Morgunblaðið - 08.01.1960, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 08.01.1960, Blaðsíða 9
TTöstudagur 8. jan. 1960 MÖTtCTllSnT.iniÐ 9 Fangahjálp í 10 ár — Rætt við Osear Clausen „FANGAHJALPIN á Islandi“ er mannúðarstofnun, sem lætur lít- ið yfir sér — en skiptir samt ómetanlega miklu máli fyrir þau landsins börn, sem fótaskortur verður á þröngum vegi réttvís- innar. Þar með hefur hún vissu- lega einnig sína þýðingu fyrir þjóðfélagið í heild, sem fagna lilýtur hverjum „glötuðum syni“ er aftur fær snúið. jÞað er sem kunnugt er Oscar Clausen rithöfundur, sem for- göngu hafði um stofnun Fanga- hjáparinnar, og hefur hann frá upphafi veitt starfseminni for- stöðu. I tilefni þess, að á síðastl. ári voru liðin 10 ár, frá því að hafizt var handa, hefur einn af tíðindamönnum Mbl. gengið á fund Oscars og leitað hjá honum upplýsinga um starfsemina á þessu tímabili. — Við urðum að renna dálítið blint í sjóinn til að byrja með, sagði hann, þegar tíðindamaður innti hann eftir því, hvernig stofnunin hefði slitið barnsskón- um. — Ekki var um erlendar fyr irmyndir að ræða, sökum þess, að hliðstæðar stofnanir í öðrum löndum eru byggðar á ólíkum grundvelli. Smám saman varð okkur þó ljóst, að fyrsta skrefið varð í flestum tilfellum að stíga inni í fangelsunum. Þar var nauð synlegt að stofna til nokkurra kýnna við fangana og leitast á þann hátt að komast að raun um, hvort fangavistin væri þeim ein- ungis þörf áminning, sem hefði betrandi áhrif á þá — eða hvort hún væri líkleg til að valda þeim sálartjóni og þá kannske varan- legu. Hjálpar þeim, sem vilja hjálpa sér sjálfir — Hvað var svo tekið til bragðs, þegar þetta lá ljóst fyrir? — Þegar niðurstaðan hefur orð ið sú, að vistin í fangelsinu hefði ill áhrif á fangann, og við jafn- framt talið okkur finna inn á það með nokkurri vissu, að hann hafi séð sig um hönd, höfum við leit- að til yfirvaldanna um að fá fang ann lausan til reynslu. Algjör forsenda fyrir slíku er að sjálf- sögðu það, að fanginn hafi ein- lægan ásetning til að bæta sig, því til þess að hjálp annarra geti komið honum að notum, þarf hann að vilja hjálpa sér sjálfur. Xil starfa á sjó eða í sveit — 1 hverju hefur hjálp ykkar svo verið fólgin, eftir að út var komið? , — Lausnin hefur venjulega verið bundin því skilyrði, að fanginn færi í vinnu í fjarlægu héraði eða til sjós. Fangahjálpin hefur þá séð um að útvega mönn um slík störf, sem þeir gætu gengið að, jafnskjótt og þeir losn- uðu úr fangelsinu. Ekki er fátítt að mennirnir hafi verið illa fat- aðir eða þurfandi fyrir einhvers konar aðstoð aðra, og hefur þá verið bætt úr því. Sumir hafa átt allháar skattskuldir yfir höfði sér, svo að við borð hefur legið, að þeim félli strax í byrjun allur ketill í eld. Við höfum þá mælzt til þess við hið opinbera, að skuldir þessar yrðu lækkaðar eða látnar niður falla. Hefur þessum beiðnum okkar verið mætt af miklum skilningi, og skuldabagg- inn þannig ekki orðið til þess að leggja mennina að velli á ný. Sitt hvað fleira mætti nefna í sam- bandi við þessa hlið starfseminn- Nær 600 mönmim hjálpað — Hvað hafa margir notið að- stoðar Fangahjálpafinnar á þessu tíu ára tímabili? — Þeir eru nær 600 talsins, og lítið eitt yfir 1400 mál af mjög margvíslegu tagi komu til kasta Fangahjálparinnar á þessum fyrsta áratug starfseminnar; 151 fangi var náðaður skilorðisbund- ið eða fékk reynslulausn úr fang- elsunum undir eftifliti Fanga- hjálparinnar, og frestað var Oscar Clausen ákærum á hendur 217 ungum mönnum, sem jafnframt voru úr- skurðaðir undir umsjón mína. Alls eru þetta 368 menn, sem ella hefðu orðið að dúsa á bak við lás og slá í lengri eða skemmri tma. Fyrstu sporin erfiðust — Hvernig hefur svo rætzt úr mönnum þessum? — Þeir hafa margir hverjir reynzt hinir nýtustu hver á sínu sviði, og störfin bæði til sjávar og sveita verið hin uppbyggileg- ustu fyrir þá. Af föngunum 151, sem ég gat um, féll ekki nema þriðjungur í sekt í aftur. Og um unglingana hef ég þá ánægjulegu sögu að segja að einungis tuttugu þeirra — eða færri en 10 af hundraði höfðu orðið brotlegir á ný í lok 10. starfsársins fyrr á ár inu. Um hin nýju brot þeirra má gjarnan skjóta því inn, að nær helmingurinn var mjög smávægi legur. Það er athyglisverð staðreynd, að þessir fáu piltar, sem orðið hafa sekir aftur, hafa flestir fall- ið í afbrotin skömmu eftir að þeir voru úrskurðaðir undir eftirlitið. Þetta sýnir glögglega, að þeim er hættast til að byrja með og þarfn ast þá mestrar umhyggju. Margir þeirra hafa látið orð falla í þá átt, að þeim sé mikil uppörvun í því að geta snúið sér til Fanga- hjálparinnar, rætt við forstöðu- manninn og sótt þangað ráð og styrk, þegar örðugleikar hafa steðjað að — en margir piltanna eiga fáa aðstandendur og búa við erfiðar heimilisaðstæður. Mörgum hefur vegnað vel — Kanntu að nefna einhver dæmi um það, hvernig föngun- urn hefur reitt af? — Já, mörg. Einum man ég t.d. eftir, sem var dæmdur til fang- elsisvistar 17 ára gamall. Ég fékk því framgengt, að hann var ekki settur inn heldur fór til sjós. Þar hefur honum gengið ágæt- lega síðan. Er nú kvæntur og á 3 börn og hefur komið sér upp ágætu þeimili. Hann hafði nær 90 þúsund króna tekjur árið sem leið. Annar hefur unnið við sveitastörí x, nokkur ár og ætlar næsta vor að hef j a búskap á leigu jörð. Nýtur hann til þess fyllsta trausts állra. Þannig mætti lengi telja. í fyrra var ungur maður dæmdur til nokkurra ára fangels isvistar. Átti hann bæði fyrir konu og börnum að sjá. Innilok- unin hafði mjög slæm áhrif á hann og fyrir milligöngu Fanga- hjálparinnar var hann látinn laus eftir fáa mánuði. Þessi mað- ur hefur ekki verið bendlaður við neitt misjafnt síðan. Á þessu ári sótti hann um trúnaðarstöðu og naut til þess meðmæla Fanga- hjálparinnar. Umsækjendurnir skiptu tugum — en honum var veitt staðan. Og það sem mest er um vert, hann hefur reynzt traustsins verður, rækt skyldur sínar með mestu samvizkusemi. „Hjá góðu fólki“ — Teldir þú heppilegt, að kom ið yrði á fót dvalarheimili, þar sem ungir menn yrðu settir til betrunarvistar? — Um skeið framan af var ég þeirrar skoðunar, að stefna bæri að slíku. En það má ekki gleyma alveg dæmisögunni um skemmda eplið. Þó að ekki væri nema einn svartur í hópnum, gæti hann komið mörgu slæmu til leiðar. Eftir því sem é'g hef kynnzt bet- ur aðstæðum, hef ég fallið frá þeirri hugmynd, að heppilegt sé að hafa marga óþroskaða ungl- inga, sem orðið hefur fótaskortur á lífsbrautinni, saman á einhvers konar hæli. Þess vegna hef ég af sívaxandi sannfæringu fylgt fram þeirri stefnu, að útvega þeim ungu mönnum, sem sjálfir hafa viljað draga sig út úr soll- inum, vist á góðum góðum heim- ilum til sveita, einum á hverjum stað. Hefur þetta reynzt hið far- sælasta fyrirkomulag, og trúi ég naumast, að til sé annað sem betur muni reynast. Víða hefur vinnukraftur þess- ara manna bætt úr brýnni þörf. Sannleikurinn er líka sá, að marg ir þeirra bænda, sem notið hafa þessara starfskrafta, hafa leitað til mín af fyrra bragði síðar og fremur kosið að njóta minnar milligöngu en fá menn eftir öðr- um leiðum. Þetta hefur meðal annars átt rætur að rekja til þess, að ég hef lagt mig fram um að gera þeim fyrirfram sem gleggsta grein fyrir kostum mannanna og löstum og í því efni hvergi dregið neitt undan, svo að þeir hafa því ekki orðið fyrir sömu vonbrigðum með þá og ýmsa aðra vinnumenn sína. Farsæl lögbót — Refsilöggjöfinni hefur verið breytt nokkuð, síðan Fangahjálp- in tók til starfa. , — Já, og það hefur reynzt mjög farsæl ráðstöfun. Var snemma árs 1955, að gerðar voru Keflavík — Nágrenni GUNNARSBAKARÍ óskar öllum viðskipta- vinum og öðrum Gleðilegs árs með þökk fyrir viðskiptin á liðna árinu. Opna branðbúð í dag á Hafnargötu 34. Ueggjum áhc'-zlu á nýjar kökur og brauð. Komið — Skoðið — Reynið. Gunnarsbakarí Hafnargötu 34, Keflavík - Sími 1695. fyrir forgöngu Bjarna Benedikts sonar dómsmálaráðherra breyt- ' ingar, sem fela í sér mjög aukna j mannúð og frjálslyndi gagnvart | hinum seku. Hika ég ekki við að telja þetta merkustu endurbót, sem gerð hefur verið á íslenzkri refsilöggjöf allt frá setningu gömlu heghingarlaganna árið 1869. Með þessum nýju löugm var dómsmálaráðherra m.a. veitt heimild til að fresta ákæru á hendur ungum möhnum, þegar um fyrsta eða minni háttar af- brot er að ræða. Það er því með heimild í þesSum lögum, sem frestað hefur'vérið ákæru á hend ur ungu mönnunum, sem 1 ég nefndi áðan. Hefur þetta því þeg ar reynzt ungu mörgum unglingi mikilvægt. Það sanna best þær tölur, sem ég nefndi. Umfangsmikil starfsemi — Hvað viít þú svo segjá um þig, Fangahjálpina og framtíð- ina — Starfsemin hefur aukizt mik ið siðustu árin. Sex fyrstu starfs- árin voru að meðaltali afgreidd 65 mál á ári, og á árinu 1955—56 voru þau 116, 1956—57 urðu þau 230, 1957—58 fjölgaði þeim enn í 314 og á síðasta starfsári voru þau 350, auk smærri mála, sem ekkert .hefur verið bókað um Það er því enn margt að vinna í þessu efni, þó að við á hinn bóg- inn getum glaðst yfir því, að ástandið hér má vera mörgum öðrum þjóðum fyrirmynd, eink- um að því er unglinga snertir. Sjálfur vonast ég til að geta sem lengst haldið áfram að starfa að þessum málum. Og þess óska ég einnig, að starfsemi Fangahjálp- arinnar eigi eftir að verða mörg- um mönnum til bleSsunar á ókomnum árum. Oscar Clausen hefur áður sagt frá því, að sig hafi allt frá unga aldri langað til að verða fönguni og öðrum olnbogabörnum að liði — énda snemma runnið til rifja ömurleiki langrar fangavistar og niðurdrepándi áhrif hennar á unga menn, fulla af lífsfjöri, sem hánn.hafði fengið tækifæri til að kynnást. Sá neisti, sem þannig kviknaði fyrir meira en hálfri öld, slokknaði aldrei, þótt atvik- ih höguðu því svo, að Oscar hefði ekki aðstöðu til að sinna þessu áhugamáli sínu að nokkru ráði, fyrr en Fangahjálpin tók til starfa fyrir hans forgöngu árið 1949. Það leynir sér ekki, þegar við Oscar Clausen er rætt, að hann gengur til þessara starfa sinna af sannri gleði og leysir þau af hendi með samvizkusemi og festu, sem frekast verður vart hjá trúverðugum og gamalreynd- um embættismönnum. En fyrst og fremst gætir þó í þessu starfi Oscars þeirra manngæzku, sem beint hefur fótum hans inn á þessa göfugu braut. En á henni inunu margir óska, að hann eigi enn eftir að ganga mörg spor. Húsmæðrakennaraskóli * Islands Þeir nemendur, sem ætla sér að sækja matreiðslu- námskeið Húsmæðrakennaraskóla íslands sem hefst um miðjan janúar, hafið samband við skólastjórann hið fyrsta sími 16145 eða 15245. Vegna forfalla er hægt að bæta við nemendum. Helga Sigurðardóttir. Höfum flutt verksmiðju og skrifstofur vorar að Bolholti 6. Belgjagerðin Skjólfatagerðin h.f. Eins og áður verður Minnisbók Fjölvíss „þarfasti þjónninn" í önnum dagsins. t henni eru hinar margvíslegustu upplýsingar er koma munu yður að ómetan- legu gagni i daglegum störfum. — Fyrir þá, sem ekki eru kunn- ugir í bænum er hún alveg ó- missandi, þar eð í henni eru kort af einstökum bæjarhverf- um, sem vandalaust er að rata eftir. FJÖLVfS fæst í bókabúðum um allt land. ff

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.