Morgunblaðið - 03.09.1960, Blaðsíða 13
Laugardaeur 3 sept. 1960
MORCUNBLAÐ1Ð
13
Jón Sigurðsson
Sigrún Pálmadóttir
Skagfirðingar heiðra
hjónin á Reynistað
SUNNUDAGINN 14. ágúst sl.
var þeim hjónum frú Sigrúnu
Pálmadóttur og Jóni Sigurðs-
syni á Reynistað haldið sam-
sæti í samkomuhúsinu Bifröst á
Sauðárkróki. Var þar saman
kominn 120 manna hópur vina
og velunnara þeirra hjóna. Að-
alefni þessarar samkomu var að
afhenda Reynistaðahjónum mál
verk. sem skagfirzir vinir þeirra
höfðu fengið Sigurð Sigurðsson
listmálara til að gera af þeim,
og sem mun prýða stofur Reyni-
staðar um langa framtíð.
Stefán Vagnsson, hinn þekkti
ljóðasmiður, Sauðárkróki, setti
hófið og stjórnaði því. Eftir að
hafa boðið gesti velkomna,
skýrði Stefán frá því, að í til-
efni 70 ára afmælis Jóns, hefði
prófastur sr. Helgi Konráðsson
beitt sér fyrir að Jóni yrði heið-
ur sýndur sem þakklætisvottur
Skagfirðinga fyrir framúrskar-
andi á'huga og dugnað í sam-
bandi við hin ýmsu menningar-
mál héraðsins og mætti þ. m.
a. nefna Sögufélag Skagfirðinga
sem nú þegar nefur gefið út 8
bækur, Héraðsskjalasafnið á
Sauðárkróki, sem óhætt væri að
fullyrða að væri að mestu leyti
Jóns verk; hinn virka þátt hans
í stofnun og vexti Byggðasafns-
ins í Glaumbæ, þar á meðal hið
sérstæða mannamyndasafn, sem
Jón hafði einn haft veg og vanda
af o. m. fl. Stefán gat þess að
þegar sr .Helga hafði loks tek-
izt að fá samþykki Jóns til að
þau hjónin sætu fyrir, var hafin
fjársöfnun meðal vina þeirra
í Skagafirði. Eftir fráfall sr.
Helga, en hann lézt 30. júní
1959, tók Stefán Vagnsson við
fjársöfnuninni ásamt þeim Birni
Egilssyni, Sveinsstöðum og
Gunnlaugi Bjömssyni, Brim-
nesi.
Gekk sú fjársöfnun svo vel
að auk greiðslu fyrir myndina
hafði Stefán lagt nokkra fjár-
upphæð inn á sparisjóðsbók, sem
han afhenti þeim hjónum, og
þau skyldu ráðstafa.
Að lokum afhenti Stefán
hjónunum forkunnarfallega bók,
gefna og gerða af Guðmundi
Gíslasyni bókbindara í Reykja-
vík, en hann er Skagfirðingur.
Fremst í bókinni var skrautrit-
að ávarp og síðan nöfn gefenda
ásamt mynd af einhverjum
merkisstað úr hverjum hreppi
sýslunnar, gerðar af dóttursyni
Stefáns Vagnssonar.
Þegar Stefán nafði afhent hjón
unum áður taldar gjafir fyrir
hönd þeirra, sem að þeim stóðu
árnaði hann þeim hjónum og af-
komendum þeirra allrar bless-
unar 1 framtíðinni.
Þá fluttu þeir Gunnlaugur
Björnsson og Björn Egilsson ræð
ur og að þeim loknum þakkaði
Jón með snjallri ræðu fyrir þann
sóma, sem þeim hjónum hefði
verið sýndur og minntist ýmissa
þeirra manna, sem mest og bezt
hefðu stutt sig í áður töldum
málum og þó einkum sr. Helga
Konráðsson.
Auk fyrrgreindra ræðumanna
fluttu ávörp og kveðjur próf.
Richard Beck, Jóhann Salberg
Guðmundsson sýslumaður, séra
Gunnar Gíslason, Hjörtur Bene
diktsson safnvörður, Glaumbæ,
Sig. P. Jónsson bæjarfulltrúi og
Guðjón Sigurðsson, Sauðárkróki.
Ræðumenn allir þökkuðu Jóni
hið mikla og óeigingjarna starf
hans í þágu menningar og fram
faramála Skagfirðinga að ó-
gleymdri hinni löngu setu hans
á Alþingi, til hags fyrir hér-
aðsbúa svo og þjóðina alla.
Á milli ræðanna var sungið
undir stjórn Jóns Björnssonar,
söngstjóra, Hafsteinsstöðum.
Afmœlis-
skákmót
í Hafnarfirði
SUNNUDAGINN 11. september
n.k. mun hefjast í Hafnarfirði hið
árlega „Septembermót" Taflfé-
lags Hafnarfjarðar, og er það að
þessu sinni helgað 35 ára afmæli
félagsins, en það er um þessar
mundir. Skákmót þetta er með
nokkuð nýju sniði hjá félaginu
og er þátttaka heimil öllum skák-
mönnum í hvaða flokki sem þeir
eru.
Keppnisfyrirkomulag verður
þannig að allir tefla saman í ein-
um fjokki eftir Monrad-kerfinu.
Hver keppandi hefur til umráða
2 klst. á 40 leiki, en síðan skal
skákinni lokið á V2 klst. fyrir
hvorn keppanda. Með því er bægt
frá öllum biðskákum.
Þátttökugjaldiff verffur 50 kr.
1. verfflaun verða 1.500 kr., 2.
verffjaun 800 kr. og 3. verðlaun
500 kr Verða þau afhent að móti
loknu þar sem hverjum þátttak-
anda í mótinu verður boðið í af-
mælishóf félagsins.
Teflt verður í Alþýðuhúsinu
við Strandgötu, á sunnudögum,
mánudögum, miðvikudögum og
föstudögum og hefst hver umferð
kl. 8 s.d. nema á sunnudögum þá
kl. 2 e.h.
Skákstjóri verður Gísli ísleifs-
son
Þátttökutilkynningar skuju ber
ast eigi síðar en n.k. föstudags-
kvöld en þá verður dregið um
keppnisröð og verður þá jafn-
framt efnt til Hraðskáksmóts í
Alþýðuhúsinu og hefst það kl.
8 s.d. Þátttökutilkynningum
veita móttöku þeir Þórir Sæ-
mundsson sími 50856 og Hilmar
Ágústsson sími 19194 og veita
þeir einnig allar upplýsingar.
Núverandi stjórn Taflfélags
Hafnarfjarðar skipa, formaður er
Þórir Sæmundsson, varaform
Haukur Sveinsson, ritari Sigur-
geir Gíslason, gjaldkeri Stígur
Herlufsen, meðstjórnandi Hilm-
ar Ágústsson.
Hentar einnig’ gömium
saumavélum.
Tveir um dragnót
AKRANES, 1. sept.: — Dragnóta
bátarnir þrír, sem héðan eru gerð
ir út, fiskuðu vel í gær. — Trilla
kom úr Reykjanessröst í gær-
kveldi með 10 stórlúður. Tveir
24 tonna trillubátar eru að undir
búa sig á dragnótaveiðar með
sömu nótina. Ætla þeir að veiða
í félagi. — Oddur.
Saumavélamótor-
inn ANF 789 er
kostagripur. -
220 V, fyrir riðstraum eða
jafnstraum 40 watta. Smekk-
leg smíði. Lítill og öruggur.
Þægileg og handhæg stilling.
Auðveld sporskifting.
Hljóðlítill gangur.
Truflar ekki útvarp.
Útflytjandi:
Deutscher Innen- und Ausselhandel
— Elektrotechnik — Kontor 11
DDR — Bcrlin C2
Liebknechtstrasse 14.
VEB F.iektromaschinenbau Sachsenwerk,
Dresden-Niedersedlitz.
Nánari upplýsingar veittar þeim sem þess óska:
Garðar Gísiason hf., Reykjavík, Hverfisgötu 4—6.
Elangro Truding, Reykjavík, Austurstræti 12 a eða
Verzlunarsendinefnd þýzka alþýðulýðveldisins,
Reykjaflílv Austurstræti 10A II.
ÖKUKENNAKAFELAG KEYKJAVIKUR
heldur námskeið fyrir ökukennara, vegna nýrrar reglu-
gerðar um ökukennslu og próf ökumanna. Námskeiðið
hefst í Iðnskólanum í Reykjavík, mánudaginn 5. septem-
ber kl. 20,30. Þá1 ttaka tilkynnist í síma 32742 og 23616
STJÓRNIN.
Lögtaksúrskurður
Hér með úrskurðast lögtak fyrir ógreiddum trygginga-
gjöldum til Tryggingastofnunar ríkisins, sem greiðast
áttu í janúar og júní s.l., framlögum sveitarsjóðs til
Tryggingastofnunar ríkisins og atvinnuleysistrygginga-
sjóðs á árinu 1960, söluskatti og útflutningssjóðsgjaldi
3. og 4. ársfjórouiigs 1959 og 1. ársfjórðungs 1960, sölu-
skatti 2. ársfjórðungs 1960 svo og öllum ógreiddum þing-
gjöldum og tryggingagjöldum ársins 1959, tekjuskatti,
eignarskatti, hunáaskatti, sýsluvegasjóðsgjaldi, náms-
bókagjaldi, slysatryggingaiðgjaldi, atvinnuleysistrygg-
ingasjóðsiðgjaldi, kirkjugjaldi og kirkjugarðsgjaldi, sem
gjaldfaliin eru á þessu ári. Ennfremur bifreiðaskatti,
skoðunargjaldi bifreiða og vátryggingagjaldi öku-
manna, en gjöld þessi féllu í gjalddaga 2. janúar s.l.,
svo og áföllnum ógreiddum skemmtanaskatti, gjaldi
af innlendum tollvörutegundum, lesta- og vitagjaldi,
skipulagsgjaldi af nýbyggingum, skipaskoðunargialdi,
vélaeftirlitsgjaldi af stöðvagjaldi svo og ógreiddum ið-
gjöldum og skráningargjöldum vegna lögskráðra sjó-
manna.
Fer lögtakið fram að liðnum 8 dögum frá birtingu
þessa úrskurðar á.n frekari fyrirvara, ef ekki verða gerð
skil fyrir þann tíma.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði,
Sýslumaðurinn í Gullbringu- og Kjósarsýslu, 27/8 1960.
Björn Sveinbjörnsson
settur.
IMú er tækifærið
...eh Uutótí
'ðaÁ fru/ýýt?
Ef ekki þá sendið oss neðangreida trygg-
ingarbeiðni strax.
Frestið ekki til morgns sem þér getið gert
í dag.
Ég undirritaður (uð) óska eftir að brunatryggja
innbú mitt fynr kr.......
□ Ný trygging.
□ Hækkun á eldri tryggingu.
nafn tryggingartaka
dags. heimilisfang og sími.
Umboðsmenn um land allt.
Skrifstofur, Laugavegi 105 — Símar: 14915 16 og 17.
BRIJIMABOTAFÉLAG ÍSLAIMDS
Ath.: Beiðnin sendist skrifstofunni eða næsta um-
boðsmanni.