Morgunblaðið - 10.01.1961, Side 5
Þriðjudagur 10. janúar 1961
MORGUNBLAÐIÐ
Hafnarfjörður
Herbergi til leigu að
Hverfisgötu 20. — Uppl.
á staðnum.
Bamlaust kærustupar
óskar eftir einu til tveimur
herb. ag eldhúsi. UppL í
síma 36021.
Ógangfær
lítill sendiferðabíll til sölu,
mánaðargreiðslur. — Sími
11817.
Sendum heim
Sími 12693.
Jafetsbúð
Fálkagötu 13
Til leigu
forstofuherb. í Hálogalands
hverfi. Uppl. í síma 36832.
Sauma gardínur
Sími 35015 — 22977.
Hráolíuofnar
fyrirliggjandi. Uppl. gefur
Haraldur Ágústsson, —-
Framnesvegi 16, Keflavík.
Sími 1467.
V élritunarnámskeið
Sigríður Þórðardóttir
Sími 33292
Bílkrani til leigu
Sími 33318.
Gott stuttbylgjuæki
óskast, þarf að hafa vel
merkt amatöra bylgjusvið.
Uppl. í glerslípun h.f. Egils
V ilhj álmssonar.
Klæðaskápur
óskast til kaups. Uppl. í
síma 33749.
Góð frambretti
á Chevrolet ’41 fólksbíl. —
Einnig ýmislegt í ’47. Uppl.
í síma 32921 e.h. í dag
Get bætt við mönnum
í fast fæði, við Laugaveg.
Uppl. í síma 23902.
Múrari
getur tekið að sér vinnu á
kvöldin og um helgar. —
Uppl. í síma 13698.
Þýzku og ensku
kennir
Halldór P. Dungal
Sólheimum 23 II.
Sími 36522
2ja herb. íbúð
óskast. Tvennt í heimili.
Tilb. leggist inn á afgr.
Mbl. fyrir fimmtudagskv.
merkt: „Reglusemi 1206"
Fast starf
Ungur maður getur fengið starf við lyfjagerð. —■
Umsóknir ásamt upplýsingum um fyrri störf og
menntun, sendist Lyfjaverzlun ríkisins, Hverfisgötu
4—6, fyrir fimmtudag n.k.
— Radialsög
til sölu
G. Þorsteinsson & Johnson hf.
Grjótagötu 7 — Sími 24250
BLOÐ OG TIMARIT
Sveitarstjórnarmál, 6. hefti 1960, hef
ur nýlega borizt blaðinu. Efni þess er
m.a.: Fundargerð fulltrúafundar kaup-
staða á Vestur-, Norður- og Austur-
landi. Yfirlit um helztu tekju- og
gjaldaliði sveitarfélaga árið 1958 (frh.)
Sveitarstjórnarfréttir, Alþjóðaþing
sveitarstjórna 1961, Breytingar á al-
mannatryggingalögum o. fl.
Veðrið: Komið er út 2. hefti 5. árg.
af Veðrinu, sem Félag ísl. veðurfræð
inga gefur út. Þar skrifar Páll Berg-
þórsson um sumarmisserið 1960, Adda
Bára Sigfúsdóttir um daglegar hita-
breytingar, Hlynur Sigtryggsson um
teikn á himni, Flosi Hrafn Sigurðsson
um Nýjar úrkomumælistöðvar á Suð-
urlandsundirlendi, Jónas Jakobsson
um hitastig yfir Keflavík og auk þess
eru ýmsar smærri greinar um veður-
far.
Um Norðurlönd: Hotary klúbbarnir
á Norðurlöndum hafa gefið út smekk
legan pésa á ensku um þessi lönd
fimm, til þess að ætlaðan að fólk geti
aent hann til vina sinna erlendis. —
Hefst heftið á greinargerð um Norður-
lönd og síðan er ein stutt grein um
hvert land með fallegri mynd. Grein-
ina um ísland skrifar sr. Óskar J.
Þorláksson.
Jökull, ársrit Jöklarannsóknarfélags
íslands er komið út. Hefst það á grein
á ensku ,,Micro Meteorlogy over Dirt
Cuned Ice“ eftir Hal Lister. Þá eru í
því grein eftir dr. Sigurð Þórarinsson
um möguleika á þvl að segja fyrir um
næsta Kötlugos, skýrsla um mælingar
á Tungnaárjökli eftir Steingrím Páls-
son, um Skeiðarárhlaupið og umbrotin
1 Grímsvötnum 1945 eftir Jóhannes Ás-
kelsson, Göngin 1 Hrútárjökli eftir
Flosa Björnsson, sagt er frá fjórum
Vatnajökulsferðum árið 1959, grein á
ensku um ís við íslandsstrendur eftir
Jón Eyþórsson, sem einnig skrifar um
jöklabreytingar 1957—1959. Ýmislegt
fleira er í ritinu, sem prýtt er fjölda
fallegra mynda.
Matargerðarlistin nær hámarki..,
—o—
Húsmóðirin: — Það lýtur út
fyrir vonskuveður, viltu ekki
bíða og borða með okkur kvöld-
mat?
Gesturinn: — Nei, þakka þér
fyrir, svo bölvað er útlitið nú
ekki.
■ '0—
Setztu niður, sagði faðirinn við
son sinn.
— Eg sezt ekki niður fyrr en
mér sýnist, sagði stráksi.
— Jæja, stattu þá, ég vil að
mér sé hlýtt.
Húseigandinn: — Hvenær ætl-
ið þér að borga húsaleiguna?
Rithöfundurinn: — Strax og ég
fæ ávísunina, sem útgefandinn
sendir mér, ef han kaupir sög-
una, sem ég ætla að byrja að
skrifa, þegar ég er búinn að
finna gott efni og er nægilega
upplagður.
— Veiztu hvað er líkt með hon
um bróður þínum og Tarzan?
— Nei.
— Þeir eru báðir apabræður.
Stúlkan hér á myndinni er
íslenzk og stundar náim við
lýðháskóla í Hajerdalen í Sví
þjóð. Sigríður Bjarnadóttir, en
það er nafn stúlkunnar, tók
þátt í skemmtikvöldi, sem
haldið var í skólanum fyrir
skömmu og var hún þar á ís-
lenzkum búning. t fanginu
hefur Sigríður björn, en hann
MYND þessi er frá sjóvinnu-
námskeiði, sem haldið er á
vegum sjóvinnunefndar Æsku
lýðsráðsins. Námskeiðið hófst
í haust, yfir hátíðarnar hefiur
kennsla legið niðri, en í gær-
kvöldi var aftur hafizt handa
að nýju. Námskeiðið er haldið
í félagsheimili Ármanns við
Sigtún og er það húsnæði
áigætt enn sem komið er. 1
framtíðinni er þó gert ráð fyr-
ir að það verði ófullnægjandi,
þar sem mjög mikil aðsókn er
að þessu sinni, bæði byrjendur
frá því í haust og einnig dreng
ir, sem voru á samsvarandi
námskeiði í fyrra. Þeir eru
eins og gefur að skilja komnir
lengra og læra nú hjálp í við-
lögum og vélfræði. Annars er
aðalkennslugreinin hagnýt
vinnubrögð fyrir drengi, sem
hyggjast stunda sjó. Námskeið
þessi þykja hafa tekizt mjög
vel og eru skipstjórar, sem
fengið hafa drengi af nám-
skeiðunium mjög ánægðir með
kunnáttu þeirra.
Söfnin
Listasafn ríkisins lokað um óákv.
tíma.
Þjóðminjasafnið er opið á sunnud.,
þriðjud., fimmtud. og laugard. frá kl.
1,30—4 e.h.
Bókasafn Dagsbrúnar Freyjugötu 27
opið föstud. 8—10 e.h. og laugard. og
sunnud. kl. 4—7 e.h.
Bæjarbókasafn Reykjavíkur sími 12308
Aðalsafnið, Þingholtsstræti 29 A.
tlán: Opið 2—10, nema laugardaga
2—7 og sunnudaga 5—7. Lesstofa:
Opin 10—10, nema laugardaga 10—7
og sunnudaga 2—7.
Útibúið Hólmgarði 34:
Opið alla virka daga 5—7.
Ásgrímssafn, Bergstaðastræti 74, er
opið þriðjud., fimmtud og sunnud. frá
kl. 13.30—16.
Bókasafn Hafnarfjarðar er opið kl.
2—7 virka daga, nema laugardaga, þá
kl. 2—4. — A mánud., miðvikud. og
föstudögum er einnig opið kl. 8—10
síðdegis.
Minjasafn Reykjavíkurbæjar, Skúla
úni 2. Opið daglega kl. 2—4 c.h. nema
nánudaga.
Útsalan byrjar í dag \
r ' ■
Ýmsar gerðir af barnapeysum á mikið
lækkuðu verði. |
Ennfremur nokkur stk. köflótt barnapils
og gallabuxur. — Falleg barnateppi. —
Mjög gott verð. ’
Skólavörðustíg 13 — Sími 17710
\