Morgunblaðið - 30.11.1960, Page 2

Morgunblaðið - 30.11.1960, Page 2
2 MORGTJ'NBLAÐIÐ Miðvikudagur 30. íióv. 1960 Leitað dyrum og dyngjum að Lumumba Leopoldville, 29. nóv. (Reuter) HERMENN Mobutus ofursta hafa lokað öllum leiðum út frá borginni og bannað allar flugferðir frá flugvelli borg- arinnar. Hermennirnir f^ra leitandi úr einu h.úsi.. í, ann- að og Ieita að Lumumba, sem hvarf leynilega á brott úr húsi sínu á sunnudaginn. Ýmsar sögur ganga um það, hvað hafi orðið af hinum flúna forsætisráðherj;a. Sjáifur lét hann birta tilkynningu frá sér um að hann hefði fárið til Stanleyville, þeirrar borgar í Kongó, sem hann nýtur mests fylgis í. En fylgismenn hans halda því fram að hann hafi komizt í flugvél sem flutti Hjólparbeiðni EXNS og blöðin skýrðu frá nú nýlega, kom upp eldur í einum skálanum í Laugarnessbúðum sl. fimmtudagskvöld. hetta var í skála nr. 38. Þar bjó Ingimundur Pétursson, verka maður, ásamt fjölskyldu sinni. Eru þau sjö samtals, þar af eru þrjú böm innan fermingar og það yngsta sonarsonur, aðeins tveggja ára gamall. Þau voru öll háttuð og flest sofnuð, er eldurinn kom upp, en hann mun að öllum líkum hafa kviknað frá olíukyndingartæki. Slapp fólkið naumlega úr eldin- um og ekki alveg slysalaust. Þarna misstu þau öll allt sitt, og er því auðsætt hversu nú er ástatt fyrir þeim. íbúðin við hliðina, þar sem býr einstæð kona með fjögur börn sín, það elzta um 12 ára og það yngsta eins árs, varð fyrir miklum skemmdum af vatni og reyk og jafnvel eldi, svo að einn- ig þar eru ástæðurnar bágar. Þetta eru mikil áföll þessum tveim fjölskyldum, og ekki sízt sár og erfið nú á þessum árstíma, þegar menn eru teknir að hugsa til jólanna og búa sig undir þau. Það væri vel, ef bæjarbúar, sem tök hafa á, vildu hugsa til þessa fólks, núna fyrir jólin. Eg held, að enginn geti uppskorið af því annað en gleði og hefur Morgunblaðið góðfúslega lofað að taka við þeim peningagjöfum, sem kynnu að berast. Eg ber hér fram þakkir þegar fyrirfram. Garðar Svavarsson. hann til Accra, höfuðborgar Ghana. En Mobutu ofursti og herfor- ingjar hans eru vantrúaðir á þessar . .fregnir. .Þeir'... telja, _að Lumumba sé enn í LeopoldvilXé og telja líklegt að fýlgismemi hans haldi; hanrj á laun. Þeif líta á Lumúmba sem hættuleg- asta rrtanrfinn fyrir frið . og ör- yggi í landlnu, því vilja þéir umfrahi -allt finna hann og koma þannlg i vég fýrir að hann geti stofnað til innanlandsstyrjaldar. Það þykir nú sýnt, að Lum- umba hafi komizt frá forsætis- ráðherrabústaðnum í stórri svartri bifreið, sem ekið var frá húsinu á sunnudagskvöldið. Yfirleitt hafa varðmenn Mobutu stjórnar grandskoðað flestar bifreiðir, sem aka frá húsinu, en að þessu sinni fórst það fyr- ir og því mun Lumumba hafa sloppið. Stjóm Mobutu hefúr sakað varðlið SÞ um að hafa hjálpað Lumumba að komast undan, en yfirstjórn herliðs SÞ hefur neit- að þeim ásökunum. Segir hún að varðlið SÞ við forsætisráð- herrabústaðinn hafi aðeins haft því hlutverki að gegna að vernda líf Lumumba. Það hafi aldrei verið hlutverk þess að halda honum í stofufangelsi og hindra að hann kæmist brott. Slíkt væru afskipti af innan- landsstjórnmálum Kongó. Því sé ekki hægt að saka varðliðið um neitt, þótt það hafi ekki hindr- að brottför Lumumba. 10 vikna þóf Nú eru 10 vikur liðnar síð- an Kasavubu vék Lumumba úr embætti og fyrirskipaði hand- töku hans. Herlið Mobutus of- ursta hefur síðan setið um for- sætisráðherrabústaðinn, sem Lumumba hafðist við i og gert ítrekaðar tilraunir til að hand- taka hann. Ekki vildu þeir þó beita varðlið SÞ valdi til að komast að honum. Undankoma Lumumba hefur valdið ólgu og óróa í Kongó einmitt þegar þeir Kasavubu og Mobutu ofursti virtust vera að treystast í sessi og líkur voru til að þeim myndi takast að friða landið. Sagt er að ástand- ið sé nú sérstaklega slæmt í Stanley ville, höfuðvirki Lum- umbas, en það er einmitt bær- inn sem hann kvaðst stefna för til i yfirlýsingu sinni. Rafmagnshækkunin eins lítil og unnt er GEIR HALLGRÍMSSON, borgarstjóri, komst m. a. þannig að orði í gær, er hann ræddi hækkun á gjaldskrá Rafveitunnar á hæjarstjórnarfundi: Þar sem Rafmagnsveitan hækkaði ekki verð sitt, þegar •gengisbreytingin var gerð, fær hún ekki greitt frá not- endum þessa útgjaldaliði, sem ekki var reiknað með í áætl- un 1960. 25% hækkun á keyptri orku frá Sogsvirkjun- inni, 25 m. kr., kr. 45% hækkun í 8 mán. í efnis- kaupum fyrir 17,5 millj. kr. 6,5 millj. 5,3 milij. kr. 11,8 millj. Á árinu 1961 er reiknuð með í áætlun 20 millj. kr. til efniskaupa og þar innifalin hækkun vegna gengisbreyting arinnar, aðeins 2.4 millj. kr. Verðhækkunin vegna gengis- breytingarinnar, miðað við sama efnismagn og 1959, -er 7,9 millj. kr. Mismuninn, kr. 5,5 millj. tekur Rafmagnsveit- an á sig án endurgreiðslu frá notendum. Ef full verðhækk- un á efnLkaupunum hefði verið tekin inn í rafmagns- verðið, mundi hækkunin hafa orðið að meðaltali um 20%. Gjaldskráin er þannig ekki hækkuð meira en brýna nauð- syn ber til og miðað við það eitt að Rafmagnsveitan geti staðið undir afborgunum af lánum og allra nauðsynleg- ustu aukningu. ★ Nokkrar umræður urðu um gjaldskrárbreytinguna. Voru hafðar tvær umræður um mál ið í gær og breytingin sam- þykkt með 10 atkvæðum gegn 4 laust fyrir kl. hálftólf í gærkvöldi. — Framsöguræða borgarstjóra um gjaldskrár- breytinguna er á bls. 8. að nýj«/Kí ritósstjórn tslands dyttl í uu8, sem feenni deltor vafalaust ekkí í hug aö semja hér Við Breta um landhelgismáhS, væri þaS ifklegraen t.íl bass aS sfeana hér iapanskt ástand ÍSvo Ritstjórnargrcin í Tímanum júní 1960. Hver kom „kommún- á Tímann? TIMINN í gær ver heiili ritstjórnargrein í árásir á Morgunblaðið fyrir það, að blaðið hafi fundið það upp. a.ð þeir Tímamenn hafi í sumar talað um „japanskt ástand“. Segir í ritstjórnargreininni, að Tíiuinn hafi einungis rætt um Suður-Kóreu, en aldtei minnzt á Japan, heldur hafi Mbl. fundið það upp „til þess að koma kommúnistaorði á Tímann“. Er sýnt, að Framsóknarmenn svíður „kommúnista- orðið“ sem á þeim er. En Mbl. verður að hryggja Tímanr með því að birta mynd af ummælum blaðs- ins uir „japanska ástandið“ og sanna þar með, að blaðið hefur sjálft komið á sig því „kommúnista- orði“, sem það mun seint losna við. Um þetta mál er onnars rætt í Staksteinum í dag. Söngvarinn fjar- lægði upptöku- tækin ÞÝZKI barytonsöngvarinn Her- mann Prey söng í Austurbæjar- bíói í gærkvöldi á vegum Tón- listarfélagsins. Nokkur töf varð á því, að söngurinn hæfist, þar sem söngvarinn lét fyrst taka burtu hljóðnema og upptöku- tæki, sem komið hafði verið fyr- ir. Hefur það verið venja, þegar listamenn koma fram á vegum Tónlistarfélagsins, að taka list- flutning þeirra upp á tónband, sem Ríkisútvarpið hefur siðan keypt. í þetta skipti hafði láðst að fara fram á leyfi listamanns- — Stormurinn i. Frh. af bls. skúrinn til ösku, eins og myndin sýnir. Um klukkan 9,30 fóru síð- ustu bílar slökkviliðsins af bruna staðnum. Nágrannar skutu skjólshúsi yf- ir Geirharð og fjölskyldu hans, en börnin eru öll ung. + Strætisvagn lenti í skurði Milli klukkan 7 og 8 í gær- morgun, var stór Volvo-stræt isvagn á ieið inn í Voga. Var Vagnstjórinn einn í vagnin- um, því um aukaferð var að ræða. Þetta var um það leyti sem veðrið var einna mest. Er vagninn var kominn á móts við Grensásveg, en þar er dá- lítil bunga á veginum, vissi vagnsjórinn ekki fyrri til, en að vagninn sviptist til, __ um leið var hann kominn út af veginum, og nam ekki staðar fyrr en úti í skurði. Þessi feikna dreki, sem vegur allt að 7 tonn tómur, varð fyr- ir aliverulegum skenimdum. Fjaðraumbúnaður á framhjól- um slitnaði undan, og undir- vagn hafði skælzt. Framhurð eyðilagðist og sitthvað fleira brotnaði eða laskaðist. Var öfiugur krani fenginn til að ná vagninum upp. Við borð lá að „slægi í bak- segl“, á Lögbergsvagni, í gær- morgun. Skall á hann „vind- hnútur“ er han var rétt ný- kominn yfir brúna á Ilólmsá og tókst hann aðeins á loft og kastaðist lítillega til á veg- inum. í Rey kjavíkiurhöfn urðu nokkrar trillur, sem eigendur leggja þar í hirðuleysi, fyrir skemmdum. ins. Sagði hann eftir á, að sér hefði komið mjög á óvart að sjá upptökutækin, þar eð ekkert •hefði verið á þau minnzt við sig, og hefði hann látið fjarlægja þau, því að sérstaka æfingu þyrfti áður en upptaka færi fram. Önnur ástæða mun ekki hafa verið fyrir þessu. Hlutavelta SLYSAVARNADEILD kvenna í Reykjavík efnir nk. sunnudag til hlutaveltu, og verður hún haldin í Listamannaskálanum. — Hafa konurnar viðað að sér miklu af alls konar varningi, en að sjálf- sögðu verður safnað dagana fram að helgi, og eru munir á hana vel þegnir. Um svipað leyti í fyrra hélt deildin hlutavaltu og gekk hún vel. Er að vænta, að svo verði einnig nú. Allur ágóði rennur til slysavarna, þeirra framkvæmda, sem unnið hefur verið að hér í Reykjavík. Stúdentablaðið komið út „STÚDENTABLAÐ" er nýkomið út, en eins og jafnan er gefið út sérstakt blað á fullveldisafmæl- inu. Blaðið er veglegt og vandað að öllum frágangi, og efni þess fjölþætt .fróðlegt og skemmti- legt. Pétur Benediktsson skrifar um landhelgismálið Aðalgreinar blaðsins fjalla að þessu sirtni um landhelgismálið. Skrifar Pétur Benediktsson, bankastjóri, aðra þeirra, og nefn ist hún: „Er siðmenning svik?“. Hin er eftir Birgi Finnsson, al- þingismann. Þá ér grein eftir formann stúdentaráðs, Hörð Sig- urgestsson, kafli úr bók Einars Ol. Sveinsson um handritamál- ið, rektoratal Háskóla íslands, minningarorð um Þorkel Jó- hannesson rektor eftir Ármann Snævarr, hinn nýkjörna rektor, grein um hinn nýja rektor, grein um Einar Benediktsson eftir séra Sigurð Einarsson í Holti, úr dag- bók íslenzks stúdents í Stokk- hólmi efir Svein Einarsson, ný kvæði eftir Davíð Stefánsson, kvæði eftir ungan stúdent, þank- ar um hlutverk guðfræðideildar eftir próf. dr. Þóri Kr. Þórðar- son, fréttir frá deildafélögunum o. fl. o. fl. Verðlagsstjóri kærir BLAÐIÐ hefur frétt, að verð- lagsstjóri hafi lagt fram kæru á hendur innflutningsfyrir- tæki einu hér í bæ. Fyrirtæki þetta mun fremur umfangslít- ið. Mun kæran fjalla um það, að um misferli sé að ræða í sambandi við álagningu og innflutning, og að upplýsing- ar fyrirtækisins til verðlags- eftirlitsins hafi verið rangar. Málið mun enn að mestu ó- rannsakað, og hefur blaðið frétt, að sérstakur setudómari verði skipaður vegna þess. A NA /5 hnúfor y/' S V 50 hnútar Snjókoma > 06 i V Skúrír K Þrumur W/Ml Kutíastrit Hitashi H Hmi L LatqÍ Landnyrðingur / vændum DJÚP og mikil lægð suðvest- ur af Reykjanesi, en hæð yfir NA-Grænlandi. Lægðin hefur valdið austanstórviðri í Vest- mannaeyjum (14—15 vindstig á Stórhöfða). Um hádegi var an gola í nótt en hvessir aftur á austan eða NA á morgun, rigning með köflum. Faxaflói, Breiðafjörður og miðin: Austan og síðan NA stig, en -4 stiga farið að draga hiti kominn upp í 7 annars er víðast 2- hiti hér á landi. Eins og kortið ber með sér, liggja veðraskil frá lægðinni austur við suðurströnd fslands og suðaustur um Skotland. Sunnan við skilin er SV-kaldi og skúrir, en ný lægð, sem myndast um 1200 km suðvest- ur af Reykjanesi, mun valda norðaustanátt hér á landi inn- an skamms. Veðurspáin kl. 10 í gærkvöldi SV-land og SV-mið: Sunn- veðri, og kaldi eða stinningskaldi, þíð- viðri. Vestfirðir: Austan og NA kaldi, þíðviðri. Vestfjarðamið: NA átt, hvassviðri eða stormur á djúp miðum, slydda eða snjókoma. Norðurland: Austan eða SA kaldi, þíðviðri. Norðurmið: Hvass austan, rigning eða slydda. NA-land, Austfirðir og mið- in: Allhvass austan, rigning. SA-land og miðin: Austan gola í nótt en hvass austan og rigning á morgun.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.