Morgunblaðið - 06.04.1962, Blaðsíða 24
Fréttasímar Mbl
— eftir lokun —
Erlecdar fréttir: 2-24-85
Innlendai fréttir: 2-24-84
Vettvangur
Sjá bls. 13
Mynd þessi sýnir líkan af
skipulagi hins fyrirhugaða iðn
aðarhverfis við Grensásveg’.
Er svæðið allt 12 hektar-
ar, en samanlögð gólfflitar-
stærð iðnaðarhúsanna er áætl
uð 65 þús. ferm. Húsin verða
ekki hærri en 2 hæðir, en
flest aðeins 1 hæð. Svæðið
verður tilbúið til úthlutunar
innan þriggja mánaða, og verð
ur þá fullnægt knýjandi þörf
ýmissa iðnaðarfyrirtækja fyr
ir athafnasvæði. — Ljósm.:
Örn Bernhöft. —
Von á mild-l
ara veðri
MOBGUNBLAÐIÐ átti tal
við veðurfræöinga 1 gærdag
og gærkvöldi, til þess að
spyrjast fyrir uim það, iwort
norðanáttin færi efcki að
ganga niður, kuldinn að
minnka og vorið að koma.
Um miðjan daginn töldu
þeir ekki horfur á neinni
stórbreytingu og gizikuðu á
norðlægri átt næstu daga. —
Lægðin, sem væri við Suður
Grænland færj sennilega svo
langt fyrir sunnan landið, að
áhrifa hennar gætti litið hér
á landi. Helzt þyrfti hún að
fara yfir landið eða vestan
við það.
í gærkvöldj höfðu veður-
horfur hins vegar breytzt
þannig, að búizt var við að
slaka myndi á norðanátt-
inni í nótt, a.m.k. vestanlands,
og yrði senniiega suðllæg átt
í dag oig á morgun.
Nýtt iönaöarhverfi við Grensásveg
Kommúnisfar á móti lausn
lóöamála iönaöarins
BORGARSTJÓRN Reykjavíkur staðfesti á fundi sínum í gær sam-
þykkt borgarráðs frá 3. apríl s.I. um skipulagningu fyrirhugaðs
iðnaðarhverfis við Grensásveg. Er hér um að ræða 12 hekt-
ara stórt svæði, þar sem gert er ráð fyrir 1 og 2 hæða iðnaðar-
húsum nv-ð samanlögðum gólffleti tæplega 65 þús. fermetrar að
stærð. Verður' svæði þetta tilbúið til úthlutunar innan þriggja
mánaða, og verður með skipulagningu þess fullnægt brýnni þörf
margra iðnaðarfyrirtækja fyrir athafnasvæði. I»á kom það og
fram á fundinum, að nú er unnið að skipulagningu fleirj nýrra
iðnaðarhverfa.
Þrátt fyrir það, að samtök iðnaðarins, Félag islenzkra iðnrek-
enda og Landssamband iðnaðarmanna, hafi mælt með samþykkt
þessa skipulags og telji hér un> að ræða góða lausn á vandamál-
um sínum, fundu borgarfulltrúar kommúnista því allt til foráttu
og fluttu tillögu, sem miðaði að því að draga lausn þess á Iang-
inn. Mesta athygli vakti þó, að jafnframt því, sem þeir lögðu á
það áherzlu í tillögu sinni, að til „miklila vandræða horfi vegna
skorts á iðnaðarlóðum" börðust þeir hart gegn þeirri lausn, sem
fyrir lá af hálfu meirihluta borgarráðs um tafarlausar úrbætur.
Geir Hallgrímsson, borgar-
stjóri gerði grein fyrir hinum
nýja skipulagsuppdrætti á fund-
inum í gær. Lagði hann áherzlu
á, að meirihluti borgarráðs
hefði fallizt á uppdrættina „í
meginatriðum", sem fæli það í
sér, að á þá yrði litið sem fyrir-
mynd að þeirri byggð, sem á
þessu svæði mundi rísa, en að
öðru leyti yrði eftir föngum
reynt að haga skipulaginu eftir
þörfum og óskum þeirra fyrir-
tækja, sem þar fengju aðstöðu.
Það skipulag, sem hér um ræð-
ir, gerir ráð fyrir 1 og 2 hæða
húsiun, en áður hafði verið á-
formuð þarna bygging 3 hæða
húsa. Frá því ráði var horfið
eftir nákvæmar athuganir vegna
eindreginna ráða og tilmæla iðn-
aðarsamtakanna, sem lagt höfðu
til, að byggðin yrði að megin-
hluta einnar hæðar.
Öxnadalsheiði
VBGAGERÐ ríkisins mun ekki
veita bifreiðum aðstoð í dag við
að komast yfir öxnadalsheiði.
Færð er orðin þar mjög þung,
og eins er búizt við vondu veðri.
Brýnni þörf ful' >ægt
Er gert ráð fyrir, að þama
megi byggja iðnaðarhús með
samanlögðum gólffleti tæplega
65 þús. ferm. að stærð. Verða
iðnaðarlóðir þessar tilbúnar til
úthlutunar innan þriggja mán-
PRÓFKOSNING um val manna
á lista Sjálfstæðismanna við
borgarstjórnarkosningarnar 27.
maí n.k. heldur áfram.
Kjörgögn hafa verið send fé-
aða, og verður þá fullnægt
brýnni þörf margra iðnaðarfyr-
irtækja fyrir athafnasvæði. Hafa
iðnðarsamtökin mælt með sam-
þykkt þess uppdráttar, sem fyr
ir liggur, og telja auðvelt að
Framih. á bls. 6.
Kveiktu krakkar
í skúrnum?
Á FIMMTA tímanum í gærdag
kom upp eldur í járnklæddum
tiimburskúr á lóðinni Vallar-
gerði 30 í Kópavogi. Slökfeviliði
Reykjavíkur tókst að slökkva
eldinn, en sfeúrinn var þá ónýt-
ur. Ekkert verðimæti <mun hafa
verið geymt í honum. Talið er,
að krafekar hafi kveikt í sbúrn-
um.
Próikosning
SJálístæðismannez
Maður rændur tuguni
þúsunda í fyrrinótt
Veski rænt með reiöufé og ávlsunum,
svo og lyklum mannsins og bil
lögum í ölluim Sjálfstæðisfélög-
um í Reyfejavík, en aðrir stuðn-
ingsmenn Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík geta kosið í SjáJí-
stæðishúsinu við Austurvöll, ann
arri hæð. Félagsbundnir Sjálf-
stæðismenn, sem efeki hafa feng
ið kjöngögn með skilum, geta
einnig kosið þar.
Prófkosningin stendur yfir til
sunnudagsins 8. apríl og lýkur þá
kl. 10 að kvöddi. Annars er skrif
stofan opin frá kl. 9 fyrir há-
degi ti-1 kl. 7 e.h. Á skrifstof-
una ber að senda bréf með kjör
seðlum og Skulu þau komin þang
að eigi síðar en á sunnudags-
kvöld.
f GÆR kom til rannsókmarlög-
reglunnar Stefán Guðmun.dsson,
innheimtumaður, Grjótagötu 10,
og kærði yfir því að hann hefði
verið rændur stórfé aðfaranótt
miðvikudags fyrir utan hús sitt.
Er hér um að ræða 4—5 þúsund
krónur í peningum og tugi þús-
unda í ávísunum á Raforkumála-
skrifstofuna og nokkur önoiur
fyrirtæki hér í bæ. Ennfremur
var stolið af Stefáni hús- og bíl-
lyklum hans, og bíll hans síðan
tekinn, en hér er um að ræða
Volkswagen. R 10702. Fannst
hann óskemmdur í Vallarstræti
í gærmorgun. Ekki liggur ljóst
fyrir hvort árás hefur verið gerð
á Stefán, eða hvort hantn hefur
dottið og rotazt og peningum og
lyklum rænt af honum meðvit-
undarlausum.
Eldur í borgor-
stjórnorskrif-
stofu
UM KLUKKAN þrjú í gærdag
varð eldur laus í skrifstofuher
bergi í borgarstjórnarskrif.stofun
um á annarri hæð í Reykjavíkur
apóteki. Maður, sem var við
vinnu í herberginu, brá sér and
artak frá, en er hann kom aftur
inn var töluverður eldur við
glugga, sem snýr út að Pósthús
stræti. Flögruðu eldtungur upp
um veggi beggja megin við
gluggann.
Slökkviliðið feom þegar á vett
vang, en þá höfðu starfsmenn hjá
Reykjavíkurborg slökkt eldinn
með vatni. Skemimdir urðu
nokkrar á málningu og timbri,
en ekki á skriístoíuvéluim eða
skjölum. Eldurinn mun hafa
kviknað út frá rafmagnstengli.
5 ára drengur hætt kom-
ínn í Kópavogi
FIMM ÁRA gamall drengur,
Blængur Ríkharðsson, til
heimilis á Þinghólsbraut 24
í Kópavogi, lenti í lífsháska
í gær, er hann festist í forar-
eðju úti í fjöru í Kópavogi
í gær.
Lögregiunni í Kópavogj var
tiikynnt um ki. 14 í gær, að
böm væru á ferð í fjörunni.
Háfjarað vaa: og fjaran við-
sjárverð, því að mikil og seig
leðja er í botninum. Fór einn
lögregluþjónanna á vettvang.
Sá hann þá barn mjög langt
úti í fjörunni, næstum úti í
miðjum firði. — Óð lögreglu-
þjónninn þangað út og varð
að hafa sig allan við, því að
eðjan náði honum upp í mitt
læri sums staðar. — Komst
hann að drengnum, sem sat á
magasleða, er hann haí'ði
dregið með sér. Var honum
orðið allkalt, enda mun hann
hafa hafa verið þama á þriðja
tíma. Föt hans voru mjög for
ug, því að hann mun hafa
reynt að ösla í land, en snúið
við til sieðans, þegar hann
botnaði ekki. Hefur sleðinn
þannig orðið drengmun til
bjargar. Ekki er vitað til
þess, að Blængi hafi orðið
meint af volkinu.
Lögreglan í Kópavogi bið-
ur fólk að gæta þess vel, að'
börn séu ekki að Ieik úti í
f jörunni, því að botnleðjan er
mjög hættuleg.
Stefán skýrði rannsóknarlög-
reglunni svo frá, að á þriðjudags-
kvöldið hafi hann farið ásamt
kunningja sínum á veitingahúsið
Naust. Dvöldust þeir þar þangað
til húsið lo'kaði um miðnætti.
Urðu þeir síðan samferða að húsl
Stefiáns í Grjótagötu, en þar
skildu leiðir. Báðir voru menn-
irnir mjög undir áhrifum áfengis.
Stefián segist hafa gengið heim
að húsi sínu, en man síðan ekkert
fyrr en hann vaknar í blóði sínu
við húströppurnar. Gerir hann
sér efcki grein fyrir því, hivort
hann hefur orðið fyrir árás, eða
fallið og rótazt.
Stefán komst inn til sín við
illan leik og tókst að vefja hand-
klæði um höfuð sér, en hélt síðan
út til þess að kornast til læknis.
Kveðst hann síðan ekkert muna,
fyrr en hann vaknar aftur, í þetta
sinni í slysavarðstofunni.
Rannsóknarlögreglan hefur fund
ið fólk það, sem ók Stefáni 4
slysavarðstofuna, en það gat al-
gjörlega hreinsað sig af öllum
grun um að hafa tekið peningana.
Framh. á bls. 23.