði þá frétt af atburði þess- um og ók hann Jóni á sjúkrahiís Varnarliðsins, en þar var gert að sárum hans. Síðan var Jóni ekið heim, en hann býr í Kópa- vogi. AKRANESI, 5. janúar: ■— Tveir reknetabátar héðan fengu síld í nótt, Farsæll um 200 tunnur og Ver um 150 tunnur. Böðvar og Sigurvon, sem reru með línu í nótt, eru komnir að og fiskuðu frá 7—8 lestir hvor. Þorskurinn einmitt. er frekar smár en ýsan stór og I væn. — Oddur. Londs- hoppdrættið DREGIÐ verður 15. jan. Enn eiga nokkrir eftir að gera skil. Skrifstofan í Sjálfstæðishúsinu er op- in daglega.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.