Morgunblaðið - 01.06.1961, Síða 23

Morgunblaðið - 01.06.1961, Síða 23
Fimmtudagur 1. júní 1961 MORGVNBLAÐ1Ð 23 Chaíle og Zeller dœmdir í 15 ára hegningarvinnu Tarís, 31, maí (Reuter-NTB) — SEINT í kvöld var kveðinn upp í París dómur í máli frönsku hershöfðingjanna Maurice Challe og Andre Zeller, sem meðal annarra stóðu að uppreisninni í Alsír á dögunum. Voru þeir báðir dæmdir í fimmtán ára hegn- ingarvinnu. Áður hafði sak- sóknarinn gegn þeim til- kynnt, að hann mundi ekki krefjast dauðadóms yfir þeim, heldur þyngsta fang- elsisdóms — tuttugu ára. / Saksóknarinn Antonin Besson kvaðst hafa tekið þessa ákvörð- un eftir heillar viku „sálarstrið“. Hann hefði getað krafizt dauða- refsingar en þyngsta fangelsis- — /?æðo konungs Framh. af bls. 15. skóggræðsluna á íslandi og ann- arra menningarmála. Einnig á vorum tímum hefur ísland þýðingarmiklu hlutverki að gegna í norsku menningarlífi. í klassískum menntum, bók- menntum, og myndlist hefur fs- land unnið frábær afrek. Fjörið Og krafturinn í menningarstarf- semi á íslandi kemur glöggt í ljós, þegar litið er til þess að svo fámennri þjóð, sem talar sér staka tungu, hefur ekki aðeins tekizt að koma á stofn eigin há- skóla, en hefur einnig nóg aflögu til að veita verulegt menningar- legt framlag til annarra þjóða, og hafa önnur norræn lönd ekki sízt notið þar góðs af. t Með tilliti til sameiginlegrar sögu vorrar og erfða hefur það verið sérstök gleði og ánægja fyrir oss í Noregi að sannreyna, að hið sjálfstæða, íslenzka lýð- veldi hefur með öllu móti leitazt við að vernda og styrkja enn frekar sambandið við Noreg og önnur norræn lönd. Fimm sjálf stæð norræn ríki hafa nú náið samstarf og stýra með því nor- rænum erfðum fram á við. Á vorum tímum er nauðsyn orðin á sam*tarfi ríkja í milli. Auðlindir hinna einstöku norrænu landa eru takmarkaðar á sviði efnahags ög mannfjölda, og það er því eðlilegt, að lönd vor leitist við að skapa sam- stöðu og samvinnu á sem flest- um sviðum. Nú er sambandið vor á meðal sterkara en nokkru sinni fyrr. Á hinum ólíkustu sviðum eru sköpuð sambönd og samstarf aukið, í Norðurlandaráði, á reglu legum fundum utanríkisráðherra vorra, tíðum umræðufundum ann arra ráðherra vorra, embættis- manna og einstaklinga. f Noregi óskum vér, að þessi þróun megi ná sem mestri útbreiðslu til gagns fyrir sameiginlega hags- muni landa vorra. í efnahagslegu samstarfi í Evrópu hafa lönd vor staðið hvort öðru nærri, og svo vona ég að verði framvegis í þeim nýju samtökum þróunar og samstarfs, sem nú munu brátt verða veru- leiki. i ísland og Noregur leitast við að leysa öryggismál sín innan þeirra sömu takmarka í samá- byrgð og skuldbindandi samstarfi við ríki sem reist eru á sömu grundvallarreglum og sam- félög vor. Skilningur á erf- iðri aðstöðu lítilla landa á háska tímum ásamt þeirri ósk vorri að tryggja frelsi þjóða vorra og leggja fram vorn skerf til að tryggja friðinn í heiminum, hef ur skorið úr um stefnu landa vorra í þessu máli. Möguleikar landa vorra til að refsing nægði — ef dómarinn vildi fallast á, að þeir yrðu dæmdir til tuttugu ára hegn- ingarvinnu. Besson skýrði frá þessu í nær þriggja klukkustunda ræðu, sem hann hélt fyrir herréttinum, sem fjallaði um mál hershöfðingj- anna. >ar sagði hann m. a., að þeir Challe og Zellet hefðu framið alvarlegt brot gagnvárt frönsku þjóðinni og lögum Frakklands og væri það hlut- verk réttarins að binda endi á hið glæpsamlega atferli þeirra. — ★ — Við vitnaleiðslumar var með- al annars um það rætt, að Challe hefði sagt, áður en upp- reisnin fór út um þúfur, að hann gerði sér vonir um að halda völdum í þrjá mánuði a. m. k. til þess að fá sigrað uppreisn Serkja. Zeller hafði áður sagt, að uppreisnarmenn hafi vonazt eftir liðsinni frá hafa áhrif á þróun heimsmál- anna hljóta að vera mjög tak- markaðir af megni voru og mann fjölda. En á alþjóðavettvangi getum vér þó haft áhrif að því leyti, sem vér sýnum hæfni til að skapa þjóðum vorum hagsæld og hamingju, gæta lýðræðislegra réttinda Og manngildis, hvers einstaks borgara og halda um leið uppi virku samstarfi til að leysa þau vandamál, sem eru um megn hvorn landinu um sig. Það er einlæg ósk mín, að lönd vor, og öll Norðurlönd gangi alltaf þessa leið og leggi þar með fram sinn skerf til alþjóð- legs samstarfs, sem geti haft þýð ingu fyrir samræmda og friðsam lega þróun í veröldinni. Ég færi í dag öllum fslending um hlýjustu kveðjur og beztu óskir frá öllum löndum mínum heima í Noregi, og með þessum orðum mæli ég fyrir minni for- seta íslands og konu hans, og ennfremur íslands og allrar hinn ar íslenzku þjóðar. Spáni, Portúgal, S.-Afríku, e.t.v. einhverjum ríkjum S.-Ameríku eða frá ísrael. Hefði það enn- fremur verið von þeirra að „bæta mætti Bandaríkjamönnum við þennan lista“. Myrtur París, 31. maí (NTB-Reuter) — TILKYNNT var í París í kvöld, að Rafael Trujillo, einræðisherra Dóminikanska lýðveldisins hefði verið myrt ur. Hefði utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna borizt um þetta staðfestar fregnir og það sömuleiðis, að ríkis- stjórnin hefði stjórn landsins í sinni hendi. — Ekki er frekar kunnugt um hvernig atburð þennan hefur borið að höndum. Verkíallsboðun Akranesi, 31. maí. f GÆR var fundur haldinn í Verkalýðsfélagi Akraness Og rætt um kaupgjaldsmálin. í fundarlök var samþykkt að boða verkfall 10. júní, ef samn- ingar hefðu ekki náðst fyrir þann tíma. — Oddur. — Gestir Framh. af bls. 15. ráðsritari, Benedikt G. Waage, for- seti ÍSI, ungfrú María Xara-Brazil, Birgir Thorlacius, ráðuneytisstjóri, Ragnar Jónsson, forstjóri, frú Ragn- heiður Blöndai, Helgi Elíasson, fræðslumálastjóri, Sigurður Jóhanns- son, vegamálastjóri, frú Ásta Eiríks- dóttir, Jónas B. Jónsson, fræðslustjóri, Jón Magnússon, fréttastjóri og norsk ur blaðamaður. Allsherj ar- atkvæSagreiSsian- LAUNÞEGAFELÖGIN, sem nú eiga í vinnudeilu, efna í dag til funda um sáttatillög- una. Dagsbrún heldur fund í Gamla Bíó kl. 14 og hefst alls herjaratkvæðagreiðsla í skrif- stofu félagsins strax að fund- inum loknum Og stendur fram á kvöld. Á morgun verður at- kvæðagreiðslan frá kl. 14 til 21. Félag járniðnaðarmanna heldur fund í Xðnó, niðri kl. 20.30 Og að fundinum loknum hefst atkvæðagreiðslan. Held ur hún áfram á morgun í skrif stofunni að Skipholti 19 og stendur frá kl. 14—21. Félag ísl. rafvirkja heldur sinn fund í Edduhúsinu kl. 8.30 í kvöld. Atkvæðagreiðsl- an hefst í fundarlök og stend- ur til miðnættis, en á morgun verður henni haldið áfram í skrifstofunni í Skipholti 19, frá kl. 17 til 22. Félag skipasmiða heldur fund í baðstofu iðnaðarmanna kl. 8,30 í kvöld og atkvæða- * greiðsla verður á eftir. Á morgun heldur atkvæða- greiðslan áfram í Skipholti 19 frá kl. 20 til 23. Félag fsl. rafvirkja heldur fund að Freyjugötu 27 kl. 8,30 í kvöld og verða atkvæði greidd 1 fundarlok. Atkvæða- greiðsla fer einnig fram á morgun, en í gærkveldi hefði ekki verið ákveðið á hvaða Trésmiðafél. Reykjavíkur tíma hún skyldi fara fram. heldur fund í Framsóknarhús- inu í kvöld kl. 8,30. Atkvæði verða greidd strax að fundi loknum og á morgun heldur hún áfram að Laufásvegi 8, kl. 14—22. Málararfélag Reykjavíkur heldur fund í Breiðfirðinga- búð kl. 21 í kvöld. Atkvæða- greiðsla verður strax á eftir og síðan á morgun kl. 15—21. Sveinafélag pípulagninga- manna heldur fund í Aðal- stræti 12 kl. 20 í kvöld. At- kvæði verða greidd í fundar- lok að Freyjugötu 27 — fram til kl. 23. Síðan á morgun kl. 18—22. Múrarafélag Reykjavíkur heldur fund sinn að Freyju- götu 27 kl. 18,30 í kvöld og verða atkvæði greidd til kl. 22. Á morgun verða þau greidd kl. 17—21. Ekki tókst blaðinu að fá fregnir af fundarstað og fund- -artíma Félags blikksmiða. Verkamannafélagið Hlíf í Hafnarfirði heldur fund kl. 14 í dag í Bæjarbíó. Allsherjar- atkvæðagreiðsla verður síðan í Verkamannaskýlinu. Stjórnarfundur er boðaður hjá Vinnuveitendasamband- inu kl. 14 í dag og mun hann ákveða fyrirkomulag og til- högun atkvæðagreiðslunnar. Bvar verSur konungurídag Dagskrá Noregskonungs í DAG, fimmtudaginn 1. júní, er dag- skrá Noregskonun^ svoliljóðandi: Heimsókn í Háskóla íslands. Ardegisbúningur eða dökk föt. Kl. 9:45 Forsteahjón koma í Ráðherra bústaðinn. Kl. 9:45 Fylgdarlið ekur að Ráðherra- bústaðnum. Bifreiðaskrá 6. Kl. 9:52 Ekið frá Ráðherrabústaðnum að Háskóla íslands. Bifreiðaskrá 7. Kl. 9:55 Komið að Háskóla islands. Kl. 10:45 Ekið frá Háskóla íslands að Þjóðminjasafni. (Bifreiðaskipan ó- breytt). Heimsókn f Þjóðminjasafnið. Kl. 10:50 Komið að Þjóðminjasafni. Kl. 11:45 Ekið frá Þjóðminjasafni að Ráðherrabústaðnum. (Bifreiðaskip an óbreytt). Kl. 11:50 Forsetahjón islands aka frá Ráðherrabústaðnum að Bessastöð- um (í forsetabifreið 2). Heimsókn að Bessastöðum. Ardegisbúningur. Kl. 12:10 Ekið frá Ráðherrabústaðnum að Bessastaðakirkju (um Hring braut og Reykjanesbraut). Bif- reiðaskrá 8. Kl.12:30 Guða(þjónusta í Bessastaða- kirkju. KI. 13:05 Messulok. Kl. 13:15 Hádegisverður að Bessastöð- um. Kl. 14:50 Brottför frá Bessastöðum að Ráðherrabústaðnum og Hótel Borg. Bifreiðaskrá 9. Kl. 15:15 Komið að Ráðherrabústaðn- um (Hótel Borg, norska sendi- herrabústaðnum). Móttaka Reykjavíkurbæjar. Ardegisbúningur eða dökk föt. Kl. 15:50 Forsetahjón koma í Ráð- herrabústaðinn. Kl. 15:50 Fylgdarlið ekur að Ráðherra bústaðnum. Bifreiðaskrá 10. Kl. 15:55 Ekið frá Ráðherrabústaðnum að Melaskóla (um Hringbraut, Furumel og Nesveg). Bifreiðaskrá 11. Kl. 16:00 Móttaka Reykjavíkurbæjar 1 Melaskóla. Kl. 17:15 Ekið frá Melaskóla að Ráð- herrabústaðnum. (Bifreiðaskipan eins og bifreiðaskrá 11). Kvöldverður í Ráðherrabústaðnum. Klæðnaður: Kjólföt, heiðursmerki. Kl. 19:00 Forstehjón koma að Ráð- herrabústaðnum. Kl. 19:00 Fylgdarlið ekur að Ráðherra- bústaðnum. Bifreiðaskrá 12. Kvöldverður í Ráðherrabústaðn- um. Hátíðasýning í Þjóðleikhúsinu. Klæðnaður: Kjólföt, heiðursmerkf. Kl. 20:30 Ekið frá Ráðherrabústaðnum að Þjóðleikhúsi. Bifreiðaskrá 13. Kl. 20:37 Konugur og forsetahjón aka frá Ráðherrabústaðnum að Þjóð- leikhúsi. (Sjá bifreiðaskrá 13). Kl. 20:42 Konungur og forsetahjón koma akandi að aðaldyrum Þjóð- leikhússins. Kl. 20:45 Hátíðasýning í Þjóðleikhúsi. Að lokinni sýningu í Þjóðleikhúsi verður ekið að Ráðherrabústaðn- um. (Bifreiðaskrá 14). Síðan aka forsetahjón til Bessa- staða og föruneytið norska að Hótel Borg. MeistaraféSag liúsasmiða heldur félagsfund í nýja Iðnskólanum (gengið inn Vitastígsmegin) í kvöld kl. 20,30. Fundarefni: Tillaga sáttasemjara- STJÓRNIN. Alúðar þakkir fyrir auðsýnda vinsemd á sjötugs afmæli mínu. — Drottinn blessi ykkur öll. Ragnheiður Eiríksdóttir, Sólbakka Hjartanlega þakka ég öllum þeim mörgu ,skyldum og vandamönnum f jær og nær sem sýndu mér vinsemd og virðingu á margvíslegan hátt á 80 ára afmæli mínu 22/5. Guðbjörg Þorláksdóttir Vídalin, Njálsgötu 33, Reykjavík. HERMANN GUNNARSSON sem lézt laugardaginn 27. maí verður jarðsunginn mánu- daginn 5. júní kl. 3 e.h. — Jarðað verður frá Fossvogs- kirkju. Aðstandendur Maðurinn minn, faðir okkar og sonur, BRAGI BRYNJÓLFSSON bóksali verður jarðsunginn fi'á Fossvogskirkju föstudaginn 2. þ.m. kl. 1,30 e.h. — Blóm vinsamlegast afþökkuð. Dóra Thoroddsen og börn, Katrín Jónsdóttir Brynjólfur Magnússon JÓN EIRfKSSON magister, frá Hrafntóftum, verður jarðsunginn fr,á, Oddakirkju föstudaginn 2. júní kl. 2 e.h. Fyrir hönd aðstandehda. Sigurður Þorsteinsson. Alúðarþakkir fyrir auðsýnda hluttekningu við andlát og útför DOROTHEU BJARNADÓTTUR F. h. aðstandenda. Bjarni Jónsson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.