Morgunblaðið - 15.06.1960, Side 14
14
MORGUNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 15. júní 1960
— / ævintýraskógi
Frafh. af bls. 8
Bruns. Nú þurfti að járna Njál
og laga undir einum fæti á öðr-
um hesti sem greip fram á sig.
Hér vill það brenna við að járn-
smiðirnir hafi skeifurnar bæði
of langar og of útstæðar á hæl-
ana. I öllum þessum atriðum var
Páll Sigurðsson leiðbeinandi.Það
er í rauninni gaman að sjá vand-
virkan járnsmið naela undir hest,
svo vel og skipulega er það gert.
En það tekur sinn tíma og er nost
ursamt. Allt gekk vel þar til að
Njáli kom. Hann var ekki á þeim
buxunum að láta járna sig. í>að
var komin í hann svo gróin
kergja, að fátt eitt er hægt að
láta hann gera. Við börðumst við
hann hjá smiðunum, bundum
hann og reyrðum, og loks eftir
langa mæðu stóð kar^ aljárnað-
ut. Sömu sögu var að segja,
ef átti að láta hann fara yfir j
hindranir eða koma honum inn
í flutningavagn, en þá kom okk-
ur íslenzk aðferð vel, að grípa
tveir höndum saman fyrir aftan
læri hans og hálf bera hann inn
í flutningavagninn. Hvort sem
þessi kergja er eðlislæg eða til
komin fyrir klaufaskap núver-
andi eiganda, skal ósagt látið,
en Njáll var engum til sóma
á þessu móti.
Erfiðar reiðbrautir.
Snar þáttur í undirbúningnum
var lagning reiðbrauta, bæði á
skeiðvelli og uppi í misjöfnu
hæðardragi. Á skeiðvellinum var
fjöldi hindrana og þurfti að fara
fram og aftur eftir vellinum í
ótal krákustigum til þess að kom
ast á brautina. Var þetta svipað
og skeiðbrautin, er við sáum um
síðustu helgi og stórhestarnir
runnu. Aðeins voru hindranirnar
nú lægri og færri. Uppi í hliðar
draginu var riðið í krákustigum
íbúð til leigu
Glæsileg 4ra heíb. íbúð 'við miðbæinn til leigu nú
þegar. — Tilboð merkt: „Góð umgengni — 3747“,
sendist afgi’. Mbl. fyrir þriðjudagskvöld.
Get iánað 100—150 þúsund krónur til tíu ára gegn
öruggu fasteignaveði. Tilboð merkt: „Fastalán —
3890“, sendist afgr. Mbl. fyrir föstudagskvöld.
4ra - S herb. íbúðarhœð
ÓSKAST TILi KAUPS. íbúðin þarf að vera í góðu
steinhúsi, sem mest sér. — Æskilegur staður væri
Hlíðarnar,, Norðurmýrin eða Laugarneshverfi. —
Góð útborgun í boði. — Upplýsingar gefur:
Málflutningsstofa
INGI INGIMUNDAKSON HDL.,
Vonarstræti 4, II. hæð — Sími 24753
ia herb. íbúð
til sölu við Langholtsveg. -
Nánari upplýsingar gefur.
Allt sér.
Málflutningsstofa
INGI INGIMUNDARSON, hdl.
Vonarstræti 4 H. hæð
Sími 24753.
íbúð óskost til leign
Hef verið beðinn að útvega 2ja eða litla 3ja herb.
íbúð til leigu. Má vera rishæð en ekki í kjallara.
Fyrirframgreiðsla.
JOHANNES LÁRUSSON hdl.
Kirkjuhvoli. — Sími 13842.
Fagnið nýstúdentum
með rósum
Gróðrarstöðin við Miklatorg
Símar : 22-8-22 og 1-97-75.
eftir ákveðinni braut. Þurfti að
fara gegnum hlið, líkt og í svigi
á skíðum, einnig þurfti að fara
yfir allskonar hindranir ofan í
djúpa bolla og snarbeygja fyrir
tré og staura. Höskuldur lenti
einn daginn í því að ríða með
Falkner og fleirum eftir þessum
frumlega reiðvegi, sem varla get
ur fundizt bölvaðri. Þótti hon-
um skítur til koma og mun hafa
verið lítt sælli en við Páll, sem
í þann mund vorum að berjast
við Njál.
Reiffbuxnaskortur.
Gunnar Bjarnason og Búi Pet-
ersen höfðu lengst af frí frá þess
um störfum sakir reiðbuxna-
skorts. Þeir höfðu ætlað að
kaupa sér reiðbuxur þegar er
þeir kæmu til Þýzkalands, en
það ætlaði að ganga trdglega að
fá þær, en endaði með því, að
þær voru skraddarasaumaðar í 30
km fjarlægð frá Schlúchtern og
Var það mikið verk áæinni nóttu.
Svo fór þó, að daginn fyrir
sjálfa sýninguna reyndust þeir
félagar báð,ir hestfærir, hvað
buxur snertir.
Eltingaleikur.
Einn daginn lentum við í því
niður hjá skeiðvelli, að eltast
við brúnan hest er Fálki nefn-
ist. Er sá hestur hinn skemmti-
legasti hindrana-stökkhestur, en
pratinn nokkuð og dýrstyggur.
Fyrir lítilshláttar handvömm
slapp hann og hófst nú eltinga-
leikur hinn mesti um vellina við
skeiðvöllinn. Ég kom í þann
mund er leikurinn byrjaði og ók
fólksvagni Werkmeisters. Grund
ir eru þarna sléttar en gras mik
ið og rigning var á, eiginlega sú
eina, er kom á meðan við dvöld-
umst hér. Frú Ursula Bruns elti
Fálka á bíl sínum og kom ég
Litli og stóri. — Þeim stóra mættum við á heimleiðinni
frá járnsmiðnum. Frú Múller situr litla, leirljósa hestinn.
nú til liðs við hana á hinum
bílnum. Var leikurinn bæði harð
ur og skemmtilegur og hef ég
ekki fyrr farið í kappakstur við
hest. Að lokum varð Fálki að
gefa sig fyrir miklúm liðsmun.
Tamningamaffurinn Renner.
Einn góðan kunningja eignuð-
umst við, umfram þá er ég hef
fyrr frá geint. Var það tamn-
ingamaðurinn Renner. Hann
var hreinn snillingur, sérstaklega
að temja hesta fyrir vagn og til
þess að láta þá gera ýmsar kúnst
ir, er þeim er stjórnað með löng-
um taumum. Hann var síkátur
og fjörugur, fór í glímu við
Gunnar og sýndi okkur japönsk
glímutök. Létti hann mörgum
lífið með kæti sinni, þar sem
Tilboð óskast
um raflögn o. þ. h. í barnaskóla við Breiða-
gerði.
Útboðslýsingar og uppdrátta má vitja í
skrifstofu vora, Traðarkotssundi 6, gegn
200 króna skilatryggingu.
Innkaupastofnun Keykjavíkurbæjar
Tilboð óskast
um raflögn o. þ. h. í gagnfræðaskóla við
Réttarholtsveg."
Útboðslýsingar og uppdrátta má vitja í
skrifstofu vora, Traðarkotssundi 6, gegn
200 króna skilatryggingu.
Innkaupastofnun Reykjavíkurbæjar
TILKYNNING
um áburðarafgreiðslu í Gufunesi.
Frá og með mánudeginum 20. júní n.k.
verður áburðarafgreiðsla þannig:
Alla virka daga kl. 8.00 f.h. til 5.00 e.h
Laugardaga engin afgreiðsla.
Ábin-ðarverksmiðjan h.f.
5 herb. hæð
er til sölu við Bollagötu. — Bílskúr fylgir.
Nánari upplýsingar gefur:
MÁLFLUTNIN GSSKRIFSTOFA
Vagns E. Jónssonar.
Austurstræti 9. Sími 14400.
segja má að á margan Iegðist
nokkur skapþungi í erfiðleikum
undirbúningsins. En það er
að sjálfsögðu engin furða, þar
sem þetta er í fyrsta skipti, sem
slíkt mót er haldið, þegar svo
við bættist drúsaveikin.
Heimsókn hjá borgarstjóra.
Daginn fyrir mótið var okkur
íslendingunum hátáðlega boðið
til borgarstjórans í Schlúehtern.
Gunnar og Búi óku í vagni, sem
Renner ók, en Höskuldur,
Páll og ég riðum þremur
gæðingum á eftir vagninum. —
Þannig var haldið hverja göt-
una eftir aðra í miklum kráku-
stigum, numið staðar við ráð-
húsið og þar stigið út, gengið
fyrir borgarstjóra og skálað fyr-
ir fsland og Schlúohtem, skrif-
að í hina gullnu bók borgar-
innar og síðan haldið í nýja
hringferð. Öll fór þessi „prósess-
ía“ fram virðulega og skemmti-
lega, enda veður hið fegursta.
Hjá borgarstjóra vorum við
leystir út með minjagripum og
svo voru einnig samskiptin við
marga kunningja okkar. Við
höfðum við þá minjagripaskipti.
Voru tínd til belti og húfur, eða
annað smálegt, sem hægt vax að
losa sig“ við.
Á morgun hefst svo mótið
sjálft og verður gaman að sjá
hvað fyrir augu ber næstu þrjá
daga.
Sohluchtern, 3. júní.
vig.
Gagnfræðaskóli
Akraness
AKRANESI, 9. júní. — Gagn-
fræðaskóla Akraness var sagt
upp í kirkjunni fimmtudaginn 2.
þ.m. kl. 6. Uppsögnin hófst með
samsöng, en því næst flutti sókn-
arpresturinn hugvekju og bæn.
Skólastjórinn Ólafur Haukur
Árnason hélt mjög snjalla ræðu,
en inntak hennar var skyldan.
Beindi hann orðum sínum sér-
staklega til gagnfræðinganna, er
nú útskrifuðust, en þeir voru alls
34. —
Nemendur í- skólanum í vetur
voru alls 245, og skiptust þeir í
10 deildir. Fastakennarar voru
10, auk skólastjóra.
Hæstu einkunn á gagnfræða-
prófi hlaut Grétar Vésteinsson,
8,58, en hæstu einkunn yfir skól-
ann hlaut Ingveldur Sverrisdóttir
í 1. bekk A, 9,13. Margir nem-
endur hlutu verðlaun fyrir náms-
afrek.
í landprófsdeild voru 20 nem-
endur og af þeim stóðust 13 próf-
ið, þar af fengu 7 framhalds-
einkunn. Hæstur var Friðrik Þor-
leifsson með 7.
Við þetta tækifæri gáfu 10
ara gagnfræðingar skólanum
Orðabók Sigfúsar Blöndals og
ritverk Davíðs Stefánssonai,
skálds í Fagraskógi, sem þakk-
lætisvott. — Oddur.