Morgunblaðið - 01.06.1961, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 01.06.1961, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ Fimmtudagur 1. júni 1961 Bazar verður í Góðtemplarahúsinu í dag kl. 3 e.h. — Margt gott og ódýrt. Bazarnefnd IOGT Höfum fyrirligffjandi. Vatnskassa í jeppa Verð kr. 1900,00 með söluskatti. Blikksmiðjan GRETTIR. HúsnœUi Skrifstofu- eða iðnaðarhúsnæði (ca. 50 ferm.) ný- standsett til leigu nú þegar. Engin fyrirframgreiðsla. Upplýsingar í síma 22786 kl. 9—12 f.h. V erz/ unarhúsnœði Til leigu er ca. 100 ferm. verzlunarhúsnæði rétt við Laugaveginn, neðarlega. Góð geymsla fylgir. — Laust strax. Tilboð merkt: „V — 1551“, sendist afgr. Mbl. fyrir laugardag. Þeir, sem hafa hugsað sér að sækja um leyfi til veitingasölu í sérstökum skálum eða tjöldum í sam- bandi við hátíðasvæðið 17. júní, vitji um- sóknareyðublaða í skrifstofu bæjarverk- fræðings (hjá Jóhannesi Magnússyni) Skúlatúni 2. Skylt er að koma með t jöldin til skoðunar í Ahaldahús Reykjavíkurbæjar 15. og 16. júní kl- 2—5. Umsóknir skulu hafa borizt fyrir 6. júní n.k. Narfi Halldórsson Minningarorð Dauði ég óttast eigi afl þitt né valdið gilt, í Kristi krafti’ ég segi; kom þú sæll, þá þú vilt. H. P. | NARFI Hallsteinsson andaðist á j Sjúkrahúsi Akraness 21. marz sl. eftir margra mánaða hetjulega j baráttu opnum sjónum við ó- læknandi sjúkdóm, án þess að mæla æðruorð. En aftur á móti orkti harm eldheit trúarljóð fram á síðustu situndu. Sum þeirra gat hann fest á blað. Sjálfsagt hafa þó fleiri farið með honum eða réttara sagt, stigið -upp til guðs ásamt bænum hans, óheyrð af mannlegum eyrum. Narfi Hallsteinsson var fædd- ^ ur að Litlu-Fellsöxl í Skil- mannahreppi 27. apríl 1894. Þar bjuggu þá foreldrar hans, hjón- in Steinunn Eiríksdóttir og Hall steinn Ólafsson. Þaðan fluttust þau yfir í Leirár og Melasveit. Fyrst að Laxárbakka og síðan aldamótaárið að Skipanesi og eft ir átta ána búskap þar að Skor- holti. Við þann bæ eru svo syst- kinin (böm þeirra) 9 að tölu, jafnan kennd. Af þeim eru nú 3 'bræður dánir. Narfi heitinn Hallsteinsson var trésmíðameistari að mennt. — Hann bjó á Læk í Leirársveit frá * BEZT AÐ AUGLÍSA I MOBGUNBLAÐINU 1930—’43, ógifltur og barnlaus og var því stundum einn. En þrátt fyrir það húsaði hann jörðina, átti gott og arðsamt bú og rækt- aði mikið. Hann seldi Ingvari bróður sínum land undir nýbýl- ið Langholt og er nú búið stór- búi á báðum þessum jörðum. — Þegar ég og mín fjölskylda flutt umst að Skipanesi fyrir 20 árum, bjó Narfi á Læk, sem sagt næsta bæ. Hann var því meðal þeirra fyrstu, sem tók í hönd mína og bauð mig og fjölskylduna vel- komna í sveitina. Þá sagði hann mér, að býli okkar væri sitt bernskuheimili. Hér hefði hann átt heima frá 6 ára aldri til fermingar. Eg gat lesið úr svip hans og orðum átthagatryggð og ræktarsemj til jarðarinnar. Hann sagði mér líka, að hér í Skipa- nesbökkunum væri móhella og úr henni hefði hann fengið sitt fyrsta smíðaefni. Erfiðast þótti honum áhaldalitlum að ná í úr henni nógu góðum stykkjum til smíðanna. En þegar það tókst, skar hanm út úr þeim alls komar dýramyndir og báta. Vannst við það tvennt, góð leikföng og ódýr handa bræðrum hans og hann gat þjónað Qg þroskað meðfædd- an hæfileika. Síðar lærði hamn eins og áður er sagt, trésmíðar og stundaði húsabyggingar um sinm. Nokkru efltir að hann hætti búskap fluttist hann til Reykja- víkur og kom sér upp smíða- verkstæði og stundaði þá aðal- lega útskurð. Að sögn þeirra, sem þeim verkum hans eru kunn ugir, munu margir hlutir hans hreinustu listaverk, sambærileg- ir við verk viðurkenndra lista- manna. Narfi var maður mjög fjölhæfur, jafnvígur á starf sjó- mamnsins, bóndans og iðnaðar- mannsins, enda vann hann öll þessi störf jöfnum höndurn um ævina. Þá var hanm félagslyndur í betra lagi. Einkum mun Ung- mennafélag sveitarinnar hafa notið góðs af félagsihyggju hans. Hanm var greindur vel, skóld- Skrifstofuhúsrnæði 3—4 samliggjandi skrifstofuherbergi í Aðalstræti götumegin til leigu strax. Uppl. í síma 24080 á venjulegum skrifstofutima. Miðstöðvarketilf, Kyndingartœki Notaður miðstöðvarketill, hitaflötur 4—5 ferm., ásamt sjálfvirku kyndingartæki, óskast til kaups. Friðrik Jörgenseri Ægisgötu 7 — Símar: 1-10-20 — 1-10-21 mælitur, reglusamur og söngmað j ur góður. Kom allt þetta sér vel á þeim árum, er félagar sjálfir urðu að vera allir skemmtikraft ar á samkomum sínum. Á íþrótba mótum ungm.félaganna jók hann að mun hróður síns félags. Kom heim með stóra sigra í glímu og kappslætti. Enda orð- lagður heyskaparmaður. Ekki hef ég heyrt að hlaup hafi verið meðal íþróttagreina á þessum árum (en þó getur það vel verið). En Narfi átti óskráð niet í hlaupum í minni eldri sam ferðamanna sinna, er hann hljóp með meðal handa fársjúkum bróður sínum frá Akranesi upp að Skorholti á ótrúlega skömm. um tíma, svo að slíkt hefði mátt til stórafreka telja. Þó Narfi Hallsteinsson ætti hrausta sál f hraustum líkama og væri gefið meira þrek en meðalmanni, þá var hann sérlega hógvær í fram- komu og frekar hlédrægur og f hjarta lítillátur, eins og ved krist ins manns er háttur. Hann sýslaði í búskapnum við ungviði af mikilli nákvæmni.t.d. vissi ég til að honum var svo sýnt um að láta hænur unga út eggjum, að ég hugsa að hver húsmóðir hefði verið stolt yfir svo góðum árangri, sem hann náði. Taminn hest átti Narfi, sem hann nefndi Öðling. Þótti mér það fallegt nafn. — „Já, og hann ber það líka vel“, sagði Narfi. Eg trúði því og gat ráðið gátuna. Hesturinn var í öðlings höndum eins og allar skepnur í búi hans. Tvö til þrjú síðustu æviárin dvaldi Narfi heitinn að mestu J Skorholti hjá systkinum sínum. sem þar búa. Var hann þá þegar farinn að kenna sjúkdóms þess, sem að lokum varð honum að bana. Ein svo lengi sem nokkur tök voru á, vamn hann af kappi og alúð við bústörfin. Kveðjuathöfn um Narfa Iiall. steinsson fór fram í Akraness- kirkju 29. marz sl. Hana flutti séra Jón M. Guðjónsson. Sama dag var hann jarðsettur að Saur bæ á Hvalfjarðarströnd af pró. fastinum séra Sigurjóni Guðjóns syni. Fjölmenni var við jarðarför hins vinsæla heiðursmanns. Sól- skin í heiði og jörð var hjúpuð hvítum páskasnjó. Blessuð sé rnining hans og styrkur frá guði með systkinum hins látna sem sakna sárt góðs bróður. Ó. I. J. Atvinnu- 09 verzianaskrá 1961 Félag íslenzkra stórkaupmanna hefir gefið út „Atvinnu- og Verzlanaskrá 1961“, sem hefir að geyma nöfn þeirra aðila hér á landi, ásamt fleiri upplýsingum, sem stunda verzlunar-iðnaðar og þjónustustörf. Gert er r,áð fyrir að skrá þessi verði gefin út árlega, aukin og endurbætt. Er þetta fyrsta heildarskrá af þessu tagi, sem gefin er út hér á landi. Skráin fæst í flestum bókaverzlunum í Reykjavík og Hafnarfirði, hjá Eyþóri Tómassyni, heildverzlun á Akureyri og í skrifstofu félagsins í Hafnarstræti 8. Skráin er einnig send gegn póstkröfu út á land. FÉLAG fSLENZKRA STÓRKAUPMANNA.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.