Morgunblaðið - 07.01.1960, Side 20

Morgunblaðið - 07.01.1960, Side 20
VEDRID Sjá veðurkort á bls. 2. Iðnaðurinn 1959 Sjá bls. 11. Stofnuð nefnd til endur heimt ísl. handrita í GÆR hélt nýstofnuð nefnd, sem vinna á undir forystu ríkisstjórn- arinnar að endurheimt íslenzkra handrita frá Danmörku, sinn fyrsta fund. Var próf. Einar Ól. Sveinsson kjörinn formaður nefndarinnar. Nefndina skipa 5 menn, próf. Borunin n Beykjum mistókst ■■■■MHmammml, Einar Ól. Sveinsson, tilnefndur af Heimspekideild Háskólans, próf. Alexander Jóhannesson. fyrrv. háskólarektor, tilnefndur af Sjálfstæðisflokknum, Kristinn E. Andrésson, fyrrv. alþingismsð ur, tilnefndur af Alþýðubanda- laginu, Sigurður Ólason, til- nefndur af Framsóknarflokkn- um, og 'Stefán Pétursson, þjóð- skjalavörður, tilnefndur af Al- þýðuflokknum. Nefndin kaus sér í gær formann, próf. Einár Ólaf Sveinsson, eins og áður er getið. Varaformaður var kjörinn próf. Alexander Jó- hannesson, ritari Stefán Péturs- son og gjaldkeri Kristinn Andrés- son. 20 bátar gerðir út frá Hafnarf. í vetur STÓRI borinn hefur að undan- förnu verið hafður á Reykjum i Mosfellssveit, þar sem reynt var að bora eftir heitu vatni. Borað var niður á 1370 m dýpi og voru niðurstöðumælingar gerðar 3. jan. Gunnar Böðvarsson gaf blað- inu þær upplýsingar í gær, að borun þarna hefði mistekizt. Hit- inn var ekki orðinn það hár á þessu dýpi að það hvetti til áfram haldandi borunar. Verður stóri borinn nú fluttur í bæinn. Verður hann nú settur á mót Sigtúns og Laugarnesvegar, þar sem dýpkuð verður hola, sem áð- ur hefur verið boruð þar. Kom mcð látmn maim PATREKSFIRÐI, 6. jan. — Hing að kom í gær þýzkur togari með látinn mann. Var það 1. vélstjóri á skipinu. Varð hann bráðkvadd ur í hafi og er gert ráð fyrir að banamein hans hafi annað hvort verið heilablóðfall eða hjarta- bilun. Lík mannsins var sett hér á land og biður það flutnings til Þýzkalands. — Trausti. Keilir íékk 148 þús. mörk HAFNARFIRÐI. — Togarinn Keilir seldi síldarfarm í Bremer- haven í Þýzkalandi í gær og fékk ágætt verð fyrir hann. Voru það 256 lestir, sem seldist á 148 þúsund mörk. 37 lestir af aflan- um reyndist skemmt eða of smátt fyrir markaðinn og fór það í bræðslu. Síld þessari var skipað um borð í Keili hér við bryggju síð- ustu daga fyrir jól, og komu bát- ar úr ýmsum verstöðvum með hana. — Hafa nokkrir togarar selt nokkurt magn af síld — á- samt fiskafla sínum — í Þýzka- landi, og hefir jafnan fengizt mjög gott verð fyrir hana. — G. E. IIM kl. 21.50 í gærkvöldi sendi slökkviliðið sjúkrabifreið upp að Brúariandi í Mosfellssveit til þess að sækja slasaða konu og dreng. Voru þau flutt á Slysa- varðstofuna. Nánari tildrög slyss þessa munu þau, að er álfabrennan, sem hald- in var í gærkvöldi að Hlégarði, var á enda var gífurleg umferð bæði bíla og fólks á veginum við Lokað kl. 1 á laugardögum Á LAUGARDAGINN kemur breytist lokunartími sölubúða á þann veg, að lokað verður kl. 13. Verður svo til 30. apríl. Jafn- framt verður opið á föstudögum til kl. 19. Óskilahjól Hér getur að líta um 70—80 hjól, sem eru í vörzlu rann- sóknarlögreglmnnar á Frí- kirkjuvegi 11. Þetta eru allt óskilahjól, sem hafa fundist hingað og þangað í bænum. Auk hjólanna kennir ýmissa grasa í geymslu lögreglunn- ar, sumra mjög verðmætra. Má þar til nefna úr og fatn- að. Þá fannst heill strangi af fataefni fyrir jólin og hef- ir hann ekki verið sóttur enn- þá. Auk þess er svo allskonar smádót sem of langt yrði upp að telja. Lögreglan lætur þess getið að furðu litið sé hirt um þessa muni eins og sjá má af hjólamergðinni. Ekkert af munum þeim, sem þarna eru, munu vera eldri í vörzlu lögreglunnar en tveggja ára. Árlega er haldið uppboð á velflestum þeim munum, sem þarna safnast fyrir. Mjög verðmæt- ir hlutir eru þó geymdir lengur. EFTIR helgina hlánaði og var á mánudag ákaflega hált á göt um Reykjavíkur. Áttu vegfar- Brúarland. — Varnarliðsbifreið kom á móti konunni og drengn- um, sem er 7 ára að aldri, og ók á þau. Konan, Ólöf Helgadóttir, Bjargarstöðum í Mosfellssveit, mun hafa fótbrotnað og drengur- inn, Gunnar Benediktsson, skadd- ast innvortis og var talið að flytja þyrfti hann í sjúkrahús. HAFNARFIRÐI. — Nú eru allir síldarbátarnir hættir veiðum, enda búið að fiska upp í samn- inga. Þó mun einn bátur, Fiska- endur víða erfitt með að fóta sig á götunum. Af þessum sökum munu margir hafa fengið skell. Hef- ur blaðið fregnað að aldrei fyrr hafi verið bundið um jafn mörg beinbrot á Slysa- varðstofunni frá því hún var opnuð. Hafi starfsfólk hennar fengið til meðferðar 41 nýtt beinbrot á þessum eina degi og sé það algert met í sögu stofnunarinnar. Nýr dekkbátur AKRANESI, 6. jan. — Á gaml- ársdag var keyptur hingað dekk- bátur, 10 tonna að stærð og heitir hann Síldin. Eigendur eru þrír ungir menn hér í bænum. Flestir trillubátaeigendur hér eru búnir að setja upp báta sína. — Oddur. klettur, enn vera að, og fékk hann um 300 tunnur í fyrradag. Var sú síld söltuð. — í vetur verða gerðir út um 20 bátar, en það er svipuð tala og í fyrra. Verða stærstu bátarnir í útilegu, og er Fákur farinn í fyrsta róð- urinn. Hinir bátarnir munu hefja róðra næstu daga. Talsvert mun enn vanta á að fullráðið sé á bátana, en þó er útlitið allmiklu betra en í fyrra. Hafa verið nokkur brögð að því ] upp á síðkastið að menn hafi farið af togurunum yfir á bát- ana ,og er það talið stafa af afla- | leysi hjá hinum fyrrnefndu. Þá i mun verða reynt að fá Færey- inga í þau pláss, sem enn vantar í. Á morgun er Röðull væntan- legur hingað með fullfermi af karfa, en aflann fékk hann á Nýfundnalandsmiðum á rúmum tveimur sólarhringum. Aðrir tog- arar héðan hafa verið að veiðum fyrir vestan land undanfarið, en aflabrögð verið treg. Hafa tog- arar þar yfirleitt vart náð meira en 100—130 tonnum á hálfum mánuði. Það, sem bætt hefir þó upp aflatregðuna, er hversu á- gætt verð hefir fengizt fyrir afl- ann á erlendum markaði, einkum í Englandi. — G.E. Tveir sniðugir London, 6. jan. (Reuter). MAÐUR gelti og hundur tal- aði í Bretlandi í dag. Maður- inn, sem er 65 ára, hefur ver- ið geltandi öðru hvoru síðan hann var barn í skóla, þar sem hann var neyddur til að nota hægri höndina í stað þeirrar vinstri. Læknir mannsins sagði að honum hefði versnað mjg mik ið síðustu 18 mánuðina. Hann hafði fengið óstöðvandi gelt- köst með 10 mínútna millibili og gert samverkamenn sína svo hrædda, að hann varð að hætta vinnu sinni. Hundurinn er 3 ára og heitir Corky. Hann hefur þegar náð miklum vinsældum í sjón- varpiiuu. Fyrir um það bil fjórum mánuðum kom hann til eigenda sinna og sagði með rámum róm „góðan morgun“. Uppáhaldssetning hans er: „Ég er sniðugur". Þessa setn- ingu margsagði hann á blaða- mannafundi á heimili sínu í Drighlington í Yorkshire. — Hundurinn talandi vakti lengi frameftir í fyrrinótt við að tala inn á plötu kveðju til amerískra hunda. Orðsending hans til þeirra ■rar: „Ég er sniðugur hundiur. Bless, bless“. Kona og drengur slasast við Hlégarð 41 beinbrot mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmtmmmmmmmmmmmmmmmimmmmmmmmmmmmmms\

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.