Morgunblaðið - 01.06.1961, Síða 9

Morgunblaðið - 01.06.1961, Síða 9
Fimmtudagur 1. júnl 1961 MORCl’NBL 4Ð1Ð 9 Frelsi mannkynsins er hinn þoglí gestur við viðræðuherðið í Vín MIKIL leynd hefur hvílt yfir fyrirætlunum Nikita Krúsjeffs, forsætisráðherra Sovétríkjanna 1 sambandi við ferðalag hans um kommúnistaríkin Úkraníu og Tékkóslóvakíú sem áningastaði á leiðinni til Vínarborgar, þar sem hann á fyrir höndum viðræður við Kennedy, Bandaríkjaforseta. Hefur verið talið, að hann hyggð ist halda sérstakan fund með leið togum kommúnistaríkjanna i Austur-Evrópu einhversstaðar á leiðinni — þá sennilega í Brati- slava í Tékkóslóvakíu — og ráðg azt við þá áður en hann ræddi við Kennedy. En samkvæmt síð ustu fregnum frá Tékkóslóvakíu virðist enginn slíkur fundur fyrir hugaður. Er haft eftir talsmanni tékkneska utanríkisráðuneytis- ins, að Krúsjeff muni einungis ræða við Antoinu Novotni, for- seta Tékkóslóvakíu. Þá er það haft eftir góðum heimildum í Prag, að það sé „meira en hugsanlegt", að al- mennur kommúnista-„toppfund- ur“, eins og talað hefir verið um, verði haldinn eftir viðræð- ur þeirra Krúsjeffs og Kenn- edys í Vínarborg — enda gef- ist þá betri tími til viðræðna en nú. Krúsjeff heldur til Vín- arborgar árla á föstudagsmorg- un, og er því skammur tími til steínu. Það virðist almenn skoðun stjórnmálamanna sem annarra — jafnt á Vesturlöndum sem í Austur-Evrópu, að Þýzkalands- málið og Berlínarmálið muni mjög bera á góma í viðræðum, þeirra Krúsjeffs og Kennedys. Til þess benda meðal annars við- ræður Kennedys við Macmillan, Adenauer og nú við De Gaulle og viðræður Novotnis, við Krús- jeff og Ulbricht, forsætisráðherra Austur-Þýzkalands, sem var ný- lega á orlofsferð í Tékkóslóva- kíu. Vestrænir stjórnmálasérfræð- ingar í Moskvu telja, að Krúsjeff muni fara hægt í sakirnar í Berlínarmálinu um sinn og ekki setja það mál á oddinn í sumar. Benda þeir meðal annars á, að hann muni ekki kæra sig um, að 22. flokksþing kommúnista, sem, halda á í Moskvu í október nk., hverfi í skugga svo mikilvægs ista, Izvestia, þar sem rætt var um hina „storkandi“ fyrirætlun V-Þjóðverja, að ætla að kalla þing sitt saman x Berlín. Kvart- ar blaðið mjög undan því, að ráð- herrar V-Þýzkalands ferðist tíð- um til Berlínar en slíkt háttalag kunni mjög að hafa hættur í för með sér. Kennedy sjálfur hefur látið hafa eftir sér, að ástæðan fyrir því, að hann fari nú til Vínar- borgar til fuhdar við Krúsjeff sé fyrst og fremst sú, að þeir séu fulltrúar þjóða, sem báðar séu velbúnar kjarnorkuvopnum og beri því brýna nauðsyti til að þeir hittist og skýri skoðanir sínar hvor fyrir öðrum. Hann sagði ennfremur í ræðu um sl. helgi, að hinn þögli gestur við viðræðuborðið þeirra yrði frelsi mannkynsins. Kennedy fylgja mörg ráð reyndra manna. Ekkert skortir á, að Kennedy fari til þessa fundar velbúinn ráðleggingum bandamanna sinna — en dálítið vill bera við að forystumenn Vesturveldanna greini á um hver sé beztur hátt- ur á viðræðum við Krúsjeff. Tímaritið U.S. News & World MacmiIIan: — Verið tungu- mjúkur og talið mikið við Krús- jeff sjálfan. Eigið einhver tromp á hendi en leynið þeim vel. Adenauer: — Hliðrið í engu til við Krúsjeff um framtíð Berlín- ar. Munið, að Krúsjeff virðir sjálfsöryggi og þrjózku. Verið hæfilega kumpánlegur — þá kann yður að verða eitthvað ágengt. De Gaulle: — Verið rólegur en ákveðinn við Nikita Krúsjeff. Leynið ekki „trompum" yðar. Gerið það fullkomlega ljóst, að Bandaríkin hafa yfir að ráða vetnisafli og muni beita þvi, ef með þarf, til þess að halda stöðu sinni í Vestur-Berlín. — ★ — Ráð de Gaulle, Frakklandsfor- seta hafa ef til vill einna mest á hrif á það hvernig Kennedy hag ar viðræðunum við Krúsjeff. Við ræður þeirra Kennedys og de Gaulle höfðu verið ákveðnar 31. maí til 2. júní í París og tilkynnt- ar opinberlega, áður en Krúsjeff féllst á uppástungu Kennedys um viðræðufund þeirra í Vínarborg. Og það var ekki fyrr en Kenne- dy hafði ráðgazt um það við de Gaulle, að hann ákvað fund þeirra Krúsjeffs 3. júní. De Gaulle, sem er orðinn sjö- tugur að aldri og mjög svo reynd- ur stjórnmálamaður, er albúinn að gefa Kennedy hver þau ráð, sem hann óskar, varðandi við- ræður við Krúsjeff. De Gaulle er þeirrar skoðunar, að Kennedy verði að nota tækifærið á«Vínar- fundinum til þess að fullvissa Krúsjeff um, að hik Vesturveld- anna við að berjast á stöðum eins og Laos breyti engu um ákvarð- anir þeirra og staðfestu þegar um mikilvæga staði er að ræða, svo sem Berlín. De Gaulle telur, að skammt undan sé mikil hætta búin Vest- urveldunum og hinum frjálsa heimi. Hann lítur að nokkru á Krúsjeff sem vindhana, sem er uppblásinn af stolti yfir því að hafa sent mann • út í geiminn, stöðugur í sigurvissu kommún- ista í Laos og hæðinn vegna mis- taka Bandaríkjamanna í Kúbu- málinu. Krúsjeff hefur þegar varað við pólitísks ágreiningsmáls. Hins vegar er engin vissa fyrir hendi í þessum efnum, enda benda sumir á það sem aðdraganda stórra tíðinda, að Rússar hafa nú nýlega rofið menningarsamskipti, sem komið hafði verið á milli þeirra og Vestur-Þjóðverja. Vest ur-Þjóðverjar höfðu krafizt þess, að Berlín yrði aðili að þeim menningarsamningi, en Rússar neitað og hætt við allt saman. Ennfremur benda menn á grein, sem birtist í málgagni kommún- Report birti í síðasta hefti grein sem, fjallar um þessi margvislegu ráð hinna reyndu forystumanna Bretlands, Þýzkalands og Frakk- lands og fylgir sú grein hér á eftir í lauslegri þýðingu. ★ Þ e g a r Kennedy, forseti, fer til fundar við Krúsjeff í Vínar- borg fylgja honum mörg ráð helztu forystumanna Vesturveld anna. Kjarni ráðlegginga þeirra helztu, Macmillans, Adenauers og De Gaulle er þessi: því, að nú sé úirunninn sá trest- ur, er hann hafi gefið Vestur- veldunum til svars við kröfum hans í Berlínarmálinu. Hann hót ar nú að gera sérstakan friðar- samning við Austur-Þýzkaland, sem geri því fært að þröngva Vesturveldunum út úr Berlín. Þar að auki álítur de Gaulle, að sú skoðun Bandaríkjamanna, að nauðsynlegt sé að efla þær her- sveitir, sem búnar séu venjuleg- um vopnum, gefi Krúsjeff ástæðu til að ímynda sér, að Vestur- veldin muni ekki beita kjarn- orkuvopnum. Með þessa skoðun á Krúsjeff vill de Gaulle, að Kennedy geri það algerlega ljóst, að Vestur- veldin séu reiðubúin styrjöld — kjarnorkustyrjöld ef nauðsynleg er — til þess að verja Berlín. Frakklandsforseti vill, að Banda ríkjaforse$i segi forsáetisráðherra Sovétríkjanna, að Bandaríkin standi að baki þeim orðum, er de Gaulle lét sér um munn fara fyrir tveim árum, er hann sagði: Ameríka, England og Frakkland munu ekki leyfa neinum að hindra flutninga hermanna til og frá Berlín. Reyni einhverjir að- ilar að hindra þá flutninga eru þeir þar með að fremja óvinsam- legt athæfi gegn Vesturveldun- um og eru ábyrgir fyrir af- leiðingunum. Ráð de Gaulle beinast einkum að Berlínarmálinu, því að þar sér hann mesta hættu á því, að styrjöld brjótist út vegna mis- skilnings. Til þess að koma í veg fyrir hugsanlegan misskilning vill de Gaulle, að Kennedy brýni eftirfarandi fyrir Krúsjeff: • 1. Ef Austur-Þjóðverjar blandi sér 1 samgöngur Vesturveldanna . til Berlínar muni ekki aðeins verða hafnir flutningar í lofti, heldur muni Vesturveldin setja viðskiptabann á Austur-Þýzkaland. • 2. Ef A-Þjóðverjar hætti á að skjóta niður flugvélar Vesturveldanna, muni þau svara þeirri skothríð í sömu mynt. • 3. Ef sovézkur herafli blandi sér í slík viðskipti hvort heldur er á landi eða í lofti, verði þar með hafin styrj- öld. • 4. Ef styrjöld hefjist milli bandarískra og sovézkra her- sveita megi eins búast við kjarn- orkustyrjöld, — Vesturveldin hafi ekki aðeins kjarnorkuvopn helóur séu reiðubúin að beita þeim ef þurfa þykir. De Gaulle telur, að þá fyrst er Krúsjeff hefur verið gerð ljós afstaða Vesturveldanna í Berlín- armálinu, eigi Kennedy að hefja máls á öðrum vandamálum. Varð andi slík mál skortir hinn franska forseta heldur ekki ráð. Samvinna eða kalt stríð. Um Laos gæti de Gaulle sagt: — Hvað sagði ég ykkur ekki? — í þrjú ár hefur hann haldið því fram, að ógerlegt sé að koma á andkommúnísku skipulagi í Laos. Nú telur hann jafnvel of seint að koma á hlutlausu Laos, en þó sé ómaksins vert að reyna. Varðandi Suður-Vietnahm er skoðun de Gaulle þessi: Eyðið ekki tíma, fé og kröftum til þess að berjast gegn skæruliðum — allra sízt með bandarískum her- mönnum. Látið stjórnina bjóða einhverjum af forystumönnum stjórnarandstöðunnar í sinn hóp og látið Krúsjeff vita, að þið séuð þarna enn. De Gaulle er þeirrar skoðun, . að Bandaríkjamenn hafi bfeytt óviturlega í Kúbumálinu — m.a. vegna þess að þeir voru einir á báti. Hann ráðleggur þolinmæði og hæglyndi og vill að Krúsjeff verði sagt, að annaðhvort skuli hann standa utan málefna Suður- Ameríku eða hann muni hafa verra af. Þá telur de Gaulle ennfremur, að Kennedy ætti að láta Afríku- málin sem mest afskiptalaus. Flækist Bandaríkin ekki um of í málefni Norður-Afríku, ætti að vera mögulegt að takmarka áhrif kommúnista þar. Ðe Gaulle telur, að Kennedy ætti að einbeita sér að því í Vínarborg, að sannfæra Krúsjeff um, að Bandaríkin hafi vald og muni beita því valdi til varnar i mikilvægum svæðum í Evrópu. Á svæðum, sem minna máli skipti ætti Kennedy að sýna Krúsjeff, að samvinna sé heppilegri en kalt stríð. Hann telur, að Kenne- dy ætti að leggja áherzlu á þann ávinning, sem samfara væri slíkri | samvinnu. í því sambandi legg- ur de Gaulle áherzlu á eftirfar- andi: • 1. Sameiginlega áætlun Vesturs og Austurs um geimrannsóknir í friðsamlegum tilgangi. • 2. Sameiginlegt átak Aust- urs og Vesturs á sviði vís- inda og læknisfræði, þar á meðal á sviði krabbameinsrannsókna. • 3. Sameiginlega a ð s t o ð Austurs og Vesturs við vanþróuð lönd einkum í Asiu og Afríku. • 4. Víðtæk samskipti á sviði menningar og menntamála til þess að lyfta járntjaldinu og efla persónuleg kynni fólks af ýmsum þjóðernum, sem stuðiað gæti að því að minnka þörfina fyrir vopnabúnað. „Takið þessu með ró — og talið“. Ráðleggingar Harold Macmill- ans, forsætisráðherra Bretlands, eru dálítið á annan veg en Frakk landsforseta. Macmillan hefur ráðlagt Kennedy, að forðast allt það, er leitt geti til þess að fund* ur þeirra Krúsjeffs fari út um þúfur. Hann álítur, að Vestur- veldin séu það ofan á í barátt- unni við kommúnismann — rúss neska þjóðin krefjist m.a. sífellt meira frjálsræðis og meiri vel- megunar af hinu kommúníska þjóðskipulagi — að það knýji stjórnarvöldin til meiri samninga lipurðar á alþjóðavettvahgi. Það sem Macmillan er einkum hug- leikið er þetta: • 1. Varðandi Asíu. — Reyn- ið að sannfæra Krúsjeff um, að Vesturveldin hyggist halda því, sem þeir geta varið, en séu fúsir til að samþykkja hlutleysi annarsstaðar — að því tilskyldu, að um hreint hlutleysi sé að ræða, en ekki aðeins milli- bilsástand, áður en kommúnistar hrifsi yöldin. • 2. Gerið Ijóst, að Vestur- veldin muni verja stöðu sína í Berlín en varizt að hleypa málinu í strand m,eð of mikilli hörku, og viðurkennið ekki Aust- ur-Þýzkaland. • 3. Höldum áfram að reyna að koma á afvopnun og banni við tilraunum með kjam- orkuvopn, þrátt fyrir máiþóf Sovétmanna. Macmillan er þeirrar skoðunar, að Krúsjeff kæri sig ékki um stórstyrjöld, að hann óski eftir banni við tilraunum með kjarn- orkuvopn og vilji að einhver ár- angur náist í viðræðum um af- vopnun. Ef hann fái nægilegan tírna, kunni einhverju að verða um þokað í þá átt. Því segir for- sætisráðherra Breta við Kenne- dy: — Takið þessu með ró og haldið áfram að ræða við Krús-- jeff. Þegar- Vínarfundinum er lokið þá efnið til annars fundar með hcnum og ræðið við hann aftur og aftur og aftur. Fyrst og fremst áliugi á Berlín. Adenauer kanzlari hefur lagt á það, áherzlu við Kennedy, að V'estur-Þjóðverjar hafi fyrst og fremst áhuga á Berlínarmalmu. Adenauer telur réttast, að Kennedy sýni ekki aðeins stað- festu í Berlínarmálinu heldur Framh. á bls. 17.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.