Morgunblaðið - 30.11.1960, Blaðsíða 10
10
MORcrisnr. aðið
Miðvikudagur 30. nóv. 1960
ropmMfiMfr
Utg.: H.f Aivakur Revkjavllc.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar= Valtýr Stefánsson (ábm.)
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson
Lesbók.: Arni Ola, sími 33045.
Auglýsingar: Arni Garðar Kriutinsson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6 Sími 22180.
Askriftargjald kr. 45.00 á mánuði innanlands.
1 lausasölu kr. 3.00 eintakið.
STERKASTA
AFLIÐ
T SAMTALI við Morgun-
blaðið í gær um þing-
mannafund Atlantshafsbanda
lagsins í París, komst Jó-
hann Hafstein alþingismaður
m. a. þannig að orði, að_sam-
tök NATO-ríkjanna væru í
öruggum vexti, og að þau
væru tvímælalaust sterkasta
aflið gegn útbreiðslu komm-
únismans í heiminum.
Fyllsta ástæða er til þess
að taka undir þessi ummæli.
Varnarbandalag lýðræðisþjóð
anna var einmitt stofnsett
vegna þess, að Rússar og
hinn alþjóðlegi kommúnismi,
rændu hverja þjóðina á fæt-
ur annarri frelsi sínu og
sjálfstæði í lok síðustu heims
styrjaldar. Á sama tíma sem
hinar vestrænu lýðræðisþjóð
ir afvopnuðust, létu Rússar
heri sína í Austur-Evrópu-
löndum hjálpa smáflokkum
kommúnista þar til valda
með ofbeldi og yfirgangi. —
Þegar þannig var komið,
mynduðu þjóðir Vestur-Ev-
rópu og Norður-Ameríku
með sér Atlantshafsbanda-
lagið. Þessi varnarsamtök
hafa síðan staðið vörð um
heimsfriðinn og þeim hefur
tekizt að koma í veg fyrir
frekari útþennslu kommún-
ismans í Evrópu.
Engin tilviljun
Það er vissulega engin til-
viljun, að allt frá upphafi
Atlantshafsþandalagsins hafa
kommúnistar einbeitt áróðri
sínum gegn því og brenni-
merkt það sem árásaraðila og
„tæki heimsvaldasinna“. —
Kommúnistar vita vel að
Atlantshafsbandalagið er sá
þröskuldur í vegi þeirra, sem
þeir hafa ekki komizt yfir.
Þess vegna hefur sókn hins
alþjóðlega kommúnisma ver-
ið stöðvuð á mörgum víg-
stöðvum.
Það er vissulega vel farið,
að þingmannafundur Atlants
hafsríkjanna í París ræddi
fyrst og fremst um aukna
menningarlega, efnahagslega
og pólitíska samvinnu NATO
ríkjanna. Því aðeins getur
samvinna þessara ríkja á
sviði varnarmála orðið traust
og örugg, að heilbrigt efna-
hagsástand ríki meðal þeirra,
og að þau haldi jafnframt
uppi náinni menningarlegri
og pólitískri samvinnu.
Efling þessara varnar-
samtaka frjálsra þjóða og
víkkun starfssviðs þeirra
er áreiðanlega eitt raun-
hæfasta sporið sem hægt
er að stíga til verndar
friði og öryggi í heimin-
ÍSLAND - KANADA
T TÍMARITI, sem kanad-
íska utanríkisráðuneyt-
ið gefur út, er fyrir skömmu
birt grein um ísland. Þar er
í stórum dráttum rakin saga
landsins og þjóðar þess. Enn-
fremur eru rædd skipti Is-
lendinga og Kanadamanna.
Er þess getið, að í Kanada
búi nú 26 þúsund manns af
íslenzkum uppruna. Öll er
þessi grein mjög vinsamleg
og hlýleg í garð íslands. Er
þar farið miklum viðurkenn-
ingarorðum um íslenzka
menningu að fornu og nýju.
Getið er ýmissa Islendinga,
sem gegnt hafa þýðingar-
miklum trúnaðarstörfum í
Kanada. Frá því er skýrt, að
Thor Thors sé fyrsti íslenzki
sendiherrann í Kanada, starfs
ferill hans rakinn og farið
viðurkenningarorðum um
stÖrf hans.
í röð fremstu lýðræðis-
ríkja
íslendingar fagna mjög
hinni nánu og góðu sam-
vinnu, sem tekizt hefur við
Kanadamenn. Óhætt er að
fullyrða, að Kanada sé nú í
röð fremstu lýðræðisríkja
heimsins. Þetta land byggir
þróttmikil og dugandi menn-
ingarþjóð. íslendingum er
sómi að því að eiga slíka
þjóð að vin. Við viljum þess
vegna halda áfram að treysta
menningar- og viðskipta-
tengslin við Kanada. Þau
tengsl eiga sér djúpar og
traustar sögulegar rætur. ís-
lendingar eru einnig þakk-
látir Kanadamönnum fyrir
skerf þeirra til baráttunnar
fyrir aukinni verndun fiski-
miða. Þeir hafa sýnt glöggan
skilning á nauðsyn íslenzku
þjóðarinnar til víðari fisk-
veiðitakmarka.
• NAFNBREYTING
í MEXIKÓ
Neyzla marihuana hefar
þekkzt í 2.500 ár. Hamp-urtin vex
eins og illgresi um allt hitabeltið,
þar sem menn þurfa ekki annað
en að tína hana upp, búa sér til
sígarettu og kveikja í. Spánverj-
ar fluttu jurtina til Suður.
Ameríku árið 1545, og náði hún
mestum vinsældum í Mexikó, en
það var þar sem hún breytti um
nain frá hashish I marihuana.
Til Bandaríkjanna barst eitrið
á árunum 1910—1920. Allt í einu
breiddust uppþot út meðal ung-
linga í New Orleans. Dætur betri
borgaranna þustu æpandi um
göturnar. Ungir menn, sem aldrei
höfðu komizt undir lögreglu-
hendur fyrr, slógu niður saklausa
vegfarendur á götunum. Dögregl-
an komst yfir nokkuð magn af
marihuana sígarettum, og ástæð-
an var fundin.
★
Hingað til hefur verið lítið um
marihuana í Evrópu. En flugið og
velmegunin hefur gert fjarlægð-
irnar minni. l>að eru ekki ein-
göngu ferðamenn, sem nú
streyma til Evrópu, heldur einn-
ig ýmislegt annað, er írekar
mætti missa si£.
Eiturlyfjasmygl gefur góðan arð. Þessi sjómaður var handtek-
inn í New York með eiturlyf, sem talið var um 1 millj. króna
virði. En á svarta markaöinum har hefði það seht fyrir rúna-
lega 20 millj. króna.
UTAN UR IIKIMI
IMarihuana
UNDANFARIÐ hefur farið
fram rannsókn á stórfelldu
eiturlyfjasmygli í Kaup-
maunahöfn. Er þar um að
ræða marihuana sígarettur,
sem fluttar hafa verið til
Danmerkur og Svíþjóðar frá
Hollandi. Rannsókninni er
Þetta er jurtin, sem marihu-
ana er unnið úr. Hún vex eins
og illgresi um allt hitabeltið.
ekki lokið, en margir hafa
verið handteknir, flestir
Bandaríkjamenn. — Meðal
hinna handteknu er jazz-
söngvarinn Nat Russel,
handarískur negri, sem búið
hefur í Kaupmannahöfn síð-
ustu árin og er kvæntur
danskri stúlku. Er hann sak-
aður um að hafa dreift síg-
arettunum í Kaupmanna-
höfn.
• HVAÐ ER MARIHUANA?
En hvað eru marihuana sígarett
ur og hverjar eru verkanir
þeirra?
Það er nokkur huggun að al-
mennt er ekki erfiðara að venja
sig af neyzlu þeirra en venjulegs
tóbaks. Og að áhrif marihuana
reykinga eru venjulega horfin
eftir góðan nætursvefn. En það
hættulega við þetta eitur er að
þeir sem eru undir áhrifum þess
geta framið tilefnislaus ofbeldis-
verk jafnvel morð, og virðast eft
ir á svo til hafa gleymt gjörðum
sínum. Þar sem það er aðallega
ungt fólk, sem fellur fyrir freist-
ingunni að reyna þetta eitur, get-
ur það oft orðið til þess að eyði-
leggja lofandi framtíð.
• HASHISH
Margir kannast betur við
marihuana eitrið undir nafninu
hashish. Eitrið er unnið úr hamp-
plöntum. Aðallega er þess neytt
í sígarettum, en á þann hátt
verða áhrifin mest. Fljótlega eft
ir að kveikt er í sígarettunni, er
neytandinn kominn undir áhrif,
og ef hann er fær um að hugsa
getur hann hamið áhrifin eftir
því hve ört hann reykir.
• TRUFLUN Á SKYNJUN
Eitrið verkar á stórheilann, og
þótt áhrifin séu nokkuð misjöfn
og fari eftir einstaklingum,
breytist þó skynjunin. Fljótlega
eru menn gripnir hugarburðar-
tilfinningu og flestir einnig vellíð
an. Dauf hljóð heyrast hátt og
Nat Russell, bandarískt dægur-
lagasöngvarinn, sem nú er i
haldi í Kaupmannahöfn.
venjuleg birta virðist blindandi,
Herbergið, sem setið er í, verð-
ur skyndilega að stórum sal, góit
ið hallast, andlit verða t. d. fer-
hyrnd eða þríhyrnd, fæturnir
verða þyngdarlausir og þó virð-
ast þeir ótrúlega stórir. Menn líta
léttum augum á öll vandamál lífs
ins og sjá undursamlegar, litrikar
sýnir.
• OFBELDISÞÖRF
Venjulega eru áhrifin þægileg.
En einnig geta birzt óhugnanleg.
ar sýnir. Einkennandi fyrir
marihuana neyzlu er skyndilegt,
óstöðvandi hláturskast. Ef eitrið
er tekið í stórum skömmtum,
missir neytandinn sjálfsstjórn og
getur án minnstu ástæðu framið
ofbeldi.
Þessi skyndilega þörf fyrlr að
fremja ofbeldi er óviðráðanleg.
Vitað er um að vísindamenn,
sem hafa verið að rannsaka áhrif
marihuana eitursins, hafa allt í
einu og af öllum mætti reynt að
skera sjálfa sig og aðra á háls.
Mesta hættan við neyzlu
marihuana er hin skyndilega
óstöðvandi þörf fyrir að fremja
afbrot. Margir afbrotamenn
reykja í sig kjark til að fremja
fyrirfram ákveðið morð, og af-
saka sig svo eftir á með að þeir
hafi ekki vitað hvað þeir gerðu,
því þeir hafi verið undir áhrif-
um eiturlyfs.