Morgunblaðið - 03.09.1960, Síða 2

Morgunblaðið - 03.09.1960, Síða 2
2 MORCVTSBLAÐ1Ð Laugardagur 3. sept. 196D Undralax í Skjálfanda fljóti HÚSAVÍK, 2. september. — Óþekktur fiskur, afbrigði, eða „villtur úr hafi“, veidd- ist í Skjálfandafljóti í gær. Hann veiddist í net frá bænum Rauðuskriðu. Fisk- urinn er 48 sm langur og 1300 gr þungur. Að útliti má líkja honum við sambland , af laxi, silungi og rauð- J maga. Nánar má lýsa fiskinum þannig: Hausinn er líkast- ur laxi (hæng), frá haus og aftur fyrir bakugga mynd- ast bunga, sem virðist brjóskkennd, líkast og á rauðmaga, bolur og hreist- urslag líkist einna helzt vatnableikju, en hann virð- ist annars hreisturslítill og roðið hveljukennt, stirtla og sporður líkast og á urr- iða. Fiskurinn virðist kyn- þroska svilfiskur. í dag hafa margir skoðað þennan fisk og jafnframt lesið Fiskana eftir Bjarna Sæmundsson, en ekki getað fundið þar lýsingu, sem kemur heim við þennan imdrafisk, sem sumir telja eitthvert afbrigði, en aðrir að hann sé villtur úr hafi. Fiskurinn er geymdur í frysti og verður sendur suður til rannsóknar. — Fréttaritari. Sól rí kasti ágústmánuður síðan mœlingar hófust Afmælisgesturinn Framh af bls 1 meðal annars að vestræn blöð hafi haldið því fram að hann væri til Finnlalnds kominn til leyni- samninga við Kekikonen, en „ég er kominn eingöngu til að óska mínum góða vini herra Kekkonen til hamingju mieð afmælið. Ek'k- ert er eðlilegra meðal gamalla vina og góðra nágranna". Frítt föruneyti f fylgd með Krúsjeff eru m.a. Lunikov, yfirmaður Norðurlanda deildar utanríkisráðuneytisins, G. T. Shuisky ráðgjafi Krúsjeffs í viðskiptamálum, O. A. Troyanov- siky ráðuneytisstjóri og L. T. Lit- ovtshenko ofursti. HVAÐ sólskinsstundir snertir varð ágúst metmánuður hér í Reykjavík. Voru sólskinsstund- irnar í mánuðinum 278, en hafa ekki áður orðið fleiri en 273, árið 1929.' Þessar upplýsingar fékk blaðið frá Öddu Báru Sigfusdótt- ur, veðurfræðingi, í gær. Þess má geta að skýrslur um sólskins- stundir eru til síðan 1923. Ágústmánuður var einnig ákaflega þurr, rigndi 9.1 mm. Ekki er það þó metþurrkur. Arið 1956 var rigningin 4.4 mm í Rvík, árið 1907 0.9 mm og árið 1903 hefur metið. Þá rigndi 0.4 mm. Regnmælingar eru til frá 1885— 1907 og Svo síðan 1920. Hitinn í mánuðinum var 11,2 stig, heldur meira en meðallag, sem er 10,6. Lítið er komið til Veðurstof- unnar af skýrslum utan af landi. En samkvæmt veðurskeytum hef ur ekki rignt á Akureyri nema 5 mm í ágústmánuði, sem er met þar ef rétt er, en þar eru til mælingar frá 1928. Sólskinsmæl- ingar og endanlegar hitamæling- ar hafa ekki borizt Veðurstof- unni. Æfingar hafnar í Þjóðleikhúsinu I DAG hefjast æfingar í Þjóð- leikhúsinu á fyrsta leikritinu á leikskránni. Það heitir á frum- málinu „Look homewards, ang- el“ og hefur ekki verið gefið endanlegt nafn á íslenzku. Leik- stjóri verður Baldvin Halldórs- son, en þýðinguna gerði Jónas Kristjánsson. Leikrit þetta gerði Ketty Frings eftir samnefndri skáld- sögu Thomasar Wolfs, og eru bæði sagan og leikritið heims- þekkt .Aðalhlutverkin leika Guð björg Þorbjarnardóttir, Robert Hættuástond á bílastæði Á SJÖTTA tímanum í gær safnaðist hópur vegfarenda að Hótel íslands grunninum, þar sém lögregluþjónn stóð á verði og vísaði bílum frá stórum polli á miðju bílastæðinu. Hafði komið gat á benzíntank bifreiðar, sem þar stóð, en hún var me.l.t læknisnúmeri. Lak benzínið smám saman niður á bílastæðið, en lögreglan kom á vettvang, til að koma í veg fyrir að aðrar bifreiðar ækju yfir pollinn eða að vegfarendur færu óvarlega með eld þar í nánd, þangað til slökkviliðið kom á vettvang og skolaði benzíninu burtu. I 'SlNAIShnilar ? / SV50hnútar H Snjiioma 117 Skúrir 1 ’VMV/Rtgn- » ÚÍi I K Þrumur | '////tráhi KuUasHIXH HaS Hiitski! 1L Lagi | 1 i ik . . /•> / n/ FYRIR sunnan land er nærri kyrrstæð lægð, sem veldur A-átt hér á landi. Veðurhæð er 8 vindstig á Stórhöfða, en um norðanvert landið er enn sem fyrr hægviðri eða alveg logn. Önnur lægð er norðan við Nýfundnaland og hreyfist austur eftir. Á Grænlandshafi er NA-átt og hvassvirði og rigning syðst á austurströnd Grænlands með 8 stiga hita. Hins vegar er hæg NA-átt og 12 stiga hiti á flugvellinum gegnt Bratta- hlíð. í Reykjavík er 13 stiga hiti, 14 í Glasgow, 16 í Kaup- mannahöfn og London, 20 í París og 23 í New York. Veðurhorfur kl. 22 í gær- kvöldi: SV-mið: Allhvass austan, úrkomulaust. SV-land, Faxaflói og Faxa- flóa-mið: Austan kaldi, skýj- að með köflum. Breiðafjörður tii Norður- lands og Breiðaf. mið til norð- ur miða: Hægviðri, víðast létt skýjað. NA-land til SA-lands og NA mið og Austfjarðamið: Aust- an gola eða kaldi, víðast skýj- að. SA-mið: Austan kaldi eða stinningskaldi, skýjað en úr- komulaust að mestu. Arnfinnsson, Gunnar Eyjójfsson og Jón Sigurbjörnsson. Þjóðleikhúsið mun ennfremúr áforma að sýna í vetúr éftirtálin leikrit: Tvö á saltinu eftir William Gibson, Nashyrningarn- ir eftir Ionesco, Þjónar drottins eftir Axel Kielland og Taste of honey eftir Seelaney. Um jólin verður flutt óperan Don Pasquale eftir Donizetti und ir stjórn Thyge Thygesen og seinna óperettan Sígaunabarón- inn eftir Strauss. I GÆRKVOLDI var lokið kcppni i 54 greinum íþrótta á Olympíuleikunum og eru þeir þar með rétt rúmlega hálfnað- ir. Skipting á verðlaunapen- ingum milli þjóðanna er sem hér segir: Gull Silfur Bronz Rússland 14 5 9 Bandaríkin 13 11 9 Þýzkaland 5 12 4 Ítalía 5 2 2 Ástralía 4 4 3 Ungverjaland 3 5 2 Tyrkland 3 0 0 Nýja Sjáland 2 0 0 Bretland 12 5 Svíþjóð 1 2 1 Rúmenía 1* 1 3 Búlgaría 1 1 1 Danmörk jl 0 :i 1 Japan 0 3 1 Bclgía 0 2 0 Holland 0 13 Pólland 0 1 3 Tékkóslóvakía 0 11 Arabalýðveldið 0 10 Brazilía 0 0 1 Frakkland 0 0 1 Júgóslavía 0 0 1 Mexíkó 0 0 1 Persía 0 0 1 Vestur Indíur 0 0 1 ÖrvœntingaríuUur loka- sprettur NÝSJÁLENDINGURINN Murray Halberg sigraði í 5000 m hl. á Olympíuleikunum í gær. Flestir væntu þess fyrir fram að hann myndi vinna, en það ætlaði að veitast honum erfitt. Þjóðverjinn Hans Grodotski var óðum að draga á hann á lokasprettinum og kom aðeins átta sekúnduhlut- um á eftir honum í mark. En svo tvísýn var keppnin, að þriðjil keppandinn, Kazimierz Zimmy, Póllandi var á lokasprettinum að draga óðfluga á Grodotski og kom aðeins tveimur sekúnduhlutum síðar í mark. Eftir keppnina köst Lítil fundarsókn AKRANESI, 2. sept.: — Akur- nesingar hafa aldrei verið neitt sérlega ginkeyptir fyrir komm- únistum. Keflavíkurgöngu og Brúsastaða fundarmennirnir héldu fund hér í gærkvöldi í Bíóhöllinni. Kl. rúmlega 9 var enginn kominn, en úr því fór fólk að smátínast þang að og urðu fundarmenn 30—40. Stóðu þeir á göngunum, en fáir einir tóku sér sæti. Ræður fluttu Jónas Árnason, Páll Bergþórs- son og Petra húsfreyja á Skarði í Lundarreykjadal. — Oddur. Brezkur togari NORÐFIRÐI, 2. sept.: — Brezkur togari kom hér inn í nótt með bil aða vél. Er það St. Mark frá Hull. Bjuggust skipverjar við að þurfa að vera hér í 2—3 daga. Sögðu þeir þetta vera í fyrsta sinn sem þeir leituðu hafnar á Islandi, eftir að fiskveiðideilan hófst, en þeir hafa áður verið við veiðar við Islandsstrendur. — S. L. ALGEIRSBORG, 25. ágúst. — Frönsk yfirvöld hér gerðu í dag upptækt hið óháða, franska kvöldblað „Le Monde“, vegna greinar um Alsír, sem birtist í þvL QQP uðu þeir sér allir örmagna í gras- ið. Þegar hlaupið hófst tók Zimmy frá Póllandi forustuna og hélt henni fjóra hringi. Þá fór Power frá Ástraliu framúr. Allir hlaup- ararnir héldu sig í einum hnapp. Þeir fóru fremur hratt og svo virtist sem hjaupið yrði mjög jafnt. En þegar 1500 metrar voru eft- ir, tók Halberg kipp og þeystist 15—20 m fram úr öllum keppi- nautum sínum á einu augabragði. Þjóðverjinn Grodotsky sá kipp- inn of seint og má vera, að það hafi kostað hann gullverðlaun. En rétt á eftir tók hann líka kipp og urðu lok hlaupsins ör- væntingarfull keppni milli þess- ara tveggja manna. - Krúsjef Frh. af bls. 1 forsætisráðherra muni bíða og sjá hvað Eisenhower og de Gaulle gera áður en hann ákveð- ur hvort hann sitji þingið. Fari Macmillan ekki, verður Home lávarður formaður brezku nefnd Mótmœli ACCRA, Ghana, 2. sept. (Reuter) — Mannfjöldi safnaðist í da.g saman fyrir utan franska sendi- ráðið í Accra í dag til að mót- mæla fréttum þess efnis að Frakk ar hafi í hyggju að gera tilraunir með neðanjarðar kjarnoxku- sprengingar á Sahara eyðknörk- inni. Hertruimibur voru barðar með- an sendinefnd fór á fund sendi- ráðsmanna með áskorun uim að Frakkar hætti öllum kjarnorku- tilraunum á Sahara. Einnig var skorað á öil sjólf- stæð ríki Afrítou að slíta stjórn- mólasambandí við Fratotoland og „frysta" eða gera upptækar all- ar eignir Frafcka í viðkomandi löndum ef haldið yrði áfram til- raunum. — Kongó Frh. af bls. 1 flutninga á liði Lumumba er hann leggur til atlögu við Kasai- her. Blaðamenn handteknir Þrír brezkir blaðamenn komu í dag til Bafcwanga, höfuðborgar Námuríkisins í Kasáihéraði, og voru handteknir við komuná að því er segir í fréttum frá Luala- borg. Voru þetta fréttaritarar. Reuters, brezka útvarpsins og Daily Express. Undanfarna daga hafa geisað harðir bardagar í Bakwanga, en verið erfitt að fá áreiðanlegar fréttir þaðan. Sagt er að hundruð manna hafi fallið í bardögunum. í fyrstu hafi hersveitum Lum- umba tekizt að hrekja her Kal- onjis, forseta Námuríkisins, burt úr borginni, en síðan misst völd- in aftur og verið sjálfir hraktir úr sumum hlutum borgarinnar. Bogar og örvar Kalonji er sjálfur í Elisabeth- ville, höfuðborg Katanga, en það- an fóru í gær um 300 sjálfboða- liðar til að berjast gegn Lum- umba í Bakwanga. Voru sjálf- boðaliðarnir margir hverjir klæddir einkennisbúningum, en allir voru þeir óvopnaðir. En tal- ið er að flestir hermenn Kalonjis séu aðeins- vopnaðir bogum og örvum. Drykkjuhlé I frétt frá NTB segir að einn af herflokkum Lumumba í landa mæraborginni Luputa hafi náð á sitt vald jámbrautarvagni full- um af öli. Hafi lið SÞ reynt að koma í veg fyrir æðislega drykkju hermannanna, en mistek izt. Hermenn Kalonjis hafi heyrt sönginn og lætin og hafið skot- hríð. Skiptust fiokkarnir á skot- um um hríð, en hættu brátt og settust saman að drykkju. Síð- ustu fregnir herma að þar sé allt í sátt og samlyndi. Ólympíuleikar stjómmálanna Parísarblaðið Combat sagði í dag að ákvörðun Krúsjeffs um að sitja þingið, breytti þinginu í „Ólympíuleika" stjórnmálanna, en án „reglunnar sem bannar að slá fyrir neðan belti“. Opinberir aðilar í London virt- ust sammála um að ekki væri rétt að halda „toppfund“ á Alls- herjarþinginu, sem þannig yrði snúið í áróðurskeppni austurs og vesturs. Talið er víst að flestir leiðtog- ar kommúnistaríkjanna muni nú hópast til New York, og að Eisen- hower forseti muni sennilega mæta á þinginu, þó ekki verði nema til þess að flytja þarj kveðjuræðu þar sem hann lætur ( brátt af forsetaembætti í Banda- ríkjunum. 1 Utanríkis- ráðherrafundur Norðurlanda Blaðinu barst í gær eftir- farandi fréttatilkynning frá utanríkisráðuneytinu. EINS og skýrt hefur verið frá í fréttum var hinn venjulegi haust fundur utanríkisráðherra Norð- urlanda haldinn í Osló 29. og 30. ágúst. Á fundinum voru rædd m. a. ýmis þau mál sem munu verða á dagskrá allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna í haust. Samkvæmt venju sendi utan- ríkisráðuneytið á staðnum út fréttatilkynningu um fundinn. f henni var þetta sérstaklega tek- ið fram: Utanríkisráðherrarnir ítrekuðu þá ákvörðun, sem tekin var á fundinum í Helsingfors í apríl, að styðja framboð fastafulltrúa íslands hjá Sameinuðu þjóðun- um, Thor Thors, ambassadors, við kjör til forseta 15. allsherj- arþings Sameinuðu þjóðanna

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.