Morgunblaðið - 07.01.1960, Síða 6
6
MORCUTSTtr4ÐIÐ
Fimmtudagur 7. jan. 1960
Umfangsmikil skák-
keppni fyrirtækja
„Júlíus Sesar" verður sýndur í Þjóðleikhúsinu í kvöld. — Myndin er af Rúrik Haraldssyni í
hlutverki Brútusar og Jóni Aðils í hlutverki Kassiusar.
460 jbi/s. jólabréf
borin Reykvíkingum
PÓSTMAGNIÐ, sem póststofan
fékk að þ^ssu sinni til meðferðar,
var yfirleitt heldur meira en í
desember 1958. Þá voru borin út
síðustu dagana fyrir jólin um 420
þúsund jólabréf og jólakort, en
nú voru jólabréf og kort um 460
þúsund og var mestur hluti þessa
póstmagns borinn út dagana 21.
til 24. desember, eða sem næst
115 þúsund sendingar á dag. —
Aukning útborinna jólabréfa er
því nálægt 10%. Það lætur því
nærri að hver Reykvíkingur hafi
fengið að meðaltali um 7 jólabréf.
Útburð póstsins önnuðust 120
menn. Af þeim voru 86 skóla-
piltar.
Jólabréf og kort, sem ekki var
hægt að koma til skila vegna
ófullnægjandi utanáskriftar, voru
4700. Af þeim voru 400 bréf án
heimilisfangs. Vanskil eru því
sem næst 1% af heildar póst-
magninu. Póststofan er nú að
láta athuga óskilabréfin og mun
reyna að koma eins miklu af
þeim til skila og unnt er.
Umsetning Sparimerkjadeildar
í desember:
Sala sparimerkja, kr. 1.973.633.-
00. (í des. 1958: kr. 2.206.713.00)
Endurgreidd sparimerki, kr.
1.115.493.00. í des. 1958: 1.003.627-
00)
Innlögð sparimerki, kr. 1.169.-
061.00. (í des. 1958: kr. 1.126.475,-
00)
Laus embætti
og ný cmbætti
í SÍÐASTA Lögbirtingi er slegið
upp embætti á vegum ríkisins. Er
um að ræða starf skrifstofu-
stjóra Tóbakseinkasölu ríkisins.
Er hún laus til umsóknar nú, með
umsóknarfresti til 1. febrúar. Nú-
verandi skrifstofustjóri Tóbaks-
ins er Ari Guðmundsson. Nær
hann hámarksaldri ríkisembættis
manna næsta sumar. Verður em-
bættið veitt frá 1. ágúst næst-
komandi.
Þá er í sama Lögbirtingi til-
kynnt að Hörður Helgason sendi-
ráðsritari við Parísar-sendiráðið
hafi verið skipaður sendiráðu-
nautur frá síðustu áramótum
Tilkynnt er og í þessum Lög-
birtingi að nokkrar stöður póst-
manna við pósthúsið hér í Reykja
vík séu lausar til umsóknar.
Loks er skýrt frá því að Gull-
brand W. Sandgren hafi verið
skipaður aðalræðismaður íslands
í Gautaborg.
Umsetning Ávísanadeildar í
desember:
Innborgaðar póstávisanir, kr.
3.093.462.46. (I des. 1958: krónur
2.511.000.00)
Útborgaðar póstkröfu- og póst-
ávísanir, kr. 19.634.675.00. (I des.
1958: kr. 17.103.000.00)
Póstmagnið til og frá Reykja-
vík reyndist einnig meira nú fyr-
ir jólin en í fyrra. Innan sviga
eru tölur frá fyrra ári:
Til innlendra póststöðva voru
sendir 5524 (4822) bréfa-, blaða-
og bögglapokar, er voru samtals
108 tn. (105). Frá innlendum
póststöðvum bárust 3317 (2460)
bréfa- og bögglapokar, 76 tn.
(47). Til útlanda voru sendir
1087 (944) bréfa-, blaða- og
bögglapokar, 24 tn. (22), en frá
útlöndum komu 1994 (1685)
bréfa-, blaða- og bögglapokar,
samtals 46 tn. (39).
Sólkerfið 4.950
millj. óra gamait
BERKELEY — Eðlisfræðing-
ur við Kaliforníuháskóla, dr.
John H. Reynolds, heldur þ\i
fram, að sólkerfi vort sé
4. 950.000.000 ára gamalt, og
byggir hann athuganir sinar á
loftstein, sem féll í Norður-
Dakota fyrir 41 ári.
Segist hann hafa fundið ald-
tjrinn út með því að rannsaka
ýmis geislavirk efni í loftstein
um Þá komi í Ijós, að steinninn
hafi orðið til 350 milljón árum
áður en kjarni sólkerfisins fór
að myndast. Þessi gerð Ioft
steina sé um 4600 millj. ára
gömul, en það finnist með því
að rannsaka ýmis önnur efni
í þeim.
Koma tölur þessar heim við
þær, sem ýmsir vísindamenn
hafa haldið fram til þessa, um
aldur sólkerfisins.
UM miðjan þennan mánuð verð-
ur hleypt af stað skákkeppni
milli ýmissa fyrirtækja og stofn-
ana í Reykjavík, og er þetta fyr-
ir forgöngu Skáksambands ís-
lands sem telur að með þessu
verði glæddur almennari áhugi
fyrir skáklistinni. Hefur sjö
manna nefnd haft með höndum
undirbúningsstörf.
Þetta er sveitarkeppni og skal
hver sveit skipuð 4 aðalmönnum
og 1—3 til vara. Búast má við
mikilli þátttöku, og verður þá
sveitunum skipt í riðla, senni-
lega sex sveitum í hvern riðil.
Kémur þá í hlut hverrar sveitar
að keppa við fimm aðrar, og skal
keppni þeirri vera lokið fyrir
marzlok. Eru sveitirnar sjálfar
samningsaðilar um stað og stund
fyrir keppnina sín á milli þó inn
an vissra tímamarka. Ekki eru
neinar skorður settar við fjölda
sveita frá einni og sömu stofnun,
og má vera að hinar stærstu
sendi 3—4 sveitir á vettvang. Þær
sveitir, sem efstar verða í hverj-
um riðli í vetur mynda A-flokk
á næsta ári, B-flokk þær sem
öðru sæti ná o.s.frv., þannig að
úr því fáist skorið með nokkurri
vissu, hvaða stofnun hefur á að
skipa beztu sveitinni. Keppt
verður um bikara eða önnur slík
verðlaun í hverjum flokki, og
mun verða leitað til fyrirtækja
um gjafir á verðlaunagripum.
Ekki er öðrum skákmönnum
heimilt að keppa fyrir stofnun
en þeim sem taka aðallaun sín
þar eða þá eftirlaun fyrir störf í
hennar þágu.
Fyrir skákina er ætlaður fjög
urra stunda hámarkstími, og
verður þá ekki um biðskákir að
ræða Skal tefla fyrstu 40 leik-
ina á þrem klnkkustundum, en
síðan ljúka skákinni á einni
klst. Sá stigareikningur verður
viðhafður, að vinningur yfir sveit
gefur af sér 1 stig og jafntefli
,Vz stig svo sem í einstaklings-
keppni. Samanlagður vinninga-
fjöldi á öllum borðum kemur því
aðeins til greina, að tvær eða
fleiri sveitir verði jafnar og þurfi
því úr að skera um sætið.
Þátttökugjald verður 150 krón
ur fyrir hverja sveit, og rennur
það til greiðslu á skákstjórn,
prentun, auglýsingum o.fl. Skák-
stjóri er ráðinn Gísli ísleifsson,
sem sæti á í stjórn Skáksambands
íslands og er þaulkunnugur leik-
reglum. Með hbnum verða fjórir
menn í yfirstjórn keppninnar.
Skákstjórinn tekur við tilkynn-
ingum um þátttöku í keppni þess
ari fram til næsta föstudagskvöld
(8. jan.). Heimasími hans er
11576 en á vinnustað 17490. Bú-
izt er við að keppnin geti hafizt
um aðra helgi.
(Frá undirbúningsnefnd
keppninnar).
Nýr báturtilÓlafsvíkur
ÓLAFSVÍK, 5. jan. — Kl. 9 í
morgun kom hingað nýr bátur,
Sæfell SH 210. Er þetta 76 lesta
bátur, búinn öllum nýtízku sigl-
ingartækjum, svo sem radar,
azdictækjum o. s. frv. Eigendur
eru Guðmundur Jensson, útgerð-
armaður, og fleiri.
Báturinn er byggður í Trave-
munde í Vestur-Þýzkalandi. Skip
stjóri á honum heim var Gunnar
Valgeirsson úr Reykjavík, stýri-
maður Guðmundur Jensson, sem
mun verða skipstjóri á honum
skufar úr
daglegq lífinii
* Vitanlega
stórvítavert.
Óhæfuverkið sem framið
var við Tjörnina á nýjársnótt
vekur almenna andúð. Hvaða
skoðun, sem fólk hefur haft á
verkinu sjálfu, virðast allir
sammála um að fordæma þann
verknað.
í fréttaauka í fyrrakvöld
gerðu þau Auður Auðuns borg
arstjóri menntamála í Reykja-
vík, Svavar Guðnason, forseti
Bandalags ísl. listamanna og
Tómas Guðmundsson, form.
Listaverkanefndar, grein fyrir
skoðun sinni á þessu máli.
Lýstu þau öll andúð sinni á
þessum verknaði.
Frú Auður Auðuns sagði
m. a.: Að grípa til ofbeldisað-
gerða eins og hér hafa átt sér
stað, er vitanlega stórvítavert.
Mat á listaverkum er ærið mis
jafnt að því er virðist ekki síð-
ur meðal listamannanna
sjálfra en almennings. Þetta
ólíka mat kemur greinilegast
fram, þegar nýjar listastefnur
eru að ryðja sér til rúms, og
valda svæsnum deilum. Þarf
ekki að spyrja hvað yrði ef
hinuru óánægðu, og þeir eru á-
vallt margir undir slíkum
kringumstæðum, tækju sér þá
vald til að brjóta niður og
bramla afkvæmni hins nýja
tjáningarforms. sem þeir ekki
fella sig við og hver yrði yfir-
leitt þróun lista við slíkar að-
stæður?
Svavar Guðnason, listmál-
ari, hóf mál sitt á þessum orð-
um: Það á enginn að hafa rétt
til að eyðileggja eitt listaverk,
nema höfundur þess. Hafi lista
verk verið selt eða komizt I
annarra hendur, ætti eigandi
þess ekki fremur en aðrir að
hafa neinn rétt til að eyði-
leggja það nema þá með leyfi
höfundar. Höfundur ætti enn-
fremur að hafa rétt til að taka
verk sín eignarnámi af kaup-
anda eða eiganda, honum eðli-
lega að skaðlausu fjárhagslega
til þess að fyrirfara því, ef
það stríðir óbærilega gegn
listamannssamvizku hans. Um
ráða- eða höfundarréttur lista-
manns yfir verki sínu ætti
þannig að vera mikið víðtæk-
ari en venjuleg eignaheimild.
Tómas Guðmundsson, skáld,
sagði m. a.: Það er ekki undir
neinum kringumstæðum hægt
að una því að skoðanamun sé
komið á framfæri með þei/n
gerræðisfulla hætti, sem hér
hefur átt sér stað .... Von-
andi leiðir þetta ekki heldur
til þess að forráðamenn bæjar-
ins sjái sig neydda til að kippa
að sér hendinni um kaup á
listaverkum til uppsetningar á
almannafæri.
• Samstillt
framvegis, og 1. vélstjóri Bárður
Jensson. Hrepptu þeir hið versta
veður á leiðinni heim og urðu að
leita vars á Shetlandseyjum. Þar
sem þeir lágu í hálfan annan sói-
arhring vegna veðurs. Úr þvl
gekk ferðin vel og reyndist bát-
urinn hið prýðilegasfa sjóskip, þó
versta veður væri.
Ganghraði bátsins er 11 sjó-
mílur og er hann búinn 380 ha.
Mac dieselvél. Mun hann stunda
línuveiðar héðan fyrst um sinn.
Ólafsvíkurbúar óska eigendum
og skipshöfn til hamingju með
skipið.
Sex bátar voru á sjó í gær og
öfluðu 4—10 lestir. Hrönn var
aflahæst. Þeir bátar, sem komnir
eru að í dag, eða um helmingiir
bátanna, fékk 7—8 lestir. — B. Ó.
almenningsálit
Samhljóða skoðanir virðast
vera almennar í bænum. Eng-
an hefi ég hitt sem ekki hefur
tekið í sama streng. Almenn-
ingsálitið er sem betur fer sam
Eirn berast
árekstrakærur
til lögreglunnar
ENN eru umferðardeild rann-
sóknarlögreglunnar að berast
kærur í sambandi við árekstra
og óhöpp er urðu um hátíðarn-
ar. Þannig hefur eigandi leigu-
mílsins R—1966 leitað til henn-
ar vegna skemmda á bílnum.
Hafði bíllinn staðið á bílastæði
við verzlunina As við Laugaveg-
inn um kl. 7 á Þorláksmessu-
kvöld. — Meðan bíllinn stóð þar
mannlaus var ekið á hann og
urðu nokkrar skemmdir á bíln-
um. Telur rannsóknarlögreglan
sig hafa fengið vitneskju um það
að sá sem árekstrinum olli hafi
reynt að grafast fyrir um eig-
andann, en ekki tekizt það. Eru
það eindregin tilmæli hennar til
manns þessa að hann gefi sig
fram hið fyrsta.
Þá lá hjá götulögreglunni í gær
dag fyrirskipun um að stöðva
bílinn S—425. Hafði hann ekið
á grindverk við húsið Sindra við
Nesveg og brotið þar niður grind
verk og staur. Ekki hafði bílstjór
inn skipt sér af þessum verknaði
sínum, en nærstaddir tóku niður
hjé sér númerið og kærðu.