Morgunblaðið - 01.07.1961, Blaðsíða 20
5 U 5- síða
Sjá bls. 8.
IÞROTTIR
Sjá bls. 18.
144. tbl. — Laugardagur 1. júlí 1961
Stór dagur á Siglufirði
Mesta dagsöEtun síðan 1944
STÓR dagur á Siglufirði. SI.
sólarhring streymdu fleyti-
full síldarskip til Siglufjarð-
ar og var þar saltað meira á
einum sólarhring en nokk-
urn tíma síðan 1944, símaðí
fréttaritari blaðsins á Siglu-
firði í gær. Á Siglufirði hafa
nú verið saltaðar 52.820 tunn
ur alls, en í fyrra var heild-
arsöltun aðeins 47.253 tunn-
ur þar.
1 fyrrinótt var slæmt veður á
miðunum og skipin leituðu í var,
eða biðu í höfn. Fór þau að tín-
ast út upp úr hádegi í gær í
sæmiiegu veðri, en þá var enn
brimalda. í gærkvöldi, þegar blað
ið hafði samband við fréttarit-
ara sinn á Raufarhöfn, höfðu
nokkrir bátar kastað, en ekki
náð síldinni. Var því ekki útséð
um hvernig veiði yrði í nótt.
• Sólarhringur vöku og vinnu
Skeytið frá fréttaritaranum á
Siglufirði:
Siglufirði, 30. júní
Allan sl. sólarhring streymdu
fleytifull síldarskip tíl Siglufjarð-
ar Og saltað var á öllum söltun-
arstöðvum dag og nótt. Má segja
að þetta hafi verið sólarhringur
vöku og vinnu. Alls voru saltaðar
17,740 uppsaltaðar tunnur síldar
á Siglufirði þennan sólarhring.
Er þetta langmesta söltun á
sumrinu ag með stærri söltun-
ardögum um margra ára skeið.
Hér í bæ hafa nú verið saltaðar
52,820 tunnur, en í fyrrasumar
var heildarsöltun aðeins 47,253.
Þórhallur
Vilmundarson
prófessor í sögu
Til samanburðar má geta þess, að
sama dag árið 1958, sem var gott
síldarsumar, hafði verið saltað
í 49,815 tunnur eða nokkru
minna en nú.
Af bræðslusíldinni er það að
segja að Rauðka hefur fengið um
22 þús. mál síldar og úrgangs,
en Síldarverksmiðjur ríkisins 34
þús mál Síldar, þar af um 4 þús.
mál feitrar Kolbeinseyjarsíldar,
auk nokkurs magns af úrgangi.
Þrátt fyrir bræðsluna á miðun-
um í gærkvöldi Og nótt hefur bor
izt hingað síld í morgun, bæði í
söltun og til bræðslu. — Stefán
• Mikil síld til Dalvíkur
í fyrradag kom Gylfi II. með
805 tunnur til Hjalteyrar. Hefur
verksmiðjan þar tekið við lið-
lega 3 þús. málum og saltaðar
hafa verið um 1100 tunnur upp-
mældar.
Frá fréttaritara blaðsins á Dal-
vík bárust eftirfarandi síldarfrétt
ir:
Dalvík, 30. júní
Óvenju mikil síld barst hér, á
iand síðastliðinn sólarhring eða
300 lestir af sem-
enti frá Akranesi
AKRANESI, 30. júní — Akranes
ferjan flutti 300 lestir af sem-
enti héðan til Keflavíkur í nótt.
Er það fyrsta sementið, sem fer
eftir að vinna er hafin á ný.
Brauðgerðarhús verður opnað
hér í bæ sunnudaginn 2. júlí.
Það heitir Skagabakarí og er á
Suðurgötu 57 — Oddur.
Missti nótabátinn
SIGLUFIRÐI, 30. júní — I gær-
kvöldi og nótt var versta veður
og leituðu flestir síldarbátarnir
í var. Margir komu hingað og var
slegin síld hjá sumum, sem fór
í bræðslu.
Ms. Páll Pálsson missti bátinn
og Norðmaður missti nót og báta.
Guðjón.
alls um 4900 uppmældar tunnur
af 5 skipum. Þessi skip lönduðu:
Baldur 1000, Bjarmi 750, Björg-
vin 463, Júlíus 160, Árni Geir
534, Eldborg 673, Tálknfirðingur
803, Runólfur 400 og Sæfaxi 95
uppmældar tunnur í söltun.
Frá því kl. 2 e.h. í gærdag þar
til kl. 8 í morgun nam heildar-
söltun 3132 tunnum. — SPJ.
Og nú fá langþyrstir bílar benzíndreitil á ný.
Aðeins 14 þús. frá inniánsdeilc!-
unum bundnar í Seðla-
bankanum á sl. ári
SAMKVÆMT upplýsingum,
sem Morgunblaðið hefur afl-
að sér, nam sú upph., er bund
in var á reikningi í Seðla-
bankanum frá innlánsdeild-
um samvinnufélagana á sl.
ári, aðeins 14 þúsund krón-
um. —
Eins og kunnugt er, hefur
það einmitt verið eitt af
helztu árásarefnum framsókn
armanna á efnahagsráðstafan
ir ríkisstjórnarinnar og hin
nýju lög um Seðlabanka ís-
Iands, að með heimildar-
ákvæð'i laganna til þess að
skylda innlánsdeildir sam-
vinnufélaganna til að eiga fé
á reikningi í Seðlabankanum,
og setja þær þannig á bekk
með öðrum lánastofnunum,
væri vegið háskalega að
„jafnvæginu í byggð lands-
ins“ og jafnvel látið að
því liggja, að valdið gæti
auðn heilla héraða.
Iðjusamníngar
staðfestir í gær
Á RÍKISRÁÐSFUNDI í gær var
Þórhallur Vilmundarson, cand
mag. skipaður prófessor í sögu
íslands við heimspekideild Há-
skólans frá 15. sept. áð telja.
Þórhallur er sonur Vilmundar
Jónssonar, fyrrv. landlæknis og
Kristínar Ólafsdóttur læknis. —
Hann var stúdent frá Mennta-
skólanum í Reykjavík 1941 og
cand. mag. frá Háskóla íslands
1950. Síðan hefur Þórhallur kennt
við Menntaskólann í Reykjavík,
og kenndi í fyrravetur bók-
menntasögu við Háskólann fyrir
próf. Einar Ólaf Sveinsson.
IÐJA, félag verksmiðjufólks,
hét fund í Iðnó í gærkvöldi til
þess að f jalla um samkomulagið
við Félag íslenzkra iðnrekenda.
Samþykkti fundurinn samkomu
lagið með aðeins 5—6 mótatkvæð
um. Nokkrir kommúnistar tóku
til máls og vildu fella niður á-
kvæðið um aðild vinnuveitenda
að stjórn sjúkrasjóðsins, en til-
Iaga þeirra í þá átt var felld.
Félag íslenzkra iðnrekenda
hélt fund í Þjóðleikhúskjallaran
um í gærdag um málið. Var sam
kömulagið einnig samþykkt þar.
Ákvæði samningsins voru rak
in hér í blaðinu í gær, en hin
helztu þeirra eru þessi:
Allverulegar hækkanir verða á
almennu kaupgjaldi, einkum
kvennakaupi.
Vinnuveitendur greiða 1% af
dagvinnukaupi í sjúkrasjóð Iðju.
Verður stjórnin skipuð 3 mönn
um 1 frá hvorum aðila 02 nlut-
[ lausum oddamanni.
Orlof þeirra, sem unnið hafa í
10 ár eða lengur, lengist allveru
lega.
Eftirvinna verður áfram greidd
með 50% álagi og nætur- og
helgidagavinna með 100% álagi.
Vegna þessara fullyrðinga
hefur Morgunblaðið marg-
innt Tímann eftir því, hversu
háar upphæðir hér sé
um að ræða. Einu svör-
in hafa verið slagorð um
„samdráttarstefnu“ ríkis-
stjórnarinnar, og við þau hef
ur verið látið sitja. Þessi við-
brögð verða hins vegar mjög
Lýst eftir 72 ára
gönilum manni
I GÆR lét rannsóknarlögreglan
lýsa eftir 72 ára gömlum manni,
sem ekkert hefur spurzt til frá
því á miðvikudagskvöld. Og í
gær leituðu skátar með sjónum.
Höfðu engar fregnir borizt af
hinum horfna manni er blaðið
fór 1 prentun í gærkvöldi. Heitir
maðurinn Sæmundur Magnússon
Bergþórugötu 8. Hefur hann ver
ið starfsmaður í Verzl. Liver-
pool.
Á ’ fimmtudagskvöldið um kl.
10:30 var Sæmundur heima hjá
sér en á föstudagsmorgun um
kl. 8:30 var hann ekki í herberg
inu.
Ekki hefur reynzt mögulegt að
rekja ferðir hans eftir þennan
tíma, og biður rannsóknarlögregl
an þá sem kunna að geta gefið
upplýsingar um ferðir gamia
mannsins eftir kl. 10:30 á fimmtu
dagskvöld, að gefa sig fram.
Sæmundur er hár maður og
grannur, með mikið rauðjarpt
hár sem farið er að grána. Hann
var með brúna deghúfu á höfði,
í gráum frakka og dökkgráum
buxum.
skiljanleg, þegar það upp*
lýsist, að það eru litlar 14
þúsund krónur, sem að áliti
framsóknarmanna hafa verið
að valda landauðn í flestum.
héruðum landsins. (
Eins og kunhugt er, var til*
gangurinn með ákvæðunum um
bundna innstæðureikninga í
Seðlabankanum einkum sá að
koma á jafnvægi í peningamál-
um innanlands og var ætlazt til
þess, að Seðlabankinn notaði það
fé, sem greiddist inn á þessa
reikninga hjá honum að ein«
hverju leyti til að auka út«
lánagetu þeirra banka, sem eink-
'um sinna sjávarútveginum. Á
árinu 1960 mynduðust bundnar
innstæður í Seðlabankanum að
upphæð 67 millj. kr. frá öllum
lánastofnunum landsins, sem
skiptist þannig: frá bönkum og
Verzlunarsparisjóðnum 42,3
millj. kr., frá sparisjóðum 24,7
Framh. á bls. 19,
Jóns Sigurðssonar
sýningin
UM 3000 manns hefur komið á af
mælissýningu Jóns Sigurðssonar
í Bogasal Þjóðminjasafnsins. —
Verður sýningin opin fram á
sunnudagskvöld, frá kl. 2—10 dag
lega.
Hækktu mjólkin í næstu viku?
MORGUNBLAÐIÐ átti í gærdag
símtal við Stefán Björnsson, for
stöðumann Mjólkursamsölunnar
um hvenær almenningur mætti
búast við hækkun á mjólk og
mjólkurafurðum, hækkun er
sigla mun í kjölfar launahækkan
anna.
Stefán sagði, að lokið væri við
að reikna út hinn aiukna dreifing
arkostnað, er af kauphækkunun
um leiddi. Við höfum sent hinni
svO'nefndu sexmannanefnd mál
þetta varðandi. Nefndin hefur
tekið málið fyrir, en það er hlut
verk hennar að finna leiðir til
þess að mæta hinum aukna kostn
aði. Kvaðst Stefán ekki búast
við úrslitum fyrr en í næstu viku.
Þegar þessi mjólkur- og mjólk
urvöruhækkun kemur fram, er
þó ekki öll sú hækkun framkom
in, sem verða mun á mjólkinni,
því hinn 1. sept. kemur til fram
kvæmda hækkun sú á mjólk, sem
bændum ber, en með löguin var
ákveðið að bændum skuli reikn
uð sömu laun og verkamönnum.
Sáttoíundur
írum eitir nóttu
SÁTTASEMJARARNIR
Torfi Hjartarson og Jóna-
tan Hallvarðsson boðuðu
samninganefndir iðnaðar-
mannafélaganna og vinnu-
veitenda til sáttafundar
kl. 4 í gærdag. Stóð fund-
urinn í allan gærdag og
gærkvöld og var enn ekki
lokið, þegar blaðið fór í
prentun. Ekki tókst Mbl.
að afla sér nákvæmra upp
lýsinga um samkomulags-
horfur, en jafnvel var gert
ráð fyrir, að fundurinn
kynni að standa fram eftir
nóttu.
Ekki var haldinn neinn
fundur í gær með vöru-
bifreiðastjórum og vinnu-
veitendum, og næsti fund-
ur hafði ekki verið boð-
aður.