Morgunblaðið - 26.10.1960, Side 2

Morgunblaðið - 26.10.1960, Side 2
2 MORGTJNJtLAÐlÐ Miðvik'udagur 26. okt. 1960 Lambi bjargað úr hólma í Þjórsá j/W/ÍW/» 1 Sl/SOhnútor H SnjHomo f Oii *» \7 Skúrlr K Þrumur WZS, KuUaakit v' Hihskit Ha Hm$ I Á FÖSTUDAGINN var björguðu þrír menn lambhrúti úr hólma ofarlega í Þjórsá, en þaðan var honum ekki undankomu auðið af eigin rammleik. 19. sept. sl. sá einn leitarmanna Gnúpverja, Jón Ólafsson, Eystra- Geldingaholti, að lamb var í hólmanum. Hólmi þessi er skammt fyrir ofan fossinn Dynk, á móts við Krók innan við Gljúf urleit á Gnúpverjaafrétti, rétt fyrir sunnan þar sem Dalsá fell- ur í Þjórsá, eða ínn við Fosstjald stað á Holtamannaafrétii. Ekki er vitað, hvernig lambið hefur komizt út í hólmann, en líklegt má telja, að það hafi fyrst lent neðst í Dalsárkjaftinum, borizt síðan niður í Þjórsá og skolazt upp í hólmann. Þegar Jón sá lambið, var ekki talið fært að ná því, vegna þess hve mikið var í ánni og leiðin út í hólmann al- ófær. Minna vatn er í ánni aust- an megin við hólmann, en botn- inn stórgrýttur og illur yfirferð- ar. Fossar áin þar fram í iðu- strengjum milli stórgrýtisins, og klettanybbur skaga upp úr á milli. — Algier Frh. af bls. 1. ynni nú að því að einangra Frakkland. Áhrii Frakka í heims málum færu síminnkandi og með hverjum degi sem liði fækkaði löndum lýðveldisins. Einnig réðist Salan á það áform de Gaulle að koma Frökk- um upp kjarnorkuflugher, en það sagði hann að yrði til þess að einangra Frakka frá banda- mönnum sínum. Góður rómur var gerður að máli Salans, en auk 6—700 frétta manna voru þar nokkur hundruð áheyrendur, m. a. fyrrverandi ut anríkisráðherra, Georges Bid- ault, og skattaandstæðingurinn Pierre Poujade. Að ræðu sinni lokinni hvarf Salan á brott áður en fréttamenn fengju lagt fyrir hann spumingar. Mótmælafundur 1. nóvember nk. eru liðin sex ár frá því að styrjöldin í Algier hófst. Af því tilefni og einnig sem svar við stefnu de Gaulle í Algier-málinu og landvama- málum Frakklands, svo og ræðu Salans í dag hafa samtök kenn- ara, stúdenta og verkamanna ákveðið að halda mótmælafund þann dag. Fyrr hafði verið ráð- gert að efna til mótmælagöngu, en er ríkisstjórnin tilkynnti bann við slíkum göngum var ákveðið að halda fund. Dagskrá Alk>ingis DAGSKRA Sameinaðs þings i dag: 1. Fyrirspurnir: a) Lántökur ríkisins Ein. umr. b) Vörukaupalán í Banda- ríkjunum. Ein umr. c) Rafstrengur til Vestmannaeyja. d) Virkjunarrannsókn ir, ein umr. 2. Fjárlög 1961, frh. 1. um- ræðu. 3. Lán til veiðarfærakaupa, þál till. Hvernig ræða skuli. 4. Skaðabóta- ábyrgð ríkis og sveitarfélaga, þáltill. Hvernig ræða skuli. 5. Síldariðnaður á Austurlandi. þáltill. Hvernig ræða skuli. 6. Sjálfvirk símstöð fyrir Aust- urland, þáltill. Hvernig ræða skuli. 7. Slys við akstur dráttarvéla, þáitill. Hvernig ræða skuli. 8. Utboð opin- berra framkvæmda, þáltill. Hvemig ræða skuli. 9. Lánsfé til Hvalfjarðar- vegar, þáltill. Hvemig ræða skuli. 10. Rafmagnsmál Snæfellinga, þáltill. Hvernig ræða skuli. 11. Umferðarör- yggi á leiðinni Rvík—Hafnarfjörður, þáltill. Hvemig ræða skuli. 12. Ferða- maunaþjónusta, þáltill. Hvernig ræða skuli. 13. Hlutleysi Islands, þáltill. — Hvernig ræða skuli. 14. Fiskveiðar við Vesturströnd Afríku, þáltill. Hvernig ræða skuli. 15. Byggingarsamvinnu- félög, þáltill. Hrernig ræða skuli. 16. Hafnarframkvæmdir, þáltill. Ein umr. 17. Vemdun geitfjárstofnsins, þáltill. Eín umr. 18. Virkii’-arskilyrði i Fjarðará, þáltill. Ein umr Brotizt út í hólmann Föstudaginn 21. nóv. fóru þrír Holtamenn að huga að lambinu. Það voru þeir Steinn Þórðarson á Ásmundarstöðum, Tyrfingur Tyrfingsson í Lækjartúni og Halldór Eyjólfsson á Rauðalæk. Tókst þeim að vaða yfir hávað- ana og út í hólmann austan fiá. Studdust þeir við járnkarl og járnstengur og voru rúman stundarfjórðung á leiðinni. Þar, sem strengurinn var dýpstur, náði hann þeim rúmlega í mitt læri. Hafði gert sér bæli Þegar út í hólmann var komið, komu þeir auga á lambið, en það stökk undan og í hvarf. Fundu þeir það svo í bæli, sem það hafði gert sér. Var það vel á sig komið, enda er hólminn all- stór um sig og hagi góður, víðir og gras. Hins vegar hefði það tæpast lifað veturinn af. Eyin er há og berangur mikill, svo að það hefði sennilega kalið úti. — Þeir félagar óðu nú til lands aft- ur og höfðu hrútlambið í köðlum á milli sín. Eigandi þess er Guð- rún í Sandvík í Flóa. Hrútshólmi Ekki er vitað til þess að kind- ur hafi oft hrakizt út í þennan hóíma. Á síðustu öld bjargaði þó Bergur á Skriðufelli ásamt tveim ur öðrum þremur lömbum úr honum. Fóru þeir yfir á íshrönn, éins og lesa má um í Göngum og réttum. Þá mun og kind hafa verið náð þaðan við illan leik Um eða eftir 1925. Hólminn hef- ur hingað til verið nafnlaus, en nú hefur hann verið kenndur við dorra og kallast Hrútshólmi. Vað merkt. Þá má og geta þess, að 1 þess- ari sömu ferð könnuðu þeir fé- lagar Tangavað á Tungnaá hjá Sultartanga. Fóru þeir þar yfir á stórum Dodge-vatnabíl. Vað þetta hefur aldrei verið kannað til fullnustu, en nú voru hentug- ar aðstæður til þess, því að lítið er í ánni. Merktu þeir vaðið með vörðum. Brezka þingið kemur saman LONDON, 25. okt. (Reuter, NTB) J — Brezka þingið kom saman ít dag eftir sumarleyfi þingmanna. Er ætlunin að ljúka á næstu þrem dögum störfum þessa þings, en annað þing verður sett með hásætisræðu Elisabetar II. drottningar 1. nóvember nk. Harold Macmillan svaraði í dag fyrirspurnum í neðri mál- stofunni varðandi samningana um herstöðvar Bandaríkjamanna á Bretlandi. Kvaðst Macmillan vera hinn ánægðasti með endur- skoðun samninganna, héðan í frá gæti ekkert gerzt þar, án vitneskju æðstu stjórnarva’.da í' Bretlandi jafnt sem Bandaríkj-j unum. Sagðist Macmillan hafa rætt þetta mál persónulega við( Eisenhower og væri niðurstaðan þeim báðum í vil. i át - V < ( rimlakassa um 2 metra frá ( \ ENNÞÁ er sama blíðviðrið um jörðu. Hitamælar, sem ekki s ) land allt. Þó kólnar heldur, hefðu verið þannig varðir i ■ svo að frost verður talsvert gegn útgeislun, hefðu sýnt \ ( að nóttunni, einkum inn til meira frost. \ i landsins, og því meira, sem Veðurspáin kl. 10 í gærkvöldi: V ■ hærra dregur frá sjó. SV-land til NA-lands og \ s í fyrrinótt var kaldast í miðin: Hægviðri, víðast úr- s i Möðrudal. Þar var frostið 14 komulaust og léttskýjað. Næt S ( stig, næstmest 11 stig á Gríms urfrost öllu meira en sl. nótt. | S stöðum á Fjöllum, þá 7 stig á Austfirðir, Austfj.mið og ( ) Akureyri. Á Nautabúi og SA-mið: NA gola eða kaldi, \ Blönduósi 5 stig og 4 stig skýjað. S á Eyrarbakka og Hellu. Þetta SA-land: NA gola, léttskýj- ) eru allt mælingar gerðar í að. Pfaff-sýnikennsla í Breiðfirðingabúð Talsvert um rjúpu Borgarfirði i BORGARNESI, 25. okt. — Um hæstsíðustu helgi var leyft að fara að skjóta rjúpur, og var þá ‘i Hljómleikar í Camla Bíói í kvöld í KVÖLD kl. 7 efna Sigurveig Hjaltested og Snæbjörg Snæ- bjarnardóttir til söngskemmtun- ar í Gamla Bíói, en við hljóð- færið verður Ragnar Bjömsson. Söngkonurnar eru báðar ný- komnar frá námi við Mozarthe- um tónlistaskólann í Salzburg. Söngskrá tónleikanna er mjög fjölbreytt. Sigurveig mun syngja lög eftir Bjarna Böðvarsson og jafnframt 4 andleg lög eftir Brahms, en Snæbjörg syngur lög eftir Pál ísólfsson og Wagner. Öll íslenzku lögin á söng- skránni eru lítið þekkt og Wagn- erlögin hafa ekki verið sungin hér áður opinberlega. Auk fram angreindra laga munu söngkon- urnar syngja ítalskar aríur c> tvísöng úr óperum. Ferg uson látinn LONDON, 25. okt. (Reuter): — Brezki auðjöfurinn Harry Fergu- son lézt í dag að heimili sínu í Glouestershire. Hann var 75 ára að aldri. Ferguson var einkum þekktur fyrir framleiðslu Fergu- son jarðyrkjuvéla, en einnig sem brautryðjandi í bifreiða- og flug- vélaiðnaðinum. þegar margt um manninn hjá Gunnari í Fornahvammi, en hann selur veiðileyfi. Skv. við- tali við Gunnar voru þá þegar 30—40 byssur í gangi á heiðinni. Veiðin hefur verið allsæmileg, a.m.k miðað við það, sem var í fyrra, og hafa skotmenn nú feng ið um 900 rjúpur á Holtavörðu- heiði Rjúpnagangan var erfið viðureignar í fyrstunni, hélt sig ofarlega og var stygg, en nú er hún tekin að færa sig ofan eftir. Kunnugir menn og veiðivanir segja, að þar sé nú töluvert um rjúpu og miklu meira en í fyrra. f gær fréttist til veiðiþjófa frá Akranesi, og bað Gunnar þá lög- regluna þar að huga að þeim. Var talað við þá, þegar þeir komu til baka í kvöld, og féllust þeir á að greiða tilskilið veiði- leyfisgjald. — H. Beint úr kössunum IIINIR glæsilegu happdrætt- isbílar Sjálfstæðisflokksins, Fólksvagnarnir tveir, standa í Lækjargötu. Þeir standa á vögnum og verður ekki ekið svo mikið sem meter áður en eigendur fá þá i hendur, bcint úr kössunum. En það verður ekki langt þar til bíl- arnir verða teknir í notkun, því þann 8. nóvember verður dregið. Skammur tími til stefnu Lítið á bílana og tryggið yður miða í leiðinni. I GÆR kl. 2 var opnuð í Breið- firðingabúð sýning á heimilis- og iðnaðarsaumavélum frá Pfaff- verksmiðjunni - 1 Þýzkalandi. Hingað er nú kominn tæknileg- ur ráðunautur, sem mun leið- beina fólki meðan sýning- in stendur yfir, en það verð- ur þessa viku frá kl. 2—7 dag- lega fram á sunnudagskvöld. Magnús Þorgeirsson forstjóri Pfaff í Reykjavík opnaði sýning- una að viðstöddum mörgum gest- um. Hann skýrði frá því að verk smiðjan hefði nú starfað í nær 100 ár og í henni væru framleidd ar á annað hundrað saumavélar á dag. Þar starfa um 9 þúsund manns og er hún stærsta sinnar tegundar í Evrópu. Drengur verður fyrir strætis- vagni LÍTILL drengur, Rúnar Pálmi Sigurfinnsson, Réttarholtsvegi 53, slasaðist á mánudaginn, um kl. 1,30 á biðstöð strætisvagnanna á Sogavegi við Akurgerði. Varð hann með fætur undir hjóli strætisvagns. Það mun eng- inn sjónarvottur hafa verið að því er slysið varð, en skömmu síðar kom fólk drengnum til hjálpar, þar sem hann sat í göt- unni, vegna þrauta í fótunum. Hann mun vera ristarbrotinn á öðrum fæti, en báðir eru mjög bólgnir. Drengnum var hjálpað upp í strætisvagn og komst hann síðan heim til sín, sárþjáður. Rannsóknarlögreglan biður þá er gætu gefið einhverjar upplýs- ingar í máli þessu að koma til viðtals hið fyrsta. í Breiðfirðingabúð verður dag- lega sýnikennsla í notkun Pfaff- heimilissaumavéla. Þar verða og vélar til fataiðnaðar, vinnufata- gerðar, skó- og leðurgerðar, skyrtugerðar og ýmsar fleiri tegundir. Mikil ölvun í gær ALLMIKIÐ bar á ölvun í Reykja vík í gær. Var svo komið kl. um sjö í gærkvöldi, að ekki var nema eitt rúm eftir laust í kjallaranum. Þykir það fremur óvenjulegt á þriðjudegi. Annars er >að svo, að kjallarinn gæti verið fullur á hverjum degi af drukknu fólki, en vegna rúmleysis verður að aka mörgum heim til sín, sem ættu í rauninni að vera í umsjá lögreglunnar. íslendingar unnu Dani LEIPZIG, 25. okt.: — Island vann Danmörku með 2(4 gegh 1(4 þar sem Freysteinn gerði jafntefli í biðskák sinni. Staðah í C-riðli eftir þá umferð er þessi: England 25, Tékkóslóvakía 24(4, Ungverjaland 24, Svíþjóð 22, Mongólía 14(4, Túnis 13, ísland 13, Danmörk 12(4, GrikkL land 6(4 og Bolivía 5. — Allsherjarbingið Frh. af bls. 1. ' til þess að koma efnahagslífi í Kongó á réttan kjöl, né er þar reiknað með útgjöldum vegna kennslumála eða heilbrigðiá- mála. Hammarskjöld segir í skýrslu sinni, að útgjöld þau, sem talin eru í skýrslunni megi lækka með því einu móti, að þjóðir þær, er hafi lagt til sérfræðinga og flug- vélar til flutninga herliðs til Kongó, láti vera að krefjast greiðslu fyrir. ★ Fulltrúar kommúnistaríkjanna á allsherjarþinginu hafa haldið því fram að hinn mikli kostnað- ur stafi af því að skipulag Hammarskjölds á framkvæmd- um í Kongó hafi verið hið versta. Knut Thommesen, full- trúi Noregs í nefnd þeirri, sem fjallar um fjármál og skipulags- mál, mótmælti í dag þessum ákærum kommúnistafulltrúanna. Kvað hann skýrslu Hammar- skjölds sýna það ljóslega hversu víðtækt verksvið SÞ væri orðið og hvers mætti af samtökunum vænta. Þá kvaðst Thommesen vera á móti því að skera í nokkru niður áætlaða fjárþörf til að- gerðanna í Kongó, því að nauð- synlegt væri, að Hammarskjöld gæti framkvæmt, svo sem hon- um þætti bezt, það verkefni, sem honum hefði verið falið.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.