Morgunblaðið - 03.09.1960, Side 5

Morgunblaðið - 03.09.1960, Side 5
Laugardagur 3. sept. 1960 MORGVNBLAÐIÐ 5 „SJÁLFBOÐIÐ er gróðum gesti“, segir máltækið, en ekki er víst, að Urho Kekkon- en, forseti Finnlands, hafi það í huga, þegar hann heldur upp á sextugsafmæli sitt í dag. Samkvæmt ósk hans átti ekki að hafa neitt „tilstand“ vegna afmælisins, en allt í einu tilkynnir Krúsjeff, að hann ætli að heimsækja Kekk onen á afmælisdaginn, „til þess að óska honum til ham- ingju“, eins og hann kemst að orði. Kekkonen hefur miðað stefnu sína við það síðan í stríðslok, að halda verði góðu sambandi við hinn volduga nágranna í austri, sem hefur sjálfstæði Finna í hendi sér, og því mun hann taka kurteis lega við sovézka einræðisherr- anum. Finnum þykir heim- sókn þessi móðgandi og telja, að þeir séu nógu oft minntir á það, hve háðir þeir eru Sov- étríkjunum, þótt ekki bætist atvik af þessu tagi við. Þetta minni um of á liúsbónda, sem vilji gleðja hjú sitt á tyllidegi með því að líta inn í kotið, án þess að gera boð á undan sér. Þótt Krúsjeff láti í það skína, að þetta sé óopinber heim- sókn, og að ekkert þurfi að hafa fyrir sér, vita Finnar, að „gestur óboðinn byrði er“. — Krúsjeff er ekki vanur að skeyta um sjálfsögðustu um- gengnisreglur og finnur Iík- Iega ekki fyrir því, að hann er álitinn boðflenna. Þó man hann, að „þrínætur gestur þykir verstur“, því að hann ætlar ekki að níðast á al- kuimri gestrisni Kekkonens nema tvær nætur. Hitt er ó- líklegt, að hann minnist orða Hávamála nú frekar en fyrri daginn: Inn vari gestr, er til verðar kemr, þunnu hljóði þegir, eyrum hlýðir o.s.frv., því að heimsóknir hans hafa hingað til einkennzt af hávaða mælgi og gauragangi. Urho Kekkonen er annars álitinn góður heim að sækja, því að eins og fleiri frændur hans kann hann vel að meta flest lífsins gæði. Hann er fæddur 3. sept. 1900 í smá- hænum Lepikko í Pielavesi, þ. e. a. s. á miðju vatnasvæð- inu. Iiann er af gamalli og merkri ætt, sem á uppruna sinn að rekja til Savolaksa og Kirjála og hefur búið á sömu slóðum a. m. k. síðan á sex- tándu öld. Hann varð stúdent 1919 og fékkst síðan við blaðamennsku um nokkurra ára skeið. 1928 lauk hann lög- fræðiprófi og 1936 varði hann doktorsritgerð við háskólann i Helsingjafossi. Hann fékk snemma áhuga á stjórnmálum og lenti í Bændaflokknum, sem hefur verið fremur tæki- færissinnaður miðflolckur, en Kekkonen liefur átt mikinn þátt í bví að festa stefnu hans á seinni árum. Hér er ekki rúm til þess að rekja stjórn- málaframa Kekkonens, en mesta frægð hlaut hann eftir vetrarstríðið svonefnda. Eins og menn muna eflaust, sigaði Stalín herjum sínum á smá- þjóðina í vestri veturinn 1939 —1940. Eftir styrjöldina lögðu Sovétríkin Kirjálaeiði og fleiri finnsk Iandsvæði undir sig og varð þá að koma um hálfri milljón flóttamanna frá þessum héruðum fyrir í land- inu. Kekkonen var formaður nefndarinnar, sem sá um að koma fólkinu vestur, útvega því jarðnæði og aðstoða það við að komast yfir byrjunar- örðugleikana. Á árunum 1950—1956 mynd aði Kekkonen fimm rikis- stjórnir, en í febrúar 1956 var hann kosinn forseti eftir óvenju harðskeytta kosninga- baráttu. Kekkonen gerir sér Ijóst, að Finnar neyðast til að halda góðu vinfengi við sov- ézku stjórnina, og hefur reynt að halda góðu sambandi í auslurveg og gæta virðingar sinnar og þjóðarinnar um leið, en þetta tvennt hefur stund- um verið erfitt að samræma. Þess má geta til gamans, vegna íþróttaáhuga almenn- ings um þessar mundir, að Kekkonen er frábær íþrótta- maður, var um tíma Finn- landsmeistari í hástökki og setti einu sinni — óviðurkennt að vísu — heimsmet í þrí- stökki án atrennu. Margir Islendingar munu minnast Kekkonens og Sylvi, konu hans, frá heimsókn þeirra hingað í ágúst 1957. Einhleypur karlmaður getur fengið herb. til leigu. Uppl. á Ný lendugötu 27 kl. 18—19. Fullkomin reglusemi áskil in. 2 Universal bátavélar 24 ha. til sölu. Seljast ó- dýrt. Uppl. í sima 50726. Til leigu er 3ja herb. íbúð í Skjól- unum, reglusemi og góð um gengni áskilin. Tilb. merkt: „1800 — 578“ sendist Mbl. fyrir 10. þ.m. íbúð Ung hjón með 2 börn óska eftir 2ja herb. íbúð 1. okt. Uppl. í síma 33599. Saumakona óskast til að standa fyrir litlu verkstæði. Uppl. í síma 35919 frá kl. 1—8. Chevrolet 1952 fólksbifreið R 4186 er til sölu. Bifreiðin er til sýnis á Guðrúnargötu 4 i dag e.h. Aðstoðarstúlka óskast til starfa á tannlækningar stofu minni frá 1. okt. Gunnar Skaftason. tannlæknir. Stúlka óskast í sælgætissölu nú þegar. Uppl. á staðnum milli kl. 2—4. Brauðbarinn Laugaveg 11. 4—7 tonna trilla óskast strax. Uppl. í síma 33343. Ný ískista til sölu, hentug fyrir verzl anir. Uppl. í dag frá kl. 1 að Njálsgötu 77. Sími 14834 íbúð óskast í Rvík. 2 herb. og eldhús eða að- gangur að eldhúsi. Hús- hjálp kemur til greina. Uppl. í síma 2057, Keflavík Ýtuskófla til leigu Uppl. í síma 15541. Keflavík — Njarðvík Ameríkani óskar eftir 2ja til 2ja herb. íbúð strax. Uppl. í síma 2338. 2ja—3ja herb. íbúð óskast til leigu sem fyrst. Ung hjón með 2 böm. Uppl. í síma 32587 á föstudag kl. 4—8 og laugardag frá kl. 2—8. Keflavík - Ytri-Njarðvík 5 herb. íbúð eða einbýlis- hús óskast til leigu. Uppl. í síma 1881. Jarðýta til leigu Vélsmiðjan BJARG Höfðatúni 8. Sími 17184. Til leigu 3ja herb. íbúð í nýlegu húsi í vesturb. Árs fyrir- framgr Tilb. ásamt fjöl- skyldustærð sendist Mbl. fyrir máund.kv. merkt: — „Hagar — 579" Vil kaupa 5—6 ferm. miðstöðvarketil (notaðan) ásamt olíufýr- ingu. Einnig gastæki, á- samt kútum og rafsuðuvél (transara) Tilb. merkt: „569“ sendist Mbl. Stúlka óskast í vist á fámennt heimili í kaupstað ekki langt frá Rvík. Hátt kaup og mikil frí. Uppl. í síma 16088. Oldsmobile Vil skipta á Oldsmobile ’47 og á eldri bíl, vörubíl eða fólksbíl. Uppl. í síma 24521. Sýning- á teikningum Alfreðs Flóka opnuð í Bogasal Þjóðminjasafnsins í dag. klukkan 4. . . . og það varð Ijós. Punktur. Greinarskil. Stór stafur . . . Hvernig stendur á að frænka þín dvelur ekki lengur hjá ykk- ur? — Hún vildi endilega að hún yrði tekin, sem ein af fjölskyld- unni og þegar það var gert, fór hún. Eigmkonan: — Pétur, Pétur, ég setti kökuna, sem ég var að baka út í garðinn, og nú hefir hund- urinn étið hana. Eiginimaðurinn: — Það gerir ekkert til, ég skal kaupa annan hund handa þér. — Af hverju ertu svona dauf- ur? — — Mér finnst það engin furða. Ég verð að vinna baki brotnu frá morgni til kvölds og fæ ekki nema hálftíma frí til miðdegis- verðar. — Ertu búinn að þræla svona lengi?_ — Ég byrja á morgun. Ef ]>ú ert í vafa um hvað l>ú átt að segja, segðu þá bara sannleikann. — Mark Twain. Sannleikurinn er dýrmætasti hlutur, sem við eigum. Við skulum spara hann. — Mark Twain. Gefðu hundi roð og liann mun fylgja þér. Betra er að ala hund en illan þræl. Hundur er sínura herra líkur, köttur ^ sinni frú. I Oft hafa hundar >að sem þeim ei er 1 ætlað. Dauður hundur bítur ei svo blæði. D U G L E G unglingsstúlka óskast til hótelstarfa um óákveðinn tíma. Fæði og húsnæði á staðnum. Gott kaup. Uppl. í síma 19 Borgarnesi. Atvinna 2 stúlkur óskast. Upplýsingar frá kl. 2—3 í dag. Prjónastofa Önnu Þórðardóttur h.f. Grundarstíg 12.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.