Morgunblaðið - 01.06.1961, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 01.06.1961, Blaðsíða 11
Fimm'tudagur 1. júnl 1961 m n r r. jry n j 4 r> 1 ð II 1» Ó T T nú sé nser einvörð- ungu rætt um verkfall og konungskomu gengur lífið að mestu sinn vanagang úti á landsbyggðinni. Veðurguð- irnir ýmist herja með krafti eða fara mildum höndum um bændur og búalið. Vor- verkin eru unnin í sveitinni og börnin hætta í skólunum. — • — Vopna- Fréttaritari okkar á firði Vopnafirði, Sigurjón Jónsson skrifar 26. þ. m. að veturinn hafi verið mjög mildur og snjóléttur þar eystra, en vórið misviðrasamt. Hafa þar að undanförnu skipzt á sterkir hitar og nístandi kuldar. Gróður er þó töluverður og mun sauðfé ganga vel fram ef ekki koma hörð áfelli nú á sauðburðinum, sem víðast hófst um 20. maí. Vinna er lítil á Vopnafirði um háveturinn að venju, segir Sig- •urjón ennfremur, en í apríl tók hraðfrystihúsið til starfa og bætti það mikið úr atvinnuleysinu. Má segja að starfræksla þess sé fund ið fé fyrir kauptúnið þar sem sú vinna lengir atvinnutímabilið um minnst tvo mánuði. Það hafa eingöngu verið aðkomu bátar, sem hafa lagt upp afla sinn á Vopnafirði fram að þessu því fiskur hefir ekki verið nær en norður við Langanes og heima bátarnir of litlir til að sækja svo langt. Nú er verið að gera til- raun til»að bæta úr bátaskortin- um. Hinn 23. þ.m. kom 43 lesta bát- ur til Vopnafjarðar, eign Ólafs Antonssonar og hefir hlotið nafn ið Höfðaklettur. Verður hann gerður út á handfæri og línu- veiðar. Þá mun Friðrik Höj- gaard og fl. búmr að kaupa 4% tonns trillubát. Að undanförnu hafa fjórir trillubátar stundað hákarlaveið- ar og eru þeir búnir að fá 33 há- karla. Lætur nærri að hver há- karl sé 5 þús. króna virði. Veiðimenn óttast að hafa misst línur í norðangarðinum sem gekk hér yfir 23.—25. þ.m. Byrjað var að undirbúa síldarverksmiðjuna •undir vertíðina um siðustu mán- aðamót. Verða nú starfrækt í fyrsta sinn soðvinnslutæki sem nú er verið að ljúka frágangi á. Búizt er við að á komandi síld- arvertíð verði starfræktar hér 3 söltunarstöðvar. Vantar þá mik- ið af verkaflóki yfir síldarver- tíðina, segir Sigurjón að lokum. — • — Mykju- Fyrir nokkru skrifaði nesi Magnús Guðmundsson í Mykjunesi í Holtum um skólaslit barnaskólans að Lauga- landi, sem fram fór við hátíð- lega athöfn. 78 börn gengu und- ir árspróf og þar af 18 fullnað- arpróf. í vetur kenndi Axel Andersen sendikennari Í.S.Í. knattspyrnu og handknattleik við skólann í imánaðartíma. Þá var og kennd leikfimi, þjóðdansar, söngur og bókband auk hinna föstu náms- greina. Sundnámi er og lokið. Heilsufar var gott í skólanum í vetur. Við skólaslit fór fram sýning á handavinnu og vöktu smíðisgripir athygli. Enn er ekki lokið að fullu byggingu skólans og mun henni haldið áfram í sumar. Sæmundur Guðmundsson flutti skólaslitaræðu og árnaði nemum heilla og blessunar. — • — Borgarfirði Nýlega barst blað- eystra inu fréttabréf af eystra frá Ingvari Ingvarssyni á Desjamýri. Segir hann að um páskana hafi snjóað og dagana á eftir verið rytju- veður. Þegar upp birti var kom- inn mdkill snjór og jarðlaust um alla sveit. Var þá farið að huga að útigangshestum, sem voru í Breiðuvík. Voru þeir þá í algeru svelti og slæmar horfur á að hægt væri að ná þeim heim. Fóru 8 menn suður til að troða slóð fyrir hestana Og höfðu með sér hey. Tókst þeim að rekja sig eft- ir hávöðum og koma hestunum heima á einum degi. Um sumarmál hlýnaði og gerði blota og krapaelg. Var færð slæm fram í byrjun maí, en jeppa fært víðast. Njarðvíkurskriður voru slæmar yfirferðar. Fisks varð vart um mánaðamótin apríl -maí og afli sæmilegur eftir það. Róðrar voru almennt ekki hafn- ir í byrjun mánaðarins en 1—4 bátar á sjó. Fiskur er saltaður. Skepnuhöld eru sæmileg nema hvað nökkuð hefir borið á því að ær létu lömbum sínum. Menn eru misjafnlega settir "með hey en ekki búizt við vandræðum ef sæmilegt verður fram úr. — • — Selfossi Aðalfundur Læknafé- lags Suðurlands var haldinn á Selfossi laugardaginn 20. þ.m. á heimili Kjartans Magn ússonar sjúkrahússlæknis, skrif- ar Guðmundur Geir Ólafsson blaðinu. — Mættir voru 9 læknar af félagssvæðinu. Auk venjulegra aðalfundar- starfa var rætt mjög ýtarlega um hið mikla ósamræmi í gjaldskrá lækna, þar sem læknar í dreif- býlinu sitja við mjög skarðan hlut, þar eð þeir vinna eftir gjald skrám frá 1932 með smávegileg- um breytingum miðað við verð- lag, en Reykjavíkurlæknar hafa sniðið sína gjaldskrá eftir núgild andi verðlagi. Var fulltrúa fé- lagsins, sem sitja munu aðalfund Læknafélags íslands nú í sumar falið að ræða þessi mál ýtarlega við starfsbræður þar, enda nú vá fyrir dyrum vegna læknaleysis víða á landsbyggðinni. Samþykkt var tillaga á fund- inum til sýslunefndar Árnessýslu þess efnis, að minnsta kosti einn læknir eigi sæti í stjórn sjúkra- hússins á Selfossi. Fundarmenn skoðuðu sjúkrahúsið á Selfossi undir stjórn sjúkrahússlæknis og lýstu ánægju sinni yfir því mikla starfi, sem þar er unnið. Mót Þá ritar sami frétta hestamanna ritari um Fjórð- ungsmót hesta- manna, sem haldið verður á Rang árbökkum dagana 15. Og 16. júní n.k. Kosin hefir verið fram- kvæmdastjórn mótsins og eiga sæti í henni Albert Jóhannsson, Skógaskóla, Einar Þorsteinsson ráðunautur, Sólheimahjáleigu, Sigurður Haraldsson, Hellu, Jón Bjarnason, Selfossi Og Bragi Runólfsson, Selfossi. Framkvæmdanefndin hefir síð- an haldið nokkra fundi varðandi mótið. — • — Þúfum Frá Þúfum við ísa- fjarðardjúp er blaðinu símað að þar háfi óveðrið ekki valdið sköðum svo vitað sé. Hinn 27. maí er veður orðið ágætt og snjórinn nær horfinn. Vegavinna er þá ekki enn byrjuð, enda Þorskafjarðarheiði ófær Og hafði bætt fönn á fjallvegi í hretinu. Bolungar- Fyrir nokkru síðan vík var sýndur sjónleik- urinn Gullna hliðið eftir Davíð Stefánsson í Bolungarvík við góðar undirtektir. Síðan var far- ið með hann í leikför um Vest- firði, til ísafjarðar, Patreksfjarð- ar, Þingeyrar og Súgandafjarðar. Leikstjóri var Gunnar R. Han- sen og málaði hann einnig leik- tjöld. Með hlutverk Jóns Og kerl- ingar hans fóru þau SigOrður E. Friðriksson Og Ósk Guðmunds- dóttir og hlutu góða dóma. Þykir hér í mikið ráðizt Og er þetta í fyrsta sinn sem Gullna hliðið er sett á svið á Vestfjörðum. — • — Vestmanna- Um hvítasunnuna eyjar var brotizt inn í lyfjabúðina í Vest- mannaeyjum og þar stolið glasi af ritalini og nokkru að öðru eitri. Verknað þennan framdi ungur piltur, sem áður hefir komizt í kast við lögregluna. Hafði hann gefið tveimur piltum af eitrinu og kömst þannig upp um hann. Sjálfur notaði hann 10—12 töflur. — • — Sýslufundur Páll Pálsson á Þúf N.-ls. um ritar blaðinu um aðalfund sýslu nefndar Norður-ísafjarðarsýslu. Voru á fundinum gerðar margar ályktanir. Helztu útgjaldaliðir eru: Til menntamála 47.000 kr., berklavarna og annarra heil- brigðismála 26.000 kr., atvinnu- mála 25.000 kr. og ýmis önnur útgjöld um 20 þús kr. Helztu tekjuliðir eru niðurjöfnunargjald sýslusjóðs 130 þús Og tekjur sýslu vegasjóðs 137 þús. Samþykkt var áskorun til þings og stjórnar að sjá læknis- vitjunarsjóðum fyrir auknum tekjum, þar sem starfsemi þeirra með núverandi tekjum gerir sjóðina óstarfhæfa vegna hins sívaxandi kostnaðar við læknis- vitjanir. Skorað var á vegamála- stjórnina að láta moka Þorska- fjarðarheiði hið fyrsta. Þá sam- þykkti sýslunefndin áskorun um að útvega sýslusjóðum nýja tekju stöfna, einnig var samþykkt að hefja undirbúning að byggingu nýs djúpbáts, þar sem Fagranes- ið er að verða gamalt og úr sér gengið, einkum vél skipsins. Fleiri ályktanir gerði fundurinn um ýmis héraðsmál. Félagsvist Spiluð verður félagsvist í Félagsheimili Kópavogs í kvöld kl. 9. ALLIR VELKOMNIR! Spilaklúbbur Kópavogs. S herb. íbúðarhœð mjög vönduð og sólrík í villubyggingu við Kirkju- teig til sölu. Fallegt útsýni og ræktuð lóð. Sér inngangur og sér hitaveita. Laus strax. STEINN JÓNSSON hdl. lögfræðistofa — fasteignasala Kirkjuhvoli — Símar 14951 — 19090. VEIÐIMENN Höfum fyrirliggjandi sænsk „GISLAVED“ veiðistígvél. No. 40—45 Verð kr 436,65 Fyrirliggjandi úrval af sportveiðarfærum. AU STURSTRÆTI 10 Sportvörudeild Hús á Grenimel er til sölu. Húsið er um 90 ferm, 2 hæðir, kjaHari og ris. — Upplýsingar gefur: Málflutningsskrifstofa Vagns E. Jónssonar Símar 14400 og 16766 Til sölu er húseignin Reykjardalur í Mosfellssveit. íbúðar- húsið er nýlegt og vandað timburhús um 200 ferm. Bílskúr er viðbyggður. Hitaveita er í húsinu. Rækt- að land og útihús geta fylgt. Upplýsingar gefur: MALFLUTNINGSSKRIFSTOFA VAGN E. JÓNSSON, hdl., Símar 14400 og 16766 tóleij Laugavegi 33 í^Ný sending amerískir nælonsloppar Hvítir, Allar stærðir Verð frá 618.— Einnig hvítir POPLIN - SLOPP AR Sendi gegn póstkröfu um allt land. ObbbbbbbbbbbbfcÍDbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbb Rúdulistar Gerekti Gólflistar 0V . .. . . Siml 35697 ggingavorur h.f. taugoveg i78 o’o’acro’o’crao’o’orcr

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.