Morgunblaðið - 07.01.1960, Síða 3
Pimmtudagur 7. Jan. 1960
M OTt CTJ W Tt T,A fílD
3
T*íisternak og kona hans.
„Hið ómögulega,
hér verður það veruleiki.
Hið ólýsanlega, hér er fr
^■0 0'0 000 000.00
Pasternak
líkaði
NÝLEGA fór þýzka leik-
húsið í Hamborg sýningar-
ferð til Leningrad og
Moskvu. Er það í fyrsta
skipti að vestur-þýzkt leik-
hús heimsækir Sovétríkin,
og voru móttökurnar kon-
unglegar. Var flokkurinn
undir stjórn Gústafs Grund
gens, sem nefndur hefur
verið töframaður þýzka
leiksviðsins.
Sýndi flokkurinn sjón-
leikinn „ F a u s t “ eftir
Goethe, en á nokkuð nýst-
árlegan hátt, að því er
áhorfendum fannst. Engin
leiksviðstjöld voru notuð
og inn í orð Goethes var
öðru hverju skotið rokk-
tóniist.
Áhorfendur urðu fyrst
þrumulostnir af undrun,
síðan hugsandi, en að lok-
um svo hrifnir, að leikend-
ur höfðu ekki áður fengið
aðrar eins undirtektir.
Meðal áhorfenda á frum-
sýningunni í Moskvu var
Boris Pasternak, en hann
hefur m. a. þýtt „Faust“ á
rússnesku. Færði leikflokk-
urinn Pasternak að gjöf
eintak af „Faust“ í frum-
útgáfu og auk þess sjón-
leikinn á hljómplötu.
Að leikslokum, þegar
sýningargestir voru farnir,
sat Pasternak einn eftir
með konu sinni í áhorfenda
salnum. Þá hripaði hann í
flýti niður nokkur orð úr
síðasta atriði „Fausts 11“ og
sendi þessa kveðju til
Grundgens:
„Hið ómögulega, hér
verður það veruleiki. Hið
ólýsanlega, hér er það
gjört. B. P.“
Þýzki leikflokkurinn í Moskvu.
\00 00000 00 00-0-00 0 0
Vefrarvertíð að hefjast vestra
Afli sœmilegur
FLATEYRI, 6. jan. Héðan er
gerður út einn togari, Gyllir. Á
vetrarvertíð verður gerður út
einn bátur, mótorbáturinn Ás-
björn frá ísafirði. Hann fór í
iy rstu legu í gær og aílaði 4 iest-
ir.
Undanfarnar 3 vertíðir hafa
ekki verið gerðir út bátar héðan,
*vo að nú er mikill hugur í mönn-
um. Hér binda menn miklar vonir
við bátaútveg eins og annars
staðar á Vestfjörðum.
Veður var ágætt um jólin.
Barnaballið, sem venjulega er
haldið hér á þrettándanum er í
fullum gangi. — Baldur
★
HÓLMAVÍK, 6. jan. — Veður var
ákaflega gott hér í fyrir hátíðirn-
ar og aflabrögð með bezta mót',
einkum í desember. Gengu héðan
þá tveir þilfarsbátar og öfluðu
3—5 lestir í róðri. Trillubátar
voru 4—5 og afli þeirra 2—3 lest-
ir að meðaltali. Það þykir gott
hér. „Steingrímur trölli“ hefur
lagt upp tvisvar sinnum á þessum
vetri á Hólmavík og Drangsnesi
og aflinn farið í frystihús.
Vetrarvertíð er að byrja og ráð
gert að gangi héðan 3 línubátar.
Búið er að ráða mannskap á þá og
ráðgert að þeir fari að byrja.
í desember voru betri afla-
brögð en verið hefur lengi og þar
af leiðandi meiri atvinna í landi.
Menn vonast til að þessi afli
haldist.
Tíðarfar er gott og heilsufar
einnig. Fé er létt á fóðrum. Á-
ætlunarbíll hefur getað gengið
eina ferð í viku í allan vetur.
— Fréttaritari.
BÍLDUDALUR 6. jan. — Tíð hef-
ur verið sæmileg undanfarið, þó
snjóað dálítið nema í gær. Vetr-
arvertíð er hafin, og tveir bótar
farnir að róa, Reynir og Jörund-
ur, en afli verið frekar tregur.
Þriðji báturinn, Geysir, mun
hefja róður fljótlega, en áhöfnin
á honum eru mestmegnis færeysk
ir sjómenn.
Þriðjudaginn 5. jan. kom togar
inn Pétur Thorsteinsson frá Fær-
eyjum með 15 færeyskar stúlkur
og 14 sjómenn ,sem munu starfa
hér í vetur. Rækjuveiðin er enn-
fremur hafin, en afli frekar treg
ur.
Utbúin hefur verið matsala
fyrir aðkomufólk í Félagsheim-
ilinu niðri og sér Suðurfjarða-
hreppur um rekstur á því. Mik- 1
Jll hörgull hefur verið á húsnæði
fyrir þetta fólk.
— Hannes.
★
PATREKSFIRÐI, 6. jan. — Héð-
an rær nú einn bátur, Sæborg, en
Sigurfari er væntanlegur heim úr
viðgerð um miðjan mánuðinn og
mun þá hefja róðra. Þá kemur
hingað nýr bátur um næstu
mánaðamót, Andri, en hann er
smíðaður í Danmörku. Hann mun
einnig stunda róðra héðan í vet-
ur. —■
í Tálknafirði eru gerðir út
tveir bátar, Guðmundur á Sveins-
eyri og Tálknfirðingur, hvort-
tveggja stálbátar.
Afli hefur verið hér ágætur að
undanförnu. Haustvertíð er hér
sjaldgæf en var stunduð nokkuð
að þessu sinni. Var aflinn um
185 lestir á bát.
Allur sá afli, sem hingað berst
er unninn í hraðfrystihúsunum
hér og í Tálknafirði.
Héðan eru svo sem kunnugt er
gerðir út tveir togarar og hafa
þeir að undanförnu siglt með afl-
ann á erlendan markað, en nú
mun því lokið og munu þeir þá
leggja upp afla sinn hér. Þegar
svo er komið má búast við að
hér skorti fólk til vinnu að afl-
anum. — Trausti.
★
SUÐUREYRI, 6. jan. — Héðan
frá Suðureyri munu 7 bátar róa
í vetur. Þegar eru 4 byrjaðir
róðra og hefur afli verið sæmi-
legur, þetta 4—8 lestir i róðri.
í þessum mánuði er væntanlegur
hingað nýr bátur frá Danmörku.
Þegar vertíð er hafin vantar
hér fólk og er von á að hingað
komi Færeyingar til vinnu að út-
gerðinni.
1 nóvembermánuði var hér
Framhald á bls. 19.
STAK8TE1IVAR
Lausn í Genf
Norska blaðið Lofotposte*
birti nýlega umraæli fiskimála-
ráðherra Noregs um 12 mílna
fiskveiðilandhelgina og barst
Genfarráðstefnan jafnframt í til
milli ráðherrans og blaðsins.
Komst ráðherrann þá m.a. aS
orði á þessa leið:
„Það ' er þá fyrst þar um að
segja, af það hefur gert þetta
vandamál erfiðara viðfangs, að
fiskimenn sjálfir eru klofnir í af-
stöðu sinni til þess. Þeir sem
veiðar stunda á úthafinu vilja
halda núgildandi fiskveiðitak-
mörkum, en aðrir fiskimenn
krefjast víkkunar þeirra. — Að
sjálfsögðu get ég skilið áhyggj-
ur úthafsfiskimanna i sambandi
við þetta mál, en útvíkkun tak-
markanna getur orðið tímabær
eigi að síður, hvaða afstöðu sem
Noregur tekur á sjóréttarráð-
stefnunni i Genf. Það ér t.d. hug-
sanlegt að Kanada aðhyllist út-
víkkun og verðum við þá að
reikna með að fleiri þjóðir, þar
á meðal Norðmenn komi i kjöl-
farið.
Hvað sem öðru líður, verðum
við að ganga að því með heilum
hug, að reyna að finna lausn á
þessu vandamáli á Genfarfund-
inum. Ef enginn árangur næst á
ráðstefnunni, getur það haft svo
víðtæk óheillavænleg áhrif á al-
þjóðlegt samstarf, að við renn-
um tæpast grun í það nú“.
Það er að sjálfsögðu rétt, sem
ráðherrann segir, að norskir
fiskimenn eru nokkuð klofnir i
afstöðu sinni til 12 mílnanna.
Óhætt mun þó að fullyrða, að
mikill meirihluti þeirra krefjist
12 mílna fiskveiðitakmarka.
Aukin íbúðarlán
Eins og kunnugt er, hét hln
nýja ríkisstjórn því í stefnuyfir-
lýsingu sinni, að beita sér fyrir
auknum lánveitingum á vegum
Húsnæðismálastofnunar ríkisins
til íbúðabygginga í landinu.
Vinstri stjórnin hafði svikið öll
sín loforð í þessum efnum. Á
valdatímabili hennar hafði dreg-
ið stórkostlega úr starfsemi hinn-
ar nýju húsnæðismálastofnunar,
sem Sjálfstæðisflokkurinn beitti
sér fyrir að sett var á laggirnar,
áður en vinstri stjórnin komst
til valda. Hefur þessi samdrátt-
' ur á starfsemi veðlánakerfisins
haft í för með sér stórkostlegt
óhagræði og hrein vandræði fyr-
ir mikinn fjölda fólks, sem unnið
hefur að því af miklum dugnaði
að eignast þak yfir höfuðið.
Ríkisstjórnin hefur nú stigiS
fyrsta skrefið til þess að bæta
úr þessum vandræðum. Hún hef-
ur fengið Seðlabankann til þess
að veita Húsnæðismálastofnun
rikisins 15 milljón króna bráða-
birgðalán. Er þegar hafinn undir
búningur að úthlutun þessa láns
fjár.
íbúðarbyggingar
og þjóðarhagur
Þjóðin verður að sjálfsögðu á
hverjum tíma að miða íbúðabygg
ingar sínar, eins og aðrar fram-
kvæmdir við fjárhagslega getn
sína og fjárfestingarmöguleika.
Það er áreiðanlega mjög óheppi-
legt, að íbúðabyggingar gangi í
mjög stórum bylgjum, þannig aS
eitt ár séu svo að segja engin
íbúðarhús byggð en annað áriS
aftur unnið að stórfelldum bygg-
ingarframkvæmdum. Hitt er
miklu farsælla að þjóðin vinni aS
umbótum í húsnæðismálum sín-
um sem jafnast frá ári til árs,
þannig að fullnægt sé í senn þörf
um fólksins fyrir umbætur á
ibúðarhúsnæði, sem fyrir er og
þörfum vegna fólksfjölgunarinn-
ar i landinu. Ber að Ieggja
áherzlu á, að þeirri stefnu verði
fylgt í framtíðinni.