Morgunblaðið - 07.01.1960, Síða 18

Morgunblaðið - 07.01.1960, Síða 18
18 Monciiism.ÁniÐ Fimmtudagur 7. Jan. 1960 em vmn um Kmverskar pönnukökur KÍNVERSKAR pönnukökur eru töluvert frábrugðnar þeim, sem við þekkjum hér á landi, enda þótt deigið sé búið til á sama hátt. Kinverjar fara þannig að: Venjulegt pönnukökudeig er búið til og pönnukökurnar steiktar á lítilli pönnu. Þeg- ar pönnukakan er steikt öðru megin, er á svipstundu sett skeið af kjötfarsi (bezt svína- kjötfars blandað með rækjum og lauk) eftir miðri pönnu- kökunni, hún rúlluð upp og steikt, þar til uppvafningur- inn 'er gulbrúnn. Þegar búið er að steikja pönnukökurnar, eru þær settar á steikarapönnu eða eldfast fat, skinkusneið- ar og laukur eftir smekk sett- ur á milli, örlítið af vatni hellt í botninn á fatinu, og rétturinn látinn gufa augna- blik, áður en hann er borinn fram — rjúkandi, eins og allur matur í hinum fjarlægu Aust- urlöndum. eigum við að hafa það munstr- EIGUM við að kaupa ódýrt postuiín? Spari eða hvers- dags? Þurfum við að kaupa heila eða hálfa tylft? Hvort Það er vandi að velja posfulín i ! i ! ! i i i 1 ! að eða einlitt? Þannig spyrja þær, sem eru í postulínshugleiðingum, og spurningarnar eru margfalt fleiri. Það er vandi að velja postulín, sem endast þarf í mörg ár, það brotnar úr þvi og þarf að fylla upp skörðin og þannig mætti lengi telja. — Sænskt kvennablað gefur kon- um þar í landi góð ráð við postulínsinnkaup og kennir þar margra grasa. Því miður er ekki eins mikið úrval hér á landi, þar sem Svíar framleiða sjálfir postulín og það ekki af verri endanum, en hér er allt flutt inn, aðallega frá Finn- landi og Tékkóslóvakíu. En ef til vill getum við lært eitthvað af ráðeggingunum, sem þar eru gefnar. Sænskt tinnupostulin. 1 miðið er ávaxtaboili frá Gustavsberg, mjög skemmtilega lagaður, til vinstri er rákóttur kaffibolli frá Rörstrand og til hægri kaffibolli frá Gustávsberg, einnig rákóttur. Við ofangreindum spurning- um gefur postulínsráðunautur blaðsins þessi svör: Séu fjárráð lítil og postulíns kaupin takmörkuð, þá er betra að kaupa færri stykki af betra taginu, heldur en ódýrt postu- lín. Það endist betur við dag- lega notkun og hægt að bæta við það smátt og smátt. Ágætt er að notast við hólfuð föt í byrjun.' Það er ekki hægt að gefa einhlítt svar við því, hvort heppilegra sé að kaupa munstr að eða einlitt postulín. Þar er það smekkurinn sem ræður, en almennt gildir þó sú regla, að einlita postulínið sé hag- kvæmara, t.d. við borðskreyt- ingar er einlitt postulín miklu betri grundvöllur en rósótt, hlutlausara og dregur athygl- ina meira að hápunkti borðs- ins. að byggja upp skemmtilega heild á borðinu með mismun- andi tegundum af borðbúnaði, og því er nauðsynlegt fyrir alla að hafa frjálsar hendur við innkaupin, og getur þá hver og einn prýtt borð sín eftir eigin geðþótta. Þá leggur ráðunauturinn mikla áherzlu á mikilvægi —--y þess, að geta keypt eitt og eitt ' stykki en ekki allt stellið, eins„ , „ ......... og það leggur sig. SmekkurHandma,aður teboll. fra sænsku manna hefur breytzt mjög mik posáulínsverksmiðjunni ið undanfarin ár, það er hægt Rörstrand. Þessu síðastnefnda er mjög vert að veita athygli hér á landi. Mjög erfitt er að fá hér í verzlunum einstaka hluti, stellin eru seld í einu lagi, og komi það óhapp fyrir að disk- ur eða bolli brotni, er næsta ógerlegt að fá fyllt skarðið. Gildir þetta bæði um postulín og leir. Hafa mjög margar húsmæður kyprtað yfir þessu, sem vonlegt er, og þessu fyrir- komulagi þarf að breyta sem fyrst. — Hg. 2 LESBÓK BARNANNA LESBÓK BARNANNA 3 BGILL vár tólf ára gam- áll. Fóreldrar hans bjuggu á; litlu býli, sem bét Ás. Jorðin var lítil og þess vegria gátu þau ekki haft mikijnn búskap, en í siað ' þeás vann faðir Egils ;; við mjólkurflutn- ihga í isveitinni. Fátt fánnst Agli skemmti- légra, en| að fá að vera ijieð pabþa sínum í stóra tjörubílnum, þegar hann sótti nijálkina á bæina og ék henni til mjólkur- búsms. ! • Það var í einni af þess- Um - ferðum, sem þessi Uaga gerðist. i Einn góðari veðurdag ijokkru fyrir jólin, voru þeír Egill og faðir hans ií leið heim; úr einni af þinum v<mju!egu ferð- Um sinum.' Um það bil háífán kúómetra frá Ási, liiggur vegurinn yfir járn brautarspor ög þar stöðv- tiðu þeirjbílinn að venju Og hlustúðu eftir, hvort þeir heyrðu nokkra lest nálgast. En svo var! ekki. ,r,Það keinur engin lest fyrr en, iþegar klukkuna vantar tíu mínútur i sex“. sagði Egill um leið og faðir hans ók af stað. Þá var það, sem óhappið skeði. Um það leyti, sem afturhjólin voru komm út á teinana, kastaðist bíllinn til að framan á steini, við vegarbrúnina, rann út af sleipum kant- inum og valt, með fram- hlutann niður í skurðinn, en afturendann uppi á t rautarteinunum. Egill var ekki seinn á sér að skríða út úr stýr- ishúsinu. Hann var alveg ringlaður. Hvernig áttu þeir að rétta bílinn við og koma honum út af teinunum áður en lestin kæmi? Hafði faðir hans meitt sig, úr því hann kom ekki út á eftir hon- um? Hann flýtti sér að gjæ- ast inn í stýrishúsið, þegar hann heyrði, að faðir hans stundi. „Ertu meiddur, pabbi?,| spurði hann. „Vinstri fóturinn er ' klemmdur“, svaraði faðir hans, „og ég get ekki los- að hann“. Egill skreið nú aftur inn í stýrishúsið og sá þá að öll vinstri hlið þess hafði beyglast inn. Hann reyndi að hjápa föður sinum, en tilraunir þeirra urðu árangurslausar, því •neira, sem þeir reyndu, þvi verr leið föður hans í fætinum. — ,,Hvað er klukkan, drengur minn?“, spurði hann allt í einu. Egill leit á úrið sitt. „Vantar tuttugu mínútur í sex“, svaraði hann og rnundi um leið, að lesin \?ar væntanleg eftir að- eins tíu mínútur. Það setti að honum hroll, þeg- ar hann hugsaði til þess. „Þú verður að hlaupa á móti lestinni og reyna að stöðva hana“, sagði faðir hans. Hann sagði það rólega, rétt eins og ekkert væri auðveldara en að stöðva hraðlest á fullri ferð. „Ég treysti því, að þér takist það“, bætti hann við. Fyrst í stað vissi Egill ekkert, hvað Jiann átti að gera. Hvernig átti hann að fara að því að stöðva hraðlestina, sem nú myndi koma þjótandi eft- ir fáar mínútur? En allt- í einu datt honum í hug, hvað hann skyldi gera. Hugmyndinni laust niður i huga hans svo skyndi- lega, að honum fannst eins og henni væri hvísl- að að sér. „Vertu rólegur, pabbi“, kallaði hann, um leið og hann hljóp af stað móti lestinni, ,,ég er viss um, að það tekst“. Reyndar var hann nú ekki viss, en þetta var það eina, sem honum gat dottið í hug að reyn- andi væri að gera. Myrkrið var dottið á og ljósin höfðu verið kveikt á ljósastaurunum með- fram járnbrautarlínunni. Hann hljóp eins hratt og hann gat, því að hann vissi, að hraðlest þarf mörg hundruð metra vega lengd til þess að geta stöðvað. Hann varð að komast sem lengst burt frá bílnum. Nú tók hann að heyra þetta sérkennilega, syngj- andi hljóð, sem heyrist frá teinunum, þegar lest nálgast. Hann mátti eng- an tíma missa. Allt var undir því komið, að ráða- gerð hans heppnaðist. Egill nam staðar undir ljósastaur og stóð á cndinni af mæði. Hann heyrði greinliega að lest- in var ekki mjög langt í burtu. Eldsnöggt klæddi hann sig úr rauðu treyjunni sinni og batt henni utan um sig. Síðan spýtti hann í lófana og fór að klifra upp ljósastaurinn. Það var erfitt að ná taki á hálum staurnum og honum sóttist seint. Flís- ar stungust í hann, skinnið nuddaðist úr lóf- unum og sársaukinn var skerandi, þegar hann rann til og marði sig á fótleggjunum. En hann beit á jaxlinn og mjak. aðist áfram, hærra, hærra. Nú tók hann að greina ljós lestarinnar, þar sem hún brunaði upp á hæð- ardrag all langt í burtu. Hann vissi varla, hvernig hann komst síðustu metr ana upp að luktinni. Framhald.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.