Morgunblaðið - 01.07.1961, Page 18

Morgunblaðið - 01.07.1961, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ Laugardagur 1. júlí 1961 ✓ Hér eru tvær myndir frá leik KR við danska liðið Freja frá Randers á Jdtlandi. KR vann glæsilegan sigur skoraði 6 mörk gegn 2. Á stærri mynd inni sézt er Þórólfur Beck, skoraði eitt af mörkum KR af stuttu færi. Gunnar Felixson fylgir vel og er til taks. Á minni myndinni sést mark- vörður Dana verja hörkuskot frá Gunnari Guðmannssyni (lengst til hægri). Markvörð- urinn varði vel — en engum duldist að Þórólfur Beck var í sérflokki á vellinum hvað hæfni snerti. — Myndir tók Sveinn Þormóðsson. Valur-Akureyri 2:2 í fremur lélegum leik Veðurguðirnir hafa ekki verið hliðhollir • knattspyrnumönnum okkar upp á síðkasetið. í leik KR Freja rigndi eins og helt væri úr fötu og skömmu áður en leik- ur Vals við Akureyri hófst byrj uðu sömu ósköpin. Það fer ekki hjá því að háll völlurinn samfara rigningu og kulda gerði sitt til þess að leikur þessi var ekki skemmtilegur. Hinsvegar verð- ur ekki hægt að kenna veðrinu um einu saman heldur eiga leik- mennirnir sjálfir nokkra sök þar á. Ónákvæmni í sendingum ein- kenndi leik beggja liðana og oft var skotið úr vonlítilli aðstöðu. Fyrsta stundarfjórðunginn skiptust liðin á með upphlaup án þess að veruleg hætta skap- aðist nema á 6. mínútu þegar Ein ar markvörður Akureyringa hirti knöttinn af tánum á Bergsteini. Á 16. mínútu kom fyrsta markið. Það var Björgvin Daníelsson, sem skoraði úr góðri sendingu Berg- steins, sem hafði einleikið alveg upp að endamörkum og gaf síð- an laglega fyrir markið. Sjö mín. síðar skall hurð nærri hælum hjá Valsmönnum, en þá gómaði Björgvin knöttinn fram- an við tærnar á Skúla Ágústs- syni, sem hófst hátt á loft og Steyptist yfir Björgvin og var nærri- kominn sjálfur í markið. Akureyringar jöfnuðu úr víta- spyrnu á 35. mínútu, sem Haukur Jakoosson tók. Var vítaspyrnan dæmd fyrir hrindingu Magnúsar Snæbjörnssonar, en hann stjak- aði all harkarlega við Sleingrími með oinboganum. Hálfleiknum lauk án þess að flein mörk væru skoruð. hættulegur, og Páll Jónsson átti ágætan síðari hálfleik. Tveir Akureyringar urðu að yfirgefa völlinn í fyrri hálfleik, þeir Siguróli bakvörður, og Árni Sigurbjörnsson hægri framvörð ur. í stað þeirra komu Sigurður Víglundsson bakvörður, sem átti góðan leik og Magnús Jónatans- son kom í framvarðarstöðuna. — B. Þ, Tvö skákmót í Keflavík NÝLEGA er lokið tveim skák- mótum í Keflavík, en það eru Skámeistaramót Keflavíkur og Hraðskákmót Keflavíkur. Þátttak endur voru 9 í hvoru móti. Úr- slit í mótunum urðu þessi: Skák- meistaramót Keflavíkur: 1. Helgi Ólafsson 8 vinninga, 2. Páll G. Jónsson 6Vz v, 3. Haukur Angan týsson 5tz v. — Hraðskákmót Keflavíkur: 1-2 Haukur Angan- týsson 6% v. 1-2 Sigfús Jónsson 6V2 v. 3. Borgþór H. Jónsson 6 v. B.Þ. Lítið um ferðafólk fyrir austan EGILSSTÖÐUM, 30. júní — Hér hefur verið lítið um ferðafólk að undanförnu. Man ég ekki eft- ir svo fáum ferðamönnum á þess um tíma árs. Þó hefur verið á- gætisveður. Keflavík vann Reyni KEFLVÍKINGAR voru sigursæl- ir um helgina. í landsmóti III. flokks sigruðu þeir Ungmenna- félag Njarðvíkur með 9:0 Og í annarri deild sigraði ÍBK í leik sínum gegn Reyni, Sandgerði með 3r2. Lið ÍBK í III. fí. er skemmti- legt, leikur létt og hratt og nokkr ir piltar í liðinu eru mjög efni- legir knattspyrnumenn. • ÍBK—REYNIR 3:2 (1:2) Knattspyrnuvöllurinn í Sand- gerði er alveg á mörkum þess að hann geti talizt boðlegur til keppni í 2. deild. Völlurinn er mjór og ósléttur og ekki bætti það úr skák á sunnudaginn að þurr moldin þyrlaðist upp í haf- golunni svo að leikmenn hurfu í rykmekki. Það var vitað fyrirfram að leik ur þessi mundi verða harður, því bæði eru Sandgerðingar harðir í horn að taka á heimavelli og eins eru litlir kærleikar milli þeirra og Keflvíkinga, er þeir hitt ast á knattspyrnuvelli. Raunin varð einnig sú, að leikur þessi var grófur úr hófi fram, jafnvel svo að innfæddum Suðurnesja- mönnum þótti nóg um. Dómarinn Ólafur Hannesson KR, hafði ekki fyllilega vald á leiknum, enda var hann ekki auðdæmdur. Þegar á 2. mínútu leiksins var sóknarleikmanni ÍBK brugðið inni á vítateig, en dómarinn færði knöttinn út fyrir línu og dæmdi aukaspyrnu þaðan. ÞesSi dómur var mjög vafasamur. Á 9. sunnudaginn var, þá eru þessi ummæli fyllilega réttlát. — BÞ mínútu varð Hörður miðfram- vörður ÍBK óvígur og^ á 15. mín- útu skoruðu Sandgerðingar eftir að markmanni ÍBK hafði mistek- izt að slá háan knött frá mark- inu, enda gegn sól að sjá. Jón Jóhannsson miðherji ÍBK jafnaði á 27. mínútu en dómarinn dæmdi rangstöðu eftir að hafa ráðfært sig við línuvörðinn, Hannes Sigurðsson. Mínútu síð- ar skoraði John Hill, miðherji Reynis, annað mark Sandgerð- inga. Á 35. mínútu skoraði Högni Gunnlaugsson glæsilega eftir vel framkvæmda aukaspyrnu Páls Jónssonar. Það var mikið barizt í síðari- hálfleik og knötturinn dvaldi langdvölum á vallarhelmingi Reynismanna, en þrátt fyrir mörg og upplögð tækifæri var það ekki fyrr en á 32. mmútu að Högna tókst að jafna fyrir ÍBK. Tveim mínútum síðar teigði Vil- hjálmur Ölafsson vinstri innherji Kvenna- og drengja- meistaramót KVENNAMEISTARAMÓT fs- lands og Drengjameistaramót ís- lands í frjálsum íþróttum 1961, fara fram á Laugardalsleikvang- inum í Reykjavík dagania 8. og 9. júlí 1961. — Keppt verður í eftir töldum greinium: Laugardaginn 8. júlí kl. 16. Konur: 100 m hiaup, hástökk, kúluvarp, spjótikast og 4x100 m boðhlaup. — Drengir: 100 m hlaup, kúhivarp, hástökk, 800 m hlaup, spjótkiaist, langstökk og 200 m grinda'hlaup. Sunnudaginin 9. júlí kl. 14. Konur: 80 m grindahlaup, lang- stökk, kringilukast og 200 m hlaup. — Drengir: 110 m grinda- hlaup, kringlukast, stangarstökk, 300 m hlaiup, þristökik, 1500 m hlaup og 4x100 m boðhlaup. Þátttökutilkynningar s k u 1 u hafa borizt í pósthólf 1000, Reykjavík, eða til formanns FRÍ, Jóhannesar Sölvasonar, sími 17282, eigi síðar en kl. 10 að kvöldi hins 5. júní 1961. Frjálsíþrótt3isamband íslands sér um framkvæmd mótsins. Reynis höndina í háan knött, sem var á leið framhjá markinu. Víta- spyrna var dæmd og Högni skor- aði auðveldlega. Skömmu fyrir leikslok skoraði Jón miðherji fyrir ÍBK en hann mun hafa lagt knöttinn fyrir sig með hendinni og markið var dæmt ógilt. Eftir leikinn sagði einn af fór- ystumönnum knattspyrnumála í Keflavík við undirritaðan* „Hvorugt þessara liða á erindi í fyrstu deild.“ Geti þessi lið ekki leikið bet- ur, en þau gerðu í Sandgerði á sunnudaginn var, þá eru þessi ummæli fyllilegia réttlát. B. Þ. 4. flokkur B Nýlega ^er lokið Reykjavíkur- meistaramóti í 4. flokki B. KR- ingar báru þar sigur úr býtum með 7 stigum. Unnu þeir alla sína leiki nema við Fram, en þar varð jafntefli. Skoruðu alls 13 mörk gegn 2. — Myndin hér að ofan er af hinum ungu meistur- um ásamt þjálfara þeirra, Guð- birni Jónssyni. Valsmenn héldu uppi allharðri sókn um hríð, en á 23. mín. hljóp Páll Jónsson ÍBA, eldfljótur leik maður, upp hægri kantinn og inn að marki og skoraði framhjá út hlaupandi markmanni. Páll hrein lega hljóp Þorstein Friðþjólfsson af sér. Við þetta mark færðist fjör í Akureyringa og áttu þeir nokkur hættuleg tækifæri, einkum á 27. mín. er Páll renndi knettinum framhjá stöng, eftir að hafa hlaupið aftur af sér vörnina. Þegar fimm mín. voru til leiks loka hófu Valsmenn mikla sókn Árni Njálsson fór í framlínuna og barðist af miklum dugnaði, en allt kom fyrir ekki, félögin skildu jöfn að stigum og geta þau úrslit talizt réttmæt eftir atvikum. í liði Vals var Björgvin Her- mannsson traustur í markinu og þeir Árni og Magnús harðir í horn að taka í vörninni. Stein- grímur Dagbjartsson hægri út- herji gerði margt skemmtilega. Af Akureyringum var Jón Stef ánsson kletturinn, sem allt brotn aði á í vörninni og var hann ef til vill bezti maður vallarins. Steingrímur Björnsson, sem lét sem innherji er alltaf fljótur og Flugsamgöngur stöðvuðust í mánuð í verkfallinu, en eru nú hafnar aftUr. Margir eru fyrir nokkru byrj- aðir að slá og hirða. Þurrkur hefur verið heldur lítill, en nú er komin suðvestan átt og brak- andi þurrkur. Grasspretta var á- gæt framan af, en vorkuldarnir tóku fyrir hana. Um helgina voru hér á ferð 80—100 bændur úr Vestur-Húna vatnssýslu í bændaför. Á laug- ardaginn hélt Búnaðarsamband Austurlands þeim hóf. — A. B. Úlfar býður 1 veioilor FERÐASKRIFSTOFA Úlfars Jacobsen beitir sér nú fyrir viku- legum veiðiferðum upp á Arnar- vatnsheiði. Hefur Úlfar tekið á leigu nokkur nötn þarna — og eitt er víst, að í vikunni veiddu nokkrir menn 200 stykki í einu vatninu, þyngsta bleikjan var 14 pund. — Þetta verða fjögurra daga ferðir. Verður farið frá Reykjavík á þriðjudögum, kom ið aftur á föstudögum. \

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.