Morgunblaðið - 04.12.1960, Blaðsíða 8
8
MORGVNBL 4Ð1Ð
Sunnudagur 4. des. 1960
Bðrn eru góðir
kirkjugestir
Kirkjan hefur á öllum öldum lát
ið sér annt um að ná til yngstu
þegna þjóðfélagsins með boð-
skap sinn. Nægir í því sambandi
að minna á hina merkilegu setn-
ingu kaþólskra, að ef þeir fái að
sjá um uppeldi barnanna til sjö
ára aldurs hafi þeir ekki á-
hyggjur af þeim úr því. Telja
þeir, að svo lengi búi að fyrstu
gerð.
íslenzka þjóðkirkjan lætur sér
einnig annt um uppfræðingu
barnanna og í hverri viku má
lesa auglýsingar frá prestum um
kristilegar samkomur eða knsti-
legar kvikmyndasýningar fyrir
börn. 1 nokkrum kirkjum höfuð-
borgarinnar eru auglýstar bama
guðsþjónustur á hverjum sunnu
degi og einn sunnudaginn fór
fréttamaður Mbl. til að sjá
hvernig þessar guðsþjónustur
færu fram.
Kórinn svaraði prestinum þegar farið var með víxlsönginn.
(Myndirnar tók Matthías Frímannsson)
Börnin virðast ekki undir
sömu sök seld og fullorðna fólk-
ið hvað snertir lélega kirkju-
sókn. Nokkru át'ur en messan
skyldi hefjast tóku þau að hóp-
ast til kirkjunnar. Þau gengu
stillilega inn í anddyrið og þágu
Biblíumynd hjá dyraverðinum.
Svo fóru þau inn, fengu sér
sálmabók og settust. Brátt var
kirkjan nær þéttskipuð litlum
prúðum börnum. Yngstu börnin
komu í fylgd með mömmu sinni
eða einhverri frænku, sem hafði
verið svo góð að fara með þeim.
Messan fór fram á svipaðan
hátt og hjá fullorðna fólkinu.
Presturinn las guðspjall og pistil
frá altari og barnakór tók undir
víxlsönginn. Þegar sálmarnir
voru sungnir var einnig tekið
undir á kirkjubekkjunum, en
minnstu börnin, sem ekki kunnu
að lesa, héldu sálmabókinni borg
inmannlega og reyndu að raula
m’eð.
- 1
M
Nútíma kona vill
nýtízku saumavél
Aldrei áður hefir verið svo ánægjulegt og auðvelt að sauma. Allan daglegan
saumaskap gerið þér með Husqvarna Automatic. Hún saumar beinan saum,
teygjanlegan saum, ,hnappagöt‘ zig-zag, sjálfvirkt mynstur, rykkir, bætir,
stoppar, varpar saum, blindfaldar, festn tölur o. fl. o. fl.
Husqvarna er auðveld í meðförum, fjolbreytt notagildi, sænsk framleiðsla.
Kynnist vélinni og reynið hana og ef þér veljið Husqvarna hafið þér tekið
ákvörðun, sem þér munuð aldrei iðrast.
HAGKVÆMJR G REIÐ S LU S KILM Á L AR
Husqvarna kostir
Hringskytta, sem gefur fullkomið öryggi að tvinninn
flækist ekki, skyttuna þarf aldrei að smyrja.
Vélin er steypt í heilu lagi, sem tryggir nákvæmni í
notkun.
Innbyggður hraðastillir í vélina gerir mögulegt við
mynstursaum og hnappagöt að sauma mjög hægt, spor
fyrir spor.
Þér stjórmð vélinni með hraðastilli á gólfinu, sem vinnur
mjög mjúkt.
Kennsla fylgir i kaupunum.
Það er leikur að sauma ú
IHusqvarna flutivnaZto
Einkaumboð:
GUNNAR ÁSGEIRSSON H.F.
Suðurlandsbraut 16 — Sími 35200.
Ga
Nær hvert sæti var skipaö.
Stilltir og alvarlegir kirkjugestir.
SKREYTING AR
GÖTU SKRE YTING AR
SKREYTINGAREFNl
VAFNINGAGREINAR
í mctratali
Gróðrastöðin við Miklatorg. — Símar 22822 og 19775.
PILTAR, =
EFÞlÐ EIGIÐ UNNUSTUNA
ÞÁ Á ÉG HRINGANA j
fádrtón tísmt/fikssoríA f