Morgunblaðið - 28.02.1962, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 28.02.1962, Blaðsíða 20
20 MU RGL /V BL AÐIÐ Miðvikudagur 28. febr. 1962 Barbara James: 38 r •• rogur og feig miklu betur en ef það sýndi sig, að Crystal hefði farið að skjóta sig þín vegna. Það væri meiri huggunin, svar- aði Rory háðslega. Hvað mig snertir, þá held ég ekki, að ég fengi harðan dóm. Joan getur rekið skrifstofuna fyr ir mig, meðan ég er fjarverandi, og svo má segja, að umboðsmað- ur leikara hafi heldur lítlu mann orði fyrir að fara. Ég verð nú fegnust þegar þetta er allt af staðið og það versta er komið fram, sagði ég. Ég býst ekki við, að þess verði langt að bíða. Leó stóð upp. Jæja, það er ekkert við þessu meira að gera, svo að það er bezt að fara að koma sér að einhverju verki. Ég vil líka helz,t hafa allt í lagi hjá mér, áður en ég fer í sumarfríið mitt í Steininn. Þú tekur þessu furðu rólega, Leó —en þess var líka von af þér. Ég harma þetta — en er þér líka þakklátur um leið. Annað eða meira get ég ekki sagt. Það er líka alveg nóg. Leó brosti og lagði höndina vingjarn- lega á öxl Rorys. Um leið og hann fór út heyrðum við í lykli í skráargatinu á framdyrunum. XIX. Vandy kom inn og horfði á okkur öll þrjú með dálitlum undrunarsvip. Halló, elskurnar! sagði hún. Ekki datt mér í hug, að þið vær- uð hér öll. Og ekki ætla ég að ónáða ykkur. Ég kom bara til að :sækja skóna mína. Komið þér sælir, hr. Gunter. Komið þér sælar. Ég verð ekki mínútu. Ég er að fara í te hjá Tony og Lísu. Hann hringdi í dag og sagðist hafa nokkuð merkilegt að segja mér Ida og Albert eru bæði heima hjá börnunum, svo að ég vissi, að mér væri óhætt að skreppa í borgina. Auðvitað var þér það. Hún leit á alvarleg andlitin á okkur með áhyggjusvip. Jæja ég ætla ekki að tefja ykk ur. Ég sé, að þið eruð upptekin. Rétt að skipta um skó. Ég geymi hérna hælaháa skó, sem ég nota í höfuðstaðnum. Þá get ég komizt til borgarinnar án óþæginda, sagði hún við Leó, eins og til þess að segja eitthvað. Hún var svo blátt áfram og alvanaleg, klædd eins og venjulega og vand- lega snyrt og máluð. Hún sneri svo fram í forstofuna og lokaði á eftir sér. Ég þoli þetta ekki, sagði ég. Hvað eigum við að gera? Við ættum að segja henni það, sagði Leó. En til þess erum við ekki nógu viss um, að það sé Tony. Ég hélt það áður. en svo hefur Rory kom ið ýmsum efasemdum inn hjá mér aftur. Ég skal sjá um það sagði Rory og var nú einbeittur. Farðu ekki alveg strax, Leó. Hann opáaði dyrnar aftur. Vandy hafði tekið gömlu ferða- töskuna sína fram úr skápnum, og hún stóð nú opin á gólfinu. Vandy sat á háum stól og var að troða fótunum í fína skó með pinnahælum. Þeir drepa mig alveg ef ég er lengi í þeim, sagði hún, en ég j get ekki farið í boð í þeim göm,lu. Ertu mikið að flýta þér, Vandy? sagði Rory. Hún leit á úrið sitt. Ég hef svo sem hálftíma enn, svaraði hún. Því spyrðu? Okkur langaði til að tala ofur- lítið við þig Allt í lagi. Ég ætla bara að koma þessu fyrir. Hún stakk gömJu skónum í töskuna og setti hana svo inn í skápinn aftur. Hvenær hringdi hann Tony til þín? spurði ég. Það var meðan ég var að gefa börnunum að borða um hádegið. Klukkan hefur víst verið langt gengin eitt. Ég sá, að þetta hafði verið rétt eftir að Daphne Blount hafði hringt til hans, en þó áður en hann hafði komið til mín og frétt, að lögreglan var á hælun- um á honum. Mér dettur í hug, að hann muni ekki geta hitt þig í te, eins og umtalað var, sagði ég. Hversvegna ekki? spurði hún steinhissa. Láttu mig um þetta, Rosaleen, sagði Rory. Komdu og settu þig niður, Vandy. Röddin var mjúk, Hún skynjaði, að eitthvað var um að vera og leit á okkur á víxl, eins og hún botnaði ekki upp né niður í þessu. Hvað er að? Hefur eitthvað komið fyrir Tony? Ég skal segja þér, Vandy, að lögreglan er búin að rekja feril byssunnar, sem Crystal var skot- in með, til Tonys. Hræðslan skein út úr svipnum á Vandy. Hræðsla en ekki undr- un Hvað áttu við? Tony kom hvergi nærri þessu. Byssunni var stolið frá sýningu á „Gullársöngnum“ og seinna gefin Tony. Hvað kemur það málinu við? Crystal skaut sig sjálf. Það vitum við öll mætavel. Kannske hefur hún gert það, sagði ég. Ef til vill hefur Tony gefið henni byssuna, einhvern tíma fyrir löngu. Hann hlýtur að hafa gert það. Þið eruð væntanlega ekki að gefa neitt annað í skyn, eða hvað? Þið haldið ekki ....að Tony.. Nei..ó, nei. Svipurinn á Vandy var aumkunarverður á að líta. Það eru miklar líkur til, að lögreglan geti haft grun um, að Tony sé eitthvað við þetta rið- inn. Þó ekki væri annað, hafði hann gilda ástæðu til þess. Þið þekkið ekki hann Tony minn — hann gæti ekki gert flugu mein, svaraði hún móðguð. Það þýðir ekki annað en segja þér það eins og það er, Vandy, sagði Rory. Tony er í mikilli hættu staddur, sagði hann, fast- mæltur. Hann getur ef til vill hreinsað sig af þessu, sagði ég. Já, en þið hafið enga trú á, að hann geti það. Ég sé, að ekkert ykkar hefur það. Þið trúið, að hann hafi gert það. Þið trúið því raunverulega, að hann hafi gert það. Röddin gaf til kynna, að hún væri alveg að sleppa sér. Það hefur engin áhrif á málið, hverju við trúum, sagði Rory. Við höfum algjörlega misst þetta úr höndunum og í hendurnar á lögreglunni. Hann myrti hana ekki. Ég veit, að hann gerði það ekki! Hún greip í bríkurnar á stóln- um og andlitið vár afmyndað. Ekkert okkar hinna sagði orð. Rory! bað hún. Þú getur eitt- hvað gert. Þú þekkir Tony og ert vinur hans. Þú veizt alveg, að hann gerði það ekki. Já, ég veit það, svaraði Rory lágt. Já, veiztu það — veiztu það? Ljósbláu augun í henni voru allt í einu orðin eins og leiftrandi logar. Já, Tony myrti hana ekki. Þú gerðir það, Vandy! Nei nei! æpti ég og Leó hrökk við. Andlitið á Vandy varð eins og máttlaust. Á einni svipstundu var hún orðin gömul kona. Þú myrtir hana, Vandy, hélt Rory áfram í rólegum en vægð- arlausum róm. Aftur færðist þessi óhugnanlega þögn yfir þessa íbúð, sem var orðin mér svo óþolandi. Við biðum hreyf- ingarlaus eftir því, að hún segði eitthvað. Hvernig veiztu það? söurði hún, svo lágt, að það rétt heyrð- ist. Það skiptir engu. Tony gaf þér skammbyssuna, og þú skauzt hana með henni. Já. Hún gat aðeins hvíslað orð- inu og nú lét hún höfuðið síga. Hvað ætlið þið að gera? spurði hún loksins Segðu okkur af þessu, Vandy. Segðu okkur, hvernig þetta gerðist. Það var rétt eins og Rory væri að tala við krakka. Það varst þú, sem komst því öllu af stað, sagði hún og nú rétt eins og bráði af henni. Þú varst að gera Rosaleen óhamingju- sama með því að vera að dingla við svona dræsu. Þið áttuð þá indælustu ævi, sem ég hefði get- að hugsað mér — þið höfðuð allt, sem þið óskuðuð og svo ætlaðir þú að setja það allt út um þúfur fyrir svona manneskju. Það var nú strax fullslæmt, en svo var eins og Crystal Hugo ætlaði að verða alstaðar í veg- inum fyrir mér, því að næst gerðist það, að Tony giftist Lísu. Það var vitanlega ágætt að öllu leyti nema því, að þau höfðu ekkert að koma undir sig fót- unum með. Tony var atvinnu- laus og félaus, en ef Crystal hyrfi úr sögunni, var þeim borgið fyr- ir lífstíð Þú hefur þá hugsað þetta allt út? sagði Rory. Nei nei, alls ekki. Ég vildi henni ekki beinlínis neitt illt, en ég gat ekki annað en hugsað til þess, hvað það væri dósamlegt ef hún dæi — til dæmis í bílslysi eða flugslysi. Nei, ég lagði aldrei nein ráð á. En svo kom þessi morgunn, þegar myndin af ykk- ur var í blaðinu. Þá var mér allri lokið, sagði hún með miklum viðbjóði. Rosaleen sleppti sér, sem eðlilegt var, og talaði jafn- vel um að skilja við þig. Sagði, að ef þú kærðir þig ekki um hana, þá kærði hún sig heldur ekki um þig. Þetta gat ég ekki þolað. Heimilið okkar og börnin — mér fannst ég eiga Tim og Júlíu með ykkur.... að sjá þetta allt tví&trast.... Það gat ég ekki þolað. Sú Vandy, sem nú talaði, var ekki sú, sem ég þekkti. Mér hefði aldrei getað dottið í hug, að hún ætti til svona ákafar tilfinningar undir rólegu ytra borði. Haltu áfram, sagð Rory. Þetta var á þriðjudaginn var. Þú sást myndina Hvað gerðirðu svo Rosaleen ætlaði til London. Ég ráðlagði henni að tala við þig og gera út um málið Nei, hún vildi það ekki. Hún sammældist svo hr. Gunter í hádegisverð — og ég gat nú ekki séð, að það' gæti gert mikið gagn. Hún leit fyrir- litningaraugum á Leó. Svo að þú ákvaðst að fara líka tl borgarinnar? Ekki alveg strax. Undireins og Rosaleen var farin, skildi ég börn in eftir hjá Idu og Albert og fór í leikfangabúðina á staðnum. Ég var búin að panta uppblásna hvolpa til að gefa Tim í afmæiis- gjöf. En þeir höfðu ekki getað útvegað þá í tæka tíð — ekki eins og ég vildi hafa þá. Ég vildi ekki láta Tim verða fyrir von- brigðum svo mér datt í hug að skreppa til borgarinnar til að ná í þá. Eg hringdi á Idu og sagði henni, hvert ég ætlaði, en bað hana að nefna það ekki við neinn. Svo náði ég í lestina 12.23. Ég fékk mér eina samloku á járn- brautarstöðinni. Svo komst ég i búð og fékk það, sem ég ætlaði að kaupa. En hversvegna fórstu ekki beint heim. Hvað kom þér til að fara í íbúðina? spurði Rory. öll viðkvæmnin hvarf úr svip hennar og hún hleypti brúnum. Alla leiðina var ég að hugsa um Crystal og þetta illvirki, sem hún hafði með höndum. Svona ómerkileg skepna, sem engum SHUtvarpiö Miðvikudagur 28. febrúar. 8:00 Morgunútvarp (Bæn — 8:05 Morg unleikfimi — 8:15 Tónleikar — 8:30 Fréttir — 8:35 Tónleikar — 9:10 Veðurfregnir — 9:20 Tónl.). 9:10 Veðurfregnir — 9:20 Tónl.). 12:00 Hádegisútvarp (Tónleikar. —• 12:25 Fréttir og tilkynningar). 13:00 „Við vinnuna": Tónleikar. 15:00 Síðdegistónleikar (Fréttir, tilk. — Tónl. — 16:00 Veðurfr. — Tón leikar — 17:00 Fréttir — Tónl.). 17:40 Framburðarkennsla í dönsku og ensku. 18:00 Útvarpssaga barnanna: „Nýja heimilið" eftir Petru Flagestad Larsen; XIII. (Benedikt Arnkels son). 18:20 Veðurfregnir — 18:30 Þingfréttir — Tónleikar. 19:00 Tilkynningar — 19:30 Fréttir. 20:00 Útvarp frá Alþingi: Umræður um tillögu til þingsá- lyktunar um afturköllun sjón- varpsleyfis o. fl. — Hver þingfl. hefur til umráða þrjá stundar- fjórðunga, er skiptast í tvær umferðir, 25-30 mín. og 15-20 mín. — Höð flokkanna: Alþýðubandalag, Alþýðuflokkur, Sj álfstæðisf lokkur, Framsóknarflokkur. Dagskrárlok nokkru eítir kL 23:00. Fimmtudagur 1. marz 8:00 Morgunútvarp (Bæn — 8:05 Morg unleikfimi — 8:15 Tónleikar — 8:30 Fréttir — 8:35 Tónleikar —• 9:10 Veðurfregnir — 9:20 Tónl.). 12:00 Hádegisútvarp (Tónleikar. — 12:25 Fréttir og. tilkynningair). 13:00 „Á frívaktinni14; sjómannaþáttur (Sigríður Hagalín). 15:00 Síðdegisútvarp (Fréttir og tilk. —Tónleikair — 16:00 Veðurfregn ir — Tónleikar — 17:00 Fréttir — Tónleikar). 17:40 Framburðarkennsla í frönsku og þýzku. 18:00 Fyrir yngstu hlustenduma (Guð rún Steingrímsdóttir). 18:20 Veðurfregnir — 18:30 Þingfréttir —Tónleikar. 19:00 Tilkynninga-r — 19:30 Fréttir. 20:00 Af vettvangi dómsmálanna (Há kon Guðmundsson hæstaréttar- ritari). 20:20 íslenzkir organleikarar kynna verk eftir Johann Sebastian Bach; IV.: D.r. Páll ísólfsson leiúk ur sálmaforleik og partítuna „Þú mikli, mildi Guð". Á undan segir hann nokkur orð. 20:45 Erindi: Skelfisktekja og skel- fiskeitroin (Dr. Sigurður Péturs- son gerlafræðingur). 21:10 Rökkursöngvar: Roger Wagner kórinn bandaríski syngur. 21:25 Þýtt og endursagt: Hildur Kal- man flytur létt hjal um leikara, lófatak og leikskáld. 22:00 Fréttir og veðurfregnir. — 22:10 Passíusálmur (9). 22:20 „Leyndarmálið", smásaga eftir Hugrúnu (Skáldkonan les). 22:36 Harmonikuþáttur (Henry J. Ey land og Högni Jónsson). 23:10 Dagskrárlok. — Eins og ég sagði þér í símamim í gær, þá er það þessi giuggi, sem festist. John Harvey og Vandal Grant, — Vandal, John. Dásamlegar frétt- Eyrrverandi aðstoðarmenn Prestons ir! Geimskipafélagið hefur boðið prófessors, koma heim til Láru, fimm milljónir fyrir einkaleyfi á ekkju prófessorsins .... durabilium! —^ Bíddu með að taka boðinu, Lára. Við getum ekki afhent það strax.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.