Morgunblaðið - 01.06.1961, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 01.06.1961, Qupperneq 3
Fimmtudagur 1. júní 1961 MORVUNBL ÁÐ1Ð 3 KLUK.KAN á slaginu 7 í gær- morgun kom varðskipið Óð- inn til móts við konungsskipið Norge og herskipið Bergen. Þau voru þá komin fyrir Reykjanestána. Veður var dimmt og skyggni slæmt. Svo sem 45 mín. áður höfðu skip- in komið fram á ratsjá varð- skipsins. — Skipsmenn á Óðni voru allir kallaðir upp á þiljur lítilli stundu fyrir 7, og stóðu þeir í heiðursröðum á þyrilvængjuþilfarinu og framan við brúna. Norski fán inn hafði þá verið dreginn að hún á fánastöng yfir rat- sjárspegli. — Eíríkur skip- herra Kristófersson og Gunn- ar Bergsteinsson skipherra stóðu á stjórnpalli, er kon- ungssnekkjan skreið framhjá í 450 m. fjarlægð. Með því að draga norska fánann að- hún, var skipherranum gefið til kynna að yfirstjórnar hans við innsigl inguna til Reykjavíkur. — Yfirmenn og hásetar Lítilli stundu eftir að skipin Óffni stóffu heiffursvörff á þilfari varffskipsins, Reykjavíkur í gærmorgun. eftir komuna Noregskonungur hafði ekki landsýn fyrr en út af Grdttu höfðu mætzt barst skeyti frá skipherranum á Bergen D 304 er bauð Óðin velkomin í „Kongedelingen“. — Nokkru síðar barst Óðni ósk um það að hann tæki forustuna fyrir skipunum. Var Óðinn settur á fulla ferð og fór hann skammt frá skipunum er hann brun- aði framúr þeim. Mátti þá glöggt sjá Noregskonung hvar hann stóð með foringjum skipsins á opnum stjórnpalli skipsins. Var siglt með rúm- lega 15 sjóm. hraða inn undir Gróttu. Magni kom til móts við skipin hjá Gróttu. Þeim varð það á að gleyma að heilsa á Magna. Var augljóst að við því hafði verið búizt á kon- ungsskipinu, þar sem Magni kom veifum prýddur stafna á milli. Þegar hér var komið hafði mikið birt í lofti. Mátti til dæmis glöggt sjá Keili all- ann, þar sem hann reis upp úr svartri auðninni. Þokan byrgði Esjuna og Akrafjall. Búizt hafði verið við því að Magni færi á undan skipunum inn á ytri höfnina. En senni- lega af því hann gleymdi að heilsa, var lítt skeytt um ferð- ir hans um borð í konungs- skipinu og herskipinu, a. m. k. fyrst í stað. Þau héldú fullri ferð lengi vel og Magni dróst langt aftur úr, þó öllu véla- afli hans væri beitt. — Töldu Óðinsmenn sýnt að aldrei hefði Magni komizt í hann krappari, en allt fór vel um síðir, er Magni „stakk sér grunnleiðina" og konungs- skipið hægði ferðina verulega. Magni leiðbeindi því á legu- plássið. Frá skipunum mátti sjá mik’ inn fjölda af súlu er þau sigldu yfir Faxaflóa í gær- morgun. Var það falleg sjón að sjá flug súlunnar rétt yfir haffletinum líkast löngum öldufaldi. — Þá sást stórt mar svín í kjölfari konungsskips- ins, er það var út af Gróttu. Á Óðni veltu menn því fyrir’ sér hvort konungsskipið myndi vera gott sjóskip, og töldu það velta talsvert. Enn það kemur ekki að sök, því Ólafur konungur er allra manna sjóhraustastur, sagði einhver. Þegar skipin sigldu með hægum virðulegum skriði inn á höfnina, birtist Akra- borgin allt í einu á sjónar- sviðinu. Það var engu líkara en að hún myndi ætla að sigla framúr konungsskipinu er það seig inn á lygna ytri höfnina. — En svo var slegið af ferðinna. Þegar skipin þrjú konungs- skipið Norge, Bergen og Óðinn höfðu varpað akkerum, voru fánaborgir dregnar að hún á þeim. — Skipsmenn tóku sér stöðu á þilfari og skömmu fyrir kl. 11 lagði kon- ungsbáturinn af stað- frá Norge. — Sigldi kóngurinn fyrst út að Bergen, en skip- verjar hylltu konung sinn með húrrahrópum er hann sigldi framhjá. Litlu síðar fóru Gunnar Bergsteinsson skipherra yfir í Norge við annan mann og Eiríkur skipherra yfir í Berg- en og bauð skipherranum þar að snæða með sér hádegisverð um borð í Óðni. Þannig skipt- ust hinir norsku og íslenzku sjóliðsforingjar á gagnkvæm- um vinaboðum í skipum sín- um, þar sem þau lágu á ytri höfninni, meðan bæjarbúar fögnuðu Noregskonungi, ný- komnum af hafi. Alþjóðamótinu I Eyjum aflýst? VESTMANNAEYJUM, 30. maí. — „Nú er þaff skuggalegt“, sagffi Steinar Júlíusson, afgreiffslumaff- ur Flugfélagsins. „Illa lízt mér á aff Alþjóða sjóstangaveiðimótið verffi haldiff aff þessu sinni, ef ekki rætist úr meff verkföllin næstu daga“. Steinar hefur f vetur unnið mikið starf til undirbúnings sjó- stangaveiðimótinu og miklu fé hefur verið varið til auglýsinga erlendis. Von var á 60 erlendum þátttakendum í byrjun júní og í Vestmannaeyjum er verið að leggja síðustu hönd á undirbún- ing. „En tvísýnt þykir nú, að hinir erlendu keppendur komizt hing- að svo að ekki er annað sýnt en aflýsa verði mótinu. Er það mjög bagalegt, eins og gefur að skilja. Ekki aðeins vegna þess hve mikið hefur verið starfað í sambandi við undirbúning, held- ur vegna útlendinganna. Mikið orð hefur farið af mótinu, sem hér var haldið í fyrra, en hætt er við þeim fækki, sem áhuga hafa á að sækja mótið næst, þegar það verður haldið", sagði Stein- ar. „Við ætlum þó ekki að láta það falla alveg niður. Ef við af- lýsum Alþjóðamótinu, þá verður það haldið í haust — en í stað þess höfum við í vor lítið mót fyrir íslendinga og Bandaríkja- menn af Keflavíkurflugvelli. Væntum við þess, að 40—50 manns sæki það mót“. Ferð á Eyjaf jallajökul UM NÆSTU helgi efna Farfuglar til ferðar 'á Eyjafjallajökul. Á laugardag verður ekið austur að Seljavöllum og gist þar í tjöld- Á sunnudaginn verður svo genigið á jökulinn. Upplýsingar um ferðina verða gefnar á skrifstofu Farfugla á Lindargötu 50. Á fimmtudagskvöld kl. 9 verða sýndar litskuggamyndir af jökl- inum og nágrenni hans. Reykjavíkur- tinibrið stöðvaði Helgafell TVÖ skip hafa nú bætzt við flot- ann, sem stöðvazt hefur í Reykja víkurhöfn í verkfallinu. Þetta eru Helgafell og Skjaldbreið. Helgafell kom að austan, en þar hafði það losað timbur. Þegar komið var að timburhlöðunum, sem merktir vöru Reykjavík var ekki um annað að gera en sigla hingað. Undir Reykjavíkurtimbr inu er timbur til annarra staða á landinu, sagði einn skipsmanna við fréttamann Mbl. í gær. „En við getum ekki losnað við það fyrr en Reykjavíkur-timbrinu hefur verið skipað upp. Það hefði komið sér betur að setja það neðst á botninn. Skipið hefði þá ekki stöðvazt strax“, sagði hann. STAKSTEIIVAR Afstaða almem .ings til verkfallanna Verkföllin hafa affeins staffiS nokkra daga. Engu aff síður er afstaða almennings tii þeirra J þegar Ijós. Allur þorri fslendinga harmar þessi átök. Þjóðinni er orff iff ljóst, aff allt affrar leiðir verð ur nú að fara i baráttunni fyrir raunhæfum kjarabótum en meff aa atvinnutækin voru frumstæff, arffur af starfi hennar lítill og kaupgjaldið Iágt. Reynsla síffustu ára sannar þetta líka á ótvíræffah hátt. Þrátt fyrir kauphækkanir hafa launþegar ekki bætt kjör sín aff sama skapi og kaupið hefur hækkaff. Hiff stöðuga kapphlaup milli kaupgjalds og verfflags hef ur skapaff dýrtíff og verffbólgu, sem gleypt hefur kauphækkanim ar og dregið úr kaupmætti laun anna. Bæffi hér í Reykjavik og út un* allt land verffur nú vart mikils uggs gagnvart verkföllunum. Mik ill meirihluti þjóffarinnar lítur á þau sem pólitísk hermdarverk, er hafa þann tilgang fyrst og fremst aff torvelda framgang viffreisnar stefnu núverandi ríkissjórnar. ( Sagan endurtekur sig Sagan frá vetrinum 1955 hefur endurtekiff sig. Þá hófu kommún- fctar og fylgiliff þeirra pólitísk verkföll, sem stefnt var gegn þá- verandi ríkisstjóm. Þau verkföll voru löng og hörff en meff þeim var knúin fram wmiísj grunn kaupshækkun. Afleiffing þeirrar kauphækkunar varff sú aff kaup- gjald í landinu hækkaffi aff meffal tali um rúml^a =■£■;« á árinu. Af því leiddi síffan stórfelda verff- bólguöldu og kapphlaups milli kaupgjalds ©g verfflags. Þegar vinstri stjórnin tók viff völdum ái miðju ári 1956 lét hún þaff verffa sitt fyrsta verk aff taka meginthluta kauphækkunarinnar frá 1955 af fólkinu aftur. Jafnvel kommúnistar treystu sér þá ekki til þess að mótmæla því aff fram- leiffslan gat ekki boriff þessa kaup hækkun. Hún hafffi heldur ekki orffiff launþegum aff því gagni, sem haldiff hafffi veriff fram, meff an á verkföllunum stóff. Innstæður bænda aukast f síffasta „íslendingi“ er m.a. komizt aff orði á þessa leiff: „Mjög var ritstjóra Dags tamt aff ala á því í fyrrasumar og raun ar allt fram eftir vetri, aff efna- hagsráffstafanir ríkisstjórnarinn- ar kæmu eurkum hart niður á bændum og myndu þeir flosna upp af jörffum sinum hópum sam- an. Þá kannast allir viff barlóm Karls Kristjánssonar alþingis- manns, er hann líkti ástandinu viff Móff uharðindin! Spá þessara maima effa öllu heldur óskhyggja hefur þegar lát iff sér til skammar verffa. Þing eyskir bændur stórauka innstæff ur sínar hjá Kaupfél. Þingeyinga og Dagur segir, eftir aff hafa skýrt frá því aff eyfirskir bændur fái meira en verfflagsgrundvallar verff fyrir framleiffslu síðastliff- ins árs: „Þessi niffurstaða hlýtur aff teljast mjög hagstæff og bænd um gleðiefni.“ Þessi ummæli málgagns Fram sóknarflokksins á Akureyri stinga vissulega mjög í stúf viff hallærishjal Karls Kristjánsson ar. Sannleikurinn hrekkur ein- staka sinnum upp úr blöðum Framsóknar. En þaff er vanalega óvart og oftast taka þau þá um- mæli sín aftur. Svo áskapað er þeim aff segja ósatt.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.