Morgunblaðið - 19.11.1960, Blaðsíða 10
10
MORCTJNBLAÐIÐ
Laugardagur 19. nóv. 1960
Utg.: H.f. Arvakur Revkjavfk.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar’ Valtýr Stefánsson (ébm.)
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Lesbók.: Arni Óla, sími 33045.
Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6 Sími 22180.
Askriftargjald kr. 45.00 á mánuði innanlands.
í lausasölu kr. 3.00 eintakið.
SEMJA
¥¥INAR ýtarlegu umræður
um langhelgismálið í
Efri deild Alþingis hafa að
mörgu leyti skýrt það og
varpað yfir það nýju ljósi.
Þar hefur það til dæmis
sannazt, að vinstri stjórnin
bauð Atlantshafsbandalaginu
samkomulag um það, bæði
áður en reglugerðin um 12
mílna fiskveiðitakmörkin var
gefin út og eftir það að er-
lendir togarar skyldu fá að
veiða á svæðinu milli 12 og
6 mílna í nokkur ár, ef 12
mílna fiskveiðitakmörk yrðu
síðan viðurkennd skilyrðis-
laust. Það voru þeir Her-
mann Jónasson, þáverandi
forsætisráðherra, og Guð-
mundur í. Guðmundsson, ut-
anríkisráðherra, sem forystu
höfðu um þetta tilboð.
Ábyrgð kommúnista
í öðru lagi er það upplýst,
að ráðherrar kommúnista og
fulltrúi þeirra í utanríkis-
málanefnd, vissu um þessar
tilraunir forsætis- og utan-
ríkisráðherra vinstri stjórn-
arinnar til þess að koma út-
færslu fiskveiðitakmarkanna
í framkvæmd á friðsamlegan
hátt.
Og forystumenn komm-
únisía hreyfðu engum op-
inberum andmælum gegn
þessum tilraunum og báru
að sjálfsögðu fulla ábyrgð
á þeim.
Til viðbótar þessum stað-
reyndum hafa svo þeir, Ey-
steinn Jónsson og Hermann
Jónasson lýst því yfir á Al-
þingi í umræðunum undan-
farna daga, að fyrrgreint til-
boð þeirra til Breta, um að
þeir fengju að veiða milli 6
og 12 mílnanna í nokkur ár,
hefðu verið sjálfsögð „til-
hliðrunarsemi".
Tíminn í fyrradag segir
einnig, að fyrrgreint tilboð
vinstri stjórnarinnar hafi
verið „lítilsháttar tilhliðrun-
arsemi“.
Þegar á þetta er litið,
sætir það ekki lítilli furðu,
að bæði kommúnistar og
Framsóknarmenn skuli hafa
borið landráð og þjóðsvik á
núverandi ríkisstjórn fýrir
að hafa kannað möguleika á
friðsamlegri lausn landhelgis
deilunnar. Af hálfu núver-
andi stjórnar hefur því þó
verið lýst yfir, að hún hafi
neitað að fallast á þá „til-
hliðrunarsemi“, sem vinstri
stjórnin gerði brezku stjórn-
inni og Atlantshafsbandalag-
inu tilboð um árið 1958, þ. e.
a. s. að Bretar fengju að
veiða milli 6 og 12 mílnanna
án þess þeir fórnuðu nokkru
í staðinn.
Framsóknarmenn og komm
únistar hafa orðið sér til
mikillar minnkunnar í um-
ræðunum um landhelgismál-
ið. Þeir eru nú komnir þar í
algera sjálfheldu.
VELMEGUN þjóða í
austri og vestri eykst svo
að segja dag frá degi —
og sífellt er stefnt fram á
við í þeim efnum með
ýmsum markvissum ráð-
stöfunum og samtökum.
Nægir þar t. d. að nefna
stofnun markaðsbandalag-
anna tveggja í Evrópu,
Fríverzlunarsvæðisins og
sameiginlega markaðsins.
— Þó eru enn mörg og
stór svæði í heiminum,
þar sem þróunin er mjög
hægfara í þessum efnum,
eða alger stöðnun ríkir
jafnvel og fólk lifir við
hin frumstæðustu skilyrði,
eins og forfeður þess
gerðu fyrir mörgum öld-
um. —
— ★ —
Myndin hér að ofan var
tekin fyrir skömmu í Gör-
enie í nágrenni Kayseri í
Tyrklandi. — Þarna býr
fólk enn þann dag í dag
í hellum, sem mannshönd-
in hefur einhvern tíma
endur fyrir löngu höggvið
dálítið til, svo að þeir
væru hæfari sem bústaðir.
Sagt er, að hellabúar
séu býsna ánægðir með
lífið í þessum myrku og
óþriflegu bústöðum —
aldalöng örbirgð hefur
gert þá ofur nægjusama.
— En einnig í Tyrklandi
vinnur þróun nútímans
sitt verk — og tekur æ
stærri skref. Má því ætla,
að ekki líði langir tímar
áður en þessir fornu hell-
ar standi auðir og tómir
— aðeins minning um lið-
inn tíma. Þá munu fyrr-
verandi hellabúar keppast
um að kaupa kæliskápa og
sjónvarpstæki í nýju „vill-
urnar“ sínar....
Barizt gegn
þrælahaldi
Enskt félag sendir
njósnara til þess að
afla sannra upp-
leitnu þrælasala. — Þessir tveir
menn eru virtir háskólakennar-
ar heima í Englancfi. Annar
þeirra er rúmlega þrítugur, en
hinn miðaldra. Báðir tala þeir
arabísku reiprennandi og hafa
dvalizt í Mið-Austurlöndum. —
Þeir eru mannfræðingar að
menntun.
— ★ —
Stjórnarvöld í Englandi vita
ekkert um þessar fyrirætlanir
—- opinberlega, og geta ekki
heldur látið málið neitt til sín
Framh. á bls. 13.
AFRÍKURÍKIN
NÝJU
Á þessu hausti hafa hvorki
meira né minna en 16 ný
ríki verið stofnuð í Afríku.
Öll þessi ríki hafa þegar
gerzt aðilar að samtökum
Sameinuðu þjóðanna.
Ríkisstjórn íslands hefur
viðurkennt sjálfstæði allra
þessara nýju ríkja og óskað
þjóðum þeirra til ham-
ingju með fengið frelsi. —
Einnig mun það hafa verið
rætt innan ríkisstjórnarinn-
ar, hvernig hagsmuna Is-
lands skuli gætt meðal þess-
ara þjóða. Við eigum nú
konsúl í aðeins einu hinna
nýju ríkja. íslenzkur konsúll
hefur um skeið verið starf-
andi í Nígeríu. En við Ní-
geríumenn hafa íslendingar
átt töluverð viðskipti. Megin-
hluti skreiðarútflutnings okk
ar hefur farið til Nígeríu.
Viðskiptamöguleikar
Til þess ber brýna nauð-
syn að skjótar ráðstafanir
verði gerðar til þess að
athuga viðskiptamöguleika
okkar við hinar nýju
Afríkuþjóðir. — Ýmislegt
bendir tii þess að þar sé
um töluvert ónumið land
að ræða fyrir íslenzkar út-
flutningsafurðir. í þeim
efnum verðum við að hag-
nýta alla hugsanlega mögu
leika.
íslenzka þjóðin samfagnar
hinum ungu Afríkuþjóðum
með nýfengið frelsi.
lýsinga um þrœ/a-
hald og þrœlasölu
í Saudi-Arabíu
H Ó P U R þekktra Englendinga,
þar á meðal nokkrir háæruverð-
ugir biskupar og ættstórir jarl-
ar, hafa samið leynilega áætlun,
þar sem gert er ráð fyrir að
senda einn eða jafnvel tvo
njósnara til erlends ríkis, Saudi-
Arabíu — hvorki meira né
minna. — Hinir virðuiegu herr-
ar eru félagsmenn í samtökum,
| er nefna sig „Félag gegn þræla-
haldi“, en félagsmenn eru ann-
, ars um 500, — og þeir hyggjast
nú — eftir „neðanjarðar-leið-
, um“ — afla sér sannra upplýs-
inga um þrælaverzlunina i
Saudi-Arabíu.
í ★ Enginn barnaleikur
Sem stendur er um tvo
menn að velja til þess að tak-
ast þessa nýstárlegu njósna-
ferð á hendur, — og e. t. v.
verða þeir báðir sendir. Þetta
verður enginn leikur — og við-
( komandi menn gera sér ljóst, að
, þeir leggja sig í lífshættu með
i því að njósna um hina ófyrir-
MEKKA — pílagrímarnir hverfa . .
UTAN UR HEIMI
ÞÁ VILDU ÞEIR