Morgunblaðið - 03.07.1962, Síða 8
8
MORGVNBLAÐIÐ
Þirðjudagur 3.- júlí 1962
— // bjargast
Framh. af bls. 1
Friðrik Sigurðsson, 42 ára,
Sandgerði, II vélstjóri Tó'mas
Þórhallsson, 24 ára, Reykja-
vík, matsveinn Jón Þórir
Gunnarsson, 38 ára, Reykja-
vi!k og hásetar Georg Georgs-
son, 36 ára, Reykjavík, Bjöm
Ragnarsson, 22 ára, Sauðlár-
króki, Erling Guðmundsson,
20 ára, Sauðárkróki, Guð-
mundur Friðriksson, 16 ára,
Sandgerði, Gísli Ólafsson, 16
ára, Sandgerði, og Sigurður
Jónsson, 32 ára, Keflavík.
Fréttamaður Mbl. átti í gær
tal við Eðvald Eyjólfsson,
stýrimann, en hann var í brú
bátsins er óhappið vildi til.
Sagðist Eðvald svo frá þessari
einsteeðu ferð þeirra félaga:
SÁU NIÐUR 1 SJÓINN UM
BRÚARGLU GGANA.
— Það var um fjögurleytið
síðdegis á laugardag að við
lögðum upp frá Reykjavík.
Ætluðum við vestur fyrir Jök
ul og.norður um á miðin. Vind
ur var af suðvestri, 6—7 vind-
stig og nokkur alda.
— Klukkan rúmlega 9 um
kvöldið vorum við staddir um
30 sjómílur suðaustur af Jökli.
Ég var þá í brúnni og háseti
við stýrið, og höfðu vakta-
skipti farið fram klukfcan 9.
Tveir hásetar voru frammi í
lúkar, en í káetu var 1. vél-
stjóri. Hinir voru aftur í bocð
sal.
— Síðan gerðist það að skip
ið hallaði skyndilega undan
ernni öldunni og tók sjó inn í
ganginn stjórnborðsmegin. Á
næstu báru fór skipið alveg á
hliðina. Við slógum strax af
við fyrri báruna, ag skipstjóri
kom fram í brú þegar í stað.
Var skipinu snúið undan og
reynt að rétta það með stýr-
inu en það virtist efckert
gagna,, enda lagðist það á
möstrin um leið, svo að við
sáum niður í sjóinn um glugg
ana stjórnborðsmegin.
KAFAÐI EFTIR BÁTNUM.
— Skipstjórinn kallaði
strax að bátinn yrði að hafa
tilbúinn. Lá skipið þá á hlið-
inni með gluggana á brúnni í
kafi stjórnborðsmegin en bak
borðsgluggarnir vissu beint
upp í loftið. Fór skipstjóri
upp um hurðina og ég á eftir.
— Virtist akkur strax að
eina vonin til bjargar yæri að
koma bátnum út. Báturinn
var staðsettur á þaki stýris-
hússins, stjórnborðsmegin, og
var á kafi í sjó. Var bátur-
inn í trékistu, sem fest var
Eðvald Eyjólfsson, stýrimaður.
við þakið en á henni var lok,
fest með höndum. Skipstjóri
kafaði eftir bátnum og tófcst
að opna kistuna. Plaut bátur-
inn þá strax upp, og var þá
tekið í línuna ti'l að blása hann
upp.
FLESTIR FÁKLÆDDIR.
— Hásetarnir tveir, sem
voru frammí gengu eftir síðu
skipsins afturá, svo miikill var
hallinn. Var talsvert bras við
gúmmíbátinn, en afturmastr-
ið og loftnetsvírinn slógust í
hann og áttum við mjög erfitt
með að halda bátnum frá. Ég
stökk út í bátinn af aftur-
mastrinu og komst nokkurn-
veginn þurr. 1. vélstjóri flækt
ist um stund í nótinni, en
losnaði aftur. Var hann með
bjarghring utan um sig, og
var sá eini afckar, sem hafði
tíma til þess að ná í lífbelti.
Flestir voru fáklæddir, 1. vél-
stjóri á skyrtu og nærbuxum,
skipstjóri á nærklæðum, flest-
ir skólausir og aðeins einn í
stígvélum.
— Mjög erfitt var að ná
bátnum frá skipinu, en við
sáum brátt að nótin hafði
losnað og komin spölkorn frá
skipinu. Sáum við brjóstlínu
frá nótinni, gátum náð í hana
og halað okfcur frá sökkvandi
Skipinu. Síldardekkið flaut allt
út og við náðum tveimur þil-
farsborðum, sem við notuðum
í stað ára, og kom það sér
vel síðar.
— Nokfcuð þröngt var um
okkur í bátnum, sem er gerð-
ur fyrir 10 menn. Lofcuðum
við honum strax öðru megin,
en frá hinni hliðinni sá ég skip
ið sökkva Skömmu síðar. Við
héldum bátnum undan þar tU.
Skipið sökk, en það mun hafa
verið 10 mínútum eftir að við
fórum í bátinn. Var síðan
látið reka og notuðum við
spýturnar til þess að snúa
undan veðrinu alla nóttina.
Það var kuldi og bleyta í
bátnum og menn urðu sjó-
veikir, sem tilheyrir víst þess-
um gúmmíbátufh.
15. KLST. Á REKI.
— Við gerðum upphaflega
ráð fyrir að við yrðum ekki
nema 4—5 klst. að reka upp
að landi, en þær urðu 15. Um
klukkan átta á sunnudags-
morguninn fórum við að grilla
í lánd. Við vissum að framund
an voru Mýrarnar með öllum
sínum skerjum og grynning
um, og þegar við nálguðumst
þær skutum við öðru svif-
blysinu af tveimur, sem í bátn
um voru.
— Við tókum land í Hvals
eyjum nokkru fyrir klukkan
eitt á sunnudag. Þegar við
nálguðumst eyjarnar var þar
talsvert um grunnbrot. Þurft-
um við að róa fyrir eitt brot-
ið og hefðum sennilega lent í
því ef ekki hefði verið fyrir
spýturnar góðu. Þegar við
komum framhjá þessum brot-
um sáum við ví'k, sem virtist
sæmileg til landtöku, og á-
kváðum að fara í land þar en
halda ekki áfram. Tókst land
takan ágætlega.
— Ekkert mannvirki var á
eyju þessari og hún algjörlega
í eyði. (Hér mun sennilega
átt við stærstu eyna í Hvals-
eyjum, Húsey-innskot Mbl.)
Reiknaðist mér til að eyjan
væri á stærð við Örfirisey.
BÁL KVEIKT, BLYSUM
SKOTIÐ.
' — Fyrsta verk okkar var
að safna saman rekaviði og
kveikja bál. Notuðum við tvö
blys til að kveikja í kestin-
um, sem logaði í 5—6 klst.
Bárum við þara og gras á
eldinn til þess að sem mestan
reyk legði af honum. Þá fund
um við bambijsstöng festum
veifu úr gúmmíbátnum á
hana og reistum síðan stöng-
ina. Bátinn settum við á áber
andi stað rétt hjá stönginni.
Undir kvöld skutum við síð-
ara svifblysinu, en allt kom
fyrir ekki.
— Seint um kvöldið vorum
við vissir um að enginn hefði
tekið eftir okkur. Voru það
okkur vonbrigði því við sáum
bæinn að Ökrum og kirkjuna,
bílaumferð í landi og tvær
flugvélar hátt í lofti. Reynd-
um við m.a. að gefa merlki til
flugvélanna og lands með
sólspegli.
SEX MENN RERU f LAND.
— Þegar leið á daginn gerði
stinningskalda af norðri.
Fluttum við okkur þá ofar í
eyna og hagræddum okkur
sem bezt við gátum. Um 10-
leytið um kvöldið fór að lygna
og var komið logn um klukk-
an 10:30. Fórum við þá að
ræða um hvað bezt væri að
gera og ákváðum að sex menn
skyldu freista þess að róa til
lands í gúmmíbátnum, skip-
stjóri, ég, báðir vélstjórarnir,
matsveinninn og einn háseti.
Skyldu fjórir róa en tveir
leysa af. Fundum við tvær
heppilegar spýtur til að róa
með og höfðum þær með auk
þilfarsborðanna. Áður en við
lögðum af stað skárum við flot
púðana neðan af gúmmíbátn-
um og tókum loftflöskuna úr
slíðrum, til þess að auðveld-
ara yrði að róa bátnum. —
Róðurinn til lands gekk á-
gætlega,, og vorum við um
tvær klukkustundir að fara
þessar sex mílur. Lentum við
í vík beint fyrir neðan Afcra,
og gekk lendingin ágætlega.
Þarna var nokkur alda og ein
báran henti akkur skemmti-
lega 10—15 metra áfram, lang
leiðina upp í fjöru, rétt eins
og maður væri að sigla á
öldum á Hawaii. Síðan geng- •
um við upp að bænum. Fór
ég fyrstur þar sem ég hafði
skóræfla á fótum, og hinir
fcomu rétt á eftir.
Allir voru í fasta svefni, en
bóndinn, Ólafur Þórðarson,
kom til dyra. Sagði ég honum
að við værum skipbrotsmenn
af skipi, sem hefði farist úti
í bugtinni nóttina áður og
fimm aðrir væru í Hvalseyj-
um. Bóndi sagði að hann ætti
árabát en treysti honum ekki
til að fara í eyna. Hringdi
hann síðan á næstu bæi ag lét
slysavarnafélagið vita hvern-
ig komið væri. Síðan fór hann
með okkur á næsta bæ, Afcra
III. Fengum við hinar beztu
móttökur þar. Var síðan
hringt til Helga Gíslasonar
bónda á Tröðum, og fór hann
á báti og sótti þá, sem eftir
urðu í eynni, og fór með þá
heim að Tröðum. Við lögð-
um okkur eftir að hafa fengið
hressingu og sváfum til klukk
an sex um morguninn, en þá
kom bíll frá Þórði Þ. Þórðar-
syni á Akranesi og flutti okfc-
ur til Reykjavíkur. Hafði út-
gerðin sent bílinn jafnskjótt
og kunnugt varð um atburð
inn..
— Mér finnst það undur-
samlegt, hvernig við sluppum
frá þessu öllu, en okkur finnst
að útbúa þyrfti þessa gúmmí-
báta mieð litlum árum og um,-
fram allt talstöð. Óhugsandi
var að komast í talstöðina er
skipið sökk og ef vindur hefði
staðið af landi, hefði okkur
rekið til hafs, og engin leið
pr að segja hvenær það hefði
uppgötvast að skipið var ekki
lengur ofansjávar, sagði Eð-
vald stýrimaður að lofcum.
Hamar GK 32 á slgllngu.
Lítil síldveiði um helgina
BRÆLA VAR á síldveiðimiðun-
um um helgina og lítil sem eng-
in veiði. Sjö skip fengu góða
veiði á sunnudagsmorgun 10—12
mílur út af Kögri (undan Héraðs
flóa), alls rúm 3.000 mál. í gær-
dag var enn bræla, en gott veð-
urútlit undir kvöld. Voru bátarn
ir að byrja að kasta á ellefta tím
anum, bæði fyrir austan og á
vestursvæðinu. Fyrir vestan hafði
Gunnhildur ÍS fengið 4—500
tunnur. Veiðihorfur voru óvissar
á báðum svæðunum, en menn
voru bjartsýnir vegna góða veð
ursins.
Sæmilegar horfur.
Raufarhöfn, 2. júlí. — Bát-
arnir eru að byrja að kasta nú
bæði vestur við Horn og undan
Kögri. Veðrið er að batna og
lítur sæmilega út um veiði. Verk-
smiðjan fór í gang í dag, eru um
5000 mál komin í hana. —E.J.
BREIÐHRÐINSABUD
Gömlu dansarnir
eru í kvöld kl. 9
Hljómsveit Þorsteins EiriKssonar
Dansstjóri: Helgi Eysteinsson
Ókeypis aðgangur.
BREIDFIRÐINGABÚÐ — Sími 17985.
f
f
T
f
f
Y
f
I
I
«■ >
Síld til Vopnafjarðar — verk-
smiðjan að komast í gang.
Vopnafirði, 2. júlí. — Síldar
löndun hófst hér á Vopnafirði
kvöldið 30. júpí. Þá kom Víðir
II. með 678 mál. Aðfaranótt 1.
júlí kom svo Guðrún Þorkels-
dóttir með 292 mál, og næsta dag
kom Helga RE með 524 mál. Síð-
an hefur ekki verið veiðiveður,
en norðanáttin er farin að ganga
niður. Ekki er þó komið veiði-
veður enn. Síldarleitin telur, að
helmingur veiðiflotans sé nú á
austursvæðinu. Talið er, að þar
sé um töluverða síld að ræða, og
veiðihorfur því góðar, þegar veð
ur lægir.
Undirbúningi síldarverksmiðj-
unnar er nú að verða lokið, og
áætlað er að hefja vinnslu á
miðvikudag eða fimmtudag. Ver
ið er að byggja lýsisgeými hér,
og væri því verki lokið, ef járn
smiðaverkfallið hefði ekki skoll
ið á. Er nú unnið í vöktum að því
verki. Bryggjusmíðinni lýkur í
þessari viku. Talið er að löndun
arkraninn, sem á setja á þá
bryggju, verði kominn upp um
miðjan júlí — Sigurjón.
Síld til Neskaupstaðar.
Neskaupstað, 30. júní. —
Um hádegisbilið barst fyyrsta
síldin hingað til Neskaupstaðar.
Gullfaxi NK 6 kom inn með um
1400 mál, sem veiddist. fyrir aust
an. Aflinn fer í bræðslu, en um
100 tunnur í frystingu. Löndun
hefst seinna í dag.
Verið er að leggja síðustu hönd
á breytingar þær, er gerðar hafa
verið á löndunarútbúnaði í verk-
smiðjunni. Búizt er við, að
bræðsla geti hafizt með fullum
afköstum á mánudag.
— Fréttaritari.
Fyrsta síldin til Eskifjarðar.
Eskifirði, 30. júní. — Fyrsta
síldin á sumrinu barst hingað í
dag. Víðir SU kom hingað með
um 900 tunnur, sem hann fékk
út af Bjarnarey. Eitthvað af síld
inni fór í frystingu, annað í
bræðslu. — G.W,
Balling kominn -
kvikmyndataka
að hef jast
JDANSKI kvifcmyndatökiumaður-
inn Erik Baliing, var væntanleg-
ur tiil landsins seint í gærfcvöldi,
ásamt hópi fcvikmyndagerðar-
manna, en hann ætlar sem fcunn-
ugt er að tafca hér kvifcmynd
sem byiggð yerður á sögu Indriða
G. Þorsteinssonar „79 af stöð-
inni“.
Myndin er tekin í samvinnu
við Edda film ag leika í henni
íslenzkir leikarar. í aðaihlut-
verkum verða Gunnar Eyjólfs-
son, Kristbjörg Kjeld Og Róbert
Arnfinnssan, en Benedifct Árna-
son verður aðstoðarleikstjóri.
Guðlaugur Rósinfcrans gerði
handritið. Tæfcnilega hliðin á
kvikmyndag.e.rðin ni verður unn-
in af dönsfcum kvifcmyndagerð-
armönnum.
Myndin verður tekin í Reykja-
vík, Hvalfirði, Skagafirði, Kefla-
vífcurflugvelli, og er ætlunin a3
henni verði lafcið í ágústlok.