Morgunblaðið - 28.02.1962, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 28.02.1962, Blaðsíða 13
Miðvikudagur 28. febr. 1962 MORGVISBLAÐIÐ 13 Það er fallegt uppi á sambýlishúsinu hans Agnars Guðmundssonar. þegar vel viðrar — og hægt að koma þakinu á. Ljósm. Mbl. Ól.K.M. Nú á að drífa þakið á FYRIR um tveimur árum fór- rim við inn fyrir bæ, að okkur fannst, og spjölluðum við mann einn sem átti nokkrar rollur og hafði bú í Kringlu- mýrinni. Þegar við svo ókum á þennan sama stað í góða veðrinu í fyrradag, var orðið öðruvísi umhorfs. Hálfbyggð hús, blokkir og smáhús, þekja allt svæðið. Þar vottar ekki lengur fyrir grasbletti, en maður sekkur í ökla í leðjuna af uppgreftrinum um leið og stigið er út úr bílnum. í flestum húsunum sáum við bregða fyrir vinnuklædd- um mönnum. Og uppi á þak- inu á stórri sambyggingu á Háaleitisbraut 24, hömruðu smiðir í ákafa. Við klöngruð- umst upp til þeirra og hittum byggingarmeistarann Agnar Guðmundsson. — Nú á að nota góða veðrið og drífa þak- ið á. Við Ijúkum því á næstu dögum, ef við verðum heppn- ir með veður, sagði hann. — Hafa óveðrin í vetur taf- ið ykkur mikið? — Það hafa orðið nokkrar tafir á að koma þakinu á og frostin um áramótin töfðu dá- lítið steypuvinnuna. Tafirnar hafa orðið meiri nú en í fyrra, þegar hægt var að steypa all- an veturinn. — Steypan þolir nú talsvert siðan þið fóruð að nota heitt vatn, er það ekki? — Jú, hún þolir anzi mikið, ef steypt er í þíðu og breitt strax yfir. Það kom t. d. 15 stiga frost nóttina eftir að einn steypti hér í nágrenninu í vetur og það fór allt vel. Annars er reynt að hafa a.m.k. tvo örugga daga framundan. Og það er útilokað að steypa loft nema hafa 2—3 góða daga. — En hvernig gengur ykk- ur að hemja plastið í glugg- unum í öðrum eins veðraham og verið hefur í vetur? V0 i 0 0 0 0 0 0 0-00000000-00 0000-0:0000,00.,\0 Maður er alveg þrælfastur, segir Þorsteinn Bjarnason. — Plastið hefur dugað vel, en það þarf að vera vel strekkt og ég hugsa að það megi hafa mikið haf. í þess- ari byggingu hafa verið slegn- iir upp listar til að minnka hafið, því gluggarnir eru stór- ir. Það er mikill munur að hafa glært plast í gluggum húsa í byggingu, það gefur svo góða birtu. Og við vinn- um allan veturinn. Agnar segir okkur að hann sé ásamt tveimur öðrum með 8 íbúðir í byggingu við einn stigagang í þessu samibýlis- húsi. En í blokkinni allri séu Framhald á bls. 17 *0-0:0-00-00 0-0^ HaraMur J. Hamar, blaðamaður, skrifar Vettvanginn í dag og fjallar hann um mikiivægi hermannabragganna, tilviljanir, sem hafa víðtækar afleiðingar, hættuástand á Reykjavíkurflugvelli og óvissa framtíð íslenzkra flugmála. Stöðugt rekum við okkur á það í daglega lífinju, að það, sem við köllurn tilviljun, ræður oft miklu um gengi manna. Margir fara vel út úr lífisins happdrætti, aðrir hljóta aldrei vinning — nema þá kannsiki rétt til þess að spila frítt. Auðvitað greinir menn á um það hvað sé tilviljun — og íhvað ekiki. Einn segir, að allt sé til orðið fyrir guðlega forsjá, annar — að lífið sé ein heljar- mikil feeðja af tilviljunum og ekkert þar umfram. En hvort eem við kölluim það hreina tilvilj un, eða smiáatvik, þá er því efeki að neita, að slíkir atburðir geta oft haft harla víðtæikar afleið- ingar. Og þetta er vist nóg af svo góðu. Eg ætlaði nefnilega efeki að fara út í eilífðarmiálin, held ur ræða lítillega hvemig smáat 'vík getur komið öllu á annan endann hér í okkar litla þjóðtfé- lagi, hvemig braggábruni á Reykjavíkurflugvelli hefur ork- að á landsins feður. Eg var einn þeirra mörgu, er þustu út á Reykj aví’kurtfl ugvöll, þegar braggasamstæðan brann þar á dögunum. Efeki er ástæða til að telja upp það, sem þar brann. íslenzk dagblöð hafa aldrei gert jafnmikið veður út af hvarfi gamalla hermannabragga og einmitt í þetta skiptið. En þegar ég horfði á braggaþökin falla í eldihafinu varð mér að orði, að enn frikkaði Reykjavík. Með þeasu er ég ekki að gera lítið úr tjóni því, sem Ixxfltleiðir urðu fyrir. Og þeir verðskulda sannarlega veglegri húsakynni. Um margra ára sfeeið hafði hluti af starfsemi félagsins farið fram í þessum bröggum, sömiu tegund ar og þeim sem bæjaryfirvöldin hafa lagt ofurkapp á að útrýma — með góðum árangri. Það var sem sagt kominn tími til að skipta um húsnæði. □ f mörg ár hefur verið deilt af kappi um framtíð Reykjavíkur- flugvallar. Þetta er mikið hita mál, sem enn hefur ekki fengið endanlega lausn. Þessi dráttur, sem orðið hefur á að marka stefnuna, fer brátt að hafa s'kað leg áhrif á þróun íslenzkra fiug mála, ef efeki nú þegar. Flugfélög in hafa sprengt flugvöllinn utan af sér, ef svo miætti segja. — Stærstu flugvélar íslenzka flot- ans verða nær daglega að fljúga frá Reykjavík til Keflavíkur á leið sinni til útlanda til þess að taka eldsneyti, þar eð flugbrautir í Reykjavík leyfa efeki flugtafes þunga vélanna fullhlaðinna. Hér er um að ræða Loftleiðavélar. Félagið heldur samt í aðstöðu sína í Reykjavík af skiljanlegum ástæðum, því erfiðleikar Flug- félags íslands eru ekki þeir sömu — og flutningur til Keflavíkur mundi svipta Loftleiðir að veru legu leyti samkeppnisaðstöðu á innanlandsmarkaði. — Flug- félagsmienn eru ófúsir að flytja til Kefllavíifeur fyrir margra hluta sakir. Fyrst Og frernst telja þeir refestur innanlandsflugis frá Keflaví'kurflugveUi erfiðan. í öðru lagi væri óhagkvæmt að skipta rekstrinum. Starfrækja innanlandsflugið áfram frá Reykjavík. Þess vegna vænta Flugfélags- menn þess, að horfið verði að því að byggja nýjan flugvöll í ná- grenni bæjarins, helzt á Álfta- nesi. Mikill áróður hefur verið rekinn bak við tjöldin fyrir Álftanesflugvelli. Hefur m.a. ver ið stuðzt við álit bandarískra flug vallasérfræðinga, sem hingað voru fengnir til þess að gera at huganir á málinu. Samkvæmt góðum heimildum bentu þeir ein dregið á yzta hluta Álftaness sem lang-heppilegasta flugvallar- stæði fyrir Reykjavik. Furðulegt má telja, að niðurstöður þessara sérfræðinga hafa ekki verið birt ar almenningi. Er launungin yf- ir þessari skýrzlu eitt dæmið um endalaust pukur mieð málefni, sem engin sjáanleg ástæða er til að fara í launkofa með. — Og svo er það nefndin, sem flugmála- ráðherra skipaðj til þess að gera tillögur í málinu. Álit hennar átti að liggja fyrir á síðasta ári — og alls ekki að dragast fram yf ir áramót. Nú eru komin febrúar loik — og efekert heyrist enn frá nefndinni. Allur þessi seinagangur hefur valdið því að íslenzku flugfélög- in hafa enn efeki getað tekið á- kvörðun um næsta skrefið í upp byggingu flugflotans. Flugfélags menn eru t.d. orðnir óþreyjufull ir, því eigi þeir ekki að missa af strætisvagninum þurfa þeir að ákveða mjög bráðlega hvaða þotu tegund þeir eigi að velja — og sömu áhrifa hefur gætt hvað endurnýjun fiugflotans í innan- landsflugi snertir. — Allt verður þetta vitanlega að miðast við að- stæður í heimahöfn. Q Ljóst er, að við núverandi ástand verður ekki búið í mörg ár, ef íslenzk flugmál eiga að halda eðlilegri þróun. Ég hef rætt þetta mál við fjölda flugstjóra hjá báðum flugfélögunum og í sannleika sagt eru flestir uggandi vegna ástandsins: Heldurðu, að það hafi verið að ástæðulausu, að ljósastaurarnir við Hringbrautina voru lækkaðir í sumar. segja þeir — og ættu allir að skilja við hvað er átt-. Hvað sem uppgefnum tölum um brautarlengdir og annað því um líkt viðkemur, þá er það staðreynd, að flugvöllurinn sikap- ar hættu, eins og nú er komið ihálum. En lánið hefur leifeið við okkur hingað til — og við skulum vona, að svo verði áfram. Hins vegar er óvarlegt að treysta á lukkkuna til eilífðar. Flugvöll- urinn er aðkrepptur í miðjum höf uðstaðnum og það eru ekki að- eins flugstjórarnir, sem eru áhyggjufuliir Núverandi ástand er óviðunandi. — Þarfir Reykja- víkurbæjar fyrir flugvallarsvæð- ið er svo kapituli út af fyrir sig, sem ég ætla ekfei að fara út í hér. □ Eins og að framan segir, þá virðast stjór.narvöldin enn ekki hafa tekið ákvörðun um hvernig leysa skuli vandann. Miklar vangaveltur. álitsgerð erlendra sérfræðinga lokuð niðri í skúffu — og nefndin, sem átti að gera tillögur um framtíðarskipan mál- anna hefur tekið lífinu með stakri ró. Flugfélögin bíða, slá gerð framtíðaráætlana á frest. Fyrirsjáanleg stöðnun. En viti menn. Á Reykjavíkur- flugvelli brenna gamlir her- mannabraggai, sem annað flug- félaganna hafði tekið í notkun í algerri neyð. Það er uppi fótur og fit — og í einu hendings kasti er hóað saman fundi: Við byggj- um nýtízku flugstöðvarbyggingu. Hún kostar milljónir, en hvaða máli skiptir það? Loftleiðir braggalausir! Segjum svo, að slökkvilið flug vallarins hefði átt nokkra vatns- dunka til viðbótar, fleiri slöngur, eða einhver tæki til að ráða við magnaðan eid — og tekizt hefði að slökkva i bröggunum áður en wisky og varahlutir brunnu. Það hefði verið gert við braggaræfl- ana í rólegheitum — og senni- lega aldrei byggð flugstöð. Nú, eða að braggarnir hefðu brunnið fyrir 5 árum. Þá væri flugstöðv- arhúsið sennilega að komast und- ir þak um þessar mundir — og yrði fullbúið í þann mund, er flugvöllurinn yrði lagður niður. Það valt sem sé á gömlum af- dönkuðum hermannabröggum hvort nýtízku flugstöð yrði byggð á Reykjavíkurflugvelli, eða ekki. „Systemið er gott. En ekki ætla ég að halla réttu máli — og þess vegna ber að taka skýrt fram, að af hálfu hins opinbera er sett skilyrði: Þessi flugstöðvarbygging verður að Framhald á bls. 14.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.