Alþýðublaðið - 04.12.1929, Blaðsíða 2
ALÞÝÐUHiiAÐIB
Maping
llpýðasambands íslands.
FB.
Alþýðusamband Islands til-
kynnir:
Á auka|)ingi Alpyðusambands
Islands, sem haldið var í Reykja-
vík dagana 16.—22. nóv., voru
mættir 47 fulltrúar fyrir 23 fé-
Iðg víðs vegar af landinu. Voru
|iar samþyktar allmargar tillögur,
er bæði snerta starfsemi Alpýðu-
sambandsins út á við og inn á
’við, ög eru hér birtar nokkrar
þeirra.
-;ír r■' .
1. Um afstöðpna til stjórnar-
fiokksins.
[Samþyktin hefir áður verið
bÍTt hér i blaÖinu.]
2. Færsla kjördags.
Sambandsþingið skorar á alpingi
að bæta þegar á næsta ári úr því
ranglæti, sem verkalýður lands-
ins var befttur með 'því að flytja
kjördaginn á mesta .annatíma
ársins og leggur fyrir þingmenn
ílokksins að neyta allra krafta til
þess að fá þessu kipt í lag.
3. Lánadeild ti1 smábýla.
Sambandsþingið skorar á ríkis-
stjórnina að sjá um, að lánadeild
smábýla viö kauptún og kaup-
staði komi ■ til framkVæmda jafn-
skjótt og Búnaðarbankinn tekur
til starfa.
ff ■- ": -r -•' \
h,:. i
4. Dómur i vinnudeilum.
Aukaþing Alþýðusambands Is-
lands mótmælir harðlega frum-
varpi um dóm í vinnudeilum, er
fram kom á siðasta alþingi, og
felur þingmönnum flokksins á-
samt sambandsstjórn að beita sér
af alefli móti pví og öllum til-
raunum, er gerðar verða í þeim
tilgangi að hefta sjálfsákvörðun-
arrétt alþýðunnar í kaupgjalds-
málum.
5. Verkamannabústaðir.
Sambandsþingið skorar á ríkis-
stjórnina að láta lögin um verka-
mannabústaði koma til fram-
kvæntda í öllum kaupstöðum og
kauptúnum landsins, þar sem
verkamanna- og verkakvenna- og
sjómanna-félögin á staðnum
leggja með því.
6. Veðlánasjöður fiskimanna.
Sambandsþingið skorar á al-
þingi að samþykkja í vetur frum-
varp um veðlánasjóð fiskimanna,
sem Alþýðuflokksþingmenn hafa
borið fram á síðustu tveimur
þingum.
7. Skattamál.
Aukaþing Alþýðusambands ís-
lands skorar á alþingi að afnema
þegar á næsta ári tolla á nauð-
synjavörum og sjá ríkissjóði fyr-
ir tekjum í peirra stað með
ilt til íslenzka búningsins
í fjðlbreFtto úrvali, m sem:
4 teg. af blæði, par á meðal hið
viðnrbenda 14,50 blæði.
Sílhi, úrvals teg.
Mðtlahlæði, margir Htlr.
Mötiashinnbantnr, ;.
UpphlHtasilbi, ........Z'!
Uppblatasbyrtnefni. P ^
Silbisvnntnefnl, svðrt og misiil
• Slifsi í mjðg fjðlbreyttn drvaii.
i *©
Verzlunin Egill Jacobsen.
einkasölum, hækkun tekju- og
eigna-skatts og fasteignaskatts
og verðhækkunarskatti. Jafnframt
skorar sambandsþingið á alþingi
að hækka hinn skattfrjálsa hluta
teknanna svo, að brýnar þurftar-
tekjur séu eigi skattskyldar.
8. Sjóveðsréttur sjómanna.
Sambandsþingið mótmælir til-
raunum þeim, sem komið hafa
fram á alþingi um að nema úr
lögum sjóveðsrétt sjómanna sem
tryggingu fyrir vangoldnu kaupi
þeirra, og skorar á alþingi að
fella allar tillögur, sem fram
kunna að koma í 'þá átt.
9. Sjómannalög.
SambandsþlngiÖ skorar á al-
þingi að samþykkja á næsta þingi
frumvarp til sjómannalaga, er
lagt var fyxir alþingi 1929, enn
fremur að samþykt verði frum-
varp til laga um lögskráningu
sjómanna, er flutt verður af Al-
þýðuflokksins hálfu á næsta
þingi.
10. Lánsstofnun fyrir sjávar-
útveginn.
Sambandsþingið skorar á al-
þingi og landsstjóm að koma á
stofn lánsstofnun fyrir sjávarút-
veginn í landinu, — stórútgerðin
undanskilin —, hliðstæða Búnað-
arbankanum, er samþyktur var á
síðasta alþingi.
11. Afsetnlng Steínpórs Gnð-
mundssonar skólastjóra.
Aukaþing Alþýðusambands ís-
lands, haldið í nóvember 1929,
mótmælir eindregið afsetningu fé-
laga. Steinþórs Guðmundssonar
sem pólitískri ofsókn. ,
__iftkV ' •< «>-'- •
12. Ýms mál.
A. Samþykt var að skora á
þingmenn flokksins að bera fram
á næsta alþingi frumvarp um
átta stunda vinnudag í verk-
smiðjum og jafnframt var sam-
bandsstjórn falið að skrifa öll-
um verkalýðsfélögum rökstuddar
skýringar á nauðsyn styttingu
vinnutímans og fá tillögur þar
um.
B. Samþykt var að skipa 7
manna nefnd til að undirbúa og
semja stjórnarskrá fyrir Alþýðu-
flokkinn og leggja fyrir verka-
lýðsráðstefnu, er haldin verður
rétt fyrir næsta sambandsþing.
C. Áskorun til alþingis og þing-
manna Alþýðuflokksins um að
gera Siglufjörö að sérstöku kjör-
dæmi var samþykt.
D. Sömuleiðis var samþykt sér-
stök áskorun um að fjölga þing-
mönnum fyrir Reykjavík.
E. Samþykt var að fela þing-
mönnum Alþýðuflokksins að bera
fram frumvarp um verkkaupsveð
og að bera fram breytingar á lög-
um um greiðslu verkkaups, þann-
ig, að þau lög nái einnig yfir iðn-
aðarmenn.
F. Samþykt var aö bera fram
breytingar á slysatryggingarlög-
unum í ’þá átt að auka réttindi
styrkþega.
G. Samþykt var að fela þing-
mönnum flokksins að bera fram
á næsta alþingi frumvarp um
einkasölu ríkisins á síld á svipuð-
um grundvelli og áður hefir verið
borið fram á þingi af Alþýðu-
flokksmönnum. — Enn fremur
var samþykt að beita sér fyrir
því, að síldarverksmiðjan verði
rekin af ríkinu.
H. Samþykt var, að þingmenn
flokksins beri fram á alþingi
frumvarp um rétt verkamanna til
að stofna rekstursráð við þau
fyrirtæki, er þeir vinna við.
/. Samþykt var að fela þing-
mönnum flokksins að bera fram
frumvarp um landsverzlun, er
geti tekist á hendur einkasölu á
olíu, tóbaki, korni, kolum, salti
og lyfjum og annist ýms innkaup
rikisdns, svo og frumvarp um
heimild handa bæjarfélögum til
að taka einkasölu á kolum og
mjólk.
./. Samþykt var að skora á
fjórðungssamböndin að bjóða
flokksmönnum úr sveitum á
fjórðungsþingin, þó. ekki fleirum
en tveimur úr hverri sýslu.
K. Alþýðusambandsþingið
samþykti að bjóða fulltrúum frá
Sambandi ungra jafnaðarmanna á
næsta sambandsþing.
L. Samþykt var að skora á
þingmenn flokksins að bera fram
breytingar á iðnaðamámslögun-
um til þess að tryggja betur rétt
iðnnema.
M. Kaupgjaldsmál. Samþykt
var að fela sambandsstjórninni
að gera skýrslu um alt kaup-
gjald í landinu, svo og að koma
á samtökum meðal þeirra manna
í sveitum, er vinna að vega- og
brúa-gerðum. Enn fremur var
sambandsstjórn falið að semja
við ríkisstjórn um kaupgjöld við
opinbera vinnu og gefa út kaup-
taxta í samráði við stjóxnir fjórð-
ungssamband.anna, ef ekki næst
samkomulag um kaupgjaldið við
ríkisstjórnina.
BékmenfsKfélag
lafBaaðaiiFisiaiiiiia
stofnað.
Snemma á þessu ári gengust
nokkrir áhugasamir menn fyrir
því að stofnað yrði Bókmentafé-
lag jafnaðarmanna. Var stofn-
fundur haldinn 10. nóvember og
framhalds-stofnfundur 1. dezem-
ber. Á síðari fundinum voru sam-
þykt lög fyrir félagið og stjórw
kosin.
Tilgangur félagsins er ákveðinn
í 2. gr. félagslaganna og er hún
þannig:
„Félagið gefur út rit og bækur
í þeim tilgangi að auka þekkingu
á jafnaðarstefnunni og starfsemi
hennar og breiða út annan nyt-
saman fróðleik, er alþjóð má að
haldi koma, svo og fagrar bók-
mentir, útlendar og innlendar."
I stjórn voru kosnir: Séra Ingi-
mar Jónsson skólastjóri formað-
ur og meðstjórnendur Eggert B.
Briem, Þórbergur Þórðarson rit*
höfundur, Hallbjöm Halldórsson
prentsmiðjustjóri og dr. Guð-
brandur Jónsson. I varastjóm
voru kosnir: JakQb Jóh. Smári
varaformaður, Jón Guðjónsson
bókari, Gísli Jónsson jámsmiður,
Nikulás Friðriksson og Ólafur Þ.
Kristjánsson esperantókennari.
Endurskoðunarmenn voru kosn-
ir Vilhelm Jakobsson hraðritari
og Sigurður Ólafsson.
Næsti aðalfundur félagsins
verður í júní 1931 og síðan í
júnímánuði ár hvert.
Stjórnarkosningum skal fram-
vegis haga þannig, að allir fé-
lagsmenn geti tekið þátt í þeim,
hvar sem þeir eru á landinu, og
sama gildir ef um breytingar á
lögum félagsins er að ræða.
Hjálpræðisherinn.
Hljómleika heldur foringja-
skóli Hjálpræðishersins annað
kvöld kl. 8. Á hljómleikaskránni
em 14 lög.