Morgunblaðið - 25.05.1962, Blaðsíða 1
Tvö blöð, 32 siður
19 Svgangur
118. tbl. — Föstudagur 25. maí 1962
Prentsmiðja MorgunblaSsia*
ÖGULE
Úttast um lif
Carpenters í tæp-
an klukkutíma
en lenti heill á Kúf i
„MÉR LÍÐUR VEL“. Þegar Malcolm Scott Carpenter sagði
jþessi orð, klukkan 20.30, eftir íslenzkum tíma í gærkvöldi,
staddur í bandarískri þyrlu 200 mílur norðaustur af Puerto
Rico, létti bandarísku þjóðinni og raunar öllum þeim
milljónum, sem fylgzt höfðu með hinni sögulegu, þriggja
hringa för hans umhverfis jörðina. Ástæðan var sú, að
ekkert hafði heyrzt frá geimfaranum frá kl. 17.41, þegar
6érfræðingar á Canaveral-höfða misstu allt samband við
geimfar hans. Þennan tæpa klukkutíma óttuðust margir að
lendingin hefði mistekizt og Carpenter týnt lífinu. — Frá
Canaveral-höfða var tilkynnt, að sjálfvirkur lofthemlaút-
fcúnaður í geimfarinu hefði brugðizt, með þeim afleiðing-
um, að 15 sekúndur liðu, þar til Carpenter gat sjálfur
kveikt á hemlaeldflaugunum. Skömmu síðar rofnaði allt
samband við geimfarið, en vegna þessara 15 sekúnda lenti
það 200 mílum frá ákvörðunarstað, eins og fyrr getur.
Þetta er í annað skipti sem Bandaríkjamönnum tekst
að skjóta á loft mönnuðu geimfari, og senda það þrjá
hringi umhverfis jörðu, og ná því aftur til jarðar.
Um tíma, er geimfarið var á annarri hringferð sinni
um jörðu, virtist sem hinda yrði enda á geimferðina. Staf-
aði þetta af eldsneytisskorti í geimfarinu. Síðar kom þó í
ljós, að öryggis vegna var hægt að senda geimfarið í þriðju
hringferðina, eins og áætlað hafði verið.
Dagur geimfarans hófst snemma
Dagur Malcolm Scott Carp-
enters hófs snemma. Hann fór
á fætur kl. 06.15, eftir ísl. tíma,
og hálftíma síðar settist hann
eð morgunverðarborði með John
Glenn, geimfara. Einnig voru
þá með honum tveir af lækn-
um þeim, sem Geimferðastofn-
un Bandaríkjanna hafði valið
sérstaklega til þess að fylgjast
með Carpenter síðustu klukku-
stundirnar, áður en geimskotið
fór fram.
Um kl. 8 1 morgun, eftir ísl.
tíma, klæddist Scott Carpenter
silfurlitum geimferðabúningi,
lem vegur um 8 kg. Kl. 8.42
lagði hann síðan af stað, í lok-
uðum bíl, frá flugskýli því, þar
sem hann hefur dvalizt undan-
farna daga, áleiðis til eldflaug-i
arstæðisins, sem er um 6 km í
burtu.
Kl. 9.48 steig hann inn £ lyftu
þá, sem flutti hann upp að efsta
hluta Atlaseldflaugarinnar, sem
bar geimfarið „Aurora 7“, en
því var komið fyrir efst í eld-
flauginni.
Kl. 9.41 sté hann inn í geim-
farið, sem er aðeins um 2.8 m á
hæð, keilulaga, og aðeins um
1.8 metrar í þvermál.
Geysilegur fjöldi mælitækja
er í geimfarinu, og því mjög
þröngt um geimfarann.
Alls leið 1 klukkustund og 17
mínútur, þar til gengið hafði
verið frá geimfarinu, og skrúf-
ur þær, sem héldu hurðinni
höfðu verið festar.
Kl. 11.25 var hafizt handa um
að dæla fljótandi súrefni, ann-
arri aðaltegund brennsluefnis
eldflaugarinnar, inn í tanka. —
Súrefnið er þá á annað hundr-
að gráðu kalt, á Celcius.
Allt reiffubúið kl. 11.35
Tíu mínútum síðar, eða kl.
11.35, var opinberlega tilkynnt,
GEIMFERD
Carpenter í getmfararbúmngnum.
að allt væri nú reiðubúið undir
geimskotið.
í>á var klukkan 6.35, að
morgni, eftir staðartíma, á
Canaveralhöfða. Carpenter var
hins vegar ekki skotið á loft
fyrr en kl. 12.45, eftir ísl. tíma
og stafaði sú töf af því, að þoka
lá yfir tilraunastöðinni, og sá
aðeins til sólar, sem eldrauðrar
kúlu, í gegn um þokuna. Þetta
olli nokkrum ótta, um að ekki
gæti orðið af geimskotinu. Hins
Framh. á bls. 3
Guðlast I Sovét*)
Jesús Kristui
vor geimfori
Fréttaskeyti til Morgun-
blaðsins frá Associated
Press, 24. mai.
KENNARI við hásikólann f
Leningrad, V. K. Zaitsev, hef
ur lýst því yfir, í fyrirlestr-
um sínuon, að Jesús Kristur
hafi verið geimfari, sem kom
ið hafi frá öðrum heimi.
Jafnfnamt hefur Zaitsev lýst
því yfir, að heilög þrenning
hafi í raun og veru verið á-
höfn geimfans, sem lent hafi
á jörðinni. Jesús Kristur hafi
verið læknir geimfarsins.
Haft er eftir háskólakenn-
aranum, að Jesús Kristur og
aðrir geimfarar, hafi verið
hlynntir þjóðfélagsframför-
um, á þeim tímum, er þau
mál voru skammt á veg kom
in.
Jafnframt lýsir Zaitsev þvi
yfir, að hann trúi á uppris-
una og uppstigninguna, sem
séu sögulegar staðreynd-
ir, en uppstigningin hafi átt
sér stað í geimfari.
Blaðið Pravda í Leningrad
gagnrýnir Zaitsev, á þeim
gruradvelli, að hann van-
meti gáfur og Skilning
manna, og ásakar hann fyrir
að hafa reynt að leggja „vís-
indalegan gruradvöll" að ein
hverri „fáráralegustu frásögn,
sem um getur í biblíunni.“
Lægst launaðir verkamenn fá mestar
KJARABÆTUR
Samkomulag Dagsbrúnar og vinnuveitenda um 6.5
— 9% kauphækkun og tilfærslur milli flokka
Á FUNDUM Vinnuveitenda-
sambandsins og Verkamanna
félagsins Dagsbrúnar í gær
var samþykkt samkomulag,
sem samninganefndir höfðu
gert um nýja kjarasamninga,
en samningaviðræður hafa
staðið að undanförnu, þar
sem hliðsjón var höfð af
þeirri ósk ríkisstjórnarinnar,
að reynt yrði að bæta mest
kjör þeirra verkamanna,
sem lægst laun hafa haft.
Meginatriði samninganna
eru þau, að lægsti taxti
hækkar um 9,06%, annar um
8,53%, þriðji um 8,14% og
síðan minna niður í 6,54%.
Kauphækkunin, 4%, sem
sjálfkrafa átti að koma til
framkvæmda 1. júní, er inni-
falin í hækkuninni. Þá er
einnig nokkur tilfærsla til
hækkunar milli flokka.
Samningurinn gildir til
15. nóv. n.k., og er þá upp-
segjanlegur með eins mán-
aðar fyrirvara, en fram-
lengist sjálfkrafa um sex
mánuði í senn, ef honum
verður ekki sagt upp.
Kaupgjaldsákvæðum samn-
ingsins má þó segja upp með
eins mánaðar fyrirvara hve-
nær sem er til 15. nóv., ef
vísitala framfærslukostnað-
ar hækkar um fimm stig eða
meira, eða um sjö stig eða
meira til 15. maí 1963.
Réiknað er með, að mán-
aðarkauptaxtar hækki hlut-
fallslega við tilsvarandi tíma
kaup. Þá er einnig reiknað
með, að aðrir viðsemjendur
Dagsbrúnar gangi inn í samn
ing þennan eða geri hlið-
stæða samninga.
Taxtar fyrir dagvinnukaup í
verkamannavinnu skv. hinu
nýja samkomulagi verða sem
hér segir:
1. taxti: Kr. 24.80 fyrir al-
menna verkamannavinnu, ó-
talda annars staðar.
2. taxti: Kr. 25.20 fyrir verka-
menn í uppskipunarvinnu,
steypuvinnu, hjálparvinnu í
ýmiss konar iðnaði o. fl.
3. taxti: Kr. 25.50 fyrir stúfun
á fylltum tunnum í lest, bif-
reiðastjórn o. fl.
4. taxti: Kr. 26.20 fyrir vinnu
við loftþrýstitæki o. fl.
5. taxti: Kr. 26.60 fyrir kola-
og saltvinnu, slippvinnu og
vinnu í frystiklefum, enda
standi hún yfir í fjórar
klukkustundir samfleytt.
6. taxti: Kr. 28.00 fyrir stjórn
stórra vörubifreiða o. fl.
7. taxti: Kr. 29.00 fyrir sements
vinnu, uppskipun á saltfiski,
löndun síldar og ísun síldar
í skip, vinnu við kalk, krít
leir o. fl.
8. taxti: Kr. 30.00 -fyrir ryð-
hreinsun með rafmagnstækj-
um, botnhreinsun skipa inn-
anborðs, stjórn á ýtum, vél-
skóflum, kranabílum, stór-
virkum flutningatækjum og
fleira.
9. taxti: Kr. 33.50 fyrir katla-
og boxavinnu.