Morgunblaðið - 17.04.1962, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 17.04.1962, Blaðsíða 2
2 M0KCVWBZ1Ð1Ð ÞriSyiuiSágtcr 17. aprffl 1962 — Ræða Ólafs Framh. af bls. 1 í landinu að bera þau á borð fyrir hann. Hins vegar hefði vaxtalækkun, eins og á stóð á síðastliðnu sumri, aukið verð- bólgu'hættuna og stuðlað að óhag stæðum greiðslujöfnuði. Þetta vita stjómarandstæðingar lika vel. Kröfur þeirra um vaxta- læk'kun eru því fremur sprotnar af úlfúð í garð sparifjáreigenda en umhyggju fyrir atvinnurekstr inum. Þá hafa stjórnarandstæðingar verið að tæpa á öðrum leiðuim til lækkunar framleiðslukostnað ar. Því skal ekki neitað, að marg ir kostnaðarliðir sjávarútvegs- ins, eins og t. d. tryggingargjöld, eru óeðlilega háir hér á landi. Hitt er barnaskapur einn að láta sér detta í hug að í einu vet- fangi sé hægt að lækka slíka kostnaðarliði hjá sjávarútvegin- uim og öðrum atvinnuvegum um upphæðir, sem nema hundruð- um milljóna króna. Allt ber því að einum brunni. Atvinnuvegirnir voru þess með öllu ómegnugir að taka á sig hinar miklu kauphækkanir og hvorki gat vaxtálækkun né önn- ur framkvæmanleg útgjalda- lækkun bætt þeim nema sáralít- inn hiuta þeirra 550—600 millj., sem búið var að hlaða á þá. Af því leiðir að gengislækkunin var eina úrræðið og því allsendis óumflýjanleg. Of stórstígar kauphækkanir leiða til ófarnaðar Margar aðrar þjóðir skilja þessi miál miklu betur en við. Til fróðlei'ks skal ég nefna síð- asta vitni meðal nágrannaþjóð- anna -þessu til staðfestingar, Ýmsir hilustenda minna munu sjálfsagt hafa te’kið eftir fregn, sem lesin var hér í útvarpinu fyrir nokkrum dögum þar sem skýrt var frá launasamning um á milli verkalýðsfélaga og aitvinnurekenda í Svíþjóð. Þessir samningar voru tii tveggja ára, eins og þeir saminingar, sem gerðir voru hér á landi á s.l. ári. Þeir fólu í sér á milli 2 og 3% 1 a u naihækk u n hvort árið, auk hækkaðrar greiðslu { líf- eyrissjóði. Samningar þessir höfðu náðst eftir langvarandi samningaumleitanir, og þeir höfðu verið gerðir skömmu eftir að ríksstjórnin hafði hækkað söluskatt í smásölu úr 4% í 6%. Nú vi'l ég spyrja: Hvaða mun- ur er það á þjóðarbúskap ís- lendinga og Svía, er geti gert íslenakum þjóðarbúskap fært að standa undir 13—19% kauphækk un eitt árið og 4% næsta árið, þegar verkamenn og atvinnu- rekendur í Svíþjóð eru sammála uan, að sænskur þjóðarbúskapur þoli ekki meira en 2—3% kaup- hækkun á ári? Skyldi þjóðar- framleiðslan á mann vaxa hrað- ar á íslandi en í Svíþjóð? Nei, þvert á móti. Þjóðarframleiðslan á mann hefir vaxið um 3% á ári í Svíþjóð s.l. fimm ár, en aðeins um 2% á íslandi. Eða hefir þá bannske gróði íslenzkra atvinnu fyrirtækja verið svona miklu meiri að til’tölu en gróði sænskra afcvinnufyrirtækja? SLíikt hvarfl- ar ekki að nokkrum manni. Eða loks, — var þá gjaldeyrisstaða íslendinga svo miklu sterkari en gjaldeyrisstaða Svía, að þjóðar- Aðalfundur Félags bifvélavirkja AÐALFUNDUR Félags bifvéla- virkja var haldinn 29. marz s.l. í stjórn félagsins voru kjörnir: Sigurgestur Guðjónsson, form; Karl Árnason, varaform; Krist- inn Hermannsson, ritari; Eyjólf ur Tómasson, gjaLkeri; Guðmund ur Óskarsson, varagjaldikeri. — Árni Jóhannesson er gjaldkeri Styrktarsjóðs. Hagur félagsins er góður. Úr Styrktarsjóði félagsins voru veit/t ir styrkir á liðnu starfisári, sam tals að upphæð kr. 60.269,00. — Fólagismenn eru nú um 160. búið geti borið um nokkurt skeið þann halla, sem af miklum kaup hæk’kunu'm getur hlotizt? Því er fljótsvarað. Gjaiideyrisvarasjóð- ur íslendinga á s.l. sumri, þegar ákvörðun var tekin um geng- islækkunina, svaraði til hálfs mánaðar innflutnings, en gjald- eyrisvarasjóður Svía svarar til fjögurra mánaða innfilutnings. Nei, það er sannarlega ekkert í þjóðarbúskap okkar íslend- inga, sem réttlæti stórfelldari kauphækkanir en með Svíum. Það, sem veldur mismunandi að- gerðum þeirra og okkar og gæfu muninn gerir, er þroska- og þekkingarleysi okkar á sviði efnahagsmálanna. Sænska verka lýðshreyfingin skilur og veit það, sem við eigum eftir að læra: að sígandi lukka er bezt og raun- ar hin eina lukka í þessum efn- um, vegna þess að of stórstígar kauphækkanir leiða alltaf til ó- farnaðar og gengisfellingar. Hinn jákvæði árangur ketnur æ betur í Ijós Þetta er kjarni málsins. Það eru einmitt þessar staðreyndir, sem ég nú hefi tilgreint ,sem úr skera í deilunni milli stjórnar- innar og andstæðinganna. Þær sýna, svo ekki verðui um deilt, að það er eingöngu vegna þess að ríkisstjórnin hikaði ekki við að gera tafarlaust það, sem gera þurfti, þ.e.a.s. að feltla gengið, að í stað hallareksturs, atvinnu- leysis og þess ófarnaðar sem í kjölfar kauphækkananna hlaut að sigla, hefir atvinnulíf lands- ins verið rekið með eðlilegum hætti síðan í fyrrasumar og at- vinna hefir víðast verið meiri en nokkru sinni fyrr. Hinn jákvæði árangur viðreisnarinnar hefir komið æ betur í Ijós, sú tiltrú, sem viðreisnin hafði skapað inn •anlands og utan á efnahagsmál- um þjóðarinnar, hefir haldizt og sá grundvöllur, sem með henni var lagður að framtíðarvekneg- un þjóðarinnar, hefur verið treystur. Jafnframt halda launþegar eftir sem raunverulegri kjarabót nokkrum hluta launahækkan- anna. Hækkun framfærsluvísi- tölunnar síðan 1. júlí s.l. er nú 10%, en almennast voru launa- hækkanirnar frá 13—15%. í við- bót við þetta kemur svo. að at- vinna hefir á undanförnu ári verið meiri en áður. Þess vegna hafa raunverulegar tekjur vaxið meira en þessar tölur benda til. Að vísu eru ekki öll verðhækk- unaráhrif launahækkananma og gengislækkunarinnar enn komin fram, en sú 4% launahækkun, sem framundan er 1. júní, þarf ekki nema að litlu leyti að koma fram í verðlaginu, og verður því að mestu leyti til kjarabóta. Snúast eins og vindhanar á bust Þegar hér er komið sögu, bregður allt í einu svo kynlega við, að stjórnarandstaðan, sem fram að þessu hefir ekki viljað viðurkenna jákvæðan árangur viðreisnarinnar, vendir sínu kvæði í kross og segir, að þessi árangur sé svo mikill, að hann sýni, að ekki hafi verið þörf neinna aðgerða á s.l. sumri. Ég hefi þegar afsannað þessa staðhæfingu og gseti þó fært fram ýms fleiri töluleg rök, sem hér vinnst þó ekki tími til. En ekki get ég stillt mig um að minna á, að fyrst sögðu þessir menn, að viðreisnin hefði farið út um þúfur. Síðan, að hún væri að fara út um þúfur. Þar næst, að hún myndi fara út um þúfur, og loks nú, að hún hafi tekizt svo vel, að slíks séu engin for- dæmi í efnahagslífi íslendinga og þótt víðar væri leitað. Minna má nú gagn gera. Er nokkuð torskilið, að mað ur kjósi fremur að reyna að leysa vandamál þjóðarinnar en að standa í stöðugu karpi við þá, sem hoppa þannig og skoppa frá réttu til rangs og daglega snúast eins og vindhanar á bust. Réðumst gegn vandanum Megintilgangur allra aðgerða ríkisstjórnarinnar í efnahags- NÝLEGA var haldinn aðal- fundur Félags íslenzkra ■flugumferðastjóra. í félaginu eru 54 félagsmenn starfandi víðsvegar á landinu, fjöl- mennastir í Reykjavík og Keflavík. Jafnaðarlega getur eíkki nema helmingur félagsmanna setið fundi, þar sem helmingur félags manna er alla jafna bundinn við skyldustörf. Undir flugum- ferðastjórnina hér heyrir allt flug yfir norðanverðu Atlants- hafi, auk innanlandsflugsins, og er af þessum söku«i varðgæzla allan sólarhringinn allt árið um kring. Stjómarkjör Allsherjaratkvæðagreiðsla fer Stjórna flugi yfir N.-Atlantshafi fram innan félagsins um stjórn og trúnaðarstöður. Kosnir voru að þessu sinni Valdimar Ólafs- son formaður, Kristinn Sigurðs- son varaformaður, Árni Þor- grímsson ritari, Guðjón Ingvars son gjaldkeri og Guðni Ólafsson meðstjórnandi. Auk þess fóru fram önnur venjuleg aðalfund- arstörf. Félagið var eitt af 12 félög- um, sem stofnuðu Alþjóðasam- töli flugumferðastjóra í Amster- dam í október sl. Mikilvæg alþjóðasamtök Félagsskapur þessi hefur mörgum og mikilvægum verk- efnum að gegna. Innan vébanda hans er rætt um allar tæknileg- ar nýjungar á sviði flugumferða stjómar og flugöryggis. Haft er náið samstarf við Alþjóðasam- málunum hefir frá öndverðu verið sá, að leggja grundvöllinn að vaxandi velmegun í landmu. Vaxandi velmegun byggist á vaxandi framleiðslu. Vaxandi framleiðsla á heil'brigðu jafn- vægi 1 efnahagslífinu. Kaup- hækkanir eins og þær, setm áttu sér stað á s.l. sumri, stuðla ekki að kjarabótum fyrir einn eða neinn. Það eina. sem þær £á á- orkað, er að skapa efnahagslegt öngþveiti, verðbólgu innanlands og greiðsluhalla við önnur lönd. Með þessu móti eyðileggja þær beinlínis tækifærin til að ná bættum lífskjörum, svo framar- lega sem öf-lugar ráðstafanir eru ekki gerðar þegar í stað til þess að afstýra slíkum afleiðingum. Þegar ríkisstjórnin gerði einmitt þetta á s.l. sumri, var hún þar með að vinna fyrir hagsmuni launþega og alls almeninings í landinu. Ég hefi með þessum fáu orð- um lertt athygli að því, að nú- verandi stjómarflokkar tóku við þjóðarbúinu í rúst, að við réð- umst tafarlaust gegn vandanum með einörðum og réttum ráð- stöfunum, að á miðju síðasta ári hafði viðreisnin borið mikinn og sýnilegan árangur, þrátt fyrir ó- hagstæð ytri skilyrði, að kaup- hækkanimar, sem þá fóru fram hefðu lagt al’lt í rúst að nýju, ef ekki hefði verið að gert, og að þær ráðstafanir, sem þá .voru gerðar, hafa þegar borið ríkuleg an ávöxt, sem meðal annars má sjá af stöðugri atvinnu, stór auknu sparifé, sívaxandi gjald- eyrissjóðum, jákvæðum greiðslu jöfnuði og þeirri heillavænlegu endurreisn lánstrausts þjóðarinn ar erlendis, sem af þessu hefir leitt. Og er þá þess ógetið, að mik ill hluti þeirra yfirdráttarlána, setm tekin voru erlendis í árs- l byrjun 1960, hefir verið endur- greiddur. Merkar fyrirætlanir á prjónunum Samfara þessu hefir stjórnin fengið til meðferðar venju frem ur mörg og vandasöm viðfangs- efni, jafnt á sviði utanríkis- sem innanríkismála, sem hún hefir borið gæfu til að leysa farsæl- lega, en jafnframt beitt sér fyrir alhliða löggjöf til sóknar og varnar. Nefni ég þar til aðeins sem dæmi björgun lánasjóða landbúnaðarins frá yfirvofandi vanmætti eða jafnvel gjaldiþroti, aðstoð, við togaraflotann, heild- arendurskoðun skattalaga, marg- víslega löggjöf til að tryggja hag ríkissjóðs, margþætta og merka löggjöf á sviði dómsmála, heil- brigðismála, menntamála, félags mála, útvegsmála, landbúnaðar- mála og samgöngumála o. s. frv. Hika ég ekki við að staðhæfa, •að engin íslenzk ríkisstjóm hefir verið svipað því jafn risihá og mikilvirk í þessum efnum sem núverandi stjórn. Stjórnin hefir nú á prjónun- um merkar fyrirætlanir um nýj- •ar framkvæmdir, þ.á.m, stórvirtkj anir og stóriðju. Ber því allt að einum brunni um það að þjóðin geti vænzt góðra og batnandi lífskjara, ef hún sýnir biðlund og ber gæfu til að forðast for- tölur þeirra, sem láta annarleg sjónarmið stjórna gerðum sín- um, hvort heldur er sjúkleg valdafíkn eða þjónkun við óþjóð leg öfl. Trúi því, að við höfum borið gæfu til að gera hið rétta Stjómarandstöðuna læt ég sjálfa um að lýsa sér. „Högg, högg, högg“ æpti hv. þm., sem áðan talaði móti tómum stólum deildarinnar, nýverið. „Hefnd, hefnd, hefnd“ hrópa aðrir. Hefnd? En vfir h,verium og fyrir tök flugmanna, Alþjóðasamtöle flugfélaganna og Alþjóða flug« málastofnunina. Á þessu stofn- þingi var að sjálfsögðu fyrst og fremst rætt um lagasetningar og starfsreglur samtakanna og ýmsar starfsnefndir skipaðar til úrlausnar aðkallandi vandamál* um og munu þær skila áliti á fyrsta aðalfundi samtakanna, sem haldinn verður í París 25.—« 27. apríL FuIItrúar 30 landa Sem fyrr greinir voru stofn. lönd samtakanna tólf talsins, en gert er ráð fyrir að mörg fileiri muni nú ganga í samtökin og er gert ráð fyrir að fulltrúar fast að 30 landa mæti á aðalfund« inum. Af íslands hálfu munu þeir Valdimar Ólafsson og Árni Þor« grímsson sitja aðalfundinn. Samtökin gefa út tímarit, sem kemur út fjórum sinnum á ári og nefnist „The Controller“, enda er eitt af höfuðverkefnum samtakarma að kynna störf flugumferðarstjóra, sem almenn« ingi eru lítt kunn. hvað? Ég verð að játa, að mig hryilir við sálarástandi manna, sem svona tala, ef hugur fylgdi máli. Ég spyr: Hefir nokkur svo bölvuð stjórn nokkru sinni farið með völd á íslandi, að hún telji refsivert, að fólkið leitist við að bæta lífskjör sín, og fylltiist fyrir það heift og hefndarhug? Ég staðhæfi, að því fer víðsfjarri. Allar stjórnir hljóta fegnar að vilja bæta kjör þjóðfélagsþegn« anna. Ágreiningurinn er aðeina um getuna, og gæfumunurinn er, hvort menn finna rétt úrræði og þora að gera það, sem þjóð- inni er fyrir beztu, án bliðsjónar af stundarvinsældum, eða líta undan og lyppast niður í von um fylgisauka. Núverandi ríkisstjórn hefir ekki skort þrek til að fylgja sannfæringu sinni. Ég trúi því, að við höfum borið gæfu til að gera hið rétta og hvergi gengið lengra en nauðsynlegt var, til að bjarga þjóðinni frá yfirvofandi voða. Ég trúi því lí'ka, að miikill meiri hluti þjóðarinnar sé á sama máli. Og loks held ég, að andstæðingar okkar gangi þessa ekki duldir, og það sé einmitt þess vegna sem þeir eru nú al- ’gjörlega úr skorðum gengnir, rétt eins og efnahagslíf þjóðar- innar var, þegar þeir skildu við, í þessu ljósi bið ég háttvirta hlustendur að skoða æsingar þeirra, öfgar of rangfærslur, en jafnframt vona ég, að þjóðin veiti ríkisstjórninni brautar- gengi, — mátt og megin til að halda áfram að vinna að aukn- um skilyrðum fyrir góðum og batnandi lífskjörum allra manna í þessu landi í nútíð og framtíð. Ég lýk máli mínu með því að staðhæfa, að fái núverandi stjórn arstefna að ráða hér ríkjum muni lífskjör almennings gjör- breytast til hins betra á einuiai einasta áratug.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.