Morgunblaðið - 07.01.1960, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 07.01.1960, Qupperneq 12
12 MORCVTSHLAÐ1Ð Fímmtudagur 7. jan. 1960 — Iðnaðarmálin Framh. af bls. 11 Af hálfu Landssambands iðn- aðarmanna hafa verið gerðar ítrekaðar tilraunir til þess að fá leiðréttingu á þessu misrétti, en það hefur ekki tekist ennþá. Hins vegar hefur jöfnum höndum ver- íð unnið að því að fá bæjarfélög til þess að skipta við innlenda aðila með yfirbyggingar. Hafa forráðamenn Reykjavíkurbæjar sýnt málinu skilning og láta byggja yfir strætisvagna sína inn anlands í vaxandi mæli. Lokamarkinu er aftur á móti ekki náð, en það er fullkomið jafn rétti í tollum. Er þess að vænta, að nú geti orðið breyting hér á til batnaðar, þar sem nýskipan efnahagsmálanna er á næsta leiti, en samfara henni hlýtur að þurfa að endurskoða tollskrána. Lánsfjármál Iðnaðurinn hefur átt við mikla erfiðleika að etja undanfarin ár vegna lánsfjárskorts. Aukin verð bólga krefst aukins fjár, ef unnt á að vera að viðhalda sömu fram leiðslu, en auk þess hefur óvit- urleg skattalöggjöf komið í veg fyrir fjármagnsmyndun í fyrir- tækjunum sjálfum. Bönkum landsins hefur reynzt um megn að bæta hér úr. eins og þurft hefði með auknum útlánum, enda virðist sem aðrir atvinnuvegir en iðnaðurinn eigi greiðari aðgang að lánastofnunum. í þessu sambandi má minna á það, að Seðlabankinn hefur ekki enn keypt framleiðslu- og hrá- efnavíxla iðnfyrirtækja, þótt Al- þingi hafi samþykkt þingsálykt- unartillögu þar að lútandi. Hins vegar eru slíkir víxlar keyptir af landbúnaðar- og sjávarútvegs- fyrirtækjum svo milljónatugum skiptir. Munu endurkeyptir víxl- ar í Seðlabankanum í ágústlok hafa numið um 850 millj. kr. Fyrir skömmu skipaði Gylfi Þ. Gíslason, viðskiptamálaráðherra, nefnd til þess að athuga lánamál iðnfyrirtækja og sérstaklega end urkaup Seðlabankans á vixlum með tryggingu í iðnaðarvörum. í nefndina voru skipaðir: Dr Jó- hannes Nordal, bankastjóri, for- maður, Gunnar Vagnsson, stjórn- arráðsfulltrúi, Sveinn B. Valfells, forstjóri og Bragi Hannesson, framkvæmdastjóri. Nefndin hefur lítíð starfað vegna þess, hve stutt er síðan hún var skipuð, en síðar mun verða skýrt frá störfum hennar. Iðnaðarbankinn hefur gengt mjög mikilvægu hlutverki í láns- fjármálum iðnaðarins. Þó hefur bankann skort nægilegt fjármagn til þess að fullnægja síauknum þörfum iðnaðarins fyrir reksturs- fé, enda hefur hann ekki fengið annað fé til starfsemi sinnar auk stofnfjárinnlaga, en sparifjár- innlögin ein. Námu sparifjárinn- lögin í ársbyrjun 68,4 millj. kr., en nema nú um þessi áramót um 36 millj. kr. Á síðastliðnu ári hófust bygg- ingaframkvæmdir á lóð bankans, Lækjargötu 10 B. Ber að fagna þeim áfanga í sögu bankans, því að hann hefir frá upphafi starfað í litlu og óhentugu leiguhúsnæði. Mikilvægt er, að allir þeir, sem framfæri sitt hafa af iðnaði, legg ist á eitt að efla Iðnaðarbankann. Með því móti gera þeir bankan- um auðveldara að sinna sínu ætl- unarverki um leið og þeir auka afkomuöryggi sitt. Efling Iðnlánasjóðs hefur jafn- an verið áhugamál iðnaðarmanna, enda hafa verið samþykktar á- lyktanir þar að lútandi á undan- förnum Iðnþingum. Iðnlánasjóður var stofnaður með lögum nr. 12/1935, og sam- kvæmt þeim lagði ríkissjóður íram til hans árin 1936—1941 kr. 25.000,00 á ári. Árið 1942 var fram lag ríkissjóðs hækkað upp í kr. 65.000,00 á ári og var það óbreytt til ársins 1947, en þá var fram- lagið hækkað upp í kr. 300.000,00 á ári samkvæmt nýjum lögum um sjóðinn nr. 67/1946. Á fjárlögum 1955 var framlagið hækkað upp í kr. 450.000,00 og loks árið 1957 i í kr. 1.450.000,00 og hefur svo verið síðan. Framlög ríkissjóðs öll árin hafa því samtals numið kr. 8.072.450,00. Með hliðsjón af framansögðu gefur auga leið, hve vanmegnug- ur Iðnlánasjóður er að gegna því hlutverki, sem honum er ætlað þ. e. að vera stofnlánasjóður iðn- aðarins í landinu. Á Alþingi hafa komið fram frumvörp þess efnis, að Iðnlána- sjóður fái í sinn hlut helming gjalds af innlendum tollvöruteg- undum Flutningsmenn hafa ver- ið alþingismennirnir Magnús Jónsson og Jóhann Hafstein. Hefði mál þetta náð fram að ganga, fengi Iðnlánasjóður 5—6 millj. kr. í sinn hlut á þessu ári. Skipasmiðastöðvar og dráttar- brautir hafa átt við mikla erfið- leika að etja vegna lánsfjárskorts. Staðreyndin er sú, að stærri bát- ar verða ekki smiðaðir innan- lands, nema einhver lánastofnun sé til, sem telji sér skylt að stuðla að innlendri skipasmíði með verulegum lánum. í byrjun síðastliðins árs var óskað eftir fyrirgreiðslu sjávar- útvegsmálaráðherra í þessu efni, þar sem fyrirsjáanlegt var, að ina og óska eftir tilnefningu um menn í nefndina frá eftirtöidum Reykjavíkurbæ, Vinnuveitenda- aðilum: Landssambandi iðnaðar- manna, Húsameistara ríkisi.is, sambandi fslands, Meistarasam- bandi byggingamanna, Verkfræð- ingafélagi íslands, Arkitektafé- lagi íslands og Lagadeild Há- skólans. Fulltrúi Landssambandsins í nefndinni hefur verið tilnefndur og er það Björgvin Frederiksen, forseti Landssambands iðnaðar- manna. Hefur þvi náðst merkur áfangi í þessu máli með skjótum hætti og er vonandi, að framnaldið verði á sama veg. Samstarfsnefndir Að tilstuðlan Iðnaðarmálastofn unar fslands fór nefnd skipuð fulltrúum vinnuveitenda og laun- þega til Danmerkur og Noregs síðastliðið vor í þeim tilgangi að kynna sér störf samvinnu- nefnda launþega og vinnuveit- enda í þessum löndum. Af hálfu Landssambands iðnaðarmanna fór forséti þess, Björgvin Fred- eriksen, för þessa. í áðurnefndum löndum hafa iðnaðarmanna úr gulli. Ur stjórn Landssambands iðn- aðarmanna átti að ganga Einar Gíslason málarameistari, en hann var einróma endurkjörinn. Aðrir í stjórn eru: Björgvin Frederik- sen, vélsm.m. forseti, Guðmund- ur Halldórsson, húsasm.m., Tóm- as Vigfússon, húsasm.m. og Vig- fús Sigurðsson, húsasm.m. Bygging iðnaðarhúsa Á síðastliðnu vori komu fram tillögur frá skipulagsdeild Reykja vikurbæjar um byggingu 6 iðn- aðarhúsa við Grensásveg milli Miklubrautar og Suðurlands- brautar. Skyldi stærð hvers húss vera 1680 ferm., en samaniagður gólfflötur hvers húss 5040 ferm., og allra húsanna 30.240 ferm. Aðdragandinn að þessum tillög um ér sá, að samtÖk iðnaðarins höfðu óskað eftir því við bæjar- yfirvöldin að reynt yrði að finna heppilega lausn á byggingalóða- þörf iðnaðarins. Brugðust bæjar- yfirvöldin vel við þessum óskum og lögðu til, að skipuð yrði nefnd iðnaðarmanna og iðnrekenda til þess að gera tillögur þar að lút- andi. Tilnefndi Landssambandið húsasmíðameistarana Guðmund Langferðabílar yfirbyggðir hjá Bilasmiðjunni. nýsmíði myndi Ieggjast niður að óbreyttum aðstæðum. Þetta varð til þess, að skipuð var nefnd til þess að semja reglu- gerð um lög Fiskveiðasjóðs ís- lands með sérstöku tilliti til skipa smíða innanlands. í nefndinni á Vigfús Sigurðsson sæti af hálfu Félags ísl. dráttarbrautaeigenda. Nefndin mun bráðlega ljúka störfum, og er þess að vænta, að eitthvað muni rofa til í láns- fjármálum til nýsmíða. Útboð og tilboð Á síðastliðnu ári hefur verið unnið að því, að settar yrðu regl- ur um útboð og tilboð. Eins og oft hefur komið í Ijós er nauðsyn- legt, að til séu reglur, sem gildi um þessi efni. Félag löggiltra rafvirkjameist- ara hefur beitt sér mjög fyrir framgangi þessa máls og m.a. skrifað ýmsum félagssamtökum um reynslu rafvirkjameistara af lægstu tilboðunum. Bréf þetta er mjög ítarlegt og má heimfæra upp á fleiri iðnir. í bréfinu er skýrt frá því, að ábyrgir aðilar, sem reikna tilboð samvizkusam- lega og gert ráð fyrir að þurfa að standa við tilboð sín, hljóti yfirleitt ekki verkin. Það gefur auga leið í hvilíkt óefni er komið bæði fyrir verk- sala og verkkaupa, ef verksali getur ekki lokið verki vegna ó- raunhæfs tilboðs. Þess vegna er mikils um vert, að unnt sé að girða fyrir ábyrgðarleysi í þess- um málum. Landssamband iðnaðarmanna hefur aflað upplýsinga um skip- an útboða og tilboða í nágranna- löndunum og sést af þeim, að fastmótaðar reglur gilda um þessi efni víðast hvar. Á síðasta Iðnþingi var óskað eftir því við Iðnaðarmálaráð- herra, að skipuð yrði nefnd til þess að semja reglur um útboð og tilboð. Skömmu eftir Iðnþmg- ið barst svo bréf frá ráðuneytinu, þar sem skýrt er frá því, að rað- herra hafi ákveðið að skipa nelnd samstarfsnefndimar innt af hendi mikið starf við efnahags- uppbyggingu eftirstríðsáranna. Þær eru vettvangur samvinnu, ráðgjafar og gagnkvæmra upplýs inga. Meðal þeirra mála, sem þær fjalla um er hagkvæmur rekstur, skipulagning vinnunnar, vél- tækni, efnissparnaður og öryggi á vinnustað. Það leikur ekki á tveim tung- um, að við íslendingar getum margt af frændum okkar lært í þessu efni, enda er það einróma álit þeirra nefndarmanna, sem áttu þess kost að kynnast starf- semi samvinnunefndanna. Forseti Landssambandsins, Björgvin Frederiksen, sagði m.a. um sam- starfsnefndirnar á síðasta Iðn- þingi: Þetta form hefur gefizt öllum frjálsum þjóðum sérstak- lega vel og bre:ðist ört út efíir síðustu heimsstyrjöld. Þess vegna ber að fagna því, að fram skuli komin á Alþingi þingsályktunartillaga þess efnis, að ríkisstjórninni skuli falið að kanna, hvort grundvöllur sé fyrir samstarfsnefndum launþega og vinnuveitenda innan einstakra fyrirtækja. Flutningsmaður er Pétur Sigurðsson, alþm. 21. Iðnþing íslendinga Iðnþing var háð í Reykjavík dagana 30. sept. — 3. okt. sl. Á málaskrá voru þessi mákUpptaka nýrra sambandsfélaga nýjar iðn- greinar, Iðnlánasjóður, skatta- mál, iðnfræðsla, útboð, Iðnaðar- bankinn, söluskattur og útflutn- ingssjóðsgjald, iðnskýrslur, skipu lagsmál Landssambandsins, inn- flutningur iðnaðarvara og -vinnu og brot á iðnlöggjöfinni og með- ferð slíkra mála. Samþykktir voru gerðar í þess- um málum og sendar hlutaðeig- andi aðilum. Iðnþingið sátu um 70 fulltrúar víðsvegar að af land- inu. Iðnþingið samþykkti að sæma Guðmund J. Sigurðsson, vélsmiða meistara, Þingeyri, heiðursmerxi Halldðrsson og Tómas Vigfússon í nefndina, er síðan vann að skipu lagi þessara mála með þeim ár- angri, sem nú er fram kominn. Síðan skipulagsuppdrættirnir voru lagðir fram, hefur verið rætt um eignar og rekstrarfyrirkomu- lag húsanna við iðnrekendur, og hafa þeir Guðmundur Halldórs- son, Grímur Bjarnason, Snæbjörn G. Jónsson og Tryggvi Gíslason tekið þátt í þeim viðræðum af Landssambandsins hálfu. Á þessu stigi málsins er ekki unnt að segja, hver muni verða framgangur málsins en hins veg- ar eru allir, sem þörf hafa fyrir iðnaðarhúsnæði hvattir til þess að kynna sér skipulagsuppdrætt- ina. Á Norðurlöndum hafa verið byggð iðnaðarhús eins og hér er greint frá og gefið góða raun. Þannig hafa iðnfyrirtæki sem ekki hefðu á eigin spítur getað fullkomnað sinn ytri aðbúnað, fengið ákjósanlegt húsrými. Söfnun iðnminja Á 5. Iðnþingi íslendinga sem háð var á ísafirði 1939, fluttu þeir Sveinbjörn Jónsson og Arngrím- ur Fr. Bjarnason tillögu, þar sem stjórn Landssambands iðnaðar- manna er hvött til þess að beita sér fyrir söfnun iðnminja. Málið var þegar tekið föstum tökum og í samvinnu við Iðnað- armannafélagið í Reykjavík var kosin nefnd, sem annast skyldi framkvæmd málsins. í nefndinni hafa starfað Sveinbjörn Jónsson, húsasm.m., sem verið hefur for- maður nefndarinnar frá upphafi, Björn Rögnvaldsson, húsasm.m., Guðbjörn Guðmundsson, prentm., Guðjón Scheving, málaram., Guð- mundur H. Guðmundsson, húsg.- sm.m., Jón Vigfússon, húsasm.m., Jónas Sólmundsson, húsg.sm.m., Matthías Jónsson, húsasm.m. og Vigfús Friðriksson, ljósm.sm.m. Samtímis Iðnþingi síðastliðið haust var haldin sýning á mun- um þeim, sem safnast hafa og kom þá í ljós, að nefndin hefur unnið mikið og heilladrjúgt starf. Er þess að vænta, að iðnaðar- menn veiti nefndinni aðstoð sína við áframhaldandi söfnun iðn- minja, svo að unnt verði að koma upp veglegu Iðnminjasafni. Innlend skipasmíði Innlend skipasmíði varð að sæta því um árabil að greiða að- flutningsgjöld af efni til nýsmíða, samtímis því sem bátar voru flutt ir inn tollfrjálsir. Vegna langrar baráttu samtaka iðnaðarmanna tókst loks að fá leiðréttingu þess- ara mála á þann veg, að aðflutn- ingsgjöld og söluskattur af efni til nýsmíða var endurgreiddur. Hins vegar hefur minna kveðið að innlendri skipasmíði síðustu árin en æskilegt og nauðsynlegt væri þrátt fyrir endurgreiðslurn- ir. Veldur þar um skortur á láns- fé Óhugsandi er eins og sköttun fyrirtækja er háttað nú, að drátt- arbrautir og skipasmíðastöðvar geti byggt báta fyrir eigið fé. Þess vegna er innlend nýsmíði báta algjörlega háð fyrirgreiðslu lána- stofnana. í byrjun síðastliðins árs var átt viðtal við Emil Jónsson, sjávarútvegsmálaráðherra, um málefni dráttarbrautanna. Var þess óskað, að leitazt yrði við að hálfu hins opinbera að auka ný- smíði fiskibáta innanlands m.a. með hækkun á endurgreiðslum aðflutningsgjalda í samræmi við hækkanir þessara gjalda síðustu árin og aðstaða dráttarbrautanna til lánsfjáröflunar yrði bætt. Brást ráðherrann vel við þess- ari málaleitan, og skömmu síðar voru endurgreiðslur hækkaðar verulega. Á öðrum stað er skýrt frá framvindu lánsfjármálanna. Meðal annars vegna þessara að gerða eru horfur á því, að inn- lend skipasmíði aukist á næst- unni. Ýmsar stöðvar, sem ekki hafa byggt báta í nokkur ár, eru nú að hefja undirbúning að ný- smíði. Á síðastliðnu ári voru byggðir bátar innanlands, sem nér segir: tala rúml.br. ísafirði .. 1 65 Akureyri .. 1 70 Hafnarfirði .... .. 3 30 5 165 Auk þess, sem hér hefur verið talið, hafa verið smíðaðir nokkrir nótabátar innanlands og smærri bátar. Nú eru í smíðum í Hafnarfirði einn bátur 70 rúmlestir br. og tveir 11 rúml. br., á ísafirði einn bátur 65 rúml. br., á Akureyri einn bátur 70 rúml. br. og annar 25 rúml. br. og í Neskaupstað einn bátur 70 rúml. br. Enginn dregur í efa, að nauð- synlegt sé að fyrir hendi sé að- staða í landinu til skipaviðgerða. Hinu hafa margir ekki enn gert sér grein fyrir, að til þess að unnt sé að annast viðhald bátaflotans, þurfa dráttarbrautirnar að ann- ast nýsmíði. Þetta á rætur sínar að rekja til þess, að viðgerðir báta eru tímabundnar og alger rekstrarstöðvun ákveðinn tíma árs orsakar það, að menn fást ekki til þess að sinna svo ótryggri atvinnu, þegar betra býðst. Ný- smíði er því nauðsynleg til þess að stuðla að stöðugum rekstri. Starfandi menn í skipavið- gerða- og skipasmíðaiðnaðinum voru fyrir skömmu samtals 332. Lokaorð Iðnaðurinn hefur seinni árin tekið við allri aukningu vinnu- afls í landinu, enda er nú svo komið, að hann er sá atvinnuveg- ur, sem nálægt 40% þjóðarinnar hefur lífsframfæri sitt af. Þrátt fyrir það fer því fjarri, að iðn- aðinum séu búin sömu starfs- og vaxtarskilyrði og landbúnaði og sjávarútvegi. Þannig þarf iðn- aðurinn að selja framleiðslu sína í samkeppni við erlendan iðnað, sem býr við lægra verðlag, greiða hærri tolla af ýmsum framleiðslu tækjum sínum, rekstrar- og efni- vörum en hinir atvinnuvegirnir, auk þess sem hann hefur hlotið Framh. á bls. 19.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.