Morgunblaðið - 07.01.1960, Page 11

Morgunblaðið - 07.01.1960, Page 11
Fimmtudagur 7. jan. 1960 MOKCTIWRLAÐIÐ 11 Iðnaðarmálin 195 eftir Braga Hannesson fram- kvæmdastjóra Landssambands iðnaðarmanna MJÖG er erfitt að segja fyrir um heildarþróun iðnaðarins árið 1959 þar sem ekki hefur ennþá tekizt að koma fastri skipan á söfnun iðnskýrslna, og þar af leiðandi eru mjög takmarkaðar upplýs- ingar fyrirliggjandi um iðnaðar- framleiðsluna á árinu. Þó er ljóst, að um nokkurn samdrátt hefur verið að ræða í einstaka iðngrein- um eins og t. d. í nýsmíði í skipa- smíðaiðnaði og í byggingariðnaði. Reykjavík var lokið við smíði á 740 íbúðum að meðalstærð 356 rúmm., en um 1145 íbúðir eru í smíðum. Á árinu 1958 var hins vegar lokið við smíði á um 900 íbúðum að meðalstærð 358 rúmm. og þá voru í smíðum 1243 íbúðir. Yfirleitt hafa iðnaðarmenn haft næga atvinnu á árinu, þótt nokk- uð sé það misjafnt eftir iðngrein- um og landshlutum. Mest hefur atvinnan verið suðvestanlands. Iðnfyrirtækin hafa átt við tölu verða erfiðleika að etja einkum vegna lánsfjárerfiðleika og hrá- efnaskorts. Óviturleg skattalög- gjöf kemur í veg fyrir, að iðn- fyrirtæki geti lagt sér sjálft til nægilegt rekstrarfé, og er því starfsemi þeirra mjög háð fyrir- greiðslu lánastofnana, en sú fyr- irgreiðsla hefur engan veginn verið eins og skyldi. Auk þess hefur innheimta opinberra gjalda eins og söluskatts og útflutnings- sjóðsgjalds leitt til mikillar mis- mununar, gert samkeppnisaðstöð- una ójafna og reynst dragbítur eðlilegri og heilbrigðri þróun í iðnaði. Á árinu var tekið upp það nýmæli að gera áætlun um hrá- efnainnflutning, og er það vissu- lega spor í rétta átt. Fyrir skömmu var tekin í notk- un raforkustöðin við Efra-Sog. Er það merkur áfangi fyrir iðn- aðárstarfsemina í landinu. Hér á eftir verður gerð grein fyrir helztu hagsmuna- og áhuga málum iðnaðarins, sem unnið hefur verið að á árinu, og greint frá framvindu þeirra. Iðnfræðsla. Samtök iðnaðarmanna hafa löngum haft forgöngu um það, að iðnfræðslan væri bætt og auk- in. Þessi barátta hefur líka borið góðan árangur, þótt margt sé ógert enn, enda krefst aukin tækniþróun aukinnar og hag- kvæmari iðnfræðslu. í þessu sambandi má benda á það, að Iðnskólinn í Reykjavílt hefur að undanförnu annazt verk lega kennslu í nokkrum iðnum með góðum árangri. Að dómi allra, sem kunnugir eru iðr,- fræðslu, er hér um mjöð þýð- ingarmikið mál að ræða, enda hafa þær þjóðir, sem okkur eru næstar og skyldastar, sett á stofn verknámsskóla hjá sér fyrir iðn- nema. Er því nauðsynlegt, að Iðn- skólanum í Reykjavík sé séð fyrir fjármagni til þess að stækka skóla húsið, svo að þessi þáttur iðn- fræðslunnar geti þróast á eðli- legan hátt og þurfi ekki að sitja á hakanum vegna húsnæðisleysis Auk þess verður að stefna að því, að fleiri iðnskólar geti tekið upp verknámskennslu. Heildartala iðnnema á náms- samningni árið 1958 var 1624, en um áramótin voru iðnemar á námssamningi 1645. Að undanförnu hefur starfað nefnd skipuð af Iðnaðarmálaráð- herra til þess að semja reglu- gerð um framhaldsfræðslu iðn- aðarmanna við Iðnskólann í Reykjavík. í nefndinni eiga sæti: Sigurður Ingimundarson, for- maður, Björgvin Frederiksen, Óskar Hallgrímsson, Tómas Vig- fússon og Þór Sandholt. Hér er um mjög þýðingarmik- ið mál að ræða fyrir iðnaðar- menn, enda hefur landssamband ■iðnaðarmanna lagt mikið kapp á framgang þess. Aukin þekking, einkum og sér í lagi á viðskipta- málum og ýmsu því, sem lýtur að stjórn atvinnufyrirtækja, er nauð synleg fyrir iðnaðarmenn eins og málum er nú háttað, ef tryggja á það, að þeir geti í framtíðinni haldið áfram að vera sjálfstæðir atvinnurekendur og stjórnað fyr- irtækjum sínum sjálfir. Meistaraprófsnefnd mun senni- lega ljúka störfum á næstunni og gera grein fyrir tillögum sín- um um kennslutilhögun. Þá er lokasporið eftir, en það er fram- haldsfræðsla fyrir iðnaðarmenn, sem vilja afla sér meistararétt- inda hér eftir. Skatta- og útsvarsmál. Samtök atvinnuveganna hafa haft með sér sanfstarf í því skyni að leitast við að koma fram end- urskoðun á skatta- og útsvars- löggjöfinni. Mikið hefur verið unnið í þessu máli, en árangurinn hefur ekki orðið sem erfiðið. 4 árinu 1959 var þó gerð breyt- ing á skattalögunum á þann veg, að fyrirtæki skyldu greiða ákveð- inn hundraðshluta tekna í skatt í stað stighækkandi skatts áður. Þótt hér sé um spor í rétta átt að ræða, þá þarfnast núverandi löggjöf um skatta og útsvar á fyr- irtæki gagngerðrar endurskoðun- ar, þar sem leitast verði við að samræma skattlagningu ríkis og sveitarfélaga og jafna samkeppn- isaðstöðu fyrirtækja með mis- munandi rekstrarform. Samtök atvinnuveganna höfðu forgöngu um það að vernda rétt félagsmanna sinna, sem svo- nefndur stóreignaskattur var á lagður. í þessu skyni hafa verið höfðuð nokkur mál, þar sem gildi ýmsra þátta stóeignaskattslag- anna hafa verið borin undir dóm- stólana. Þýðingarmesti árangur- inn, sem náðst hefur með þessum málarekstri, er sá, að Hæstiréttur taldi reglur laganna um skattmat á eign hluthafa í hlutafélagi ósam rýmanlegar 67. gr. stjómarskrár- innar umfriðhelgieignarréttarins. Á grundvelli þessa Hæstaréttar- dóms hefur ríkisskattanefnd sam- ið sérstakar reglur, sem fylgja ber í öllum megin atriðum við skattmat hlutabréfa samkvæmt stóreignaskattslögunum. Samkv. útreikningi Skattstofunnar í Reykjavík á skattgjaldi af hluta bréfaeign eftir þessum reglum, hefur skatturinn lækkað mjög mikið. Er heildarupphæðin nú 73 millj. kr., en var upphaflega 130 millj. Leiðrétting hefur fengist á fleiri þáttum stóreignaskattsins, sem hér er ekki rúm til að rekja, en fullvíst má telja, að heildarupp- hæðin muni enn lækka. Sölnskattur og útflutnings- sjóðsgjald. Á síðustu Iðnþingum hafa ver- ið samþykktar ályktanir, þar sem óskað hefur verið endurskoðun- ar á ákvæðum um söluskatt og útflutningssjóðsgjald. Því miður hefur engin leiðrétting fengist á þessu, þrátt fyrir ítrekaðar óskxr þar að lútandi. Þvert á móti hefur misrétti það, sem fylgt het- ur söluskattinum, veiið aukið. Plaststýrishús á 40 Iesta fiskibáti. Nýjung I innlendri iðnaðarframleiðslu. Bragi Hannesson Má í því sambandi minna á það, að r~20. gr. laga nr. 86/1956 um útflutningssjóð o. fl. var lögfest að greiða skyldi sérstakt gjald 6% af sölu og veltu annarri en smásölu, og vinnu og þjónustu látinni í té af iðnaðarmönnum, iðnfyrirtækjum o. fl. skv. 22. gr. b-lið laga nr. 100/1948, sbr. lög nr. 96/1956. Ennfremur skyldi 3% söluskattur haldast óbreytt- ur. Samkvæmt þessu ber iðnaðar- mönnum og iðnfyrirtækjum að greiða 9% gjald af efnivörum sín- um, samtímis því sem smásölu- verzlanir, sem selja samskonar vörur, losna við að greiða þetta gjald. Þannig hefur þessu verið háttað fram til þessa. Á síðasta Iðnþingi gerði for- seti Landssambands iðnaðar- manna, Björgvin Frederiksen, grein fyrir afstöðu samtakanna til þessara mála og mælti m. a. á þessa leið: „Eitt er það mál, sem ekki verð ur komizt hjá að nefna á þessu Iðnþingi frekar en svo ótal mörg- um öðrum, en það er hinn ill- ræmdi söluskattur og útflutnings sjóðsgjald, sem lagzt hefur með síauknum þunga á alla vinnu, þjónustu og efnisvörur, sem iðn- fyrirtæki láta í té. Reynslan af þessari skatt- heimtu he'fur sýnt, að hið herfi- legasta misrétti hefur skapazt og samkeppnisaðstaða hefur truflast vegna þess, að fyrirtækjum ber að greiða skattinn af vinnu og efni, en sams konar efni er hægt að kaupa hjá efnissölum, sem ekki eru söluskattsskyldir. Engm skilji orð mín svo, að iðnaðar- menn séu að mótmæla því, að ríkissjóður þurfi eins og nú er ástatt þennan tekjustofn. Það er ekki það, sem um er deilt, heldur innheimta hann um leið og að- flutningsgjöld eru greidd. Þessi skattheimtuaðferð hefur valdið spillingu í viðskiptum, sem aðai- lega kemur til af því, að þeir vísu menn, sem upphaflega settu þessi lög, hafa aldrei áttað sig á hversu flókið mál það er að framkvæma þessa tegund skattheimtu án þes» að af hljótist misrétti og spill- ing. í dag eru dæmin svo mörg og óskemmtileg, að krefjast verð ur þess, að álagningu og inn- heimtu skattsins verði- tafarlaust breytt, þar til hann verður aí- numinn með öllu“. í síðastliðnum mánuði urðu nokkrar umræður opinberlega um söluskattinn. Lýsti Gunnar Thoroddsen, fjármálaráðherra, því yfir við það tækifæri, að verið væri að endurskoða ákvæðin um skattinn í ráðuneytinu. Er þvl þess að vænta, að bráðlega verði kunnugt, hverig þessum málum verður skipað í næstu framtíð. Yfirbyggingar á langferðavagna. Ein þeirra iðngreina, sem orðið hafa að búa við tollamisrétti, er bifreiðasmíðaiðnin. Þannig þarf að greiða af efni til yfirbygginga 14% innflutningssjóðsgjald og 10% Veiðtoll, auk 9% söluskatta og útflutningssjóðsgjalds. Hinj vegar á að greiða 30% toll af inn- fluttum yfirbyggingum á lang- ferðavagna, en heimilt er að lækka hann niður í 10%, og hcf- ur það verið gert fram að þessu Framh. á bls. 12

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.