Morgunblaðið - 26.10.1960, Qupperneq 19
Miðvik'udagur 26. okt. 1960
MORCUNfílAÐIÐ
19
ísland á
„FAHT og FORM“ heitir danskt
mánaðarrit sem einkum fjallar
um bíla og ferðamál. Þetta er
mjög vandað tímarit og eitt hið
fremsta á sínu sviði á Norður-
löndum.
„Fart og Form“ kynnir í hverj-
um mánuði eitt land. Þessi land-
kynning er einkum og sér í lagi
sniðin fyrir ferðafólk. I marz-
heftinu næsta ár verður röðin
komin að íslandi og hingað til
lands er kominn einn af starfs-
mönnum tímaritsins, Anders Ny-
— Skógræktin
Franih. af bls. 18.
eftirfarandi tillögur: Aðalfundur
Skógræktarfélags íslands, hald-
inn í Reykjavík 21.—23. október
1960, beinir þeim eindregnu til-
mælum til Alþingis og ríkisstjórn
ar, að samþykkt verði átælun um
skógrækt hér á landi fyrir a. m. k.
næstu fimm ár.
Ljóst er, að góð og nákyæm
áætlun er skilyrði fyrir því, að
störf skógræktarfélaga og Skóg-
ræktar ríkisins nýtist sem bezt.
Við sérhvért starf er nauðsyn, að
það sé vel og skipulega undirbúið.
En við skógrækt er það skilyrðis
laus nauðsyn að vinna samkvæmt
starfsáætlun, þar sem langt er
milli sáningar og uppskeru. Fra
sáningu trjáfræs unz ungviðið er
hæft til gróðursetningar á víða
vangi líða 4 ár, og er nauðsyn-
legt að hafa tryggt sér gróðursetn
ingarland að þeim tíma liðnum.
Þá þarf að vera til girt og friðað
land til að gróðursetja í og fjár-
munir til að flytja ungviðið og
koma því niður. Þá þarf að ann-
ast hirðingu þess og grisjun um
nokkur ár án þess að nokkuð
komi í aðra hönd.
Fyrir því er það að dómi fund-
arins skilyrðislaus nauðsyn fyrir
eðlilegum gangi skógræktarmála,
að til sé skógræktaráætlun fyrir
landið, sem samþykkt sé af Al-
þingi og ríkisstjórn.
Stefnuatriffin í skógræktarmálum
Aðalfundur Skógræktarfélags
Islands 1960 telur, með hliðsjón
af reynslu undanfarinna ára, að
leggja beri áherzlu á eftirfarandi
stefnuatriði í skógræktarmálum
þjóðarinnar:
a) Skógrækt ríkisins kapp-
kosti svo sem verið hefur, gróður
setningu í stór samfelld svæði,
sem valin séu með tilliti til þess,
að skóggræðsla geti borið sem
beztan árangur á sem stytztum
tíma.
b) Skógræktarfélag, sveitar
eða bæjarfélag og önnur samtök
sem að skóggræðslu vinna leggi
höfuðáherzluna á það, að valið
sé til gróðursetningar hentugt,
nægilega stórt og samfellt land-
svæði í byggðarlaginu. Sé aðilj-
um þeim, er efna til gróðursetn-
ingar gert kleift að fá sérstaka
spildu til skóggræðslu, ef þeir
kjósa það fremur en sameigin-
lega gróðursetningu, en allt land
svæðið sé innan einnar og sömu
girðingar.
. c) Skógræktarfélögin stuðli að
því, svo sem verið hefur, að kom
ið sé upp trjálundum við bæi og
býli, til fegurðar og skjóls. Enn-
fremur að lögð sé rækt við þá
þæjarskóga og trjáreiti, sem hald
ið hefur verið í horfi undanfarin
lár.
d) Stefnt sé að þvl, eftir því
sem tímabært telst, að sveitarfé-
lög eða innansveitar félagssam-
tök taki sér fyrir hendur, gegn
nánar tilgreindum skilyrðum, að
aðstoða bændur á einstökum jörð
Um til þess að koma sér upp skóg
arteigum, þar sem skilyrði eru til
skógræktar.
Ýmsar fleiri ályktanir voru
gerðar á fundinum.
r Loks voru kosnir 2 menn í
stjórn félagsins til þriggja ára:
Voru þeir endurkosnir Einar G.
E. Sæmundsen og Hákon Guð-
mundsson. Varamaður var kos-
inn til þriggja ára Ingvar Gunn-
arsson.
40 síbum
borg, og hyggst hann dveljast
hér um nokkurra vikna skeið,
ferðast um landið og afla efnis.
—o-O-o—
Mbl. hitti_ Nyborg að máli í
vikunni og hafði hann þá ferð-
azt nokkuð um suðurlandsundir-
iendið.
— Ég er ekki í vafa um, að Is-
land verður hreinasta drauma-
land ferðamanna jafnskjótt og
þeir uppgötva landið. Danir hafa
undanfarin 10—15 ár farið til
Frakklands, Ítalíu og Spánar í
sumarleyfinu. Þeir eru orðnir
þreyttir á suðrinu, vilja nú eitt-
hvað nýtt. Svo er líka um fleiri
Norður-Evrópuþjóðir.
— Og hér er allt svo frábrugð-
ið því, sem menn sjá á ferðalagi
um sunnanverða Evrópu.
—o-O-o—
— En þið verðið að reisa fleiri
gisti- og veitingahús, ef þið eig-
ið að geta tekið á móti þeim
ferðamannastraumi, sem kemur
til með að leita hingað á
næstu árum. Ekki aðeins í Reykja
vík, heldur meðfram þjóðvegun-
um. Á leiðinni að Gullfossi og
Geysi er t.d. aðeins eitt veitinga-
hús. Ég segi aðeins það, að Dan-
inn kemst ekki í gott skap fyrr en
Grænlondsflugið
vnkti nthygli
I Kaupmannahöfn, 25. okt.
L Einkaskeyti til Mbl. —
/ í DAG flytur Kaupmanna-
! hafnarblaðiff BT undir stórri
\ fyrirsögn, frásögnina af
Grænlandsflugi Björns Páls-
sonar til Daneborg í fyrra-
dag, er hann sótti þangaff
sársjúkan danskan mann. —
Segir blaffið flugferff Björns
mikiff afrek miðað viff erfiff-
ar aðstæður. — Páll.
Hjólaði 1 höfnina
RÉTT fyrir kl. tvö í gærdag hjól-
aði 9 ára drengur, Ósfcar Jóns-
son, Hávallagötu 3, fram af Ing-
ólfsgarði, þar sem Vatnajökull
liggur. Lenti hann fyrst á skip-
inu, en kastaðist þaðan undir
bryggjuna og beint í sjóinn. Und
ir bryggjunni eru bjálkar og
járnfestingar, en drengurinn var
svo heppinn að sleppa framhjá
þeim, því að ella hefði hann slas
azt meira en raun bar vitni. Har
aldur Þórðarson, 1. stýrimaður á
Vatnajökli, klifraði þegar niður
undir bryggjuna og bjargaði
drengnum með aðstoð Helga Guð
jónssonar, háseta á Vatnajökli,
og Erlends Erlendssonar, bíl-
stjóra. Drengurinn kvartaði und
an eymslum í hné og var fluttur
í Slysavarðstofuna en síðan heim
til sín.
Síldveiði
Akranesbáta
AKRANESI, 25. okt. — 1100
tunnur síldar komu hér á land
í dag. Afli hringnótabátanna var
sem hér segir: Höfrungur I. um
400 tunnur, Höfrungur II. 350
tunnur, Sveinn Guðmundsson
122 tn. og Böðvar 54 tn.
Reknetabátarnir fengu frá
25—60 tn. hver. Síldin er jöfn-
um höndum söltuð og fryst. Mb.
Sigrún lætur reknet í land og
tekur hringnót um borð. — O.
Spilakvöld
HAFNARFIRÐI — Félagsvist
Sjálfstæffisfélaganna er í Sjálf-
stæðishúsinu í kvöld og hefst kl.
8,30. Verfflaun verffa veitt og síff-
ar heildarverfflaun.
Anders Nyborg
hann hefur fengið góðan mat.
— Ég hef komið á helztu veit-
ingastaði höfuðborgarinnar, mér
líkar þeir prýðilega. Og ferðin
hingað með flugvél er svo ótrú-
lega skömm, að ég hef á tilfinn-
ingunni, að ísland sé á landabréf
inu miklu nær meginlandinu en
það er í raun og veru.
- o-O-o- -
— „Fart og Form“ er gefið út
í 20 þús. eintokum. En lesendurn-
ir eru miklu fleiri, því okkar tíma
rit er þannig úr garði gert, að
það er gjarnan lagt fram í bið-
stofum. Það er lesið í allri Dan-
mörku.
Tilgangurinn með íslandsferð-
inni er ekki aðeins að safna efni
á þær 40 síður, sem helgaðar
verða Islandi, heldur líka auglýs-
ingum. íslandsblað Politiken er
okkar fyrirmynd og ég mun leita
til sömu auglýsenda og voru í
Politiken.
Nýtt hefti „Yöku“
FYRIR nokkrum dögum kom út
nýtt hefti af „Vöku“ blaði lýð-
ræðissinnaðra háskólastúdenta.
Eru í því greinar um ýmis mál-
efni er stúdenta varða. „Hefjum
sókn í Garðamálunum", nefnist
ýtarleg grein, þar sem fjallað er
um vandamál stúdentagarðanna,
en þeir þurfa nú báðir gagn-
gerðra endurbóta við. Þá er vak-
ið máls á því, að efnt verði til
stúdentaþings, til þess að fjalla
um mikilvægustu hagsmunamál
stúdenta. Hugleiðingar um út-
gáfu Stúdentablaðs eru einnig í
heftinu undir fyrirsögninni „Efla
þarf útgáfu Stúdentablaðs". Loks
má geta greinar um „Stúdenta-
hópferðir til Evrópu“, en hún
fjallar m. a. um þá fyrirgreiðslu
og fríðindi, sem íslenzkir stúdent
ar eiga kost á í ferðalögum til ann
arra landa. — Ritstjóri „Vöku er
Styrmir Gunnarsson, stud. jur.
— Kongó
Frh. af bls. 1
freistað við að koma í veg fyrir
komu þeirra til borgarinnar.
Þeir eru búnir skotfærum tíl að
granda bryndrekum og einnig
fallbyssum. Þá hefur yfirstjórn
SÞ /. Kongó lagt bann við öilum
liðsflutningum Kongóhermanna
um landið.
Lumumba nú löglega vísaff frá
Justin Bomboko, utanríkisráð-
herra, gaf í dag út tilskipun þess
efnis, að stjórn sú, er Mobutu
hefði kveðið til valda hefði nú
tekið sér í hendur öll völd. Til-
skilur núverandi stjórn sér rétt
til þess að setja lög með tilskip-
unum.
Segir einnig, að nú sé Lum-
umba löglega og opinberlega rek-
inn frá völdum og muni núver-
andi stjórn leita viðurkenningar
Sameinuðu þjóðanna.
Ritskoðun
Mobutu ofursti fyrirskipaði rit
skoðun í öllu landinu í dag.
Hefur hann áður reynt að banna
dagblöð, en það bann var virt að
vettugi. Nú er tilkynnt að stjórn
in og ráð blaðamanna í Leopold-
ville muni sjá um að framfylgja
ritskoðuninni. 1
Nokkur síldveiöi nyrðra
AKUREYRI, 25. okt. — Engin og Björgvin mun hafa fengið ein
síldveiði hefur verið hér undan- hverja veiði í dag.
farna viku til tíu daga, þar til
í gær, að veiði fór heldur að
glæðast. I gær og dag hafa þessi
skip fengið afla, sem hér segir:
Gylfi landaði í gær um 300 mál-
um, sem fóru bæði í bræðslu og
frystingu, en í dag um 100 mál-
um. Garðar landaði í gær 140
málum í frystingu og 170 málum
i bræðslu, en í dag 200 tunnum.
Ester landaði í dag 256 málum,
Veðrið er sérstaklega gott,
logn og sólskin og nokkurt frost.
- St. E. Sig.
Stúlka oskast
í skartgripaverzlun. — Tilboð með upplýsingum um
fyrri störf, sendist afgr. Mbl. merkt: „Sarf — 1749“,
fyrir 29.þ.m.
Ég þakka innilega þeim, sem minntust mín á sjötugs
afmæli mínu.
Sólveig Danivalsdóttir
Móðir okkar
GUÐBJÖRG ÓLADÖTTIR
Húsavík.
lézt mánudaginn 24. október.
Börnin.
Hjartkær konan mín
SÍGRCN björnsdóttir
frá Siglufirði,
andaðist í Landsspítalanum 24. þessa mÁnaðar.
Fyrir hönd barna, tengdasonar og barnabarna.
Þórhallur Barðason.
Elsku litli dretigurinn okkar
HEIMIR GUNNARSSON
andaðist 23. október. Jarðarförin fer fram frá Fossvogs-
kirkju fimmtudaginn 27. þ. m. kl. 10,30.
Kolbrún Gunnarsdóttir, Gunnar Ingason.
Eiginkona mín og móðir okkar
PURlÐUR SIGURÐARDÓTTIR
Urðarstíg 6,
lézt 25. þessa mánaðar.
Sigurður Guðmundsson,
Sigurjón H. Guðjónsson, Anton Guðjónsson,
Pétur Guðjónsson, Rósa Guðjónsdóttir.
Kveðjuathöfn um móður okkar
ELlNU ÞJÓÐBJÖRGU SVEINBJARNARDÓTTUR
frá Eyri, Arnarstapa
er lézt að Elli- oghjúkrunarheimilinu Grund 23. þ.m. fer
fram frá, Fossvogskirkju fimmtudaginn 27. okt. kl. 3 e.h.
Jarðsett verður að Hellnum laugardag. 29. okt. kl. 1 e.h.
Vegna vandaraanna
Karólína Kolbeinsdóttir, Jón Kolbeinsson
Systir og móðursystir okkar
MARGRÉT JÓNSDÓTTIR
þerna, Nesvegi 68
lézt þriðjudaginn 18. þ.m. í Bæjarspítalanum. — Jarðar-
förin hefur farið fram. — Þökkum innilega sýnda hlut-
tekningu.
Vandamenn
Hjartanlegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinar-
hug við andlát og jarðarför
JÓNS JÓHANNSSONAR
skipstjóra.
Sigríður Pétursdóttir,
Jóhann Jónsson, Birta Fróðadóttir,
Þorbjörg Jónsdóttir, Óskar Valdimarsson,
Sigríður Guðmundsdóttir, Karl Pétursson.