Morgunblaðið - 26.10.1960, Side 18
18
MORGV1SBLAÐ1Ð
Miðvikudagur 26. okt. 1960
Á myndinni sést Hans Milds brjóta gróflega á Poul Petersen. Kastaði hann sér fyrir hann, svo
Petersen gat ekki skotið í dauðafæri.
Danmörk tapabi
vegnarangrar
leikaðferbar
Islendingar keppa v/ð
Bandaríkjamenn í
körfuknattleik
SJALDAN hafe Danir og Svíar
beðið með jafnmjkilli eftirvænt-
ingu eftir landsleik landanna og
þeim, er fram fór í Gautaborg
sl. stinnudag, -og 'sjaldan hafa
Danir orðið jafn oánægðir með
úrslit í landsleik _£ knattspyrnu
við „erfðafjandann" Svía.
} 25 ár hafeýPanir beðið eftir
þvf að danskt fendslið bæri sig-
urorð af Svíum í knattspyrnu-
kappleik háð.um- á sænskri
grund. Eftir vhlna frækilegu
frammistöðu dáriska landsliðsins
á Olympíuleikönúrh virtist þessi
draumur DanalVéra að rætast og
ber hinn mikfi fjöldi (10.000)
Dana, sem fórú yf'r til Svíþjóð-
ar merki um ?að búizt var við
dönskum sigri.;—
Eftir leikinn'eru dönsku blöð-
in full af afsökunum yfir frammi
stöðu danska liðsins og segja má
að þjóðarsorg ríki ; Danmörku.
Hér á eftir verður vitnað í um-
sögn hins heimsfræga sænska
knattspymumanns, Gunnars
Gren, um leikinn:
....... Ég var meðal þeirra
mörgu, sem áleit að loksins
myndi Dönum heppnast að
vinna, en þeir töpuðu sérstaklega
vegna lélegrar uppbyggingu.
Ef Dönunum hefði lánazt að
ná hinni réttu leiksuppbygg-
ingu, er liðið það sterkt að það
getur boðið hvaða knattspyrnu-
liði heimsins byrginn. Jafnvel
eftir ósigurinn gegn Svíum,
undrast ég ekki yfir frammi-
stöðu liðsins á Olympíuleikun-
um, því ekki getur komið til
greina að liðið hafi leikið þar
eins lélega og sl. sunnudag.
Stærsti veikleikinn var að mið
„tríó“ Svíanna fékk alltof mikið
athafnasvæði. Skýringin getur
ef til vill verið sú, að Flemm-
ing Nielsen, sem var veikur í
sl. viku hafi ekki verið búinn
að ná fullum krafti. Eg held að
hann hafi verið sá Daninn, sem
erfiðast átti með að standa í
stykki sínu.
Það er einnig mitt álit, að
vinstri útherjinn Jörn Sörensen,
sem við hér í Sviþjóð höfum
heyrt svo mikið talað um, hljóti
að hafa átt slæman dag. Jafnvel
miðframherjinn Harald Nielsen
varð okkur mikil vonbrigði, og
ég get ekki skilið að hann hafi
gengið heill til skógar í þess-
um leik.
Svo var það einnig að landar
mínir höfðu heppnina með sér
í örlagaríkum augnablikum leiks
ins. Ef Danirnir hefðu hafí ör-
lítið af því meðlæti er ekki ó-
sennilegt að þeir hefði að
minnsta kosti náð jafntefli.
Danirnir kölluðu fyrst og
fremst ósigurinn yfir sig með
því að taka upp langar sending-
ar, er þeir sóttu að sænska mark-
inu. Þeir hefðu átt að vita að
slík leikaðferð er ekki árangurs-
rik gegn jafnreyndum bakverði
og Orvar Bergmark og miðfram-
verðinum Áke Johansson. Þeir
voru fljótir að sjá út hvað gera
átti og hrundu sókninni á rétt-
um augnablikum.
Þáttur norska dómarans Bírg-
er Nilsen var saga út af fyrir
sig. Þetta er í fyrsta sinn, sem
ég hefi séð norskan dómara koma
fram á sænskri grund eins og
hann væri heima hjá sér. Ég var
viss um að hann myndi dæma
vítaspyrnu, þegar Orvar Berg-
mark brá Poul Pedersen illilega.
Sjaldan hefi ég verið jafn óá-
nægður með dóm í knattspyrnu-
kappleik og er dómarinn lét þetta
afskiptalaust og leikinn halda
áfram eins og ekkert hefði í
skorizt.
Ef Danirnir hefðu skorað úr
vítaspyrnu, er leikurinn stóð
1:0, hefðu þeir vafalaust náð
meiri og betri tökum á leiknum.
Það er mín reynsla eftir langan
knattspyrnuferil, að það er mjög
þýðingarmikið að jafna leik rétt
eftir að síðari hálfleikur er haf-
inn.
Úrslit ieiksins hafa efalaust
sannfært Dani um það, hve þýð-
ingarmikið það er að ráða leikn-
um á miðju vallarins. Þar á að
byggja upp samleikinn. Það var
sjaldan sem samleikur sást milli
dönsku innherjanna og hliðar-
framvarðanna. Eg fæ ekki skilið
hvernig menn geta látið eftir
sér að gera slíka skyssu, en von-
andi hefir þessi staðreynd opnað
augu Dananna fyrir að gera slikt
ekki aftur.
NÚ ER að hefjast körfuknatt-
leikstímabilið, en áhugi fyrir
íþróttinni hefir stóraukizt á und
anförnum tveim árum og miklar
framfarir að sjá hjá liðunum,
bæði í yngri og eldri flokkum
félaganna.
í tilefni þessa efnir Körfuknatt
leiksfélag Reykjavíkur til keppni
sem háð verður að Hálogalandi
annað kvöld. ,
Keppt við varnarliðsmenn
Keppnin verður háð í tveim
leikjum og mætast í fyrri leikn
um íslandsmeistarar ÍR og úr-
valslið körfuknattleiksmanna af
Keflavíkurflugvelli.
Síðari leikurinn verður milli
KFR og annars úrvalsliðs frá
Varnarliðinu, og er það lið val-
ið úr tveim efstu liðum keppn-
innar á Keflavíkurflugvelli, sem
stendur nú yfir. KFR styrkir lið
sitt með einum m.anni og er það
Ármenningurinn Birgir Birgis,
en hann leikur í landsliðinu. f
ÍR-liðinu leika 5 landsliðsmenn,
en í KFR 6 menn úr íslenzka
landsliðinu. . r
Æft vel.
Varnarliðsmennimir eru aTlir
í fullri þjálfun og allir þátttak-
endur í keppninni, sem nú stend
ur yfir á Keflavíkurflugvelli, en
þar er keppt 3 kvöld í viku.
Körfuknattleiksmenn ÍR og
KFR hafa æft úti í allt sumar og
hafa tekið upp æfingar inni fyr-
ir nokkru. Þeir eru því í góðri
þjálfun.
Unglingatímar
Körfuknattleiksfélag Reykja-
víkur er eina félagið sem hefir
eingöngu körfuknattleik á stefnu
skrá sinni og er áhugi mikill
fyrir félagsstarfseminni. Til þesa
að auka áihugann enn meir, hefir
verið ákveðið að í vetur verði
sér útbreiðslutímar hafðir fyrir
yngstu flokkana, þar sem meist-
araflokksmenn félagsins sjá um
æfingarnar. Tímar fyrir 4. flokk
eru ákveðnir að Hálogalandi á
fimmtudögum kl. 20:30 og á
sunnudögum fyrir 3. flokk og
verða þeir í íþróttasal Háskólans
kl. 11 f.h.
^ _ V w ^ í ,
Þessi mynd tók Sveinn Þórmóðsson, er íslenzkir körfuknatt-
leiksmenn kepptu síðast við bandarískt körfuknattleikslið í
hinu nýja og glæsilega íþróttahúsi varnarliðsins á Keflavíkur-
flugvelli. Rafmagnstaflan á myndinni sýnir hve mikið er af
leiktimanum og stigatöiu liðanna, sem keppa.
Bezt að auglýsa í MORGUNBLAÐINU
Kaupmenn og kaupfélög
Bökurum og öirum þcim er nota pappirspoka, tilkynnum vér, ai mi
höfum við allar stærðir úr sterkum gljáandi kraftpappír
Vinsamlega berið saman verð okkar við erlenda poka, ef yður verða boðin kaup á þeim. Hvíta poka
framleiðum við ekki nema sérstaklega sé um það beðið. — Framleiðsla okkar er ódýrari en sú er-
lenda, og lökum við það aftur fram.
Berið saman verðið — yðar og okkar vegna
Sendið okkur pantanir
yðar nú þegar — og
endurnýið, ef þér eigið
pantanir hjá okkur.
Allt verð staðfest af
verðlagsstjóra.
Vegna fullkomins
vélakosts okkar
getur erlend framleiðsla
ekki keppt við okkur.
Pappírspokagerðin h.f.
Vitastíg 3.
Simar 1 28 70, I 30
Simnefni: Kraft.
15.