Morgunblaðið - 19.11.1960, Page 9
Laugardagur 19. nóv. 1960
MORCVNfíf. 4 fí 1Ð
9
^^^.Kristmann Guðmundsson
BÓKMEN
skrifar um
N T I R
t heimahögum
/ eftir Guðrúnu frá Lundi
Leitur.
I>ETTA mun vera þriðja bindið
a áögunni um Kötlu frá Mýra-
koti í Djúpárdal. Nefnast hin
fyrri „Svíður sárt brenndum" og
Guðrún frá Lundi
„Á ókunnum slóðum'. Það er al-
þjóð kunnugt, að Guðrún frá
Lundi er mest lesni og vinsæl-
asti rithöfundur þessa lands.
Virðist ýmsum falla það nokkuð
þungt og telja jafnvel móðgun
við stórmenni andans. En ég tel
bókmenntasmekk almennings
dável borgið, meðan hann les
ekki lakari hluti en verk Guð-
rúnar frá Lundi. Öllum má vera
Ijóst, að hún hefur verið frábært
skáldefni, og margur höfundur,
sem mikið er af látið, mætti
þakka fyrir að eiga hennar ágætu
frásagnargáfu og þann sjald-
gæfa hæfileika að geta búið til
bráðlifandi talsetningar. Þá
verða persónur frúarinnar les-
ahdanum allajafna mjög svo
minnisstæðar og ofan á allt ann-
að eru umhverfislýsingar hennar
alloft prýðisgóðar. Hinu verður
aftur á móti ekki leynt, að Guð-
rúnu skortir tæknilega kunnáttu
til að fara með meðfædda hæfi-
leika sína. En þá verður það að
ethugast, að hún hóf ekki rithöf-
undarstarf sitt, fyrr en hún hafði
skilað iöngu og erfiðu lífsverki
og var komin á þann aldur, er
menn fara að hugsa til vistar á
elliheimili. Þrátt fyrir það mun
fyrsta skáldsaga hennar að
minnsta kosti verða langlíf í
íslenzkum bókmenntum. Og
íesin mun sú gamla verða, hvort
sem mönnum líkar betur eða
verr, löngu eftir að farið er að
slá í 90% af öðrum bókmenntum
aldarinnar.
Að þessu greindu vildi ég
mega segja, að sagan um Kötlu
frá Mýrarkoti er hvorki betri né
verri en aðrar síðari bækur Guð-
rúnar. Hún er ósköp lík lífinu
sjálfu og í því felst nú einmitt
leyndardómur vinsælda höfund-
Til sölu
Segulband, Grundvig TK8.
Verð kr. 6500,00. Ferðaút-
varp, Radionett, verð kr.
1500,00. Uppl. í síma 24757
frá kl. 5—7 i kvöld og á
Vesturgötu 65 eftir kl. 7 á
kvöldin
arins. Þótt stundurr. sé allklaufa-
lega með efnið farið, straumur
sögunnar helzt til lygn og sam-
ræður langdregnar, þá andar
blær hins daglega lífs mannanna
um þessar síður og gefur sög-
unni gildi, er ýmis önnur verk
skortir, sem betur eru gerð. Við
þekkjum fólkið, sem þarna er frá
sagt, það er á sveimi allt í kring-
um okkur, við könnumst við
kosti þess og galla. Sumt af því
er dálítið slæmt, en ekki eins
vont og það ætti að vera til þess
að vera góðar persónur í sögu,
og göllum góða fólksins er líka
svolítið öðruvísi fyrirkomið en
þjálfaður rithöfundur myndi
gera. Gallar bókanna liggja í aug
um uppi, en þær luma líka á
kostum, sem gera þær aðgengi-
legar til lesturs fyrir alþjóð.
Guðrún frá Lundi hefði aðeins
getað sprottið úr íslenzkum jarð-
vegi, og hún er lifandi tákn
þeirra stórfurðulegu menningar,
er þreifst með þessari sárfátæku
hirðingjaþjóð og hélt í henni líf-
inu, enda þótt ýmsir leiðinda-
bokkar vilji nú gera iítið úr
henni. Það gleður mig, að ís-
lenzkur almenningur hefur kunn
að að meta Guðrúnu, því að það
sýnir heilbrigði hans. Og það
ætti að vera forystumönnum
þjóðarinnar ábending að sýna
þessari furðulegu dóttur ís-
lenzkrar bændamenningar ein-
hvern þann sóma, er hæfði verð-
leikum hennar.
Hús til sölu
í Sandgerði, 4 herb. og eldhús. Tilboð óskast.,,1251"
Réttur- áskibn til að taka hvaða tilboði sem er eða
hafna öllum. — Allar nánari upplýsingar gefur
Hjalti Jónsson í síma 7546, Sandgerði.
3/o herb. íbúð
Til sölu í húsinu nr. 21 við Baldursgötu. íbúðin er
á efri haeð (nshæð) og er laus til afnota nú þegar.
Lág útborgun. Ibúðin er til sýnis í dag.
Upplýsingar gefur
Málflutningsskrifstofa VAGNS E. JÓNSSONAR
Austurstræti 9 — Sími 14400.
Tilkynning
til eigenda Moskwitch bifreiða: — Hjá okkur er
staddur verkf .'æðingur frá Moskwitch-verksmiðjun-
um og eru þeir eigendur Moskwitch bifreiða, sem
óska eftir leiðbeiningum, beðnir að hafa samband
við okkur dagana 21.—25. nóv.
Bifreiðar og landbúnaðarvélar hf.
Brautarholti 20
Ú tidyrah urðir
Við erum að byrja á lagerframleiðslu úti-
dyrahurða úr eftirfarandi harðviði:
T E A K — (Thailand)
AFZELIA — (V-Afríka)
AFROMOSIA — (V-Afríka)
Ef menn víldu gera pantanir í sérstakar
gerðir, þá þurfa þær að berast strax.
Byggir hf.
Sími 34069
bbbbbbbbbbbbbtbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbb
b
BL
Amerískar
SKÁPAHANDFÖNGIN
eru komin aftur í glæsilegu
úrvali.
ggingavörur h.f.
Slml 35697
lougaveg 178
b
b
b
b
b
b
b
b
b
b
.b
KJúbburinn
S í m i 3 5 3 5 5
er opinn fimmtudaga, föstudaga
laugardaga og sunnudaga.
+ Hljómsveit Kristjáns Magnússonar
★ Söngvari Elly Vilhjálms.
ÍT Verið öll velkominn í Klúbbinn.
Stúlkur
óskast strax til eldhússtarfa.
Upptýsingar á staðnum frá kl. 10—S
Klúbburinn
Lögtaksúrskurður
Samkvæmt kröfu oddvitans í Kjósahreppi, úrskurð-
ast hér með lögtök fyrir ógreiddum útsvörum til
Kjósarhrepps, er féllu í gjalddaga hinn 15. júní og
15. okt. auk dráttarvaxta og kostnaðar.
Lögtök verða framkvæmd fyrir gjöldum þessum að
átta dögum iiðnum frá birtingu úrskurðar þessa,
verði eigi ge*ð skil fyrir þann tíma.
Sýshimaður Gullbringu- og Kjósarsýslu,
26. okt 1960.
Jóhann Þórðarson
Frjáls þjoð
er 12 síður um þessa helgi. — Viðtal við
MARGEIR J. MAGNÚSSON
VÍXLA OG FJÁRMÁLAMANN
Takið þátt í iólagetrauninni
★
Verðlaunflugfar til kaupmannahafnar
og viku uppihald.
Frjáls þjóð
EMGLI8H ELECTRIC
ÞVOTTAVÉLAR
Höfum til sölu örfá stykki af þessum
vinsælu þvottavélum.
Ávalt góðar birgðir af varahlutum.
Laugavegi 178 — Sími 17450