Alþýðublaðið - 01.12.1929, Blaðsíða 6
6
AfcÞVÐUBBAÐIB
Jm
Beztu tyrtoiesku cigaretturnar í
nðkkum, sem kosta KRÓNUR
20 stykkfa
1,25
eru
(St|érmálamaðnr).
Glgarettur.
TurklsEa
Westmiuster
A. V. í hverjnm pakka eru sams konar fallegar lands
lagsmyndir og í Commander-cígarettupökkum.
Fást í öllum verzlunum.
er STÓKA orðið.
kr. 1,25 á borðið.
Björn bónda, heldur safna liði“.
Er þeim var úthýst úr Garði í
Höfn, ’þá varð þeim litið hingað
heim. Hér eigum við háskóla,
húsnæðislausan ’þó, og svo er
þröngt í leiguskýlum hans, að
séu tímar vel sóttir, verða stú-
dentar að sitja uppi í gluggum
og híma úti í hornum með bæk-
urnar á hnjánum. Og bekkirnir,
sem nemöndum eru ætlaðir til
sætis, eru sumir hverjir reknir
saman úr einum planka og bak-
lausir, og eru því mörgum sinn-
um verri og andstyggilegri en
hinir alræmdu Iðnó-bekkir, sem
allur bærinn vegsamar að skuli
nú loks komnir fyrir kattarnef.
— En háskólinn veitir,. þótt litill
sé og húsnæðislaus, ágæta ment-
un, svo Iangt sem hann nær, því
að við höfum átt því láni að
fagna, að margir ágætir menn
hafa valist í kennarastööurnar,
og er því eðlilegt og sjálfsagt, að
menn sæki þangað nám í þeim
greinum, er hann veitir tilsögn í.
En hvernig eru þá skilyrÖin
til námsvistar hér í Reykjavík?
Það er ekki ofsögum sagt, að
þau eru afar-óglæsileg. Fram-
færsla er hér ölí afar-dýr og
keyrir þó húsaleiga hvað mest
úr hófi fram. Fátækir menn utan
af landi, sem hér stunda nám,
verða að vinna fyrir sér baki
brotnu og missa þannig tímann
frá náminu og heilsuna margir
hverjir, áður en lýkur.
Af öllum þessum ástæðum réðust
stúdentar .í það fyrir nokkruro
árum að safna fjár, til þess að
byggja Stúdentagarð hér í
Reykjavík, sem þeir ættu sjálfir.
Hefir fé verið safnað um nokk-
urra ára skeið og gengið vonum
framar. Þjóðin hefir skilið þýðing
þessa máls og mrgir góðir menn
gerst stuðningsmenn þess. Síð-
ast liðinn vetur grófu stúdentar
og nemendur úr Mentaskólanum
fyrir grunni hins væntanlega
Garðs, og er nú það mikið fé
komið í sjóð, að að eins er
herzlumunur að hægt sé að
halda verkinu áfram. — Það síð-
asta, sem stúdentar hafa gert til
fjárafla, er stofnun happdrættis
til ágóða fyrir Garðinn. Gangj
það vel, verður væntanlega hægt
að byrja á byggingunni næsta
sumar. Um tvo drætti er að
ræða, sem sé 4000 krónur í pen-
ingum og ágætis bifreið, sem er
6500 króna virði, og verður dreg-
ið um þá í júní 1930. Sjá allir,
að hér er ekki um neina skran-
eða skrum-tombólu að ræða. Stú-
déntar hafa sérstaklega einbeitt
sér fyrir fjársöfnun til nýjal
garðsins 1. dezember ár hvert,
daginn,,sem gamla Garði var lok-
að fyrir þeim. í dag halda þeir
þeim hætti og gefa mönnum kost
á að kaupa miða í þessu ágæta
happdrætti og halda mönnum
fjölbreytta en ódýra skemtun í
/Gamla Bíó til ágóða fyrir Garð-
inn. Vonandi bregðast xuenn vel
við einu sinni enn málefni þessu
til styrktar, og menn verða að
iskilja það, að þeir stúdentar, sem
fyrir þessu máli berjast, gera það
ekki í eigin hagsmuna skyni, því
þótt Garðurinn rísi á nfeestu áram,
þá verða langflestir þeirra, sem
(tnest og bezt hafa beitt sér fyrir
’því, horfnir frá námi og fá því
ekki notið þeirra hagsbóta, sem
þessi stofnun á að hafa í för með
sér.
Hér er um málefni að ræða,
sem allar stéttir eiga sameigin-
legt, því að stúdentar eru í sjálfu
sér ekki sérstök stétt, heldur
fulltrúar allra stétta. — En þó
allar stéttir eigi hér hlut að máli,
J)á er þó engum jafn-áríðandi, að
mál þetta fái góðan framgang og
fátækari stéttinni. Við höfum að
vísu heyrt það sagt, að allir eigi
jafnan aðgang að háskólanum,
sem öðrum skólum. Það eru
ósköp falleg orð, en þau era bara
tóm; — það gagnar ekki gáfu-
manni, að honum er ekki beinlínis
bannað að fara í skóla, ef hann
verður samt að sitja heima vegna
fátæktar.
Jónatan Hallvardsson.
Fvú Ss&mdL
V erzlunarólagið.
Fimm ár eru liðin síðan Verk-
lýðsfélag Hellnasands var stofn-
að. Var kaupgjald þar þá mjög
lágt, ‘bæði karla og kvenna. í
fyrra lenti félagið í harðri kaup-
deilu við vinnukaupendur, sem
/endaði með sigri fyrir félagið.
Kaup karla er nú á Sandi kr.
1,05 um klst. í dagvinnu og 1,55
um klst. i eftirvinnu. Kaup
kvenna er 55 aurar um klst. í
dagvinnu og eftirvinna 65 aur. og
eftir kl. 10 að kvöldi 75 aur. En
kaup kvenna í út- og upp-skipun
er 0,75 og 85 aur. á klst. Verk-
lýðsfélag Hellnasands hefir eflst
mjög mikið á þessum fáu árum
og stendur nú föstum fótum þó.
að það hafi haft við marga örð-
ugleika að striða. Mestu og
verstu örðugioikarnir eru verzl-
unarfyrirkomulagið. Á Sandi er
ein af gömlu selstöðuverzlunun-
um, Tang & Riis. Það er hún,
sem hefir flesta viðskiftamenn
þar, enda kann hún lagið á þvi
að fjötra þá fasta á skuldaklaf-
ann með háu vöruverði, eins og
sýnt skal slðar. Verklýðsfélag'
Hellnasands hefir stofnað pönt-
unarfélag, þar sem öllum félags-
mönnum er gefinn kostur á að'
panta nauðsynjavörar sínar, og
hefir það gengið mjög vel. En
það vantar mikið á að allir geti
notað sér pöntunarfélajgið vegna
þess, að peningaútborganir hjá
verzluninni eru mjög af skornum
skamti og fást oft alls ekki,
Gamla svarið: Þeir eru ekki til.
Enda oftast svo vel fyrir öllu
séð af hendi verzlananna, með
háu vöruverði og lágu fiskverði.
að viðkomandi viðskiftamaður sé1
heldur skuldugur en hitt, að hann
eigi inni. Hér fer á eftir sýnis-
horn af vöruverði hjá Tang & Riis:
Rúgmjöl 50 kg. kr. 21,00
Hveiti I. — — — 30,00
Gerhveiti — — — 40,00
Hrísgrjón — — — 30,00
Kandis — — — 44,00
Höggvinn melis — — — 45,00
Haframjöl — -- — 30,00
Strausykur '— 40,00
Kaffi — — 180,00
Alls kr. 460,00
Vöruverð Pöntunarfélagsins er:
Rúgmjöl 50 kg. kr. 16,25
Hveiti I. — — — 24,00
Gerhveiti — —' — 24,00
Hrísgrjón — — 21,50
Haframjöl — — 21,00
Kandis — — — 37,00
Höggvinn melis — — — 32,00
Strausykur —■'■ — — 29,00
Kaffi ’------------- — 143,00
Alls kr. 347,75