Morgunblaðið - 24.02.1962, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 24.02.1962, Blaðsíða 16
16 MORGUN BL AÐIÐ Laugardagur 24. febrúar 1962 Barbara James: 35 Fögur og feig Hvað þurfið þér þá að vita um hana? spurði hún, tortryggin. Það er nú kannske Ijótt að segja það um hana — en — hafði hún stelsýki? Hún virtist vera hissa. Svo að þér vitið það? Nei, ég vissi það nú ekki fyrir víst. En ég er að rekja feril hlut- ar, sem getur hafa gengið gegn um hennar hendur, en varðar hana annars ekki neitt, persónu- lega. Nú er það ekki? Það var ég nú annars hrædd um. Hún er kom in heim til fólksins síns í Shef- field. Hún átti alls ekki heima i London og leikhúsaheiminum. Hafði enga hæfileika til að þola það loftslag, sem þar ríkti. En nú er hún vist sezt um kyrrt, og það væri* leiðinlegt, ef farið væri að róta upp í fortíð hennar. Hvað varð henni til foráttu? Þetta, sem þér nefnduð — stel- sýki. Hún hnuplaði hinu og þessu. En aldrei neinu dýrmætu. Ég bjó með henni bæði á ferða- lagi og í London. Ég átti ein- hverja smávægMega skartgripi og skildi þá oft eftir á glámbekk, en hún tók aldrei neitt þessháttar og heldur aldrei peninga. Hins vegar varð ég þess vör, að hún hafði tekið frá mér tvær greiður og ilmvatnssprautu. Vissuð þér alltaf, að hún hefði þennan ágalla? Nei ég vissi'það ekki fyrr en seint — ekki fyrr en ferðalagi okkar var lokið og við vorum komin til London aftur. Við leigð um þá sitt herbergið hvor í húsi í Earls Court. Þar sá ég einn daginn nokkuð á snyrtiborðinu hennar, sem kom mér kunnug- lega fyrir sjónir. Það var púður- dós, sem var talsvert sérkennileg og ég vissi, að var eign stúlku, sem var í sama flokknum og við. Og seinna þekkti ég nokkra aðra hluti úr annarra eigu.. Sögðuð þér nokkuð við hana um þetta? Já, það gerði ég, en hún þrætti alltaf fyrir það og sagðist hafa fengið þessa hluti að gjöf. En ég sá á öllu að hún vissi vel, að ég vissi, að hún var að segja ósatt. Og svo var hún auðvitað gripin áður en lauk. Var það? Já. Hún fékk einhverja bráða- birgðaatvinnu í stórri verzlun. Það var nú hér um bil það ó- heppilegasta sem hugsazt gat. Þar var hún kærð fyrir að hafa stolið leðurbelti, nokkrum eyrna- lokkum og hinu og þessu smá- vægilegu, sem ekkert var margra peninga virði. Fór hún þá í fangelsi? Nei, hún slapp með áminningu og kom undir eftirlit. Og þá fór hún heim til sín. Sem betur fór vakti' þetta ekki neina teljandi eftirtekt, af því að hún var kærð undir sínu raunverulega nafni, Clementine Withers. Ég held, að varla nokkur maður í leikhúsinu hafi vitað um þetta. Þessvegna er mér svona illa við að vera að segja yður frá því, frú Day. Þetta var í rauninni bezta etú'ilka, ög sízt vildi ég verða til þess að koma henní í vandræði. Það skal ekki koma henni í nein vandræði. Líklega er ég meira að segja á alveg skökku spori. Það sem ég er að grennslast eftir getur alveg eins vel verið án alls sambands við Tinu Hall. Ef svo er, þá er það eingöngu vegna þess, að hún stal þessum hlut fyrst. Hann getur hafa geng- ið margra milli síðan. Hvaða hlutur er þetta? Það er skammbyssa. Hún greip andann á lofti. Það er nú hlutur, sem er auðveldur að komast yfir fyrir hvern, sem einhverntíma hefur verið aðstoð- ar-leiksviðsstjóri. Hafði hún byssu í fórum sínum? Ég vissi alveg með sjálfri mér, að hún vissi eitthvað meira. Hún getur vel hafa haft það, svaraði hún hikandi. Þér verðið að segja mér, ef þér vitið eitthvað um þetta. Mér er það afskaplega áríðandi að vita, hvað orðið hefur af þessari byssu. Ég gekk á hana með ákafa. Hún horfði niður í sérríglasið en svar- aði engu Þér verðið að segja mér það, bað ég. Þér skiljið, frú Day, að ég vil ekki koma Tinu í neina bölvun, frekar en orðið er. Og ennþá síð- ur kæri ég mig um að lenda í henni sjálf, sagði hún dræmt. Hvemig gæti það orðið. Nema þá, ef önnur hvor ykkar hefur verið í vináttu við Crystal Hugo. Crystal Hugo? Eigið þér við stúlkuna, sem var að skjóta sig um daginn. Hún var í sýningu með manninum yðar. Já. Þekktuð þér hana nokkuð? Nei, og hafði meira að segja aldrei heyrt hana nefnda fyrr en hún var dáin. Hún var vinkona okkar, sagði ég og ekki alveg í samræmi við sannleikann. Hún var skotin með skammbyssu, sem ætlað var að væri komin frá sýningunni á „Gullársöngnum“. Og þar var Tina Hall. Við Rory þurfum nauðsynlega að vita, hvernig hún hefur náð í þessa byssu — ekki til að segja það lögreglunni, held ur aðeins okkar sjálfra vegna. Þetta var nú heldur veikburða saga, og ég sá líka, að henni fannst svo vera. Ég get ekki skilið, hversvegna það stendur ykkur á svo miklu. Það gerir það nú samt, þó að ég geti ekki sagt yður hvers vegna. Nú leit hún á mig bláu augunum og ég gat séð, að hún sá, hversu áhyggjufull ég var. Það er nú kannske ekki skyn- samlegt af mér, en ég sé, að yður stendur þetta á miklu. Jú, það er rétt, Tina hafði skammbyssu. Ég sá hana í einni skúffunni hennar innan um vasaklúta. Hún lá þá í inflúensu og ég var að snúast kring um hana. Ég spurði hana, hvar hún hefði fengið þessa byssu, og hún svaraði bara, að hún hefði einhversstaðar kom- izt yfir hana. Ég sagði, að hún gæti verið hættuleg að hafa í fórum sínum, og ég man eftir, að hún tók alveg undir það. „Ég hata hana, en hún töfrar mig ein- hvernveginn. Hún liggur þarna og ógnar mér. Ég hef það ein- hvernveginn óhugnanlega á með- vitundinni, að hún verði notuð, fyrr eða síðar — kannske til þess að dTepa einhvern“. Já, hún var alltaf með hinar og þessar ímynd anir. Við skulum láta þig hætta þessari vitleysu, sagði ég. Ég skal taka hana og losa þig við Hana. Og gerðuð þér það? Já, ég tók hana, en einhvern veginn gat ég nú ekki fengið mig til að fleygja henni, og svo er það heldur ekki alltaf svo auðvelt. Og hvað gerðuð þér þá við hana? Ég gaf hana kunningja mínum. Vilduð þér segja mér, hver hann var? Hún þagði og það var eins og ég ætlaði ekki að ná andanum, meðan sú þögn stóð yfir. Það var leikari, sem ég var með í bendingaleik, þá um jólin. Við bjuggum á sama stað og vor- um góðir kunningjar. Ég sagði honum frá Tinu og sýndi honum skammbyssuna. Hann sagðist gjarna vilja eiga hana og ég vildi gjarna losna við hana. En svo getur hann náttúrlega hafa gefið hana einhverjum öðrum. Það er ótrúlegt. Og hver "ar hann? Hann hét Tony Wingrove. XVIII. Við lásum um morð í blöðun- um dag eftir dag, en það er nú samt óskiljanlegt alvanalegri manneskju eins og mér, að mað- ur, sem maður þekkir geti verið morðingi, jafnvel þó að hann sá nú enginn vinur eða sérstakur kunningi. Ég ók úr Prince’s Av- enue í hálfgerðum svima og gat enn ekki trúað mínum eigin eyr- um. Tony Wingrove, þessi uppá- haldssonur Vandy og eiginmað- unnn sem Lísa tilbað. Þær mundu springa af harmi ef þær vissu það. En þær skyldu nú aldrei komast að því fyrir mitt tilstilli, en jafnframt fannst mér það rangt, ef h£inn slyppi frá svona hryllilegu morði. Ég ósk- aði þess heitast, að ég hefði aldrei lagt svona hart að mér til að grafa upp sannleikann. Það hafði verið kvöl að vita ekkert, en nú var ennþá verra að vita. Ég var svo niðursokkin í þessar hugsanir, að ég var rétt búin að aka á rautt ljós, en áttaði mig á síðustu stundu og stanzaði með rykk. Og það var eins gott, því að í sama bili kom svartur lög- reglubíll frá hægri og þar sat Wood lögreglufulltrúi í aftursæt- inu. Eg sneri og sá, að þessi bíll beygði einmitt í áttina, sem ég var að koma úr. Jæja, málið var þá úr mínum höndum. Það hafði líka verið heimska að halda, að lögreglan gerði sér þessa sjélfsmorðssögu að góðu. Og þegar hún væri bú- in að tala við Daphne Blount væri öllu lokið. Tony hlaut að verða tekinn fastur. Ég varð að segja Rory þetta. Ég ók beint til íbúðarinnar. Þar var hann ekki og ég hafði enga hugmynd um, hvar hann var að finna. Ég hringdi í skrifstofu Leós og náði sambandi við Joan Wilson. Ég held, að Leó sé nýfarinn í hádegismatinn. Get ég nokkuð gert fyrir þig, Rosaleen? Nei, þakka þér fyrir. Þú skyld- ir ekki vita, hvar hann hefur ætlað að borða Mér er afskap- lega áríðandi að ná í hann. Hver veit nema ég geti náð í hann. Bíddu! Ég beið heila eilífð, að mér fannst, en í rauninni var sú ei- lífð ekki nema tvær mínútur. En svo létti mér líka þegar ég heyrði rödd Leós. Halló, Rosaleen. Guði sé lof, Leó. Það munaði ekki nema einum, að þú næðir í mig. Ég var að hverfa inn í lyftuna, þegar Joan náði í skottið á mér. Fyrirgefðu, en ég verð að segja þér það. Nú veit ég allt — og það gerir lögreglan líka! Segðu ekki meira í símann. Hvar ertu? í íbúðinni. Ég kem eins og skot. Já, en ég verð að segja Rory þetta líka og ég veit ekki, hvar hann er. Ég var að vona, að þú vissir það. Ég held, að hann hafi verið að æfa einhver ný atriði hjá Carna- by og hefur svo líklega farið í maí með honum. Láttu mig um það. Ég skal finna hann, sagði Leó rólega. Þakka þór fyrir Leó. Hafðu engar áhyggjur. Vertu kyrr þar sem þú ert, og svo kem ég þangað eins fljótt og ég get. Enn einu sinni var ég fegin að geta treyst Leó. Þegar ég var bú- in að tala við hann, fann ég núm er Tonys í vasabókinni minni. Ætti ég að reyna að vara hann við? Kannske var það þegar um seinan. Ég gat ekki þolað að hugsa til Lísu, sem fengi ný- fengna ástarsælu sína í rúst á svo hryggilegan hátt. Ég hringdi — það var á tali. Ég reyndi aftur nokkrum sinnum, en loksins þeg- ar ég fékk samband, var mér sagt, að Wingrove-<hjónin væru ekki heima. Vandy? Hvernig gat ég dregið úr þessu reiðarslagi, sem yfir henni vofði? Hún tilbað Tony. Það virtist ekki sanngjarnt, að eftir alla þá erfiðleika, sem hún hafði barizt við í lífinu," skyldi slíkt sem þetta þurfa að koma fyrir hana, þegar hún virtist loks geta fagnað öryggi og vellíðan. Mér fannst ég ætti að hringja til hennar og búa hana undir þetta, en hvað gat ég sagt? Hvernig gat ég fært henni þær fregnir, að elskaður sonur henn- ar væri morðingi? Nei, ég skyldi bíða þangað til Rory kæmi. Hon- um þótti vænt um Vandy. Hann mundi vita hvað hann ætti að segja við hana. Ég áttaði mig á því, að í fyrsta sinn síðan þetta leiðindamáil hófst, var ég farin að treysta á Rory. Líka ég var farin að líta til hans eftir styrk og huggun. Ég óskaði þess, að Leó og Rory færu að koma. Ég þoldi ekki við alein í íbúðinni — nú orðið fannst mér eins og þar væri draugagangur. Mér fannst ég allt af hafa ilminn af „Jolie Mad- ame“ í nösunum og svo vindling- ana og svo lagið eftir Chopin i eyrunum. Hvað sem öllu öðru liði, yrðum við að losa okkur við þessa íbúð. Ég beið með óþol- gflíltvarpiö Laugardagur 24. febrúar. 8.00 Morgunútvarp (Bæn. — 8.05 Morgunleikfiml. — Tónleikar —• 8.30 Fréttir. — 8.35 Tónleikar — 9.10 Veðurfregnir. — 9.20 Tónl.) 12.00 Hádegisútvarp (Tónleikar. — 12.25 F- 'ttir og tilkynningar), 12.55 Óskalög sjúklinga (Bryndís Sig« urjónsdóttir). 14.30 Laugardagslögin. — (15.00 Frétt.) 15.20 Skákþáttur (Guðmundur Arn« laugsson). 16.00 Veðurfregnir. — Bridgeþáttur (Stefán Guðjohnsen). 16.30 Danskennsla (Hreiðar Ástvalds* son). 17.00 Fréttir. — Þetta vil ég heyrat Þórður Einarsson fulltrúi velur sér hljómplötur. 17.40 Vikan framundan: Kynning á dagskrárefni útvarpsins. 18.00 Útvarpssaga barnanna: „Nýja* heimilið“, eftir Petru Flagestad Larssen; XII. (Benedikt Arn* kelsson). 18.20 Veðurfregnir. 18.30 Tómstundaþáttur barna og ung* linga (Jón Pálsson). 18.55 Söngvar í léttum tón. — 19.10 Tilkynningar. 19.30 Fréttir. 20.00 Tónleikar: a) Arnold van Mill bassasöngv* ari syngur óperuaríur eftip Mozart og Verdi. b) Tékkneska fílharmoniusveit* in leikur slavneska dansa eft* ir Dvorák. Stjórnandi: Václav Talich. 20.30 Leikrit: ,,Á þakinu** eftir John Galsworthy, í þýðingu Árn* Guðnasonar cand. mag. — Leik- stjóri: Helgi Skúlason. 22.00 Fréttir og veðurfregnir. — 22.10 Passíusálmur (6). 22.20 Danslög. — 24.00 Dagskárlok. 2671 / ■/ / / — Þvílík heppni, að ég skyldi ekki eyðileggja neitt. X- >f X* GEISLI GEIMFARI X- X- X- BESIPEÖ, TWE ^OOMER WE SELL, THE ^OONER LURA PRE5TON AND I OAN 5PLIT THAT B/6, SW£ET SC//VP£-£ or MOW£Y/ — Ég er ekki viss um að Dura- billium sé hæft til notkunar, Vandal. Ég held að við verðum að halda áfram tilraunum. Ef við létum það frá okkur og svo kæmu fram gallar í því, hefðum við unnið til einskis! — Hvaða vitleysa, John. Þú ert ó- þarflega hræddur. (Og því fyrr sem við seljum, því fyrr getum við Lára skipt með okkur fjárhæðinni)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.