Morgunblaðið - 03.09.1960, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 03.09.1960, Qupperneq 10
10 MORGUNBLAÐIÐ Laugardagur 3. sept. 1960 Utg.: H.f. Arvakur Reykjavík. Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. Ritstjórar- Valtýr Stefánsson (ábm.) Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthias Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Lesbók: Arni Óla, sími 33045. Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson. Ritstjórn: Aðalstræti 6. Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6 Sími 22180. Askriftargjald kr. 45.00 á mánuði innanlands. 1 lausasölu kr. 3.00 eintakið. LÝST TRAUSTI O mjög kveður orðið hér- lendis að hvers kyns á- lyktunum og yfirlýsingum hinna og þessara félagasam- taka og funda, þar sem Pétur og Páll reyna að segja rétt- um stjórnvöldum fyrir verk- um, að það kemur eins og frísk tilbreytni, er bæjar- stjórn Reykjavíkur vísar í fyrradag frá tillögum komm- únista og Framsóknarmanna um fyrirmæli til ríkisstjórnar Islands í sambandi við fyrir- hugaðar viðræður við Breta út af landhelgismálinu. í frávísunartillögu bæjar- stjórnarinnar er lýst fullu trausti á ríkisstjórnina, enda er það í hennar verkahring að gæta hagsmuna og réttar Is- lendinga í viðræðunum við Breta. í ræðu á bæjarstjórn- arfundinum komst Geir Hall- grímsson borgarstjóri meðal annars þannig að orði: „Endalausar og endurtekn- ar samþykktir í landhelgis- málinu eru fremur til þess fallnar að veikja málstað okk- ar en styrkja. Út á við vekja þessar eilífu samþykktir að- eins grun um að við séum ekki eins fastir fyrir í málinu og ekki eins öruggir um rétt okkar, eins og við höldum fram“. Aðfarir kommúnista og Framsóknarmanna við til- lagnaflutninginn í bæjar- stjórn voru líka með þeim hætti að engum gat dulizt að tilgangurinn var að leitast við að nota samþykktirnar í flokkspólitískum tilgangi og stofna til eins mikils ágrein- ings um landhelgismálið og unnt reyndist. Þannig undir- bjuggu fjórir minnihluta- menn tillögurnar, án þess að hafa samband við nokkurn hinna 11 bæjarfulltrúanna og tillagan kom fram í fram- haldi af nýjum svikabrigzlum Þjóðviljans og Tímans í fyrra- dag. Hvað sem líður afstöðu hvers og eins til viðræðnanna við Breta, þá ætti að vera ljóst, að þær eru í verkahring ríkisstjómar íslands en ekki bæjarstjórnar Reykjavíkur og á hinn bóginn að tillöguflutn- ingur, sem undirbúinn er beinlínis í þeim tilgangi að stofna til ágreinings, er sízt lílegur til að styrkja málstað okkar. Hin einarða afstaða meiri hluta bæjarstjórnar gegn slík- um vinnubrögðum mælist því vel fyrir og ekki ólíklegt að hún geti stuðlað að því að nokkuð dragi úr hinum leiðu áróðurssamþykktum, þar sem ekki er skeytt um annað en flokkspólitíska hagsmuni og hvenær sem er fórnað góðum málefnum í von um stjórn- málalegt stundargengi. Ef sá árangur næðist, hafa stjómar- andstæðingar vissulega unnið þarft verk með bægslagangi sínum í bæjarstjórninni í fyrradag. 1950 KRÓNUR TIEILD ARSÖLU SKATTAR á meðalfjölskyldu með ■65—70 þús. kr. árslaun munu nú nema tæpum 5000 króna. Hins vegar er hækkun sölu- skattsins vegna hinna nýju •efnahagsráðstafana aðeins 1950 kr. á vísitölufjölksyldu, vegna þess að áður voru greiddir miklir söluskattar. Meginmunur á beinum og óbeinum sköttum er sá, að beinu skattarnir eru teknir af tekjum en óbeinu skattarnir af eyðslu eða útgjöldum. Þeir sem meiri tekjur hafa og geta leyft sér að lifa vel, greiða því miklu meiri óbeina skatta en hinir, sem við lakari kjör búa. Af þeim sökum er auð- vitað út í bláinn að álykta eins og Tíminn hefur gert að undanförnu, að söluskattarn- ir lendi jafnt á öllum fjöl- skyldum. Þar er ekki hægt •að koma við höfðatöluregl- unni. Með því að hugleiða út- gjöld sín, geta menn nokkurn veginn séð, hve mikla sölu- skatta þeir greiða vegna efna- hagsráðstafananna. Þannig greiða menn 3% söluskatt af vörum og margháttaðri þjón- ustu en hins vegar ekki af öllum útgjöldum sínum, t. d. ekki skattgreiðslu, sumri þjónustu og húsaleigu. Auk þess greiða menn svo nálægt 8% af verði erlendra vara, sem þeir kaupa fram yfir það sem þeir greiddu fyrir efna- hagsráðstafanirnar. Með því að gera slíka laus- lega áætlun um útgjöld sín, geta menn borið útgjalda- aukninguna vegna nýju sölu- skattanna saman við lækkun þá, sem þeir hafa fengið á beinum sköttum og fer þá vart hjá því að flestir verði ánægðir með þann saman- burð. UTAN IIR HEIMI J Merkur fornleifafundur i Danmörku: Myndskreytt hjartar- horn 8000 ára gamalt Á STRÍÐSÁRUNUM fundust merkar fomleifar í mýri við Yiksö í Danmörku. Það var þó ekki fyrr en um daginn, að gildi þeirra var sannað að því er Berl- ingur skýrir frá. Er hér um að ræða einhverjar ^ elztu myndir af mönnum, sem fundizt hafa. Myndirnar eru | greyptar á hjartarhorn. Sérfræð- , ingar á þjóðminjasafni Dana telja þær frá eldri steinöld, eða frá því 5000 til 6000 árum fyrir Krists burð. Það var áhugamanni um forn- leifafræði H. Mosegaard, jarð- ræktarráðunauti, að þakka að þessi fundur varð opinber. Mose- gaard ferðast um landið á vegum embættis sins, en hefur augun jafnframt opin fyrir hvers kyns fornminjum. Á MÁNUDAGINN munu 1500 safnað'armeðlimir í Kaupmannahafnar stifti koma saman til lokaðs fund- ar til að velja eftirmann Fuglsang-Damgaards, bisk- ups í Kaupmannahöfn. Enn er ekki vitað hver 1 Dalby fékk hann barnakenn ara í lið með sér. Bað kennarinn börnin að koma með alla þá hluti í skólann, sem gætu veitt ein- hvern fróðleik um forna sögu Danmerkur. Einn drengjanna kom með 'hjartarhornið í skólann. Faðir drengsins hafði fundið það 1 mýri árið 1943 eða 1944 og geymt það sem minjagrip. Nú hefur það verið flutt á þjóðminjasafnið danska og talið mjög verðmætt. Mnn finnandinn fá greidda fyrir það álitlega upphæð. Áður hafa fundizt svipaðar fornminjar, en ekki hefur tekizt að greina aldur þeirra nákvæm- lega. En forleifafræðingar á þjóðminjasafninu danska telja myndirnar á hjartarhorninu elztu myndir af mönnum, sem fundizt hafa í Danmörku. fyrir valinu verður, en dönsk blöð tilnefna þrjá lík- lega, þá Westergaard Mad- sen, Haldor Hald og Svend Lerfeldt. Horfur eru á að biskup verði valinn þegar á þessum fundi á mánudaginn. Norræn menningnrmiðstöð skommt fró Stobkhólmi Kaupmannahafnarbisk- up kjörinn á mánudag? Önnur álma hallarinnar í Há sselby, sem ráðgert er að gera a ð norrænni menningarmiðstöð. Höjlin var byggð á 17. öld. argesti. í aðalbyggingunni verða j Gert er ráð fyrir að menning- innréttaðar setustofur, bókasafn armiðstöð þessi taki til starfa á og lestrarherbergi. næsta ári. Ekkert hugmynda- kerfi endanlegt DANSKA blaðið Aktuelt skýrir frá því nýlega, að senn muni rísa samnorræn menningarmið- stöð í Hásseiby höll um tíu kíló- metra frá Stokkhólmi. Segir blað ið að tiljaga um þetta muni lögð fyrir bæjarstjórnir höfuðborga landanna nú í haust, en menning armiðstöð þessi er einkum ætluð fyrir æskufólk höfuðborganna. Áætlun að þessari menningar- miðstöð var lögð fram á fundi norrænna borgarstjóra í Helsing- fors fyrir skömmu. Er gert ráð fyrir menningarmiðstöð á breið- um grundvelli í Hásselby höll. Verða þar námskeið og þing um þjóðfélagsmál, vísindi, tækni, bókmenntir, listir, leiklist, blaða- mennsku, þjóðmenningu og íþróttir. Þátttakendum er ætlað að búa í höjlinni, sem er reisuleg aðal- bygging með tveimur hliðarálm- um. Verður þar rúm fyrir 40 dval Nýju-Delhi, 31. ágúst (Reuter). NEHRÚ, forsætisráðherra Ind- lands, ræddi í dag um skoðana- mismun þann, sem komið hefur fram hjá Rússum og Kínverjurn varðandi nauðsyn og ónauðsyn styrjaldar við auðvaldsríkin. Nehrú nefndi hvoruga þjóðina beinlínis en sagði að „sumir menn“ ihuguðu nú hver stefnan væri réttari, friðsamleg samvinna eða óhjákvæmileg styrjöld. • Hinar alvarlegustu afleiðingar Sagði hann um þennan skoðana mismun, að það væri nrein fá- I sinna að tala um afvopnun, ef menn væru þeirrar skoðunar að styrjöld væri óhjákvæmileg. Þau tvö hugtök ættu enga samleið. Það væri ljóst, að ekkert hug- myndakerfi væri endanlegt, jafn- vel ekki hugmyndakerfi komm- únismans, sem þó væri talið mjög fast mótað. Nýir atburðir hlytu að breyta skoðunum manna og hugmyndum. Nehrú sagði, að ástand í heim- inum yrði nú sífellt spenntara og misheppnaðar tilraunir til að leysa afvopnunarvandamálið gætu haft hinar alvarlegustu af- I leiðingar 1 för með sér.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.