Morgunblaðið - 11.08.1960, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Flmmtudagur 11. ágúst 1960
Myndlistarmenn
halda sumarsýningu
Opnuð i Listamannaskálanum i kvöld
í KVÖLD kl. 8:30 opnar Félag
íslenzkra myndlistarmanna sýn-
ingu á málverkum og höggíiynd-
um eftir félagsmenn í Listamanna
skálanum í Reykjavík. Er það í
fyrsta sinn sem tilraun er gerð
til að halda slíka listsýningu að
sumri til, en félagsmenn ætla nú
að reyna hvort ferðafólki í bæn-
um, erlendu og inlendu, þykir
ekki fengur í að eiga þess kost
að skoða myndir listamanna höf-
uðstaðarins.
Fréttamaður Mbl. leit inn í
Listamannaskálann í gær. Þar
voru nokkrir félagsmanna að
ljúka við að koma myndum fyr-
ir. Eru alls sýndar 65 myndir eft-
ir 16 málara og 3 myndhöggvara,
auk ofins veggteppis eftir Vigdísi
Kristjánsdóttur. Hefur sex manna
sýningarnefnd valið myndir til
sýningar af þeim listaverkum sem
bárust.
Gamlar og nýjar myndir
Sýningarmyndimar eru bæði
gamlar og nýjar, flestar þó nýjar,
margar frá þessu sumri, t.d. alveg
nýjar myndir eftir Þorvald Skúla
son, Kjartan Guðjónsson og Jó-
hannes Jóhannesson. Margir list-
málarar vinna aldrei meir en
fyrri hluta sumars, þegar birta
2 hæsíu vinningar
á fjórðungsmiða
MIÐVIKUDAGINN 10. ágúst var
dregið í 8. flokki Happdrættis Há
skóla íslands. Dregnir voru 1,105
vinningar að fjárhæð 1,405,000
þúsund krónur.
Hæsti vinningurinn, 100,000
krónur kom á fjórðungsmiða
númer 24,672. Voru allir fjórð-
ungarnir seldir í umboði Guð-
rúnar Ólafsdóttur og Jóns St.
Arnórssonar, Bankastræti 11, í
Reykjavík.
50,000 krónur komu einnig á
fjórðungsmiða númer 23,475. Þrír
fjórðungar voru seldir í umboði
Arndísar Þorvaldsdóttur, Vestur-
götu 10, Reykjavík, en einn fjórð-
ungurinn hjá Valdimar Long í
Hafnarfirði.
10,000 krónur: 7093 — 7345 —
8766 —- 15836 — 29498 — 42443
— 42868.
5,000 krónur: 1518 — 3185 —
3250 — 6375 — 13423 — 13974 —
16130 — 18080 — 22218 — 24671
— 24673 — 25708 — 37939 —
40044 — 40567 — 46450 — 47985
— 48054 — 49660 — 53755.
(Birt án ábyrgðar).
er goð allan sólarhringinn, en
„hvort það er betri vinnubirta,
um það má deila endalaust",
sögðu þeir Jóhannes og Hjörleif-
ur Sigurðsson, er fréttamaður
spurði þá um það.
Er inn í sýningarsalinn er kom-
ið, blasir við á hálfum vegg stór
mynd eftir Kristján Davíðsson.
Landabréf af Bandaríkjum Norð-
ur-Ameríku, dettur manni fyrst í
hug, en myndin heitir eitthvað
allt annað og á ekkert skylt við
það landabréf. Á endaveggnuim
eru 5 málverk eftir Snorra Arin-
bjarnar, þar á meðal tvær af ®íð-
ustu myndum hans, en Snorri
lézt árið 1958 sem kunnugt er.
Á hliðarveggjum hanga svo olíu-
myndir eftir aðra málara, sem of
langt yrði að telja upp hér og
vátnslitamyndir í afgirtum krók.
Á miðgólfinu eru höggmyndirn-
af eftir þrjá myndhöggvara. Þar
er m.a. ný mynd úr gipsi, kopar-
þræði og viði, sem nefnist „Á
batavegi“ og er eftir Sigurjón
Óíafsson. Hefur hann unnið hana
á Reykjarlundi, þar sem hann
dvelzt nú, og einnig myndina
„Staðarmerki", sem mun hugsuð
til uppsetningar á reit*við Vífils-
staði.
Ekki verður farið lengra út í að
telja upp einstakar myndir, en
sýningin verður opnuð í lcvöld og
opin næstu vikur.
Tvö gömul hús hafa verið
steinbæjanna gömlu, sem
Annað þessara húsa er einn
rifin að grunni á Óðinsgötu.
hér voru byggðir í bænum
skömmu fyrir síðustu alda-
mót. Byggði bæinn maður
að nafni Sveinn og var öku-
maður. Bærinn hlaut nafnið
Sveinsbær. Síðan var byggt
járnvarið timburhús framan
við bæinn, Óðinsgata 7.
Gekk það lengi vel undir
nafninu Sveinshús. Nú er
búið að teikna húsið sem
rísa á þarna. Verður það fjór
lyft skrifstofu og verzlunar-
hús.- Sá hængur er sagður á,
að ekki er búið að gera fram
tíðarskipulag á þessu götu-
horni. Virðist því allt í
óvissu um það hvenær hægt
muni að byrja á stórhýsinu.
Skákeinvígið;
Friðrik á betra
í GÆRKVELDI hófst skákeinvígi
þeirra Friðriks Ólafssonar, stór-
meistara og Freysteins Þorbergs-
sonar, íslandsmeistara, um rétt-
inn til að taka þátt í svæðamót-
inu, sem fram á að fara í Hollandi
á hausti komandi.
Svæðakeppni þessi er svipuð
kéþpninni, sem fór fram í Wag-
eningen, en þar var Friðrik
annar á eftir Sabo. — Fyrir þá
fvammistöðu var Friðrik sæmdur
órmeistaratitlinum.
k Freysteinn nær betra tafli
í skákinni í gær tefldu Frið-
rik og Freysteinn Rubenstein-
afbrigðið svonefnda, en í 8.
leik brá Freysteinn fram ný-
brigði, sem ekki hefir sézt eða
þekkzt hér áður, og vissu for-
ustumenn keppninnar ekki
hvort Freysteinn er höfundur
af þessu nýbrigði ,eða að hann
hafi lært það í Moskvu. Frey-
steinn virtist öruggur og náði
betri stöðu snemma í skákinni.
En nokkrum leikjum síðar
hrókeraði Freysteinn, og eft-
ir það var Friðrik með betra
tafl.
Skákin fór í bið kl. 0:30.
>á hafði Friðrik peð yfir og
mikla vinningsmöguleika.
Einvígið heldur áfram í kvöld
op hefst kl. 8,30 í Sjálfstæðisihús-
inu.
Sjálfsfœðisfélag Vestur-
Húnvetninga stofnað
Tala stofnenda nær 100
SL. sunnudag var haldinn að
Laugarbakka í Vestur-Húna-
vatnssýslu stofnfundur Sjálf-
stæðisfélags Vestur Húnvetninga.
Fund þennan sótti allmargt
manna en alls gengu í félagið við
stofnun þess tæplega 100 manns.
Fundinn setti Benedikt Guð-
mundsson, Staðarbakka og var
hann jafnframt fundarstjóri.
Fundarritari var Jóhannes Guð-
mundsson, Auðunarstöðum. Þá
tók til máls Birgir ísl. Gunnars-
son, stud. jur., en hann hefur
undirbúið stofnun félagsins.
Lýsti hann aðdragandanum að
stofnun þess og lagði fram frum-
varp að lögum fyrir félagið. Er
félaginu hafði verið sett lög fór
fram stjórnarkjör, Formaður var
kjörinn Benedikt Guðmundsson
frá Staðarbakka. Meðstjórnend-
ur voru kosnir þeir Sigurður
Tryggvason, Hvammstanga, Jó-
hannes Guðmundsson, Auðunn-
arstöðum, Þórarinn Þorvaldsson,
Þóroddsstöðum og Óskar Levy,
Ósi. í varastjórn hlutu kosningu:
Guðmundur Jóhanness. Fremri-
Fitjum cg Magnús Guðmunds-
son, Staðarbakka. Endurskoðend
ur voru kjörnir Björn Lárusson,
Flugmálafulltrúa í
Moskvu vísað úr landi
Auðunnarstöðum og Guðmundur
Jóhannesson, Þorgrímsstöðum.
Þá fór fram kosning fulltrúaráðs.
Að kosningum loknum tóku til
máls Guðjón Jósefsson og Bene-
dikt Guðmundsson. Á fundinu'.u
ríkti mikill áhugi um að efla
fylgi Sjálfstæðismanna í sýsl-
unni og þótti hin háa tala stofn-
enda félagsins benda til þess, að
vegur flokksins færi vaxandi í
sýslunni.
Síðar um daginn fór fram hér-
aðsmót á vegum Sjálfstæðis-
manna. Þar héldu ræður þeir
Óskar Levy bóndi, Guðjón Jós-
efsson bóndi og Einar Ingimund-
arson alþingismaður. Skemmti-
atriði önnuðust Gunnar Eyjólfs-
son, Ómar Ragnarsson, Ární
Jónsson og Hafliði Jónsson. Mót-
inu stjórnaði Benedikt Guð-
mundsson og var það fjölmennt
og fór hið bezta fram.
Kongó
y NA 15 hnútar / V 50 hnúior $k Snjókoma » 06 i X/ Skvrir K Þrumur 'WZ& Kutíaskil Hitatkit
H Ha»
L Lagi
YFIR Grænlandshafi og fs-
landi er háþrýstisvæði, um og
yfir 1020 mb. Hins vegar er
lægð yfir Labradorskaga (995
mb) og veldur hún SA átt
og rigningu á Davíðssundi og
á suðvesturströnd Grænlands.
Lægðin þokast austur eftir.
Veðurspáin kl. 10 í gærkvöldi
Veðurhorfur, Suðvestur-
land til Breiðafjarðar og
miðin: Hægviðri, léttskýjað.
Vesfirðir til Austfjarða og
miðin: Hægviðri, víða skýjað,
en þurrt veður. Suðausturland
og miðin: Hæg austan átt.
sums staðar súld.
Moskvu, 10 ágúst. —■ (Reuter)
FLUGMÁLAFULLTRUA
bandaríska sendiráðsins hér,
E. M. Kirton, höfuðsmanni,
var vísað úr landi í dag, að-
eins nokkrum klukkustund-
um eftir að hann kom úr
ferðalagi um nyrztu héruð
Sovétríkjanna.
Gagnráðstöfun Rússa
Sovézka fréttastofan Tass
sagði, að Kirton hefði tekið ljós-
myndir af hemaðarmannvirkj-
um og bæri ábyrgð á njósnum
sinnar deildar í bandaríska sendi
ráðinu.
Atburður þessi er talinn vera
gagnráðstöfun vegna brottvísun-
ar eins sovézka sendiráðsfulltrú-
ans í Washington, Petr Ezhov,
sem sakaður var um meinta þátt-
töku í njósnum í Bandaríkjun-
um. —
Kirton og aðstoðarflugmála-
fulltrúi sendiráðsins, Irving T.
Macdonald, höfuðsmaður, komu
síðdegis í dag úr ferð um norður-
héruð Sovétríkjanna.
Báðir hugðust þeir vera við-
staddir réttarhöldin ýfir Powers
flugmanni af U-2 þotunni víð-
kunnu, en þau eiga að hefjast
17. þ. m.
Kirton skoðaði á sínum tíma
flat þotunnar, sem skotin var
niður hinn 1. maí, og það var
hann, sem sá um heimsendingu á
líki flugmannsins af RB-47 þot-
unni, sem Rússar skutu niðuf
yfir Barentshafi þann 1. júlí sl.
Utanríkisráðherra
r
tu Israel
GUÐM. 1. Guðmundsson utan-
ríkisráðherra er á förum í opin-
bera heimsókn til Israels í boði
ríkisstjórnar þess. 1 för með ráð-
herranum verSur Hendrjk Sv.
Bjömsson ráðuneytisstjóri.
Á heimleiðinni til Islands
munu þeir sitja utanríkisráð-
hemafund Norðurlanda, sem
haldinn verður í Osló í ágústlok.
Leiðrétting
1 FRÁSÖGN af uppboði á hross-
um í Skagafirði í blaðinu í gær
varð sú prentvilla að stóðhestar
voru kallaðir góðhestar. Það voru
að sjálfsögðu stóðhestar, sem
sóttir voru fram á Eyvindarstaða-
heiði og settir á uppboð.
Frh. af bls. 1
sinni, að stjórnmálásamband við
Belgíu væri hægt að taka upp
jafnskjótt og síðustu belgísku
herflokkarnir væru á brott úr
bækistöðvum sínum í Kongó og
komnir út fyrir landamæri ríkis-
ins. 1
Tshombe vill frið
f Elísabetville sögðu frétta-
menn, að svar Tshombe til
Hammarskjölds virtist bera það
með sér, að hann væri tregur til
að lýsa fyrirfram yfir stuðningi
við liðsflutninga S. þ. inn í Kat-
anga, en samt hafi hann tekið
fram, að hann væri „ætíð reiðu-
búinn til að stuðla að friðsam-
legri lausn málsins."
Ástandið í Elísabetville virð-
ist nú rórra. Hermenn Katanga-
stjórnar eru dreifðir um héraðið,
sem er álíka stórt og Spánn. Haft
er eftir belgískum liðsforingja,
að varðliðið sé á um 40 stöðum
í landinu, en í her Katanga eru
aðeins um 1000 menn og 200 belg
ískir liðsforingjar. Yfirstjórn-
andi Belgana, D’Aspromont
Lynden, lét svo ummælt í út-
varpsávarpi, að eins og sakir
stæðu væri ekki grundvöllur fyr
ir að neinn yfirgæfi varðstað
sinn.
SÍÐARI FRÉTTIR
Lumumba forsætisráðhr. varð
í kvöld fyrir barðinu á óeirða-
seggjum í Leopoldville. Sagði lög
reglumaður, að Lumumba hefði
meiðst í munni, þegar hópurinn
umkringdi bifreið hans og kast-
aði í hana grjóti. Sjónarvottar
sögðu að forsætisráðherrann
hefði lagzt á gólfið í bifreiðinni,
sem skemmdist mikið. Fréttarit-
ari belgíska ríkisútvarpsins sagði
að Lumumba hefði „særzt alvar-
lega“.