Morgunblaðið - 16.01.1962, Side 12

Morgunblaðið - 16.01.1962, Side 12
12 MORGUNBLAÐIÐ Þriðjudagur 16 jan. 1962 Alúðar þakkir til allra þeirra, sem glöddu okkur á sjötugsafmælinu 5. og 12. des. sl. með heimsóknum, gjöfum og skeytum. — Guð blessi ykkur ölL Einar Jónsson, 4malia Björnsdóttir, Mýrum. Móðir okkar og tengdamóðir JÓNÍNA ÞORSTEINSDÓTTIR Nýlendugötu 18, lézt í Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund sunnudaginn 14. janúar. Unnur Einarsdóttir, Karl Einarsson, Ingunn Jónsdóttir. Maðurinn minn MAGNÚS ÞORSTEINSSON er lézt 11. þ.m., verðui jarðsunginn frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 18. þ.m. kl. 1,30. Blóm vinsanlegast afþökkuð. Fanný Ásgeirsdóttir. Föðurbróðir okkar BENEDIKT B. ÓLAFSSON 15 Lorraine Ave., St. Vitaí, Man. andaðist í W.nmpeg 12 janúar síðastliðinn. Einar Jón Óiafsson, Lydia Björnsson. Móðir okkar JÓNÍNA STEINUNN JÓNSDÓTTIR Túngötu 8, Siglufirði, verður jarðsungin miðvikudaginn, 17. janúar f á Dóm- kirkjunni í Reykjavík ki. 13,30. Börnin. Útför eiginmanns míns ANDRÉSAR JÓNSSONAR Grímsstöðum, fer fram frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 17. jan. kl. 10,30. Blóm afbeðin, en þeim sem vildu minnast hins látna er vinsamlegast bent á Barnaspítalasjóð Hringsins. Athöfninni vei'ður útvarpað. Sigríður Einarsdóttir. Hjartans þökk þeim, sem sýndu mér vinsemd í tilefni af fráfalli míns elskulegar sonar JENS RÖDGAARD JESSEN Sigþrúður Guðmundsdóttir. Við fráfall ELÍNAR EGILSDÓTTUR þökkum við innilega alla vináttu við hana og okkur sýnda hluttekningu við útför hennar . F. h. systur og anna.ra vandamanna. Guðrún Sigurðardóttir. Okkar innilegasta þakklæti til allra fyrir auðsýnda samúð og hjáipsemi við fráfall mannsins míns KJARTANS EINARSSONAR tiésmíðameistara, Hvolsvelii. Sérstaklega þökkurn við Magnúsi Kristjánssyni og frú fyrir þeirra miklu aðstoð og hjálpsemi í okkar garð, svo og starfsfólki Kaupfélags Rangæinga og kirkjukór Stórólfshvolskirkju. Fyrir hönd barna, foreldra, systkina og annarra vandamanna. Katrin Aðalbjörnsdóttir. Hjartanlegustu þakkii tii allra þeirra nær og fjær, sem sýnt hafa samúð og vináttu í veikmdum við andlát og jarðarför ÞÓRUNNAR EIRÍKSDÓTTUR Mörtungu. F. h. vandamanna. Jón Ólafsson. Alúðar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinsemd við fráfall ÚLFARS JÓNSSONAR læknis. Guðný Ámundadóttir og börn, Jakobína S. Guðmundsdóttir, og systkini hins iátna. Guðmundur Gunn- laugsson kaupmaður F. 5. nóvember 1899 D. 12. janúar 1962. HÉR hefir mikill drengskapar- maður kvatt jarðlífið og endur- fæðst til betra lífs. En mikinn drengskaparmann kalla ég þann, er alla ævi nefir gætt þess dyggi- lega að breyta svo, að enginn annar fái .nem hans vegna. Slíkir menn berast lítt á, þeirra leið liggur fjarri hávaða og ærslum iífsins, því ad þeir eru friðarins menn, og peir starfa í kyrþey að fögrum og göfugum hugsjónum. Orðstir þeirra lifir því alltaf meðal þeirra er kvnntust þeim bezt. Og hann verður þeim ör- uggt vegabréf yfir landamæri hins nýja heims. Allt vort ævistarf mótast af þrennu: Heimilislífi, skiptum við aðra menn, og þeim hugsjónum, sem vér berum í brjósti. Ungur að árum kvæntist Guð- mundur eftirlifandi konu sinni, Þorvaldínu Ólafsdóttur, gáfaðri Og mikilhæfri konu. Sem heimilis faðir var hann fyrirmynd ann- ara, ljúfur og ástríkur jafnt í blíðu og stríðu, umhyggjusamur svo af bar og sá vel fyrir öllu. Um breytni hans gagnvart öðr- um mönnum hefir þegar verið sagt, að hann vildi engum mein gera, en kappkostaði að láta gott af sér leiða. En um það hvernig hann vann að hugsjónum sínum, þá höfum vér talandi tákn þar sem er Hall- grímskirkja í Saurbæ á Hvalfjarð arströnd. En mér til efs að sú kirkja væn komin, ef Guðmund- ar hefði ekki notið og konu hans. Þau hjónin voru bæði einlægir trúmenn og dáðu mjög Hallgrím Pétursson hinn mikla „ljóðsvan trúar“ á íslandi. Þeim var það því óblandið fagnaðarefni þegar hafizt var handa um að reisa guðshús í Saurbæ til minningar um nann. En þeim urðu það einnig sár vonbrigði þegar fram kvæmdir iögðust niður og ekki var annað sýnna en menn hefði gefist upp á kirkjubyggingunni. Þá var það að Guðmundur gekk fram fyrir skjöldu sem sjálf boðaliði til þess að knýja verkið áfram. Þau voru bæði sannfærð um það hjónin, að guðs blessun mundi fylgja því starfi og þá mundu alltaf opnast nýir vegir þótt engin fær leið virtist fyrir stafni. Þeim varð að trú sinni. Árum saman var Guðmundur vakinn og sofinn að hugsa um þetta mál og hver úrræði væri líklegust. Hmn vakti Landsnefnd Hallgrímskirkju til starfa, og auð vitað eiga þeir mætu menn, sem í þeirri nefnd voru, sinn heiður af því að kirkjan komst upp. En ég held að ég geri engum þeirra rangt til þótt ég eigni Guðmundi aðalheiðurinn af því. Það voru hans ráð sem dugðu bezt og sívak andi eldlegur áhugi. Og segja má að margur sem meira barst á, hafi ekki reist sér Og sínum fram kvæmdum slíkan bautastein, sem hann gerði þar. Amerísk fjölskylda i Stamford Connecticut (hjón með tvö börn) óskar eftir eftir stúlku sem getur séð um heimilið meðan húsmóðirin vinnur úti hluta úi degi. Frí ferð til Bandaríkjanna og kaup eftir samkurnulagi. Upplýsingar hjá G. HELGASON & MELSTED H.F. Hafnarstræti 19. 3/a herb. kjallaraíbúð í smíðum til sölu við Álftamýri. Sér hitalögn. Sér þvottanús. Sanngjarnt verð og skilmálar. STEINN JÓNSSON, hdl. Lögfræðistofa — Fasteignasala Kirkjuhvoii — Símar 1-9090 og 1-4951. Öllum vinum mínurn nær og fjær, sem heiðruðu mig með nærveru sinni, heillaóskaskeytum og gjöfum á fimmtugsafmæli mínu 13. jan. 1962 færi ég mínar innilegustu þakkir. — Lifið heil. Þorsteinn Jónsson. Skógum. Hjartans þakkir til bama og tengdabarna og annarra vina er glöddu mig á sextugsafmælinu mínu 7. jan. 1962. Guð blessi ykkur ölL Guðríður Gunnlaugsdóttir, Sunnuhvoli, Hveragerði. Lokað í dag frá kl 12—4 vegna jarðarfarar Guðmundar Gunnlaugssonar kaupmanns. VÖRUHÚSIÐ og SKÓBÚÐ REYKJAVÍKUR Snorrabraut 38. Guðmundur var ekki skóla- genginn, en hann var sjálfmennt- aður maður og hafði mjög farsæl ar gáfur. Hann las mikið og hafði yndi af því að eiga góðar bækur og tala um efni þeirra. Einkum hafði hann yndi af fögrum ljóð um og kunni vel að meta skáld- skap. Nú ríkir söknuður í hug okkar vina hans. ÍJtför hans er gerð í dag. Við sendum ekkju hans, Erlu dóttur þeirra og manni henn ar og börnum innilegar samúðar- kveðjur. Á . Ó. Vinarkveðja. f skyndi brostinn sé ég silfur- strenginn, —• en sækir minning þakklát hug- ann á. Víst er, að hér er góður drengur genginn þá götu, er sérhver eitt sinn fara má. Man ég þitt bros, og handar- takið hlýja og hjarta, er sló í vinarbarmi traust, og ekki vildi fórnarstiginn flýja, en fól sig Guði í trúnni efalaust. Hrein var og full þín alúð huga og handar, hálfunna verkið þér var aldrei nóg, samúð þín rík með öllu því, sem andar, örlitlu fræi, sprota í lágum skóg, Gleði þér vöktu litur bæði og lína þess lands, er þig á brjóstum sínum ól, árfagrir morgnar, sogn er skarta og skína, skjallhvítir jöklar roðin aftan- sóL Sígur að kvöldi, silfurstrengur brestur, sagan er þessi, snúinn annar nýr. Kemur og fer hinn gönguhraði , gestur, er glaður sig á morgni að heim- an býr. Og enn er horfinn góður gestur sýnum. Guðs hönd þig leiði og blessi. Farðu veL Eg gleðst af því þú varst á vegi mínum, og vinskap þakka, bros, hið hlýja þeL Sigurjón Guðjónsson, Saurbæ.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.