Morgunblaðið - 16.01.1962, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 16.01.1962, Qupperneq 9
Þriðjudagur 16. jan. 1962 MORGVNBLAÐIÐ 9 Sextugur í gær Vaiur Gísiason leikari Visnasafnarinn frá Haukagili ÞEIR sem voru á frumsýningu í Þjóðleikhúsinu sl. fimmtudag á Húsverðinum, munu vart trúa því, að leikarinn, sem bar hita og þunga þeirrar sýningar og stóð í sviðsljósunum frá byrj- un til enda, standi rétt á sex- tugu. Á honum voru engin elli eða þreytumörk að sjá. Þessi leikari er Valur Gíslason. Sjald- an eða aldrei hefur hann sýnt stórbrotnari leik í nokkru hlut- verki. Þar koma fram beztu þættir í listsköpun hans. Mikil innlifun, vandvirkni og hnit- miðuð nákvæmni í hverri hreyf ingu og tilliti. Valur hefur hér sem oft áður krufið hlutverk sitt til mergjar og komizt inn að innsta kjarnanum. Davies, flakkarinn umkomulausi, verður í meðförum hans, aumkunar- legur einstæðingur, en svo trúr og raunsær, að leikhúsgestum mun finnast þeir hafa þekkt hann alla ævi. Valur er fæddur hér í Reykja vík 15. jan. 1902. Á yngri árum lagði hann á margt gjörfa hönd og fram til ársins 1950, er Þjóð- leikhúsið tók til starfa, vann hann að skrifstofustörfum og varð sem aðrir, er unnu að leik- list að byrja æfingar og leik eftir langan starfsdag. Þannig var búið að íslenzkum leikur- um fram á siðustu ár. Valur lét sitt fyrsta hlutverk í „Þrett- ándadagskvöldi“ eftir William Shakespeare, hjá Leikfélagi Reykjavíkur árið 1926. Eftir það lék hann hjá L.R. allt fram til ársins 1950 og um margra ára skeið var hann einn af aðalleik- urum þess. Valur tók snemma virkan þátt í félagsmálum og var í mörg ár í stjórn L.R. og formaður þess í þrjú ár. íslenzk leikarasamtök eru til- tölulega ný af nálinni. Þaukomu ekki til sögunnar fyrr en nokkr um leikurum gafst kostur á að lifa mannsæmandi lífi af leik- starfi sínu. Þá fyrst varð leik- urum það ljóst að þeir urðu að bindast samtökum til að gæta hagsmuna sinna. Einn þeirra brautryðjanda, sem fyrst kom auga á þetta var Valur Gísla- son. Hann hefur unnið mikið og margþætt starf í félagssam- tökum leikara. Verið formaður Fél. ísl. leikara í 11 ár, eða lengur en nokkur annar og hefur, að öllum öðrum ólöstuð- um mótað þau samtök allra manna mest. Hann hefur einnig verið fulltrúi íslenzkra leikara í Norrænu leikhússamtökunum, í stjórn þeirra, og setið mörg leikaraþing og fundi fyrir hönd stéttar sinnar hér. Það er jafn- an erfitt og vanþakklátt starf að standa í samningum og þarf þar að sýna lipurð og fulla einurð ef því er að skipta. Þessi störf hefur Valur oftast allra annast fyrir leikara. Fyrir allt þetta þakka íslenzk- Ir leikarar Val af heilum hug og vita, að þeir eiga öruggan og traustan fulltrúa, þar sem hann er. Þegar Þjóðleikhúsið tók til starfa 1950 var Valur fastráðinn leikari við þá stofnun. Leikferil hans þar er óþarfi að rekja, svo kunnur er hann öllum lands mönnum. Honum hafa verið fal- in fleiri aðalhlutverk en nokkr- um öðrum í Þjóðleikhúsinu og hefur hann leyst þau öll af hendi með miklum ágætum. Valur átti þess ekki kost að stunda leiklistanám, sem mjög tíðkast á seinni árum, en hann notfærði sér annan skóla, sem er öllum öðrum skólum gagn- legri í þessum efnum og það er skóli reynslunnar. Þegar litið er um öxl yfir leiklistarferil Vals, verður öll- um ljóst, hvað hann hefur vax- ið í list sinni allt fram á þenn- an dag. Hin margbreytilegu við- fangsefni hafa aukið víðsýni hans, svo að hann hefur aldrei staðnað í túlkun sinni á leik- sviðinu, heldur þroskazt og stækkað með verkefnunum. Hann er óhræddur að kanna nýjar leiðir og sparar hvorki tíma né erfiði til að ná sem beztum árangri. Slíkt er eðli góðra listamanna. Eg veit að íslenzkir leikarar færa Vali Gíslasyni hugheilar áranaðaróskir á sextugsafmæli hans og þakka hcnum mikil og giftudrjúg störf í þeirra þágu. Klemenz Jónsson. A BAKSÍÐU Tímans, 17. des. sl. birtist viðtal við Sigurð Jóns- son frá Haukagili, er nefnist: Forðið ferskeytlunni úr klóm gleymskunnar. Þar er margt athyglisvert, þótt annað orki tvímælis, að mín- um dómi. Blaðamaðurinn spyr: „Megum við skjóta á nokkr- ar möppur hjá þér til að skreyta með baksíðuna?“ Sigurður raðaði upp 8 bréfa- bindum með um 3000 vísum i hverju. „Þetta er nú orðið ágætt", segir blaðamaðurinn, — og síð- ar: „Hvað áttu margar svona öskjur? “ „Ætli þær séu ekki rösklega 16“, segir Sigurður. — Er senni- lega að safna í þá seytjándu. Næsta spurning: „Hverjir eru aðrir mestu safn arar á landinu“. Svar: „Ég veit það nú ekki. Það eru ýmisir að fást við þetta. En ég þekki ekki vinnubrögð annara safnara“. Sigurður gat þess ekki við blaðamanninn, að af þessum 16 öskjum, sem hann segist eiga, eru 8 frá mér. Hann lét þess heldur ekki getið, sem hann veit þó, að þessar 8 öskj- ur ,sem hann fékk úr mínu safni, er aðeins örlítið brot af því, sem ég hefi safnað á minni löngu ævi. Blessaður maðurinn. Hann þekkir bara engan safn- ara, nema sjálfan sig. Um vísna söfnun almennt segir Sigurður: „Það er nauðsynlegt að skrá á sem gleggstan hátt allt, sem vitað er um vísuna, — annars gætu þetta orðið leiðinleg mis- tök og blotnað í ö lu púðrinu." Þetta vil ég undirstrika. Vísnasafnarinn má aldrei gleyma þeirri frumskyldu að afla réttra heimilda, ef kleift er, — og fara rétt með, bæði vísu og heimildir. Athugum nú, hvemig Sigurði sjálfum tekst þetta. Vísa, sem hann birtir eft- ir Jón Pálmason, getur verið prófsteinninn. Frá hendi Sigurðar er visan þannig: Dregur grímu á dal og fjall, daufa skímu veitir. Leggur Tímans lygaspjall líkt og hrím á sveitir. „Þetta orti Jón við lestur dag- blaðsins Tíminn. Og hún er meira að segja hringhend," bæt- ir Sigurður við. En þessi vísa er ekki ort við lestur Tímans. Það skiptir reyndar ekki máli fyrir annan en Sigurð sjálfan, sem vill gera ágizkun sína að staðreynd. Hitt er öllu verra, fyrir Sigurð, að vísan er afbök- uð, í henni eru tvær villur, í annarri og fjórðu hendingu. Það er víst auðveldara að kenna heilræðin en halda þau. Þó vil ég ráðleggja kunningja mínum, Sigurði vísnasafnara, að hringja til Jóns Pálmasonar, svo að hann geti birt vísuna rétta í næsta blaðaviðtali. Blaðamaðurinn spyr: „Gerir þú ekki vísur sjálf- ur?“ Svar: „Nei, það skulum við ekkl nefna. Það liggur ekki fyrir mér. Söfnunin hefur setið fyrir öllu öðru.“ Þarna er Sigurður lítillátur um of. Hvers vegna ekki segja frómt frá. Auðvitað yrkir þú Siggi. Ég skal meira að segja nefna eitt tækifæri, sem þér gafst til þess að sýna hvað í þér býr á því sviði. Fyrir nokkrum árum varð ég fyrir því að fótbrotna, en það er ekki talið neitt sérstaklega eftirsóknarvert áttræðum manni, Þú heimsóttir mig, á sængina, til að hressa upp gamlan kimn- ingja og færðir mér tvær frum- ortar vísur. Þær hljóða svo: Situr fyrtur gleði og glaum, grimm er hirting nauða. Léleg birta og æfin aum illa girtum kauða. Þyngist neyð og þrýtur svafl, þreyta sveið í taki. Öll hans reið og ásta brall er að heiðabaki. Ójú, góðir hálsar. Hann yrklr blessaður drengurinn — meira að segja hringhendur. Og senni- lega er hann kraftaskáld, því að beinbrotið gréri. Einar Þórðarson frá Skeljabrekku. Skrifsfofusfarf Reglusamur ungur maður óskast til skrifstofustarfa hjá stóru fyrirtæki í bænum. Verzlunarskóla eða hliðstæð menntun nauðsynleg, Uppl. um menntun og fyrri scórf sendíst afgr. Mbl. merkt: „Skrifstofu- starf — 7298“ fyrir miðvikudagskvöld. Til leigu nú begar 2—3 skrifstofuherberg: í Miðbænum. Upplysmgar í síma 14855. POCKET BOOKSI Aðalumboðsmenn_á Islandi: Snabj örnIíónsson& Gj.íi.f THE ENGLISH B00KSH0P Hafnarstræti 9, Reykjavík. Símil-1936. Símnefni: Books. Stór sending af nýjum bókum komin Ilerrafrakkar kr. 200,— Greiðslusloppar kvenna kr. 100,— Ullar-kemputeppi kr. 195.— Mollskinns-herrabuxur kr. 230,— Kven-kakibuxur kr. 55,— Ódýrar crepesokkabuxur Odýr kven-náttföt — Nærföt o. fl. ÖDVRT VERKSMIÐJUÚTSALAN Laugavegi 66

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.