Morgunblaðið - 26.10.1960, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 26.10.1960, Blaðsíða 3
lHðviKuðagur 26. okf. 1960 MORCVNhLAÐlÐ 3 ★ MÁNUDAGTJR við höfnina. En það gseti verið sunnudag- ur Hvers vegna? Vegna þess að það er gott veður. Það var alltaf gott veður á sunnudög- um. Þegar við vorum strákar. Þá gengum við niður á höfn til að skoða skipin. Það var sólskin og logn. Eins og núna. Skipin lágu bundin við hafnar bakkana. Þau voru að hvíla sig. Áður en þau legðu yfir hafið. Við stóðum með handur í vösum. Himin og haf í aug- um. Útþrá í brjóstum. En það er mánudagur. Reykjafoss liggur fyrir neðan Hafnarhús- ! ' “ ið. Það eir verið að skipa upp. Bílar koma og fara. Tómir. Hlaðnir. Samt er kyrrð yfir öllu. Engin köll. Lúgumaður biakar hendinnL Kassar og kiósett. Karlarnir vinna þögul Sunnudagur eða mánudagur ir. Enginn ungur. Skólarnir eru byrjaðir. Jú. Þarna er einn. Hann hefur fengið svip eyrarkarlsins. Lúgumaður stöðvar höndina. Hann er eins og sjónhverfingamaður. Kola kranann ber við himin. Einu sinni var hann lifandi. Ófreskja úr járni. Akranes- ferjan liggur fyrir neðan hann. Það er verið að skipa upp sementi. Óvirðing við gamlan kolakrana. Stóru strákarnir sögðu að hermaður hefði klifrað upp í hann og kastað sér í sjóinn. Dó hann? spurðum við með ótta og taka kúlur af netum. Græn- ar. Eins og djúpið. Einhver kerling spáði í svona kúlu. Maðurinn þinn verður dökk- hærður. Sjómaður? Karmski. Trillubátur frá Akranesi kem ur að landi. Eitt tonn af ýsu. Namm. Þið voruð að fá hann? Það er nóg af honum innan við húfnina Labbar heim til mömmu með kolann. undrun í augum. Hann blotn- aði, sögðu þeir og glottu. Akraborg siglir inn. Hvít eins og Laxfoss. Hann fórst. Kann ski fylgdi ógæfa nafninu. Hjá* trú? Sjórin er sléttur. Hreinn og gljáandi. Hann hefur góða samvizku. Góð samvizka er uppfinning andskotans, sagði Schweitzer. Átti hann líka við sjóinn? Hekla liggur við Sprengisand. Bráðum siglir hún kringum landið. Það er eins og faðmiag. Höfnin eins og koss. Rómantík? Nokkrir fiskibátar liggja við tré- þryggjurnar. Engin rómantík. Fiskilykt. Net. Kaðlahankir. Karlarnir eru í peysum. Einn tekur í nefið. Annar reykir sígarettu. Hún brennur upp á milli vara hans. Hendurnar við takmörk snurvoðarinnar. Ekkert fyrir utan þau. Ojá. Þeir eru að eyðileggja miðin. Ojá. Strákur með þrjá kola. Hvernig er veiðin? Léleg. Hvers vegna? Veit það ekki. Kannski veldur snurvoðin því líka? Já. Ætli það ekki. Meiri voðinn þessi snurvoð. Hann labbar heim. Mamma hans steikir koiana. Eftir tíu ár finnst honum hafa verið sunnudagur. Logn. Kyrrð. Hvítir fuglar við landsteina. Blátt fjall í norðri. Senn munu því ofin hvít klæði. i.e.s. ./ ,.1.1 \i V Þeir voru að fá hann. STAKSTEINAR Útvarpsumræður Engu er líkara en að þeir Tímamenn hafi alís ekki vitað , af því að útvarpsumræður voru Ií fyrrakvöld. í blaðinu í gaer er ekki eitt einasta orð um um. ræðurnar. Að vísu má segja, að það sé vel til fundið hjá rit- stjórum blaðsins að hlífa les- endum sinum við birtingu á um. mælum Eysteins Jónssonar, sem sjálfsagt hefði orðið að vera meginuppistaða frétta af um. ræðunum. Hins vegar höfum við hinir, sem andvígir erum Fram. sóknarflokknum, mikinn hug á að halda til haga sumum yfir. lýsingum Eysteins í umræðun- um. Játar faðernið Það var góð tilbreyting að heyra Eystein Jónsson segja sannleika með tilfinningaþunga, er hann gaf eftirfarandi yfirlýs- ingu: „Framsóknarflokkurinn léði alls ekki máls á gengislækkun nema eiga þátt í henni sjáJfur". Hitt var ekki síður fróðlegt að Eysteinn Jónsson skyldi lýsa yfir höfundarrétti á því, sem Tíminn hefur kallað „stefnu Framsóknarflokksins í efnahags- málum“, en allir aðrir kalla hringavitleysu. Uppistaða hringa vitleysunnar er sem kunnugt er sú, að auka hefði átt yfirfærslu. gjaldið um ca. 250 millj. króna og bæta þeirri upphæð ofan á uppbæturnar. Niðurstaðan af þeirri athöfn hefði orðið sú, segja Framsóknarmenn, að dreg. ið hefði verið úr uppbótunum. Hinn meginþáttur „stefnunn. ar“ var að halda „uppbygging- arstefnunni" áfram að fullum þrótti en draga jafnframt úr fjár festingu. Með öðrum orðum, að fjárfesta meira án þess að festa fé, byggja meira ási þess að byggja. Það má með sanni segja að það er ekki ónýtt að eiga í þjóðfélaginu galdramenn á borð við Eystein Jónsson. Gallinn er bara sá, að fólkið er svo vitlaust að trúa ekki á galdrana, annars væri hér allt í stakasta lagi og Eysteinn f jármálráðherra U1 æviloka. Rúsínan í pylsuendanum var svo sú, að engir ættu sparifé nema hábölvaðir auðmenn og atvinnurekendur. Og svo værí ríkisstjórnin búin að setja þá á hausinn með okurvöxtum af lánum til atvinnureksturs þeirra. Semsagt góð Eysteinska. At. vinnurekendur einir græða á því að fá háa vexti af fé sínu og fara á hausinn af því að þeir þurfa sjálfir að borga þá. Sementsútflutningur Cott sumar hefir kvatt Valdastöðum 22. okt. — Sólin blessuð sígin er, senn, að fjalla baki. Hún í ránar faðminn fer, fúglar hætta kvaki. 1 DAG er fyrsti vetrardagur. Var hér í mórgun alhvítt af hélu, sem sólin að visu hefir leyst upp þar sem hún nær að skína. En skugg arnir færast nú óðum yfir um leið og vetur gengur í garð. Höf- um við kvatt eitt hið bezta og blíðasta sumar, sem komið hefur um langt árabil, eins langt og eldri menn muna. Venjulega skiptast á skin og skúrir, og má segja að svo hafi einnig verið á þessu liðna sumri. En þó munu þeir miklu fleiri hinir björtu og blíðu dagar. Hey- fengur bænda hefir því orðið mikill og góður, og ættu þeir því að vera vel undir veturinn bún- ir. Jafnvel þó að hann kunni að anda köldu á stundum. Uppskera í görðum mun vera með bezta móti. Heyrt hefi ég talað um 15. falda uppskeru. og má slíkt heita ágætt. Jarðabætur Allmikið hefir verið unnið að jarðabótum hér í vor og í sumar, allt fram á þennan dag, vegna hins hagstæða tíðarfars. Unnið hefir verið með skurð- gröfu á nokkrum bæjum í sveit- inni. Mest þó á einum bæ, Þránd stöðum. Þar hafa verið grafin 25 þús. tonn, en annars staðar mun minna. Á vegum skógræktarfélagsins hafa verið gróðursettar um 6 þús plöntur. Laxveiðin. Lax- og silungsveiði var talin vera í meðallagi. Alls munu hafa veiðzt yfir 11 hundruð laxar, og eitthvað á 4. þúsund silungur, á öllu veiðisvæðinu. Stærsta lax- inn í Laxá veiddi Eggert Krist- jánsson stórkaupmaður og var hann 20 pund. Enginn dýrbítur. Ekkert var vart við dýrbít hér í vor, þegar leitað var, eins og venja er til. Og nú er ekki talað um mink. Ný brú á Laxá Eins og getið hefir verið um áður, var byggð brú á Laxá í sumar. Mun sá kostnaður greið- ast af fjórum aðiljum, ríkissjóði, sýslusjóði, sveitarsjóði og tveim ábúendum í Hækingsdal. Tölu- verðar vegabætur voru gerðar, sérstaklega frammi í sveitinni. Byggingar Nokkuð hefir verið unnið að húsabótum, sérstaklega útihús- um. Á næstunni stendur til að flytja íveruhús upp að Hækings- dal, sunnan úr Reykjavík, í heilu lagi. Viðbótarbygging við íveru- húsið á Sandi, stendur nú yfir. Fallþungi dilka. Ekki er mér fullkunnugt hver meðalþungi dilka hefir verið hér í haust, hins vegar er vitað, að þeir hafa reynzt allmisjafnir til frálags, frá einum bæ til annars, hvað sem því kann að valda, þar sem um svipuð skilyrði virðist vera að ræða. Annars bar tölu- vert á óhreysti í fé, hjá sumum bændum í vor. Ekki er vitað að bráðapest hafi gert mikinn usla í fé bænda á þessu hausti. Þó fórst eitthvað af hennar völdum, seinnipartinn í sumar. — St. G. Flugið vinnur á London, 21. okt. — (Reuter) — TILKYNNT var í London í dag að á fyrstu sex mánuðum þessa árs hefðu í fyrsta sinn fleiri far- þegar komið til Bretlands og farið þaðan flugleiðis en með skipum. Til Bretlands komu á þess- um tíma 1.282.000 manns flug- leiðis en 1.222.000 sjóleiðis og þaðan fóru 1.268.000 með flug- vélum en 1.207.000 með skipum. í báðum tilfellunum er um aukningu að ræða. Flugferðir hafa aukizt um 26%, en sjóferðir um 2%. Nú hafa verið gerðir samning- ar um sölu á 20 þúsund tonnum af sementi til Bretlands, og er það i sjálfu sér mikil frétt, að sement skuli verða orðið útflutn ingsvara á íslandi. Verðið er ekki mjög hátt, en það er mjög algegnt í heimsviðskiptunum, að selt sé til útlanda á lægra verði en innanlands, þar sem með því fæst stærri markaður. Og seinustu framleiðslueiningarnar eru að sjálfsögðu mun ódýrari fyrir framleiðandann en þær fyrstu. Getur því verið hag- kvæmt að selja eitthvað af vör- um við lægra verði en megin hluta framleiðslunnar. Á hinn bóginn er ekki hægt að mismuna hinum einstöku kaupendum á innanlandsmarkaðinum. Á þessn mætti þó hugsa sér eina mikil. væga undantekningu, en það « ef ákveðið væri lægra verð á sementi. sem ætlað væri til vega gerðar, þannig að hægt yrði að nota meginhluta þess sements, sem framleiddur væri umfram venjulegar þarfir, til að bætla þjóðvegakerfi landsins i stað I þess að flytja „umframfram- 1 leiðsluna" út.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.