Morgunblaðið - 01.06.1961, Qupperneq 24
FRELSl
mannkynsins — Sjá Ms. 9.
rogatttMðfrifr
IÞRÓTTIR
Sjá bls. 22.
Akureyri, 31. mai.
KL. 13 í dag var slökkviliðinu
tilkynnt, að eldur væri tuppi í
verkstæði á Oddeyrartang-a, norð
an Gránufél.götu Þegar slökkvi
liðið kom á staðinn var mikill
eldur laus í trésmíðaverkstæði
Páls Friðfinnssonar og einnig
hafði kviknað í allstóru geymslu-
húsi, sem þar stendur nálav t.
Hús þessi voru að aUmiklu leyti
járnvarin timburhús.
Úr trésmíðaverkstæðinu tókst
að bjarga flestum vélum, svo og
mestu af efni, sem geymsluhús-
inu, þar sem Hafnarbúðin hafði
að mestu leyti vörubirgðir sínar,
tókst ekki að bjarga nema litlu
einu. Tjónið í því húsi er mjög
mikið. Hús þessi voru fremur
lágt vátryggð, svo og það, sem
inni brann og skemmdist. Tj<jn
þetta er talið nema nokkrum
hundruðum þúsunda króna. Elds-
upptökin eru talin vera þau, að
kveikt hafi verið í rusli milli hús
anna. Nokkur norðanstormur var
á, er þetta gerðist, og því magn-
aðist eldurinn fljótt. — I>á er
þess að geta, að langt er þarna
í vatnsleiðslur og brunahana, og
tafði það slökkvistarfið nokkuð
í fyrstu. — St. E. Sig.
Fólksfjöldinn í Tjamargötunni. ■**•*"
Hefur skotið
Lögfrœðingur ASÍ fellst á,
Skotar
unnu 3:0
SKOZKA liðið St. Mirren lék
fyrsta leik sinn hér á landi í gær-
kvöldi og mætti gestgjöfum sín-
um, Valsmönnum. Skotarnir sigr
uðu með 3:0. í hálfleik stóð 2:0.
Leikurinn var daufur Og lé-
legri en búizt hafði verið við.
Skotarnir höfðu mun meiri hraða
og tækni en Valsmenn og höfðu
yfirburði frá upphafi. Þeir vOru
hinsvegar klaufskir í markskot-
um, og sköpuðu sér ekki verulega
góð færi. Hraðinn var þeirra eina
boðorð. Valsmenn fengu aldrei
tækifæri til uppbyggingar, um
það sáu Skotarnir með hraða
sínum.
Fyrsta markið skoraði Miller
innherji eftir eina mínútu. Ann-
að markið Clunie miðvörður úr
vítaspyrnu, og hið þriðja hægri
innherji 8 mín. fyrir leikslok.
Bezta tækifæri Vals var víta-
spyrna, sem þeim tókst ekki að
nýta.
veiðibjöllur
UNDANFARNA daga hafa 46
veiðibjöllur verið skotnar við
Tjörnina. „Þetta gerum við til
þess að reyna að vernda ungana“,
sagði Leo Smith, sá sem reynir
að halda veiðibjöllunni á Tjörn-
inni í skefjum. Hann hringdi til
blaðsins vegna fréttarinnar í gær
um ungana á Tjörninni og hina
gráðugu veiðibjöllu. Leo er
snemma á fótum, fer venjulega
niður að Tjörn um 4 leytið á
morgnana og er þar fram undir
kl. 7. „Það er ekki reglulega þægi
legt að stunda þessa iðju eftir að
fólk er komið á ról“, sagði Leo.
E.O.P. mótið
í kvöld
í KVÖLD kl. 8 verður annað
frjálsíþróttamót sumarsins.
Það er E.O.P. mót K.R. Mótið
verður á Melavellinum og
meðal þátttakenda eru allir
beztu frjálsíþróttamenn bæj-
arins.
Sáttatillaga um
kjör verkakvenna
Sömu lœkkanir í krónutölu og
til verkamanna
1 GÆR lögðu sáttasemjarar
fyrir vinnuveitendur og
verkakonur í Reykjavík og
Hafnarfirði sáttatillögur í
vinnudeilunni. Samkvæmt
henni er gert ráS fyrir, að
verkakonur fái á alla taxta
sína sömu hækkun að krónu-
tölu og sáttasemjari lagði til
að verkamenn fengju á
lægsta taxta sinn. Þar semj
kvennakaup er lægra en
karla verður hækkunin sam
kvæmt tillögunni nokkuð
hærri að hundraðshluta á
lægri töxtum verkakvenna.
Lágmarkskaup verkakvenna
yrði þá kr. 17.38 og aðrir taxt-
ar kr. 18.32, kr. 19.16 og kr.
21.91, sem er sama og hámarks-
kaup verkamanna samkvæmt
miðlunartillögunni í þeirra
deilu. Auk þess er gert ráð fyr-
r nokkurri tilfaerslu milli taxta.
Stöovun ótélagshundinna
manna
AKUREYRI, 31. maí — Aftur
hefur lifnað yfir iðnaðinum hér
á Akureyri, enda þótt Iðja, fé-
lag verksmiðjufólks, sé í verk-
falli. Þegar verkfallið skall á
stöðvaðist öll verksmiðjuvinna.
En samkvæmt samkomulagi
beggja deiluaðila var leitað álits
lögfróðra manna um það, hvort
það bryti í bága við vinnulög-
gjöfina, að þeir starfsmenn, sem
ekki væru í félagi verkfalls-
manna, héldu áfram störfum.
Reyndist það engan veginn and-
stætt anda vinnulöggjafarinnar
og voru því aftur hafin störf í
ýmsum verksmiðjum hér.
Iðnrekendur höfðu einnig ósk
að eftir því, að málið yrði lagt
fyrir félagsdóm, en úr því varð
ekki þar eð lögfræðingur ASI,
Egill Sigurgeirsson, taldi sig
ekki geta flutt málið fyrir hönd
umbjóðenda sinna. Ákvæði
vinnulöggjafarinnar væru ský-
laus í þessu máli.
Vigfús Þ. Jónsson, fyrrum for
maður Iðnrekendaféiags Akur-
eyrar, sem nú hefur gengið í fé-
óheimil
aðilar leituðu til lögmanna
sinna og bæðu 'þá um persónu-
legt álit á ágreiningsatriðum —
og, ef um misræmi yrði að ræða,
að lóta málið þá ganga til fé-
lagsdóms til úrskurðar.
Meginágreiningsatriðin voru:
Hvort þeir karlar eða konur, sem
ekki væru í verkfallsfélögum,
mættu vinna í verksmiðjum eft-
ir að verkfalli hefði verið lýst
yfir — og, hvort eigendur verk-
smiðjanna, fjölskyld-ur þeirra og
verkstjórar gætu unnið í verk-
smiðjunum áfram án þess að
brjófca vinnulöggjöfina.
Lögfræðingur iðnrekenda er
Páll S. Pálsson hrl. og lögfræð-
ingur ASI er Egill Sigurgeirsson
hrl. Samdægurs barst s'keyti frá
Páli S. Pálssyni, þar sem hann
taldi öruggt að vinnulöggjöfin
heimilaði slíka vinnu.
Hins vegar barst ekkert svar
frá lögfræðingi ASÍ, en Jón,
form. Iðju sagðist hafa átt sím-
tal við Egil Sigurgeirsson og
kvað Jón skýringar hans e'kki
vera í öllu samhljóða áliti Páls
S. Pálssonar. Vigfús kvaðst þá
hafa, með samþykki Jóns, haft
samband við Pál S. Pálsson og
beðið hann að setja sig í sam-
band við lögfræðing ASÍ og búa
málið síðan til úrskurðar félags*
dóms.
Undirtektir lögmanns ASÍ um
aðild að þessu máli urðu endan-
lega þær, að hann sagðist ekki
sjá ástæðu til þess að leggja mál
ið fyrir félagsdóm, þar eð hér
gæti ekki verið um neitt deilu-
mál að ræða. Vinnulöggjöfin
bannaði ekki atvinnurekendum
að lóta ófélagsbundna menn
vinna áfram. , 4
Þessi málalok eru að okkar á-
liti þýðingarmikil, sagði Vigf'ús
að lokum, og teljum við okkur
skylt að kynna þau þeim aðílum,
sem nú eiga í deilum.
Sem fyrr segir er vinna hafin
í allmörgum verksmiðjum á Ak
uxeyri, m.ia. í Dúkaverksmiðj.
unni, Verkstæði Albents Sölva.
sonar, Efnagerð Akureyrar o.fl.
því allmikill fjöldi starfsmanna
er ekki innan þeirra samtaka,
sem nú eiga í verkföllum. >
lag fsl. Iðnrekenda, sagði í við-
tali við Mbl. í dag, að vegna
ýmissa árekstra, sem orðið hefðu
í verkföllum, þá hefðu iðnrek-
endur ræfct við formann Iðju,
Jón Ingimarsson, strax á fyrsta
degi verkfallsins og hefði það
orðið að samkomulagi, að báðir
Dómsmálaráð-
herrann fór utan
DÓMSMÁLARÁÐHERRA,
Bjarni Benediktsson, ætlaði utan
í morgun til þess að sitja fund
dómsmálaráðherra Evrópuráðs-
ríkjanna, sem mun standa yfir í
París næstu daga. í för með ráð
herranum verður Baldúr Möller,
deildarstjóri í dómsmálaráðu-
' neytinu.
Tíminn svívirðir
sáttasemjara
HINIR nýju leiðtogar í verk-
fallsbaráttunni, foringjarnir í
Framsóknarflokknum, ganga
orðið furðulega langt í bar-
áttunni fyrir því að kollvarpa
efnahag landsins. Vilja þeir
sýnilega sanna það áþreifan-
lega, að þeir taki kommún-
istum fram í einu og öllu.
í gær talar Þjóðviijinn um
tillögur sáttasemjara sem „til
boð ríkisstjómarinnar“, en
Tíminn gengur feti Iengra og
nefnir málamiðlunartillöguna
„tilboð atvinnurekenda“. Með
því er blaðið að reyna að
gefa í skyn, að sáttasemjar-
arnir séu einhvers konar
handbendi vinnuveitenda. —
Fréttafölsun er ekki ný á nál
inni í þessu blaði, en ósvífn-
inni í garð sáttasemjara verð-
ur að mótmæla sem bæði ó-
drengilegri og heimskulegri.