Morgunblaðið - 05.07.1960, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 05.07.1960, Blaðsíða 8
8 MORCUNniAÐiÐ Þriðjudagxir 5. júlí 1960 Krúsjeff hefur sigrað Mao í fyrstu atrennu KfttJSJEFF hefir sigrað í fyrsta opinbera árekstrinum við Pek- ing, en aðeins að nokkru leyti. Og bersýnilega höfum við ekki heyrt um lok deilunnar. Kínverjar sjálfir hafa orðið að gera eitt þetta „kveljandi endur mat“ og þeir hafa augljóslega ákveðið að fylgja Krúsjeff að málum, vegna þess, að afleiðing- arnar myndu verða of hættuleg- ar, ef þeir gerðu það ekki. En hugur þeirra fylgir þar ekki máli. Sovézkir embættismenn þreyt- ast aldrei á að segja okkur, að það sé ekki, hafi aldrei verið, og muni aldrei verða nokkur minnsti ágreiningur milli Moskvu og Peking. í>etta er þekkt sem diplomatiskur áreið- anleiki. En þeir hafa fengið sig fullreynda á því að halda yfir- skininu við síðastliðna tíu daga. Þeim tókst það samt sem áður og það var eflaust þess vert. Strax árið 1956, segja þeir, féllust þeir á stefnu Krúsjeffs, sem ákveðin var á hinu fræga tuttugasta flokksþingi, þar sem samþykkt var opinberlega að keppa að takmarkinu „friðsam- leg sambúð" þjóða og jafnframt gerð breyting á hinni, að því er virtist, ódauðlegu trúarsetningu Lenins um óhjákvæmilegt stríð. Það var alveg satt. En hitt taka sovézkir embættismenn ekki með í reikninginn, að síðan eru liðin fjögur ár og á þessum fjór- um árum og þó sérstaklega á síð- hafa sterkar raddir í Peking mótmælt hvað eftir annað breyttum stjórn arháttum, sem Krúsjeff varð fyrstur til að ákveða, með þeim afleiðingum að Krúsjeff sá sig neyddan til að leita að tækifæri til þess að útskýra stöðu sína rækilegar og ósveigjanlegar en nokkru sinni fyrr. Hann kaus þing rússneska kommúnista- flokksins í Búkarest. Þar gerði hann það deginum ljósara, að hann hélt fast við ákvarðanir tuttugasta flokksþingsins, þrátt fyrir persónulegar deilur við Eisenhower forseta. Ennfremur gerði hann sjálfan sig að hinum eina fullgilda túlk Lenins. Hann gat sagt hvar Lenin hafði enn rétt fyrir sér og hvar breytt við- horf hefðu kollvarpað kenning- um hans. Hann gerði það. Lenin hafði rétt fyrir sér, sagði hann þegar hann krafðist ýtr- asta sveigjanleika og hæfileik- anna til að jafna deilurnar við „óvininn", að fara í krákustígum, mjög hægt, á leiðinni að loka- markinu. En Lenin var á eftir tímanum, hvað snerti þá trú hans að eina leiðin að lokamarkinu næðist með styrjöld. Krúsjeff réðist með miklum' ofsa á alla þessa félaga, sem ekki voru færir um að skilja sannleik- ann. Og meðal þeirra voru Kín- verjar, því að þeir höfðu nýlega sýnt sig vera ósveigjanlegir, hvat visir og herskáir .En hann réð? ist á fleiri en Kinverja. Hann réðist gegn óstýrilátum andstæð- ingum sínum í stjórnmálum, í sjálfum Ráðstjórnarrríkjunlm. Hvað Evrópu snertir, þá bar hann sigur úr býtum. Grundvall- arstefnur hans í stjórnmálum voru endurstaðfestar samhljóða. Og það merkti að hann stóð and- spænis Kínverjum sem málsvari, ekki aðeins Sovétrikjanna, held- ur einnig sameinaðra kommún- istaflokka í Evrópu. Hvað myndu Kínverjar gera? í fyrstu virtust þeir varla þekkja sjálfa sig. Það var enginn kínverskur fulltrúi í Búkarest. Pekingfulltrúinn, sem talaði eftir að Krúsjeff hafði skýrt afstöðu sína, hélt því hátt og ákaft fram, að svo lengi sem heimsveldis- stefna væri við lýði, væri stöð- ug hætta á árásarstyrjöld. Krú- sjeff hafði aldrei sagt að svo mundi ekki verða. Harxn hafði aldrei sagt að sú hætta væri al- gerlega úr sögunni .Allt sem hann hafði sagt árið 1956 var það, að stríð væri ekki lengur óumflýj- anlegt og þannig strikað út þann hluta er var sízt réttlætanlegur í kenningum kommúnista. Btrið var ekki lengur óhjákvæmilegt, hafði hann sagt, vegna þess að styrkur kömmúnismans, studdur af friðarvinum allar landa var nægilega öflugur til þess að hindra árásir heimsveldissinna. Það, sem hann hafði í huga var tilkoma kjarnorkuvopnanna, sem Lenin hafði aldrei dreymt um. í Búkarest gekk hann feti lengra. Han gerði gys að rökfræðinni í eftir Edward Crankshaw uðstu sex mánuðunum, Hvernig sem þér ferðist Eru FERÐATRTGGINGAR nauðsynlegar FERÐATRYGGINGAR okkar tryggja yður fyrir alls konar slysum, greiða sjúkrakostnað yðar, greiða yður dagpeninga verðiö þér óvinnufær svo og órorkubætur, ennfremur mun fjölskyldu yðar greiddar danarbætur FEROATRYGGINGAR okkar eru m|ög ódýrar, t. d er íðgiald fyrir 100 000 króita tryggingu, hvernig sem þér ferðist mnan lands eða utan í hálfan márv- uð aðeins kr. 85.00. SIMINN ER 17080 og íerðátryggmg yðar er I gildi samstundis. SAdMI VO PJ tLTT tRV(B (C 0 PÞEAidR ( Krúsjeff í ræðustól í Búkarest. afstöðu Kínverja — enda þótt hann nefndi ekki Kína — með því að ,spyrja, hvort búizt væri við því, að kommúnistablokkin skylfi af ótta, jafnvel þegar sá dagur kæmi, þegar máttur heims veldisinna hefði verið brotinn á bak aftur. Hinn 25 .júní virtust Kínverj- ar vera að vakna og hefja bar- áttuna að nýju..Með þvi að ráð- ast á Titó marskálk og aðra, sem „endurskoðunarmenn" og „lið- hlaupa", voru þeir raunverulega að ráðast á Krúsjeff sjálfan og með furðulega hörðum orðum. Þetta var augljóst vegna þess, að þeir voru einmitt að ásaka Tító marskálk fyrir þau afbrot sem Krúsjeff hafði framið sjálfur, sem sé það, að reyna að komast út af við Bandaríkjamenn og vekja ótta við kjarnorkuhernað. Sá laugardagur var dagur mik- illa ögrana. Svo kom sunnudagur, og rit- gerð Mme. Soongs, sem var út- varpað um allt Kínveldi. Hið kveljandi endurmat hafði verið framkvæmt. Mme. Soong fullyrti að Vestur veldin segðu ósatt mál, þegar þau sögðu að Kínverjar væru ekki fúsir til friðsamlegrar sambúð- ar. Hún sagði, að vissulega yrði Kína að halda sambúðinni við heimsveldisstefnu. Þessi tvö fræðikerfi væru raunverulega samhliða. „En“, hélt hún áfram „meðan við höfum friðsamlega sambúð við heimsveldissinna, þá táknar það ekki, að við eigum að vera þeim undirgefnir og auð sveipir“, Hún lauk grein sinni með þeirri yfirlýsingu að enginn, ekkert afl gæti aðskilið Rússland og Kína: Þau myndu standa fast saman. Og hér verðum við að yfirgefa þau í bili. Kína hefur einu sinni enn játað viðurkenningu sína á ákvörðun- um tuttugasta flokksþingsins. En slíkt hindrar það ekki í því, að leggja áherzlu á önnur atriði en þau, sem Sovétríkin setja á odd- inn. Sjónarmið Krúsjeffs er það, að hættan á styrjöld hafi raun- verulega horfið úr sögunni. Kína heldur því hins vegar fram, að enda þótt stríð sé nú raunveru- lega ekki lengur óhjákvæmilegt, þá sé samt mikil hætta á því —. ennfremur, aðeins hugleysingjar séu hræddir við H-sprengjur. Við munum fá að heyra meira um þennan skoðanamun á næstu dögum. (Observer — Öll réttindi áskilin). Císli Júlíusson skipsfióri Minningarorð GÍSLI Júlíusson skipstjóri á Isa- firði andaðist að heimili sínu að kvöldi 27. júní. Ég gat tæplega trúað þessari frétt, þegar mér barst hun, þetta sama kvöld. Aðeins tveimur dög- um áður kvaddi ég þennan góða vin minn og samstarfsmann um borð í Fagranesi eftir að hafa farið með honum inn að Melgras- eyri. Þá var hann hress og ræð- inn að vanda og sízt átti ég von á að ég væri þá að kveðja hann í síðasta skipti í þessu lífi. En það er skammt bilið á milli lífs og dauða. Gísli Júlíusson var fæddur 6. júní 1894 að Hyrningsstöðum í Reykhólahreppi í Austur-Barða- strandarsýslu og voru foreldrar hans hjónin Ölöf Gísladóttir og Júlíus Þórðarson, en hann er enn á lífi háaldraður og býr á Siglu- firði. Foreldrar Gísla fluttu frá Hyrningsstöðum að Snæfjöllum í Snæfjallahreppi í Norður-ísa- fjarðarsýslu er hann var fárra vikna. Þegar Gísli var 13 ára flutti hann með foreldrum sín- um til ísafjarðar og þar hefur hann búið í hálfa öld. Gísli hóf sjómennsku barn að aldri og mest hans starf hefur verið á sjónum allan hans langa starfsaldur. Gísli varð brátt skip- stjóri á fiskibátum, en síðustu fiskiskipin, sem hann fór með slcipstjórn á voru Huginn 1. og Richard. Fyrir um það bil tólf ár- um réðst Gísli til H.f. Djúpbát- urinn, sem stýrimaður á m.s. Fagranes, og nokkrum árum síð- ar tók hann þar við skipstjórn og gengdi því til dauðadags. Gísli Júlíusson var mikill og góður sjómaður, athugull og skyldurækinn svo af bar. Hann var karlmannlegur og traustur maður í sjón og reynd og góðum gáfum gæddur. Hann mótaðist í hinum stranga skóla sjótnennsk- unnar á öðrum áratug þessarar aldar, og háði oft harða baráttu við Ægi og hertist við hverja raun. Hann var mikill áhuga- maður fyrir málefnum stéttar sinnar og útgerð allri, mikill skap festumaður, ákveðinn í skoðun- um og lét eigi hlut sinn ef á hann var leitað, en ógleymanleg- ur verður hann samstarfsmönn- unum fyrir hreinskilni og heiðar- ieika í öllum störfum sínum og lífi. Gísli bar ekki vináttu til annara utan á sér og smjaður og fals var ekki til í hans fari. Þair sem hann átti fyrir vini, voru vinir hans til æviloka. Hann var þeim trúr vinur og honum máttu þeir alltaf trúa, og treysta. Slík vinátta slitnar aldrei og slíkum vinum gleymir enginn, þó dauðinn skilji þá að um stund arsakir. Gísli kvæntist 30. marz 1929^ Framfkald á bls. 19.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.