Alþýðublaðið - 19.11.1929, Side 3

Alþýðublaðið - 19.11.1929, Side 3
ALÞÝÐUBLAÐiÐ 3 gjgffllllMiaiiiaiMiMlBiBlffMliraiiiBlM !j Nýfar fyrsta fiokks Virginia a'garettar. Three Bells 20 sík. pakkinn kostar kr. 12. — Búnar til bjá British Ameriean Tobaeeo Co, Lonáon. Fást f heildsöia hjá: Tóbaksverzl. tslands h.f. Einkasalar á lslandi. mmmmasmmmmmam kulna. AÖ vísu er það svo, aö síð- ustu vetur hefir veriö hægt að starfa að húsasmíði nær óslitið. en enginn getur gert sér vonir um, að þess konar tíðarfar hald- ist áfram, eða að veðráttan verði svo blíð í vetur. Og þegar vorar næst má búast við, að ekki verði hægara eða ódýrara að fá vinnu- kraft tíl hennar. Nú er farið að frjósa og dagur orðinn stuttur, og vitanlega öll aðstaða verri til bygginga en ver- Sð hefir í haust og sumax. Og því er von að menn spyrji: Hvað dvelur Sundhöllina?. Á að skjóta byggingu hennar enn lengur á frest, eða á ekki að fara að byrja. Þessi spurning er sú, sem allir hugsandi íþróttamenn spyrja oft- ast. Og það er ekki láandi þótt spurt sé. Sundhallarmálið var bú- ið að tefjast svo lengi, að það var sannarlega full ástæða til að ætla, að hafist yrði handa um bygginguna undir eins og hinuro langa og örðuga undirbúningi málsins var lokið. En síðan hefir grunnurinn staðið óhreyfður marga mánuði, þar hefir ekki verið tekin ein skóflustunga. Eins og kunnugt er, höfðu í- þróttafélögin heitið álitlegri dags- verkatölu til byggingarinnar og mundu loforðin hafa orðið meiri, ef það hefði sést af afskifturo hlutaðeigenda að málinu væri fylgt eftir með alefli. Enn mun eigi standa á að rækja þau loforð ,og fá fleiri. Styrkur landsstjórn- arinnar er ákveðinn og framlag bæjarstjórnar formlega samþykt. En hvers vegna er þá ekki hafist handa? Menn bíða og bíða. Langt er síðan menn fóru að hlakka til þess að fá að njóta hinna miklu hlunninda, sem góður og full- kominn baðstaður er. Reykjavík á ekkert til, sem jafnast geti á við góða sundhöll. Betri heilsulind er ekki til. — Hver mánuður sem iíður þangað til sundhöllin er komin upp, er tap fyrir almenna heilbrigði. Heita vatnið bíður og rennur notalaust til sjávar, teikn- ingarnar bíða, samþyktirnar bíða — og allir, sem vilja lauga sig, biða. Biðin er orðin of löng og það má ekki lengja hana úr þessu. Sundhallarmálið má ekki draga á langinn úr þessu. Drátturinn er orðinn of langur, þó hann verði ekki lengri. Áfram með sundhall- arbygginguna! Þetta er krafa allra, og það er hvorki viturlegt né sæmilegt, að skella skolleyr- um við þeirri kröfu.“ íþróttamenn heimta sundhöll. Allir bæjarbúar heimta sundhölk Hún verður að koma sem fyrst. Iþróttamenn hafa með Iofsverðuro áhuga barist fyrir henni. Það er því von að þeim finnist ilt, er steinrunnir íhaldsblindingjar erq að flækjast fyrir þeim og hefta framgang þessa máls. Vilji íhaldsins er ljós. Það reynir að draga úr áhuga fyrir þessu máli, t. d. með því að láta „Morgunblaðið" birta greinir um smithættu í sundhöllum erlendis og sqndlaugunum hér. Vonandi lætur fólk ekki blindast af þess- um gróusögum blaðsins, enda rekur ólafur Pálsson sundkennari sögur þessar rækilega ofan í rit- gtjórana í dajg. Fyrírspnrn i lanðsímastjóra. Fyrirspum til landssímastjóra hefir verið send Alþýðublaðinu. Er hún á þessa leið: Eru ekki 1. og 2. flokks síma- stöðvar skyldar til að hengja út veðurskeyti tvisvar á dag? Ef nú stöðvarnar vanrækja þetta, sem hægt mun vera að sanna um sumar, hvernig er þá hægt að laga þá óreglu og hvert ber að kæra þar um? Borgari. Alþýðublaðið hefir skýrt lands- simastjóra frá fyrirspurn þess- ari, og er svar háns, á þessa leið: Við fyrri lið: Já. Við síðari lið: Þá ber að senda kæru til lanssímastjórans. Kolaskip kom í gær til Viðeyjar. UTSALA. Seljum alla kvenhatta, barnahöfuðföt og regn- hatta með 20-300/o afslætti. Batíabði Reyhjavlknr, Lækjargötu 4. éttabréf úr Banðasandshreppi að urn sláttinn og lagðist þá hver Tíðin í sumar var einmuna- góð, en einkanlega seinni hluta ágústmánaðar og fyrri hluta septembermánaðar. Þá var sú kyrð og blíða, að betra og feg- urra veður kemur ekki. Um miðjan september skifti um til ó- tíðar, og hefir siðan verið stirð tíð og umhleypingasöm og oftast mikið úrfelli. 7. okt. gerði svo xnikla fönn, að hestum varð tæp- lega komið yfir fjöll vegna ó- færðar. Jafnmikill snjór mun aldrei hafa komið í fyrravetur. Grasspretta á túnum varð víð- ast ágæt. Á nokkrum stöðum voru tún tvíslegin og riýjar þak- sléttur þríslegnar. Má að nokkru þakka það sífelt aukinni erlendri áburðarnotkun. Engjar voru lak- lega sprottnar og áveitur brugð- ust allvíða, vegna vorkulda og þurka. Nýting á heyjum varð á- gæt. Heyfyrningar hjá bænduro eru nú með mesta móti, þvi að sumarið verður að teljast gott og hagstætt. Talsverðar fyrningar voru og til eftir ágætan vetur. — Jarðeplauppskera varð af- bragðsgóð og rófur voru einnig vel sprottnar. Fuglavarp i Látrabjargi var mjög lélegt. Mun það ef til vill stafa af svartfugladauðanum síð- ast liðinn vetur. Voru mikil brögð að því á Vestfjörðum. Við Patreksfjörð rak t. d. mergð af dauðum fugli seinni hluta vetrar. Til skamms tima var fuglaveiði mikið stunduð í bjarginu, en nú er sú veiðli lögð niður, nema lítils háttar tekið af eggjum. Heilsufar hefir yfirleitt verið gott, nema mislingar gengu um nokkurn hluta hreppsins, en þó vægir á börnuin.. Á bæ einum, þar sem 15 manns er í heimili, hafði að eins einn maður haft mislinga fyrr. Veikin kom þang- misráðið að hindra útbreiðslu mislinga, eins og sumir vilja, því að oftast eru þeir vægari á börnum en unglingum. Vart hefir orðið fjárkláða á nokkrum kindum og hefir hans aldrei orðið vart hér fyrr eða f hæstu sveitum.. Að líkindum munr kláðinn hafa borist hingað með kindum fengnum langt að. Rafmagnsstöð er verið að reisa í Kvígyndisdal til suðu og ljósa. Mun hún verða um 10 ha. Er það fyrsta rafmagnsstöð í sveit, sem reist er í sýslunni. í Sauðlauksdal var komið upp sandgræðslustöð í vor. F. U. J. heldur fund í kvöld kl. 8 í Góðtemplarahúsinu við Templi arasund. Þar flytur Helgi P. Briem skattstjóri erindi og Þór- oddur Guðmundsson frá Siglu- firði segir frá starfsemi félag- anna þar. Dollap. Húsmæður, hafið hug- fast: DOLLAR er langbezta þvottaefnið og jafn- framt það ódýrasta i notkun, DOLLAR er algerlega óskaðlegt (samkvæmt áður auglýstu vottorði frá Efnarannsóknarstofu ríkisins). Heildsölubirgðir hjá: BalWéri Eiríksspi, a Hafnarstræti 22. Sími 175. aa að

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.