Morgunblaðið - 04.12.1960, Side 24

Morgunblaðið - 04.12.1960, Side 24
20 DAGAR TIL JÓLA [20 DAGAR TIL JÓLA 279. tbl. — Sunnudagur 4. desember 1960 Fyrsta vetrar- veðrið nyrðra Bylur og slydduhrlð frá Vest- fjörðum til Héraðs t G Æ R var eiginlega fyrsta vetrarveðrið á þessu ári víða um land og því búizt við að erfiðir fjallvegir, sem víða hafa haldizt opnir miklu lengur en venjulega, mundu nú lokast. Blaðið hafði sam- band við þrjá fréttaritara sína, einn á Vestfjörðum, annan fyrir miðju Norður- landi og þann þriðja á Hér- aði og fékk eftirfarandi fregnir: Breiðadalsheiði aldrei fær svo Iengi 1 Bolungarvík var bylur og slydduhríð, fyrsti reglulegi snjór inn á vetrinum. Fram að þessu hafa fjallvegir verið færir og í fyrradag kom til Bolungarvíkur bíll úr Reykjavík. Hefur vegur- inn yfir Breiðadalsheiði aldrei verið fær svo lengi fram eftir vetri, en hann er í 611 m hæð, sem kunnugt er. Á Siglufirði var bleytuslydda og stormur í gærmorgun Ekki kominn nema lítill snjór í bæinn, en snjór er í fjöllum. Siglufjarð- arskarð er lokað, hafði það ver- ið opnað fyrir nokkrum dögum áður, en lokazt strax aftur. Flugfarþegar bíða Á Egilsstöðum á Héraði var komin NA-snjókoma í gær. Lítili snjór er í byggð, en mikill snjór á Fjarðarheiði og hún ófær. Aftur á móti komu bílar til Eg- ilsstaða frá Reyðarfirði í gær, og er Fagridalur því ekki lokað- ur enn. Á Egilsstöðum biðu í gær nolkkrir fapþegar, sem ætluðu flugleiðis þaðan, en ekki hefur verið flogið siðan á þriðjudag. Veiðir svartfuglinn á við hundruð togara? Merkilegar rannsóknir erlendra fiskifræðinga A FIMMTUDAGINN var flutti Guðmundur Jörundsson útgerðarmaður fróðlegt og ýtarlegt erindi á fundi í Verzlunarráðinu um ýmsa þætti sjávarútvegs lands- manna. Einn þáttur erindis- ins fjallaði um verndun fiski- stofnanna hér á landi. Ræddi Vetrarhjálpin að hyrja Úthlutað á 4. hundrað Jbús. / fyrra VETRARHJALPIN í Reykja vík hefur hafið starfsemi sína og hefur hún skrifstofu í Thorvaldsensstræti 6, eins og undanfarin ár. Verður tek ið þar á móti gjöfum til starf seminnar, bæði peningum og fatnaði og afgreiddar hjálpar beiðnir. • FatnaSur og matvæli Sl. ár var úthlutað fyrir á 4 FRAMHALDSAÐALFUNDUR félagsins verður haldinn í Val- höll mánudagskvöld 5. des. kl. 8.30 s.d. Á fundinum verða af- greiddar tillögur til breytinga á lögum félagsins og eru félags- menn hvattir til að fjölmenna á fundinn. hundrað þúsund kr. til um 650 einstaklinga og fjölskyldna. Að vísu var ekki um að ræða úthlut un fyrir háar upphæðir í hvern stað, en reynslan hefur þó sýnt, að þessi glaðningur Vetrarhjálp- arinnar hefur oft komið í góðar þarfir. Þess skal getið að Vetrar- hjálpin úthlutar aðeins matvæl- um og fatnaði og Öðrum brýn- um nauðsynjum, og þessi hjálp er aðeins ætluð þeim, sem ekki eru á opinberu framfæri. Um úthlut- un fatnaðar er höfð samvinna við Mæðrastyrksnefnd. • Skátar fara í hverfin Skátar munu, eins og áður, heimsækja bæjarbúa um miðjan mánuð, og taka á móti framlög- um þeirra til Vetrarhjálparinnar. Þá mun og skrifstofa Vetrarhjálp arinnar í Thorvaldsensstræti 6, taka á móti framlögum fólks og veita allar nauðsynlegar upplýs- ingar um starfsemina. Sími Vetrarhjálparinnar er 10785. Stjórn Vetrarhjálparinnar skipa sr. Óskar J. Þorláksson, dómk. prestur, Kristján Þorvarðs son, læknir og Skúli Tómasson, yfirframfærslufulltrúi, en dag- lega afgreiðslu annast Magnús Þorsteinsson. skrifstofumaður. hann í því sambandi um at- hyglisverðar athuganir, sem fram hefðu farið á því að svartfuglinn sé skaðvaldur á hrygningarsvæðum. GUNNAR Guðjónsson formaður Verzlunarráðsins kynnti Guð- mund Jörundsson fyrir hinum fjölsótta fundi. Guðmundur hóf mál sitt með því að segja það sína skoðun að sér þætti það ákaflega miður að verzlun og útgerð hefðu á und- anförnum árum fjarlægzt hvort annað, en það hefði einmitt oft sýnt sig að í misjöfnu árferði afla og viðskipta gætu þessir tveir atvinnuvegir stutt hvorn annan. Veiðitæknin Fyrst ræddi Guðmundur Jör undsson um þróun veiðitækninn- aL hvernig t. d. nælon hefði rutt úr vegi baðmull i gerð síldar- nóta og þorskneta. Öll hin nýju hjálpartæki í skipunum til leitar að fiski. Allt hefði þetta haft í för með sér stórkostleg útgjöld fyrir útgerðir skipanna. Taldi ræðumaður í þessu sambandi svo^ komið skiptingu afla milli út- gerðar og áhafnar, emkum a síldveiðum, að þar værí ekki lengur um neinn raunhæfan grundvöll að ræða. Hinn stórlega aukna útgerðarkostnað, svo sem leitartæki og nælonnót sem kost ar um hálfa milljón, verður út- gerð fiskiskipanna að borga, þó í hennar hlut komi aðeins um 45% af aflaverðmætunum. Hrygningarsvæðum lokað Þá ræddi Guðmundur um fiski verndina hér við land. Taldi hann að íslendingar ættu að leggja þar meira af mörkum sjálfir. Það þyrfti að friða til skiptis hrygningarsvæðin við suðvesturströndina, og banna allar veiðar á þeim, meðan ver- ið er að hvíla þau. Svartfuglinn skaðvaidur Þá sagði hann fundarmönnum frá mjög athyglisverðum athug- unum þýzkra og brezkra fiski- fræðinga. Hefðu þeir komizt að þeirri niðurstöðu, að svartfugl- inn er ægilegur skaðvaldur á hrygningasvæðum. Langvíur sem fiskifræðingarnir skutu í rann- sóknarskyni, sýndu að í maga Framh. á bls. 23 t GÆR hófust fyrstu skipu- lögðu skíðaferðirnar frá Reykjavík á þessum vetrl og farið bæði að skíðaskálanum Hveradölum og í Skálafell. 1 Síðdegis fékk blaðið þær 1 fregnir ofan úr Skíðaskála að þar væru um 50 manns að leika sér á skíðum í ágætu veðri og sæmilegu færi. Væri 1 að vísu heldur lítill snjór, I en með kvöldinu værl spáð meiri snjókomu. Gerðu menn sér því vonir um að dagur- inn í dag yrði ennþá hagstæð ari skíðamönnum. Ágæt færð var á veginum uppeftir í gær, fært öllum bílum stórum og i smáum. (Ljósm.: SigurSur HarSarson). Glæsilegt bornaheimili opnað í GÆR var opnað í Reykjavfk nýtt og veglegt dagheimili á veg um Reykjavíkurbæjar og Barna. vinafélagsins Sumargjafar. Það er til húsa í nýrri byggingu að Fornhaga 8 og nefnist Hagaborg, en Reykjavíkurbær afhendir Sumargjöf þá byggingu fuli. gerða í skiptum fyrir húseign- ina Tjarnarborg. Dagheimilið er i fjórum deild- um, ætlað fyrir 85 börn. Gestum og fréttamönnum var boðið að skoða heimilið í gær og siðan til kaffidrykkju að Skúlatúni 2, Þar fluttu ávörp Geir Hallgríms son, borgarstjóri, Páll S. Páls son, formaður Sumargjafar og ís ak Jónsson, skólastjóri. Verður nánar sagt frá dagheimilinu á þriðjudaginn. Biluð flugvél manns lenti í með 118 Keflavík KEFLAVÍKURFLUGVELLI, 3. des. Hér bíða nú 118 manns eftir því að fá að vita hvort gist verð- ur hér á flugvellinum, eða hvort hingað kemur flugvél til að taka það og flytja á ákvörðunarstað, í Hollandi. Það bar við um kl. 8.30 í morg un, að háloftsfar af Bristol Britannia-gerð, lenti hér á flug- vellinum, vegna bilunar á einum fjögurra hverfihreyfla. Þessi ílug vél er frá kanadiska flugfélaginu Canadian Pacific Airlines og var hún á leið til Amsterdam frá Vancouver 1 Kanada. Voru með flugvélinni alls 118 manns, fólk af ýmsu þjóðerni. Flugstjórinn á þessari stóru flugvél hafði ætlað að fljúga án viðkomu frá Syðra-Straumfirði í Grænlandi til Amsterdam. Á milli íslands og Grænlands hafði einn hreyflanna bilað og ákvað hann þá að hætta við hið beina flug til Amsterdam, en lenda í Keflavík. í gær snjóaði hér þó nokkuð, síðar gerði rigningu og í nótt frysti. VorU flugbrautir því flug hálar í morgun og lendingaskil- yrði slæm. Var sandi ekið á lengstu brautina. Auk þess hafði hin kanadiska flugvél flogið á sjó út, hér fyrir vestan flug. völlinn og tæmt af eldneytis- geymum fleiri þúsund lítrum af eldsneyti til að létta flugvélina og gera lendinguna í senn auð veldari og hættuminni. Tókst lendingin vel. Farþegar eru hér á flugvallar hótelinu í dag og er ekki vitað þegar þetta er skrifað hvort hægt verði að framkvæma við- gerð á hreyflinum hér eða hvort send verður önnur flugvél frá Amsterdam til að taka farþeg- anna, svo þeir verði ekki fyrir frekari töfum. — B. Þ.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.